Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
����������
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
33
62
07
/2
00
6
Viðskiptavinir í Og1 greiða ekkert fyrir takmarkalausa notkun milli
allra heimasíma innanlands.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM, Heimasíma og Internet geta skráð sig í Og1.
Auðvelt að skipta.
Það er ekkert mál að skipta um símafyrirtæki eða almennt að skrá sig í Og1. Hringdu núna í
1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is og skráðu þig og þína.
Mánaðargjald heimasíma er 1.390 kr.
Og Vodafone hefur leitt samkeppni á íslenska fjarskiptamarkaðnum og fært neytendum betri
þjónustu og lækkað verð.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar
og skráningu í Og1.
www.brekkahrisey.is
Öðru hvoru blossa upp deilur um uppruna mannsins. Marg-
ir vilja meina að kenningar
Darwins séu bara rugl og telja trú-
verðugri þróunarkenningar sem
samræmast sköpunarsögu Biblí-
unnar. En þeir eru líka til sem
hafna öllum vísindum og trúa bara
Biblíunni algjörlega.
ÉG hef sjálfur aldrei heillast neitt
sérstaklega af Darwin-kenning-
unni. Mér finnst hans útskýring á
uppruna okkar frekar vafasöm; að
við höfum lifað í trjám og svo
hoppað niður á jörð og farið að
sprella þar. Mér finnst skrítið að
við skulum þá haltra um á tveimur
jafnfljótum frekar en að hlaupa á
fjórum fótum eða hoppa. Og ég
trúi því ekki heldur að við séum
skyld Neanderdalsmanninum.
Enda heitir þetta kenning en ekki
sönnun.
ÉG trúi ekki heldur á sköpunar-
sögu Biblíunnar. Samt er ég aðdá-
andi Biblíunnar. Mér finnst hún
meira táknræn saga fyrir upphaf
mannsandans, myndlíking forn-
manna á andlegum málum. Hún er
í raun ekkert ósvipuð öðrum sköp-
unarsögum fornra menningar-
heima. Tilraunir til að samræma
hana vísindalegum kenningum
finnst mér vægast sagt hægilegar
og ég skil ekki alveg tilganginn
með því. Biblían er ekki jarðfræði-
rit heldur andlegur leiðarvísir.
ÉG hef alltaf verið heillaður af
Vatnakenningunni svokölluðu,
sem hefur nú ekki notið mikilla
vinsælda. Þar er því haldið fram
að maðurinn hafi farið úr trjánum
og út í vatn og hafi dvalist þar um
þúsundir ára. Samkvæmt Vatna-
kenningunni eru konur líka leið-
andi afl í þróunarsögunni. Mér
finnst þetta skemmtileg kenning
og hún skýrir líka margt, til dæmis
af hverju mörgum finnst svona
gaman í sundi.
EN svo eru líka aðrir möguleikar í
stöðunni. Kannski komum við utan
úr geimnum. Kannski voru for-
feður okkar vitsmunaverur í
útrýmingarhættu sem sendu
geimfar með sofandi fólki út í
geim. Kannski var geimfarið stillt
á að finna plánetu með sambæri-
legum aðstæðum og eru hér; loft-
hjúp, súrefni og vatni. Eða ef til
vill lentu geimverur hér og blönd-
uðu sínu erfðaefni við erfðaefni úr
öpum, bara upp á grín. Kannski
erum við, þegar öllu er á botninn
hvolft, bara afkvæmi geimvera og
apa. Og kannski sitja þær svo ein-
hvers staðar úti í geimi og hlæja
að okkur.
Homo
galacticus