Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 16
16 Sunnudagur 12. febrúar 1978 Sérálit og greinargerðir með álitsgerð verðbólgunefndar Meöbréfi hinn 21. oktöber 1976 skipaði forsætisrá&herra nefnd á vegum rikisstjórnarinnar til þess a&kanna horfur i verölagsmálum og gera tillögur um ráðstafanir til þess aö draga lir veröbólgu. I nefndina voruskipaöir eftirtaldir menn: Jón Sigurðsson, hagrannsókna- stjóri, formaður. Asmundur Stefánsson, hag- fræöingur, tilnefndur af Alþýöu- sambandi Islands. Guömundur G. Þórarinsson, verkfræðingur. Gunnar Guöbjartsson, bóndi, til- nefndur af Stéttarsambandi bænda (varamaöur: Jón Helgason, alþingismaður) GylfiÞ. Gíslason, alþingismaöur, tilnefndur af þingflokki Alþýðu- flokksins. Halldór Asgrímsson, alþingis- maöur, tilnefndur af þingflokki Framsóknarflokksins. Jóhannes Nordal, seölabanka- stjóri. JónH. Bergs, forstjóri, tilnefndur af Vinnuveitendasambandi tslands. Jónas H. Haralz, bankastjóri Karvel Pálmason, alþingis- maður, tilnefndur af þingflokki frjálslyndra og vinstrimanna Kristján Thorlacius, deildar- stjóri, tilnefndur af Bandalagi starfsmanna rfkis og bæja Lúövik JÓsepsson, alþingis- maður, tilnefndur af þingflokki A1 þý öuban da la gs ins Ólafur G. Einarsson, alþingis- maður, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Þá var hagstofustjóra, Klemens Tryggvasyni, falið að starfa meö nefndinni. Ólafur Daviðsson, hag- fræðingur, hefur verið ritari nefndarinnar. Fyrir nefndina hafa einnig starfað hagfræöing- arnir Bolii Þ. Bollason, Hall- grimur Snorrason og Sigurður B. Stefánsson. Þjóðhagsstofnun, Hagstofa Islands og hagfræði- deild Seðlabanka tslands hafa undirbúið ýmis gögn fyrir nefndina, auk þess sem kjara- rannsóknarnefnd og aörir aðilar hafa lagt nefndini til efni. Erindisbréf Með skipunarbréfi nefnd- arinnar fylgdi stutt greinargerð, sem ákvað starfsvið hennar nánar. Þessi greinargerð fer hér á eftir: „Þróun efnahagsmála það, sem af er þessu ári, sýnir, að verulega hefur miðaö i átt til jafnvægis i þjóðarbúskapnum bæði i utanrikisviðskiptum og opinberum fjarmálum, jafn- framt hefur atvinnuástand veriö gott. A árinu hefur einnig dregið nokkuö úr hraða verð- bólgunnar, en þó verður hann á þessu ári 25-30% eða tvöfalt til þrefalt meiri en i flestum ná- lægum löndum. Verðbólgan er þvi' enn eitt alvarlegasta efna- hagsvandamál, sem þjóöin á viðaðstriða. A miklu veltur_aö okkur takist að draga enn verulega úr hraöa verðbólg- unnar á næsta ári. Þvi miður er ástæða til að óttast, aö sú öra verðbólga, sem geisað hefur hér á landi undanfarin ár, hafi enn alið á þeim verð- bólguhugsunarhætti, sem sett hefur svip á þjóðlifið. A þessu þarf að verða breyting. ör veröbólga hefur óæskileg áhrif á tekju- og eingaskiptinguna i landinu, veldur óhagkvæmri nýtingu framleiðsluafla og auðlinda og siðast en ekki sizt veikur hún samkeppnisstööu útflutningsatvinnuveganna og felur þvi i sér hættu I atvinnu- leysi. Rikisstjórnin telur nú sérstaka þastæðu til a& leita leiöa til þess að ná hra&a verð- bólgunnar niður I þaö, sem gerist i nágrannalöndum okkar. I þessu skyni mun hún skipa nefnd til