Fréttablaðið - 20.07.2006, Page 35
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 9
Nýr DVD diskur með öllum æfingunumfylgir með RopeYoga æfingatækjum.
Við þurfum að borða meiri fisk, Íslendingar, drekka meira ferskt
vatn, borða meira skyr. Við kunnum ekki nógu vel að meta það sem
við höfum. Við látum kalda vatnið til dæmis renna endalaust til að
kæla það eða bara af því við gleymum að skrúfa fyrir. Kannski vegna
þess að við teljum okkur eiga nóg af því eða spáum við bara ekkert í
það! Ein frönsk húsmóðir sem ég dvaldi hjá í Nice í Frakklandi missti
sig alveg þegar ég, í einfeldni minni, lét kranavatnið renna til að kæla
það aðeins. Hún baðaði út höndum í allar áttir og sagði eitthvað mjög
hátt og hratt með örvæntingarsvip um leið og hún stökk að vaskinum
til að skrúfa fyrir! Hún kunni að meta hvern dropa, kannski af því
hún þurfti að borga fyrir hann. En hún vissi að minnsta kost að hann
var einhvers virði.
Hvar liggja lífsgæðin?
Við kunnum oft ekki að meta fyrirbærin fyrr en við finnum fyrir
skorti, hvort sem það er fiskurinn, ferska lindarvatnið, óafturkræf
náttúra, heilsan eða maki okkar. Það er pínulítið sorglegt. Leiðum
þess vegna hugann að því, ef ákveðið fyrirbæri væri ekki til. Það er
vond tilfinning, ekki satt? Þegar maður kann að meta það sem maður
hefur, færist yfir mann ákveðin hugarró, þakklæti og aukin ánægja
með lífið, sem gefur lífinu meira gildi en nýtt plasmasjónvarp eða
heimabíó. Taktu þér stund og líttu aðeins yfir líf þitt. Og vittu til, að
það sem þú þakkar fyrst fyrir eru ekki veraldlegir hlutir, eins og bíll-
inn þinn, iPod--inn eða sumarbústaðurinn þó svo þeir geti allir verið
mikilvægir hlutir fyrir þig. Við þökkum fyrst fyrir fólkið í kringum
okkur, vináttuna, náttúruna, heilsuna eða fleira í þeim dúr, ekki satt?
Þar liggja lífsgæðin.
Að líta á heildarmyndina
Mig langaði bara til að velta þessu fyrir mér með ykkur, því ég þarf
ekki síður en aðrir að minna mig á þessa hluti til að lifa við góða and-
lega heilsu. Það er svo auðvelt að tapa sér yfir smáatriðunum og sjá
ekki heildarmyndina. Þrasa um veðrið (sem ég hef reyndar alveg
misst mig í síðustu daga) eða annað sem við fáum ekki breytt. Í smá-
atriðunum liggja aðeins efasemdirnar og óuppbyggjandi gagnrýni en
í heildarmyndinni liggja framfarir, hugrænt jafnvægi og sýn á það
sem máli skiptir.
Kær kveðja,
Borghildur
Takk fyrir
UNDIRRITAÐUR HEFUR VERIÐ
STYRKTARSAMNINGUR MILLI
REYKJAVÍKURMARAÞONS, ASICS OG
CINTAMANI.
Með þessum
samningi verður
íþróttavöru-
framleiðandinn
Asics einn
af stærstu
bakhjörlum
Reykjavíkur-
maraþons og
Cintamani, úti-
vistarfatnaður,
helsti bakhjarl
Laugavegs-
hlaupsins.
Asics og Cinta-
mani verða
einu fyrirtækin á hvoru sviði fyrir sig
sem Reykjarvíkurmaraþon vinnur
með á samningstímanum, en hann er
frá árinu 2006-2008. Asics og Cinta-
mani styrkja Reykjavíkurmaraþonið
og Laugavegshlaupið með beinum
fjárframlögum og leggur einnig til
klæðnað á um 300 starfsmenn og
gjafabréf fyrir keppendur.
Fyrirtæki
styrkja hlaup
Cintamani, sem fram-
leiðir útivistarfatnað,
verður helsti bakhjarl
Laugavegshlaupsins
til 2008.
Ný lausn fyrir þá sem vilja
hætta að reykja.
