Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 31
Sunnudagur 12. febrúar 1978
Saga
um
konu
Leikstjóri: Márta Mészáros
Handrit: Márta Mészáros og
Gyula Hemadi
Kvikmyndun: Lajos Koltai
Tónlist: György Kovács
Aðalleikendur: Kati Berek,
László Szabó Gyöngyvér Vigh,
Dr. Arpád Perlaky.
Framleiðandi: Hunnia Studio
Dreifingaraðili: Hungarofilm
Enskur texti 89 min. Svart-hvit
Gullverðlaun á Berh'narkvik-
myndahátiðinni 1975-
Gullverðlaun á Chicagokvik-
myndahátfðinni 1975.
Það var mál manna eftir sýn-
ingu á Ættleiðingu eftir ung-
verska leikstjórann og hand-
ritahöfundinn Mörtu Mézáros
að þessa kvikmynd hefði aðeins
kona getað gert. Leikstjórninog
kvikmyndatakan miðast öll að
þvi að lýsa af miklu innsæi
hugarheimi fertugrar konu,
sambandi hennar við giftan
mann annars vegar og hins veg-
ar við unga stúlku af upptöku-
heimili, en á milli þeirra
tveggja tekst mjög náin vinátta.
Verðlaunamynd
Myndin er gerð árið 1975 og
það sama ár vann hún til
tveggja gullverðlauna og Marta
Mézaros skipaöi sér á bekk með
beztu leikstjórum i heimi.
Upphafsatriði myndarinnar,
þar sem Kata aðalpersónan
vaknar tilvinnusinnar, gefur til
kynna bæði einmanaleikann og
hversdagsleikann i lifi hennar.
Slik atriði sem þessi, þar sem
myndavélin er látin tala, endur-
taka sig oftar i þessari mynd,
t.d. i brúðkaupi önnu, þar sem
margar sögur eru sagðar i einu,
eða þegar Kata biður Jóska á
kaffihúsi og Anna situr álengd-
ar.
Við fylgjumstmeð Kötu i dag-
legu lifi hennar, hún er verka-
kona i verksmiðju, hún býr ein
og hún á i sambandi við giftan
mann, Jóska, sem hún hittir
leynilega á kaffihúsum. Bæði
hafa þau sætt sig við þetta hlut-
skipti. Jóska vill ekki yfirgefa
konu sina og fjölskyldu og Kata
skilur viðhorf hans mjög vel. En
eftir þvi sem aldurinn færist yfir
hana fer hún að óttast einmana-
leikann, sem horfir við henni i
framtiðinni. Hún þráir nú sterkt
að eignast barn með Jóska og
hún er það heiðarleg að bera
það undir hann, en hann neitar.
Þá verður það einnig til að
veikja samband hennar og
Jóska, að hún fer með honum
heim til hans. Þar hittir hún
kúgaða eiginkonu Jóska og skil-
ur þá að hún getur ekki átt i
sambandi við mann, sem getur
ekki umgengizt konu sem jafn-
ingja. Hún uppfyllir þrá sina
eftir öðrum leiðum. Hún bindur
nú allar vonir sinar við önnu.
Anna er meira og minna alin
upp á upptökuheimilum, en hef-
ur nú eignazt vin og þau langar
til að giftast. Þessar tvær konur
hafa báðar kynnzt hörðu og
erfiðu lffi og það verður til aö
styrkja vináttu þeirra. Kötu-
langar til að ættleiöa önnu, en
svarið er að hana langi ekki i
fleiri foreldra. I staðinn hjálpar
Kata önnu til að gifta sig, en
ættleiðir sjálf ungabarn. Við
skiljum við þessar söguhetjur i
upphafi nýs, en siöur en svo
auðveldara lifs.
flokksstarfið
Framsóknarfélag
Mýrarsýslu
Aðalfundur félagsins verður haldinn I Snorrabúð Borgarnesi
sunnudaginn 12. febrúar kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Kosning fulltrúa á flokksþing.
4. Halldór E. Sigurðsson ræðir um stjórnmálaviðhorfið.
5. önnur mál.
Stjórnin
Rangæingar
Framsóknarfélag Rangæinga heldur félagsfund i gagnfræða-
skólanum á Hvolsvelli sunnudaginn 12. febrúar kl. 14.00.
Fundarefni: 1. Kosning fulltrúa á flokksþing. 2. Alþingismenn-
irnir Jón Helgason og Þórarinn Sigurjónsson ræða stjórnmála-
viðhorfið.
Stjórnm.