þess: a) að kanna vandlega horfur i verðlagsmálum á næstu miss- erum og greina ástæður þeirra verðhækkana, sem orðið hafa að undanförnu, og orsakir verðbólguþróunar hér á landi undanfarin ár. b) að gera tillögur um ráðstaf- anir til þess að draga úr verð- bólgu. Tillögur þessar skulu taka mið af þvi, að þau mark- mið, semsetteruáþessusviði, þarf að vega og meta við hlið annarra markmiöa stefnunnar i efnahagsmálum, svo sem jafnvægis I utanri'kis- viðskiptum og fullrar atvinnu. Ríkisstjórnin telur mikilvægt, að sem flest sjónarmið komi fram i starfi nefndarinnar og fer þvi þess á leit við aðila vinnumarkaðarins og þing- flokkana, að þeir nefni menn i nefndina, auk þess mun rikis- stjórnin skipa fjóra menn án tilnefningar, og er einn þeirra, Jón Sigurðsson, hagrann- sóknastjóri, formaður nefndr- innar. 1 nefndinni skulu sitja: 5 tilnefndir af þingflokkum 1 tilnefndur af Alþýðusam- bandi Islands 1 tilnefndur af Vinnuveitenda- sambandi Islands 1. tilnefndur af Bandalagi starfsmanna rikis og bæja 1 tilnefndur af Stéttarsambandi bænda 4 skipaðir af rikisstjórninni án tilnefningar Hagstofústjóri mun starfa með nefndinni. Rikisstjórnin mun gangast fyrir þvi, að samráö verði einnig haft við fulltrúa ýmissa hagsmunasamtaka, sem ekki tilnefna menn i nefndina, eftir þvi' sem störfum nefndarinnar miðar áfram og ástæöa þykir til. Rikisstjórnin gerir siðan ráð fyrir að álit nefndarinnar og tillögur verði undirstaða umræðna á Alþingi og við- ræðna rikisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins um heildarstefnu i verölags- og launamálum. t starfi nefndarinnar skal þess vegna að þvi stefnt, að hún skili áliti og tillögum eigi siðar en i febrúarmánuði 1977.” Nefndin starfaði að gagnaöflun og kom saman til 16 funda vetur- inn 1976/1977. en lauk ekki álits gerð aö þvi sinni. Gerði nefndin rikisstjórninni óformlega grein fyrir störfum sínum. Fundahöld i' nefndinni lágu niðri um sumarið, en hófust aftur aö hausti 1977. Siðan hefur nefndin haldin 11 fundi og lauk starfi si'nu 8. febrúar 1978. Skýrslan, sem hér birtist, er i' aðalatriöum tviþætt: 1 þriðja kafla er fjallað sérstaklega um horfur i verðlagsmálum á næstu misserum og’ hugsanlegar leiðir tilþess að hamla gegn verð- bólgu á næsta ári. Að þessu leyti fjallar skýrslan um þau efna- hagsmál, sem nú eru efst á baugi. 1 örum kafla skýrslunnar er leit- azt við að gefa Itarlegra yfirlitt og fjallaö nánar um rætur verðbólg- unnar hér á landi á undanförnum áratugum. 1 fjórða og fimmta kafla er reynt að benda á leiöir ti þess að sigrast á þeim rótgróna verðbólguvanda, sem hér hefur herjaðfrá þvi á árum heimsstyrj- aldarinnar siðari, og þá skyggnzt lengra fram á við en til næsta árs. Þær hugmyndir og tillögur, sem þarna koma fram, ættu að vera nokkurs viröi án tillits til þess, hvernig úr rætist i viðureigninni við veröbólguna á næstu mánuð- um. Hér á eftir verður græint nán- ar frá efni skýrslunnar. Yfirlit yfir efni skýrsl- unnar 1 öðrum kafla er fjallað um verðbólguþróunina undanfarin ár og ástæður fyrir henni. 