Allt er til í Bandaríkjunum og það
nýjasta í nikótínlyfjabransanum er
drykkur sem kallast Nic Lite. Um
er að ræða drykkjarvatn á flöskum
með nikótíni sem reykingamenn
geta notað í staðinn fyrir nikótín-
tyggjó eða plástur til að venja sig
af reykingafíkninni.
Vatnið, sem er með sítrónu-
bragði, er eina nikótínlyfið á mark-
aðnum sem hægt er að drekka og
ætlunin er að selja það á stöðum
þar sem reykingar eru bannaðar
eins og í flugvélum og á veitinga-
stöðum og kaffihúsum.
Hvort nikótínvatnið verði sett í
sölu á Íslandi er óvíst en eins og
allir aðrir skrítnir hlutir er það til
sölu á eBay.
Nikotínbætt vatn
Það getur verið erfitt að venja sig af nikótínfíkninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Fyrirtækið Afreksvörur hefur
tekið við umboði fyrir New Bal-
ance-hlaupaskó á Íslandi.
„Eitt af því sem einkennir New
Balance-hlaupaskóna er að þeir
eru framleiddir í mismun-
andi breiddum og eru auk
þess með N-Lock, sem
gefur skónum möguleika
á að laga sig að fætinum.
Þeir henta alveg jafnt
áhuga- sem atvinnu-
mönnum,“ segir
Helgi Kr. Jakobs-
son hjá Afreksvör-
um spurður út í
eiginleika New Bal-
ance-skónna.
Sögu New Bal-
ance-fyrirtæk-
isins má rekja
allt aftur til
ársins 1906, en það byggði í fyrstu
á að framleiða bæklunarskóbúnað.
Á sjötta áratugnum hóf það að nýta
tækni sína til smíði á íþróttaskóm
og varð strax þekkt fyrir nýjungar
og sérhæfingu. Árið 1961 setti það
á markað skóna Trackster sem
voru fyrstu hlaupaskórnir sem
framleiddir voru með riffluðum
sóla og í mörgum breiddum. Enn í
dag það er eitt af einkennum New
Balance því engir aðrir skófram-
leiðendur bjóða upp á breiddir í
sérhæfðum hlaupaskóm. Síðustu
ár hefur vöxtur New Balance verið
gríðarlegur í kjölfar útlitsbreyt-
inga, en þeir sem koma að fram-
leiðslunni eru læknar, sjúkraþjálf-
arar, íþróttamenn og
útlitshönnuðir.
Helgi rifjar upp að heimsmethaf-
inn í maraþoni árið 1999, Khalid
Khannouchi, hafi hlaupið í New
Balance Rc110. Nýrri fréttir herma
að New Balance 1060 skórnir hafi
fengið hæstu mögulega einkunn í
könnun sem Aftenposten í Nor-
egi stóð fyrir og að alheims-
samtök fótasérfræðinga mæli
með þeim. „Ráðamenn New Bal-
ance vita að engin ein tækni nýtist
öllum og demparakerfið tekur mið
af því,“ útskýrir Helgi og bætir við
að einn af kostum New Balance-
skónna sé að þeir séu framleiddir í
Bandaríkjunum og Bretlandi þar
sem vafasamir framleiðsluhættir
eins og barnaþrælkun viðgangist
ekki.
Laga sig að fótum hvers og eins
New Balance 766BK eru léttir
á fæti og styðja vel við.
1221 skórnir eru stolt New Balance. Háþró-
að dempunar- og stuðningskerfi sameinar
allt það sem hlauparar sækjast eftir.
New Balance 1060 skórnir henta öllum
og einnig þeim sem ganga gjarnan á
jarkanum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Sa
m
kv
. d
ag
bó
ka
rk
ön
nu
n
G
al
lu
p
ap
ríl
2
00
6.
■ Veldu bursta með
stífum hárum sem þó
eru mjúk. Nælonburstar
eru góðir því þeir endast
lengur og særa ekki tann-
holdið.
■ Lítill bursti er betri en
stór, veldu bursta með litlu
höfði því hann nær inn í öll skúmaskot.
■ Það hefur ekki verið sannað að
rafmagnstannburstar séu betri en
venjulegir tannburstar. Þeir
eru hins vegar mjög góðir
t.d. fyrir þá sem eru með
spangir.
■ Skiptu um tannbursta
ekki sjaldnar en á þriggja
mánaða fresti. Ef þú hefur
verið með tannpínu eða
sýkingu í munni er nauðsynlegt að
skipta um bursta svo bakteríurnar nái
ekki að grassera.
Að velja tannbursta