Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 67
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006
FÓTBOLTI Davíð Þór Viðarsson, leik-
maður FH, gæti verið á leiðinni til
sænska úrvalsdeildarliðsins Häck-
en. Davíð fór og skoðaði aðstæður
hjá liðinu í síðustu viku og leist
mjög vel á félagið. Sænska liðið
hefur sett sig í samband við FH en
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar FH, Pétur Stephensen,
sagði við Fréttablaðið í gær að
Davíð færi alls ekki frá liðinu
fyrir lok tímabilsins á Íslandi.
„Þetta er flott félag og ég get
vel hugsað mér að semja við það
ef allt gengur upp. Ég held að liðin
séu að ræða saman en ég er á
samningi hjá FH. Häcken vildi fá
mig helst í gær en samningarnir
við FH snúast líklega um tíma-
setningu og peninga,“ sagði Davíð,
sem hefur hug á því að komast
aftur í atvinnumennskuna.
Davíð fór til Lokeren í Belgíu í
byrjun febrúar en kom aftur til
Íslands og samdi við FH út sumarið.
„Ég hef mikinn hug á því að komast
aftur út, ekki það að ég sé að drífa
mig en það væri gaman að komast
aftur í atvinnumennskuna,“ sagði
Davíð, sem gæti farið í sænsku
úrvalsdeildina fyrr en varir. - hþh
Davíð Þór Viðarsson:
Gæti samið
við Häcken
DAVÍÐ ÞÓR Er hér í baráttunni í leik FH og
KR í Landsbankadeild karla á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Streita og kví›i, skyndibita-
fæ›i, sætindi, stopular
máltí›ir – allt þetta dregur
úr innri styrk og einbeitingu,
veldur þróttleysi og getur
raska› bæ›i ónæmis-
kerfinu og meltingunni.
LGG+ er sérstaklega þróa› til
a› vinna gegn þessum
neikvæ›u áhrifum og
dagleg neysla þess tryggir
fulla virkni.
Er miki› álag
í skólanum?
LGG+ er
fyrirbyggjandi vörn!
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH eru
komnir í aðra umferð í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu eftir 1-1
jafntefli gegn eistnesku meistur-
unum í TVMK Tallinn á heima-
velli sínum í gær. FH vann fyrri
leikinn ytra 3-2 og úrslitin því
samtals 4-3 fyrir FH, sem mun
því takast á við Legia Varsjá frá
Póllandi í annarri umferð.
Það voru gestirnir frá Eist-
landi sem fengu fyrsta hættulega
færið í leiknum í gær en Daði
Lárusson, markvörður FH, varði
vel í horn eftir skalla frá sóknar-
manni þeirra. Sigurvin Ólafsson
var einn besti leikmaður FH og
fékk hann tvö bestu færi liðsins í
fyrri hálfleiknum. Í fyrra skiptið
átti hann hörkuskot sem mark-
vörðurinn Vitali Teles varði og þá
átti hann ágætis skalla en aftur
var Teles vandanum vaxinn í
markinu.
Leikmenn TVMK Tallinn spil-
uðu boltanum ágætlega á milli
sín og sýndu að þeir eru fínasta
fótboltalið með Kert Haavistu,
hægri kantmann, sem sinn hættu-
legasta mann. Oft á tíðum náðu
þeir að skapa töluverðan usla
uppi við mark FH í fyrri hálf-
leiknum en þegar kom að því að
reka smiðshöggið rann allt út í
sandinn. Þeir fengu til að mynda
gott færi um miðjan hálfleikinn
en skotið var slappt og sigldi
framhjá og þá bjargaði Ármann
Smári Björnsson nánast á mark-
línu skömmu fyrir leikhlé.
Þegar tæpar tíu mínútur voru
liðnar af seinni hálfleiknum fékk
Tryggvi Guðmundsson fínasta
færi en náði ekki góðu skoti á
markið. Fimm mínútum síðar var
Davíð Þór Viðarsson dæmdur
brotlegur innan teigs og finnski
dómarinn benti á punktinn. Vikt-
ors Dobrecovs fór á punktinn og
skaut á mitt markið og skoraði
meðan Daði skutlaði sér til hliðar.
Staðan því orðin 3-3 samtals en
Tallinn þurfti að bæta við marki
því FH skoraði fleiri mörk á úti-
velli. Gestirnir áttu nokkrar
ágætis sóknir á lokakafla leiksins
en höfðu heppnina ekki með sér
og það voru FH-ingar sem nýttu
sér sóknarlotur gestanna.
Atli Guðnason hafði komið inn
á sem varamaður fimm mínútum
fyrir leikslok og hann kláraði ein-
vígið þegar hann fékk sendingu
inn fyrir vörnina frá Tryggva og
vippaði snyrtilega yfir mark-
mann Tallinn, sem var kominn
langt út úr marki sínu. Glæsilega
gert hjá Atla, sem skoraði einnig
þriðja mark FH úti í Eistlandi
sem reyndist mjög mikilvægt.
Atli Guðnason, hetja FH-inga í
þessar viðureign, var að vonum
glaður í leikslok og brosti út í
annað þegar hann var spurður að
því hvort Evrópukeppnin væri
hans keppni. „Að minnsta kosti
hingað til. Það er stórgaman að
taka þátt í þessari Evrópukeppni
og enn meira gaman að ná að
skora þessi mörk. Aðalmarkmið-
ið okkar var að ná lengra en í
fyrra og það hefur tekist, þetta er
mikill bónus fyrir félagið,“ sagði
Atli og líst honum vel á komandi
ferðalag til Póllands. „Þeir eru
með mjög sterkt lið að mér skilst
og eru með leikmenn sem fóru
með pólska hópnum á heims-
meistaramótið í Þýskalandi. Við
ætlum bara að reyna að hanga í
þeim.“ - egm
Evrópuævintýri Íslandsmeistara FH heldur áfram eftir jafntefli gegn Tallinn í gær:
Markmiði FH-inga er náð
FÖGNUÐUR Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, fagnaði vel í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BARÁTTA Ármann Smári Björnsson í
báráttu um boltann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI