Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 36
p
*
f §!
WilÉlit!® *18-300 HREVnti Syrö eik CJfe; er sigild jpp ir ]!
Sunnudagur 12. febrúar 1978 Auglýsingadeild Tímans. L : hú&c«ögii
Sfmi 8 55 22 TRÉSMIOJAN MEIDUR L \\ /v SÍÐUMÚLA 30 • SÍMl: 86822
Framkvæmdir við Vopna-
fjarðarhöfn á lokastigi
JB — I gær var lokið á Vopnafirði
einum áfanga i hafnargerðinni, er
byrjað var á i júlimánuði sl. En
þá var rekið smiöshöggið á tvö
hundruð og fimmtiu metra lang-
an grjótgarð með sextiu og fimm
metra löngu stálþili. Til að full-
Ijúka þessum framkvæmdum
þarf þá aðeins að steypa þekju yf-
ir varnargarðinn og ganga frá
lögnum og ööru i þvi sambandi,
en óvist er hvenær þvi lýkur. Er
hér um mikið þjóðþrifamál Vopn-
firðinga að ræða.
Kom þetta fram i viðtali við
Steingrim Sæmundsson, fréttarit-
ara Timans á Vopnafirði, er haft
var samband við hann i gær. I
samtalinu við Steingrim kom
einnig fram, að togari þeirra
heimamanna, Brettingur heföi
landað um 260 tonnum af fiski sið-
an um áramót og væri aflaverð-
mætið tuttugu og átta milljónir
króna. Þá var Steingrimur inntur
frétta um hákarlaveiðina, sem
stunduð hefur verið frá Vopna-
firði um árabil. Sagði Steingrim-
ur að hún byrjaði yfirleitt ekki
fyrr en i lok febrúar eða byrjun
marz. — Þó mun einn bátur vera
búinn að leggja net, en ekkert
hefur veiðzt enn að mér vitandi.
Það er lika mjög misjafnt hve
margir bátar stunda hákarla-
veiði, kannske þetta þrir til fjórir
bátar, en þetta hefur breytzt eftir
að menn fóru að stunda gráslepp-
una á vorin. — sagði Steingrimur.
Mikið hefur veriö unnið viö varanlega gatnagerð viöa um land á undan-
förnum áruin.
Hafnarmannvirki á Vopnafirði, og eitt loðnuskipanna við bryggju nú fyrir skemmstu. — Tíma-
mynd:MÓ.
Stjórn sveitarfélaga hér á
landi lýðræðisleg og þátt-
taka almennings mikil,
einkum í fámennum
hreppum
Próunin önnur hér en annars staðar á Norðurlöndum,
þar sem að undanförnu hefur átt sér stað viðtæk
sameining sveitarfélaga
SJ — Siðasta sunnudag f mai og
siöasta sunnudag I júni fara
fram sveitarstjórnarkosningar
hér á landi. Sömu daga eru
kosningar f hreppum til sýslu-
nefnda. t hreppum i dreifbýli
fara nií fram þrennarkosningar
sama daginn, siðasta sunnudag
i mai, en þá er kosið til alþingis
aiis staðar á landinu. Sýslu-
nefnda og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar vilja oft hverfa nokkuð
I skuggann af alþingiskosning-
unum.
Að sögn Magnúsar Guðjóns-
sonar framkvæmdastjóra Sam-
bands islenzkra sveitarfélaga
erunú224sveitarfélögi landinu,
21 kaupstaður og 203 hreppar.
Bæjarstjdrnir eru skipaðar 9
mönnum.en heimilt er aöfjölga
þeim i 11 eða fækka i 7 með
samþykki félagsmálaráöuneyt-
is. Hreppsnefndir skipa 5
manns, en þeim má fjölga i 7
eöa fækka f 3.
42 konur, 1209 karlar
t sveitarstjórnum hér á landi,
þ.e.a.s. bæjarstjórnum og
hreppsnefndum, er 1251 bæjar-
fulltrúi og jafnmargir vara-
menn. Aðeins 42 af þessum 1251
eru konur eöa 3,36%. Miklu
færri konur eiga sæti i sveitar-
stjórnum hér á landi en annars
staðar á Noröurlöndum. Aðeins
Magnás Guöjónsson
ein kona er nú oddviti hrepps-
nefndar, Arnfriður Guöjóns-
dóttir i Búðahreppi f Fáskrúös-
firði. Konur hafa áður verið
oddvitar, m.a. i Mosfellssveit, á
Blönduósi og Bildudal, og Auður
Auðuns var um margra ára
skeið forseti bæjarstjórnar
Reykjavikur.
Mikill meginhluti sveitar-
félaga hér á landi eru mjög
fámenn, sem gefur að skilja
þegar ibúar landsins eru rúm-
lega 220.000 og sveitarfélögin
224. Til samanburðar má geta
þess að i Danmörku þar sem
ibúarnir eru rúmar 5 milljónir
eru sveitarfélög 275. A
Norðurlöndum hefur aö undan-
förnu átt sér stað viðtæk
sameining sveitarfélaga, en
þróunin hefur ekki orðið á sömu
lund hér á landi.
Fyrir nokkrum árum samein-
uðust þó tsafjarðarkaupst. og
Eyrarhreppur. A sl. 25 árum
hafa einnig fjórir hreppar lagzt
niður vegna brottflutnings
ibúanna: Grunnavikurhreppur
og Sléttuhreppur i Norður-Isa-
fjarðarsýslu, Loðmundar-
fjarðarhreppur i Noröur-Múla-
sýslu og Flateyjarhreppur i
Suður-Þingeyjarsýslu.
Selvogur og Selfoss
Fámennasti hreppur landsins
er Selvogshreppur, þar sem er
21 Ibúi. Margir hreppar á land-
inu hafa innan við 100 ibúa.
Fjölmennasti hreppur landsins
Selfoss (3.106 íbúar) er I Árnes-
sýslu eins og fámennasti
hreppurinn.
Sveitarstjórnarkosningar i
þéttbýli fara fram sfðasta
Framhald á bls. 35