Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 1
Slöngur — Bairkar — Tengl
SAAIÐ
Kópavogi
^ 36. tölublað—Sunnudagur 12. febrúar 1978 —62. árgangur
Unnið að borun undir Þyrilskiifi
Ásatrúar-
söfnuðurinn
svo til kven-
mannslaus
— en kvenfólk í meirihluta i
öðrum sértrúarsöfnuðum
JH — Þeir mega heita stjörnu-
kvenmannslausir i Asatrúar-
söfnuðinum. Þar hafa 58 full-
orðnir karlar ekki nema sjö
konur sér við hönd, og segir það
til sin i viðkomunni, þvi að
aðeins þrir eru þar yngri en
fimmtán ára. Annars staðar er
betur búið, þvi að i svo til öllum
sértrúarsöfnuðum eru konur til
muna fleiri en karlar. Aberandi
er þessi munur hjá aðventistum
og hvitasunnusöfnuöi og Sjönar-
hæðarsöfnuði, sem annars er fá-
liðaðastur allra safnaða á land-
inu með sextiu alls innan vé-
banda sinna.
Þeir, sem eru aðventistar, i
hvitasunnusöfnuði eða játa
kaþólska trú, skera sig úr að þvi
leyti, að þeir hafa verið blessað-
ir með fleiri börnum en aðrir.
Aðventistar eru 664, þar af börn
og unglingar fimmtán ára og
yngri 256, hvitasunnumenn 652,
börn og unglingar 250, og
kaþólskir 1487, börn og ungling-
ar 470. Vottar Jehóva 290 að tölu
standa sig lakar með 87 börn og
unglinga. Til samanburðar er,
að meðal 2573 manna utan trú-
félaga eru ekki nema 557 börn
og unglingar.
Frikirkjusöfnuðir allir eru
heldur á undanhaldi i landinu.
Fækkað hefur litið eitt i Ásatrú
arsöfnuði, Sjónarhæðarsöfnuði
og hjá Vottum Jehóva, en
kaþólskum mönnum, aðventist-
um og hvitasunnufólki fer fjölg-
andi. Hið sama er að segja um
Bahaísöfnuðinn.
Innan þjóðkirkjunnar telst
93% landsmanna, 4.2% i fri-
kirkjusöfnuðum 1,6% i öðrum
söfnuðum og 1,2% utan trúfé-
laga.
Nýr rafstrengur
til Vestmannaeyja
HEI — Tekin hefur verið sú
ákvörðun að leggja i ágúst I sum-
ar á vegum Rafmagnsveitna
rikisins nýjan rafstreng til Vest-
mannaeyja. Kristján Jónsson
rafmagnsveitustjóri, sagði þenn-
an nýja streng hafa 25 megavatta
flutningsgetu en sá,sem fyrir er
flytur 10 megavött. Spennan er sú
sama þ.e.a.s. 33.000 volt.
Lagningu þessa strengs er fyrst
og fremst flýtt áf öryggis-
ástæðum. Þó gert sé ráð fyrir að
sá strengur sem fyrir er muni
anna fhitningsgetu næstu tvö ár,
þá hefur hann margsinnis oröið
fyrir hnjaski og þvi litiö öryggi i
honum einum fyrir svo mikinn út-
gerðarstað sem Vestmannaeyjar
og þvi hefur þessi ákvörðun um
nýjan streng verið tekin.
Kristján sagði einnig aö sam-
kvæmt orkuspá ætti orkuþörf
Vestmannaeyja að vera fullnægt
fram undir aldamót með þessum
framkvæmdum.
Heita vatnið aðeins stein-
snar frá hvalstöðinni
Að undanförnu hefur verið borað
með hinum álitlegasta árangri
eftir heitu vatni við hvalstöðina
undir Þyriiskiifi, þar sem engan
grunaði til skamms tima, að heitt
vatn leyndist, enda þótt berg-
myndanir i nágrenni kunni að
benda til þess, að þar hafi ein-
hvern tima jarðhiti verið.
Til borunarinnar var valinn
staður neðan þjóðvegarins rétt
ofan við bryggju hvalstöðvarinn-
ar og ekki nema steinsnar frá
bræðslunni. Verði lokaárangur
borunarinnar á þann veg, er vona
má, getur þessi heita uppspretta
á hlaði hvalstöðvarinnar gull-
náma heitið, svo fremi sem fram-
hald verður á hvalveiðum hér
við land.
Eins og greint var frá i siðasta
sunnudagsblaði hefði rafvæðing
hvalstöðvarinnar kostað stórfé,
enda þótt háspennustrengurinn út
á Grundartanga liggi rétt hjá
henni. Vegna þess hve spennan á
honum er há, hefði orðið að kosta
upp á afardýr úttaksmannvirki
eða leggja þangað nýja linu með
lægri spennu. Þetta hvort tveggja
hefði verið afardýrt.
