Fréttablaðið - 20.07.2006, Qupperneq 12
12 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
NÝSJÁLENSKUR FRUMBYGGI Þessi maóría-
kona dansaði á opnunarhátíð ráðstefnu
um efnahagsleg tækifæri frumbyggja í
Sydney í Ástralíu, sem haldin var á dögun-
um. NORDICPHOTOS/AFP
NEPAL, AP Nýsjálendingurinn Mark
Inglis varð í maí fyrsti maður
heims til að ganga á tind Everest á
tveimur gervifótum og hlaut hann
heimsfrægð fyrir.
En nú hefur komið fram að
hann, auk um fjörutíu annarra
fjallafara, gekk framhjá deyjandi
manni og skildi hann eftir þó aug-
ljóst hlyti að vera í hvað stefndi,
enda var nærri 40 stiga frost á
tindinum.
Hinn 34 ára gamli David Sharp
sat kalinn í snjónum og tilkynnti
þeim sem stoppuðu nafn sitt og
með hverjum hann ferðaðist, og
sagðist síðan vilja „bara sofa“.
Ferðafélagar hans segja hann hafa
gefist upp á ferðinni og haldið
einn til baka á meðan hinir héldu
áfram upp.
Hann var kalinn á höndum upp
að olnbogum og á fótum upp að
hnjám og nef hans og kinnar voru
svört af kali þegar Inglis kom að
honum, samkvæmt fréttavef
danska blaðsins Politiken.
Inglis hefur verið sakaður um
að hafa ekki brugðist við. Upphaf-
lega sagðist hann hafa kallað eftir
hjálp í gegnum talstöð, en sá sem
hann á að hafa kallað til segir
Inglis fara með ósannindi.
Ellefu manns fórust á Everest í
vor, sem gerði það mannskæðasta
vorið frá árinu 1996. - smk
Fjörutíu Everest-farar sem gengu á hæsta tind heims í vor:
Yfirgáfu deyjandi mann
MARK INGLIS Hlaut heimsfrægð fyrir að
verða fyrsti fótalausi maðurinn til að klífa
Everest. Hann og fjörutíu aðrir gengu fram-
hjá deyjandi manni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ármúla 44, sími 553 2035
Eikarhúsgögn
Quba Eikarhúsgögn
borð 131.390
stóll 30.210
skenkur 153.330
skápur 178.130
sjónvarpsskápur 78.330
7 eikarlitir
Framleitt í Belgíu
Hagstæðustu kaupin
Hinn eini sanni íslenski DALA FETA nú fáanlegur
á TVENNUTILBOÐI
í næstu verslun.
Einnig með tómötum og olífum!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
SEÚL, AP Spennan milli Norður- og
Suður-Kóreu vex með degi hverj-
um. Roh Moo-hyun, forseti Suður-
Kóreu, fordæmdi í gær harðlega
tilraunir Norður-Kóreumanna
með flugskeyti og sagði þær geta
leitt af sér vopnakapphlaup, sem
gagnaðist engum.
Jafnframt varaði hann önnur
ríki við því að bregðast of harka-
lega við framferði Norður-
Kóreumanna og auka þar með enn
á spennuna í þessum heimshluta.
Hann nefndi engin ríki á nafn, en
hefur áður gagnrýnt Japana fyrir
að ætla hugsanlega að bregðast
við tilraunum Norður-Kóreu með
því að gera fyrirbyggjandi árás á
skotstaði tilrauneldflauganna í
Norður-Kóreu.
Fjölmiðlar í Japan héldu því
fram í gær að japönsk stjórnvöld
ætluðu um miðjan ágúst að hefja
einhliða refsiaðgerðir gegn
Norður-Kóreu, sem yrðu efna-
hagslegar refsiaðgerðir og fælust
í því að inneignir Norður-Kóreu í
japönskum bönkum yrðu frystar
og flutningur fjármagns milli
landanna bannaður.
Junichiro Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans, sagði þó í gær
að Japönum lægi ekkert á að taka
ákvarðanir um refsiaðgerðir.
Fyrst verði beðið eftir frekari
viðbrögðum frá Norður-Kóreu.
Norður-Kóreumenn stöðvuðu í
gær allar heimsóknir Suður-
Kóreumanna til ættingja sinna í
Norður-Kóreu, í það minnsta
tímabundið. Þessar heimsóknir
hófust fyrir nokkrum árum þegar
samskipti ríkjanna bötnuðu, en
þessi ákvörðun þykir greinilegt
merki um það hve spennan milli
þeirra er mikil núna.
Tilkynning um þetta barst í
gær, í beinu framhaldi af því að
Suður-Kóreumenn neituðu í síð-
ustu viku að ræða mannúðar-
aðstoð við Norður-Kóreu fyrr en
einhver lausn fyndist á deilunni
um flugskeytatilraunir Norður-
Kóreumanna. gudsteinn@frettabladid.is
Spenna eykst
á Kóreuskaga
Samskipti milli Norður- og Suður-Kóreu versna dag
frá degi vegna deilunnar um flugskeytatilraunir
Norður-Kóreumanna. Japanar bíða hins vegar átekta.
MÓTMÆLI Í SUÐUR-KÓREU Þessi Suður-Kóreumaður kveikti í gær í fána Norður-Kóreu fyrir
framan utanríkisráðuneytið í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SAMÖNGUR Stýrihópur hefur verið
skipaður sem vinna á að forathugun
á hönnun hafnar í Bakkafjöru og for-
hönnun hennar eftir atvikum. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
skipaði hópinn í samræmi við niður-
stöðu skýrslu starfshóps um sam-
göngur við Vestmannaeyjar. Þar er
lögð til frekari könnun á ferju milli
Heimaeyjar og Bakkafjöru sem
verði meginsamgönguæð milli lands
og Eyja.
Miðað er við að stýrihópurinn
taki strax til starfa og geri tímaáætl-
un um verkið. Ef jákvæðar niður-
stöður fást úr forathuguninni mun
ný ferja hefja siglingar árið 2010.
Ferjuhöfn í Bakkafjöru:
Ráðherra skip-
ar stýrihóp