Stjórnmálafundur á Flateyri
mánudaginn 13. febrúar
Framsóknarfélag önundarfjarðar gengst fyrir almennum
stjórnmálafundi i samkomuhúsinu Flateyri mánudagskvöld 13.
febrúar kl. 21.00.
Magnús Ólafsson formaður SUF ræðir um Framsóknarflokk-.
inn og stjórnmálaviðhorfið i dag.
Fólk er hvatt til að mæta og bera fram fyrirspurnir og taka
þátt i umræðum.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag önundarfjarðar.
Hrunamanna-
hreppur,
Árnessýslu
Þingmennirnir Þórarinn Sigurjónsson og Jón Helgason verða
til viðtals i félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn
14. febrúar kl. 21.00.
Þingeyri - aðalfundur
Framhaldsaðalfundur Framsóknarfélags Þingeyrarhrepþs
verður haldinn þriðjudagskvöld 14. febrúar kl. 21.00 i félágs-
heimilinu.
Magnús Ólafsson formaður SUF mætir á fundinum. Fjölmenn-
ið.
Stjórnm.
Vopnafjörður
Aðalfundur Framsóknarfélags Vopna-
fjarðar verður haldinn miðvikudaginn 15.
febrúar að Miklagarði og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á flokksþing.
Jón Kristjánsson kemur á fundinn.
Stjórnin. •
Framsóknarfélag Garða-
og Bessastaðahr.
heldur fund i Gagnfræðaskólanum v/Lyngás fimmtudaginn 16.
feb. n.k. kl. 8.30 e.h.
Fundarefni: Kosnirig fulltrúa á flokksþing.
önnur félagsmál. Stjórnin.
ísfirðingar —
Félagsmálanámskeið
Lokafundur
i félagsmálanámskeiði Framsóknarfélags
Isfirðinga verður haldið á skrifstofu Fram-
sóknarflokks ísafjarðar, laugardaginn 16.
febrúar kl. 16, Leiðbeinandi Magnús Ólafs-
son
Allir velkcmnir
Framsóknarflokkur tsafjarðar
31
f lokksstarf ið
Mosfellingar — Kjalnesingar
— Kjósverjar
Spilakvöld i Hlégarði fimmtudagskvöldið 16. febrúar kl. 21.00
Gunnar Sveinsson varaþingmaður Framsóknarflokksins I
Reykjaneskjördæmi mætir i vistina. Kristinn Bergþórsson syng-
ur, Sigfús Halldórsson leikur á pianó.
Fiölmennið og takið með ykkur gesti. Góð verðlaun.
J Stjórnin.
Hafnarfjörður
vist
Framsóknarfélögin i Hafnárfirði efna til þriggja kvölda
spilakeppni 16. febrúar. 16. marz og 6. april i Iðnaðarmannahús-
inu Hafnarfirði.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
'Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur verður haldinn
fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.30 að Hótel Esju.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
ísfírðingar
Almennur fundur verður haldinn um efnahagsmál á Isafiröi
sunnudaginn 19. feb. ki. 16.00 i Góðtemplarahúsinu.
Ræðumenn: Guðmundur G. Þórarinsson, Steingrimur Her-
mannsson, Gunnlaugur Finnsson.
Aliir velkomnir. Framsóknarfélögin.
Hveragerði
Fundur verður haldinn I Framsóknarfélagi Hveragerðis þriðju-
daginn 28. febrúar kl. 20.30 I kaffistofu Hallfrlðar.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á flokksþing.
2. Rætt um væntanlegar sveitarstjórnarkosningar.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. önnur mál.
Stjórnin.
Hvergerðingar
Atvinnuuppbygging eða áframhaldandi kyrrstaða er viðfangs-
efni almenns fundar um atvinnumál, sem haldinn veröur I Hótel
Hveragerði mánudaginn 20. febrúar kl. 21.00.
Frummælendur Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður og Þor-
steinn Bjarnason, gjaldkeri Verkalýðsfélagsins. Atvinnumála-
nefnd og sveitarstjórnarmönnum hefur sérstaklega verið boðið á
fundinn.
Framsóknarfélag Hveragerðis.
L’ .■ ' )
"
.
Flokksþing
FlokksþingFramsóknarflokksinshefstiReykjavik 12. marz n.k.
Flokksfélögin eru hvött til að kjósa fulltrúa sem fyrst og tilkynna
það flokksskrifstofunni.
Mýrarsýsla
Félagsmálanámskeið verður haldið i Snorrabúð Borgarnesi I
marz. Námskeiðið tekur 7 kvöld og verður haldið á þriðjudags-
og föstudagskvöldum. Þátttaka tilkynnist I sima 7297 eða 7198
eftir kl. 20.00.
Framsóknarfélögin i Mýrarsýslu.