Nokkurt umtal hefur orðið um
það, að Akranesbær kynni að geta
fengið heitt vatn af þessum slóð-
um. Tæpast mun þó verða horfið
að þvi ráði, þvi að ekki eru likur
til þess, að ódýrara sé að sækja
heitt vatn, þótt nóg yrði af þvi, inn
að Þyrilsklifi heldur en eiga hlut-
deild að þeirri hitaveitu, sem um
hefur verið rætt i samvinnu við
Borgarnes og Hvanneyrarhverfi.
Hitt gæti hugsazt að heitt vatn sé i
jörðu viðar á þessum slóðum, og
þá til dæmis utar á Hvalfjarðar-
strönd. En þar er vitaskuld ekki á
visan að róa, þótt vel hafi tekizt til
á þessum stað.
Fyrstu kcrunum hefur verið lokað i Alverinu i
Straumsvik, en það er þáttur I þeim mengunar-
varnarframkvæmdum, sem byrjað hefur verið á i
verksmiðjunni. Timamynd Gunnar.
*
Alverið í Straumsvik:
Meö slikan útbúnað ganga menn nú I Alverinu til
varnar þvi mengaða andrúmslofti sem þar er.
Timamyndir Gunnar
Fyrstu kerunum
lokað
JB — Það var gefin út áætlun um
mengunarvarnir i Alverinu i
fyrra, og er miðað að þvi að þeim
framkvæmdum, sem þar er gert
ráð fyrir verði lokið fyrir árslok
1980, sagði Ragnar Halldórsson
forstjóri er blm. innti hann eftir
þvf hvað mengunarvörnum i
-verksmiðjunni liði.
Sagði Ragnar, að þarna væri
um að ræða að breyta kerunum,
1 dag ræöir VS. viö Skeggja
Samúelsson, járnsmiðameist-
ara i Reykjavik. Skeggi er
Strandamaður að uppruna, af
svokallaðri Ormsætt, en þar
hafa löngum verið góðir smið-
ir. Þetta sannast á Skeggja,
þvi að hann er þjóðhagasmið-
ur og völundur i höndum á
hverju sem hann snertir.
Greininni fylgja margar
myndir af smiðisgripum
Skeggja, en þó er þar aðeins
um að ræða litinn hluta verka
hans, þvi að.þau eru dreifð
viða. sjá bls. 18-19
.e. að loka þeim i stað þess að
afa þau opin. Þegar hefur fyrstu
kerunum verið breytt á þennan
hátt, en áformað er að búið verði
að ioka fjörutiu kerum af tvö
hundruð og áttatiu og tengja þau
við hreinsistöð, fyrir næstu ára-
mót.
Byggir þetta fyrirkomulag á
þvi, að I stað þess að vera hliðar-
þjónuð eins og nú verða kerin nú
miðþjónuð og virkar það þannig
blæstrinum frá þeim er beint inn
i hreinsistöðvar þar sem hann er
hreinsaður áður en hann sleppur
út I andrúmsloftið. Og að þvi er
Ragnar sagði, verður þá mengun-
in hverfandi. Þá sagði Ragnar, að
burtséð frá þvi hve miklar varnir
þetta hafi gegn mengun frá ver-
inu, hefði þetta i för með sér mik-
inn efnissparnað, þar sem þegar
þessum lokuðu kerum hefur verið
komið upp eru flúorsamböndin
eða raflausnarefnin sem ella
slyppu út i andrúmsloftið, endur-
notuð.
Þá má geta þess, að i kostnað-
aráætlun er gert ráð fyrir þvi, að
sjö og hálfur milljarður fari i
framkvæmdina i heild.
Á Júlíus Sólnes
innistæðurnar
í Danmörku?
Eins og fram hefur komið
var Jón Sólnes alþingismaður,
borinn þeim sökum i Dagblað-
inu að eiga verulegar fjárhæð-
ir I banka i Danmörku, án þess
að hafa gert grein fyrir hvern-
ig sú innistæða er til komin. Sá
orðrómur gengur nú, að inni-
stæðan sé ekki á nafni alþing-
ismannsins né eiginkonu hans
og hefur Timinn nokkuð ör-
uggar heimildir fyrir þvi, að
hér hafi nöfnum verið ruglað
og að eigendur tittnefndra
reikninga séu Július Sólnes
verkfræðingur og kona hans.
Július dvaldi ásamt konu
sinni i 12 ár i Danmörku við
nám og siðar störf og áttu þau
hjón húseign i Kaupmanna-
höfn, er þau seldu þegar þau
fluttu til Islands, og gætu þau
umsvif skýrt gjaldeyriseign-
ina erlendis.
Timanum tókst ekki að ná
sambandi við þá Jón eða Júli-
us i gær til að fá staðfestingu á
hvort hér er fariö með rétt
mál.