1 kafl- anum er gefið stutt ágrip helztu skýringa hagfræðinnar á verð- bólgunni, en sfðan er rakin i stórum dráttum þróun verðlags I umheiminum og helztu hag- stærða hér á landi á siðustu ára- tugum. í þriðja kafla segir I stuttu máli frá ástandi og horfum I efnahags- málum og verðlagsmálum sér- staklega. Sett eru fram dæmi um þróun verðlags á árinu 1978 að gefnum kjarasamningum og stefnu i' efnahagsmálum. Fjallað er um þær leiðir, sem til greina koma til þess að draga úr hraða verðbólgunnar á næsta ári, og ákveðin dæmi tekin um úrræði. í fjórða kafla er rætt um þær umbætur, sem geraþyrftiá næstu árum i stjórn islenzkra efnahags- mála til þess að ráða við verð- bólguna. Áherzla er lögð á nauð- syn þess að bæta helztu hag- stjórnartækin og að beita þeim staðfastlega og samfellt um nokkurra ára skeið, ef takast á að koma verðbólgunni hér á landi niður á það stig, sem algengt er i nálægum löndum. 1 fimmta kafla eru settar fram ábendingar um mótun sam- ræmdrar stefnu i efnahagsmál- um, þannigað auk þings og rikis- stjórnar hafi aðilar vinnu- markaöarins á skipulegan hátt samráðum meginh'nur efnahags- stefnunnar á hverjum tima. Gerð er grein fyrir viöfangsefnum þeim, sem samráð af þessu tagi ættiaðsnúast um. Telja verður, að skipulegt og opinbert samráö aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda sé mikilvægt til þess að glæða almennan skilning á vandamálum hagstjórnar og til þess aö hemja þá verðþenslu, sem einkennt hefur islenzkan þjóðarbúskap mörg undanfarin ár. Helztu niðurstöður og ábendingar Ef grannt er skoðað, viröist sem ágreiningurinn um það, hvort fyrst og fremst eigi að leita orsaka verðbólgunnar i kostnaðardálki framleiðslureikn- inga atvinnuveganna, og þá helzt vegna launabreytinga, eða i þró- un heildareftirspurnar og pen- ingamagns i hagkerfinu, sé helzt fólginn i þvi við hvaða timabil sé miðað. Til skamms tima hafa til- efni til veröbreytinga oftast nær birzt i mynd kostnaðarbreytinga frá sjónarmiði einstakra fyrir- tækja og einstaklinga. En þegar skyggnzt er lengra, hvort sem er fram eöa aftur, er óhjákvæmilegt að leita annarra og almennari skýringa, sem varða I senn sveifl- ur I ytri skilyrðum þjóðarbúsins, ef um opiðhagkerfi er aö ræða, og viðbrögö innlendra aðila viö þeim, bæ&i einkaa&ila, samtaka þeirra og stjórnvalda, auk ákvarðana um innlendar hag- stærðir, sem miklu ráða um framvinduna, eins og rikisfjár- mál og vaxta- og lánamál, auk launaákvarðana. Þegar litiö er yfir þróun helztu hagstærða slöustu áratugi, sem nánar er rakin I 2. kafia skýrsl- unnar, má meðal annars greina eftirfarandi mikilvæg atriöi, sem áhrif hafa á verölagsþróunina. 1) Sveif lur i útflutnings- og inn- flutningsverðlagi hafa haft mikil áhrif á efnahags- og verðlagsþróun hér á landi. Sama máli gegnir um sveiflur í útflutningsmagni. Frá 1950 til 1970 skiptu sveiflur I útflutn- ingsverðlagi og afla mestu máli, en á fyrri helmingi átt- unda áratugarins hafa þær einnig haft mikii áhrif en við bætast miklar breytingar á innflutningsverðlagi. Jöfn- unarsjóöir hafa ekki reynzt þess megnugir að draga úr áhrifum uppgripa i sjávarút- vegi, sem breiðzt hafa út um allan þjóðarbúskapinn. 2) Almenn þróun innlendrar eftirspurnar hefur áhrif á hraða verðbólgunnar. Aukið peningamagnog útlán i banka- kerfinu i kjölfar uppsveiflu i sjávarútvegi skiptir án efa máli, þar sem jafnan hefur gætt tilhneigingar til þess að auka opinber útgjöld og fram- kvæmdir, þegar vel árar I sjávarútvegi. Þannig hefur ekki gætt ákveðinnar sveiflu- jöfnunar i opinberum fjármál- um og peningamálum, ekki sizt vegna þess að vextir hafa lengst af verið neikvæðir og litt breytilegir. Liklegt virðist, að sú rika áherzla, sem lögö hefur verið á fulla atvinnu og miklar framkvæmdir, hvernig sem árar, sé ein af grund- vallarástæöum, verðbólgu hér á landi. 3) Akvörðun peningalauna ræður miklu um gang verðbólgunnar. Lánaákvarðanir eru teknar á mismunandi timum, starfs- grein fyrir starfsgrein, og samanburður milli greina kann aö hafa orkað til þess að aukaá launahækkanir, einkum ef skyndileg tekjuhækkun vegna utanaðkomandi breyt- inga verður á þröngu sviði at- vinnulifsins, t.d. i einstökum greinum fiskvpiða þegarvelár ar, eða við stórframkvæmdir. Samanburður milli opinberra starfsmanna og annarra launamanna kemur hér einnig við sögu, sem áberandi og mikilvægt dæmi um vixlhækk- un launa milli starfehópa. 4) Við óstöðugytri sk\lyrðikemur oft upp misvægi i utanrikis- verzlun og arðsemi útflutn- ingsgreinabreytist sifellt. Þær efnahagsaögerðir, sem beitt hefur verið siöustu áratugi, þegar halli hefur myndazt i utanrikisverzlun og rekstri út- flutningsatvinnuveganna, hafa beinlinis oft falið i sér verð- hækkanir eða kallað framvið- brögð, sem valdið hafa verð- hækkunum. Þannig má allt eins tala um vfxlgengi milli efnahagsaögerða og launa- hækkana eins og milli launa og verðlags eða milli launþega- hópa. 1 þessum fjórum almennu atr- iðum eru fólgnar helztu ástæður verðbólguþróunarinnar hér á landi á siðustu áratugum. En hverjar eru þá hinar sérstöku ástæður fyrir mun örari verð- bólgu á siöustu fimm árum en fyrr? Hér má enn greina nokkur mikilvæg atriði sem sérstök dæmi hinna almennu, er að framan voru rakin: 1) 1 fyrsta lagi jókst veröbólgan að mun um allan heim á árun- um um og eftir 1970. Þó keyrði um þverbak með verðhækkun hráefna 1972 og 1973, og var fjórföldun oliuverðs lokahrin- an iþeirri hrið. Þessir atburðir höfðu mikil áhrif hér, fyrst með mikilli hækkun útflutn- ingsverðs, sem kynti undir tekjuhækkun innanlands, og siðan með mikilli innflutnings- veröhækkun. Viðskiptakjara- skellurinn, sem þessu fylgdi, var jafnaður með verð- hækkandi ráðstöfunum innan- lands, enda höfðu laun hækkað mikið um það bil sem við- skiptakjarabatinn var á enda runninn um sinn 1974. Þannig hefur teygzt úr verðlagsáhrif- um hinna alþjóðlegu verð- sveiflna hér á landi umfram það, sem gerzt hefur i' öðrum löndum. Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins reyndist þess ekki megnugur að draga úr áhrifum útflutningssveiflna og hefur á siðustu árum fjarlægzt tilgang sinn. 2) Mikil fjárfestingaralda hófet hérá landi fljótlega upp úr 1970 bæði með skipa- og flugvéla- kaupum, og framkvæmdum innanlands, fyrst á sviði sam- göngumála en siðar i orkumál- um. Efnahagsröskunin, sem fylgdi eldgosinu i Vestmanna- eyjum 1973, jók á þenslu i framkvæmdum og mann- virkjagerð á sama tima og hafði i för með sér verðþenslu. Gjörbreyttar aðstæður I orku- málum urðu til þess, að mikið var færzt i fang á þvi sviði, og undir þeta ýtti, að lánsfjárút- vegun á erlendum lánamark- aði varð auðveldari en verið hafði. Mikill innflutningur lánsfjármagns ásamt örri hækkun gjaldeyristekna i sömu mund leiddi til mikillar peninga- og eftirspurnar- þenslu, sem án efa ýtti undir verðbólguna. 3) Breytingum vaxta hefur i auknum mæli verið beitt frá árinu 1973 og verðtryggingar- ákvæði gerð almennari, en þetta hefur engan veginn dug- að til að hamla gegn eftirspurn eftir lánsfé. Vextir (og verð- tryggingarákvæði) hafa alls ekki haldið i við verðhækkanir og þvi ekki tryggt verðgildi sparifjár almennings eða lif- eyris- og fjárfestingarsjóða. Þá hefur bindiskylduákvæðum ekki verið beitt nægilega. Hallarekstur árikissjóði, eink- um á árunum 1974 og 1975, hef- ur og aukið á peningaþensiuna og þar með á verðbólguna, þegar verst áraði. 4) Launsasamningar á siðustu árum hafa falið I sér nokkur dæmi um svo stór skref i hækk- un peningalauna, ýmist til að sækja fram til nýrra kjarabóta eöa til aö endurheimta fyrri kaupmátt, að þeir hljóta að hafa haft verðbólguáhrif i gagnverkun sinni við aöra þætti i þjóðarbúskapnum. Einnig hefur gætt vislhættunar vegna togstreitu um launa- hlutföll i umróti verðhækkana siðustu ára. 1 öllum þessum atriðum eru fólgnar skýringar á verðbólgu- vandanum á allra siðustu árum. Þær og hinar sem fyrr voru tald- ar, eru þessaðlis, að ekki er til nein einföld lausn, ekkert töfra- orð, sem getur komið á verðfestu i einu vetfangi. Til þess að draga markvisst úr verðhækkun hér á landi á næstu árum þarf að vinna að þvi að bæta hagstjórnarað- feröirnar á öllum sviðum, og þær umbætur taka óhjákvæmilega tima. 1 fjórða kafla skýrslunnar er f jallað um þær breytingar, sem helzt kæmu tii greina. Ekki er reynt að gera þessu efni fullkom- in skil, heldur miklu fremur að benda á réttar leiðir^sem siðan þarf að rannsaka og fullkanna. 1 þessum kafla er bent á nauðsyn- legar umbætur i hagstjórn á næstu árum i sex greinum: 1) öflugri jöfnunarsjóðir i sjávarútvegi. c 2) Virkari ^stjórn peningamáia meö beitingu vaxta, verð- tryggingar, bindiskyldu- ákvæða og gengisskráningar. 3) Styrkari fjárfestingarstjdrn með samræmingu útlána- kjara. 4) Traustari fjármálastjórn með tiiliti til árferðis. 5) Samræmdar tekjuákvarðanir og launasamningar. 6) Bætt skipan verðlagseftirlits. Abendingum þessum er lýst i alllöngu máli ifjóröa kaflanum. 1 fimmta kafla er gerð grein fyrir nauðsyn samræmdrar stefnu i efnahagsmálum til nokkurra ára isennog lagt til,aðkomið verði á fót fastri samvinnunefnd stjórn- valdaog hagsmunasamtaka, sem fjalli um þessa stefnumdtun. 1 lok þriðja kafla eru sett fram fjögur dæmi um hugsanleg úrræði til þess að hamla gegn verðbólgu á þessuári og stuðla að jafnvægi i þjóöarbúskapnum, tryggja rekstrargrundvöll atvinnuveg- anna og þar með atvinnuöryggi. Meginleiðirnar fjórar, sem Framhald á bls. 33

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.