Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 35

Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 35
Sunnudagur 12. febrúar 1978 35 0 Prófkjör aö varpa ábyrgöinni frá sér og. spila á ástandiö sjálft. Þaö er alitaf fyrirhafnarminna að finna einhverja sökudólga og þvo sinar eigin hendur. —0— Flokkseigendur og erfðaprinsar Þaö árar þvi vel fyrir gor- kúlurnar. Jarövegurinn er viö hæfi. Lýðskrumið er nú i há- marki. Það höfðar sem fyrr til ástar sinnar á lýðræði og vill auka áhrifamátt fólksins sem það ber einstaklega fyrir brjósti. Boðskapurinn er skýr og endurtekinn i sifellu og ögn græðist af peningum i leiöinni. Sökudólgurinn er fundinn. Hann er flokkseigendafélag og flokks- klika og hefur tæplega mannlegt innræti er ihaldssamur og skynjar vart hvaö er lýöræði nema af afspurn. Þvi er nú svo komið sem komið er. En þó er enn til nokkur gæfa með þessari þjóð. Hún-birtist i liki prúöra og hugumstórra riddara sem af einskærrióeigingirniog fórnfýsi fara um með hreinsunardeildir sinar til þess að bjarga þjóðinni frá flokkseigendafélaginu með þvi að verða flokkseigenda- félagið sjálfir og voru þó áður meðlimir. Þeir hafa þvi eftir at- vikum bjargazt frá sjálfum sér án umbreytingar. Svona einfalt er nú málið og mega allir skilja nauðsyn þess að fólk flykki sér um þessaprúðuriddaraoghafii þvi augnamiöi ákveðna stjórn- málaskoðun daglangt Og sýnist nú litil ástæða til þess að ætla annað en aö fljótt veröi komið lag á hlutina. Þetta er eins og i gömlu ævintýrunum sem við hrifumst af sem börn og trúðum reyndar. Og það sýnir sig að barnaskapurinn endist mönnum ótrúlega lengi. Um það höfum við dæmin nú þegar menn túlka þátttöku i prófkjör- um sem einskæran áhuga fýrir flokknum sinum og þaö sem einu sinni var grundvallar- stefna hans. Jafnvel hinir mæt- ustu f orystumenn halda að hug- tökin hægri og vinstri séu innan- tóm orð þegar þeim tekst ekki að rata sjálfum. Og þarf þá nokkurn i sjálfu sér aö undra þótt uppskera hinna prúðu ridd- ara og hreinsunardeilda þeirra hafi oröið sú ein að hrekja frá opinberu starfi nokkra ágæta og dugmikla talsmenn sinnar stjórnmálastefnu, heiövirða og sómakæra menn sem hreinsunarmenn mættu nokkuö af læra ekki sizt þegar þess er gætt að þeim hefur nægt alger lágmarkstimi til þess að af- hjúpa sjálfa sig og aðferðir þeirra bera allan heim af þvi að tilgangurinn helgi meðalið. Þetta er hvorki að efla lýöræðið néheldurað auka áhrif fólksins. Þetta er villimennska. Vandamálið siðferði- legs eðlis. í s jálfu sér er þó ekki ástæða til annars en að óska þeim til hamingju, sem sigur telja sig hafa hlotið i undangengnum opnum prófkjörum og vænta þess að þeir reynist hinir mæt- ustu menn, þótt þeir i bili sjáist ekki fyrir i poti sfnu og brölti. Astæðuiaust er að hryggjast með þeim, sem orðið hafa undir. Menn verða að sjá hlutina eins og þeir eru. Það er i rauninni miklu hyggilegra hversu sjald- an stjórnmálastefnan sjálf hef- ur verið i hópi sigurvegaranna. Erfiðasta vandamál þeirra, sem framboðslistana skipa að undangengnum opnum próf- kjörum og skoðanakönnunum hvort heldur þeir voru sáttir við sinn hlut, sigurvegar eða töldu sig fara nokkuð halloka, er siðferðislegs eðlis. Það hefur ekkert með það að gera hvort menn kunna aö taka sigri eða ósigri heldur beinist aö þvi lýð- ræðislega afskr.æmi, þegar sama áhrifavaldið kemur um- bjóðendum sinum á framboðs- lista margra flokka til þess aö ryðja afmörkuðum hugmyndum sinum braut á opinberum vett- vangi. Stjórnmálastefna við- komandi flokks er þá hreint aukaatriði en flokkurinn verður vettvangur hugmynda, sem hann aöhyllist ekki sjálfur. Þetta hlýtur að setja aðra fram- bjóðendur i nokkurn siðferðileg- an vanda þvi framboðslistinn er orðinn þeim persónulegur um leið og þeir taka þar sæti og sið- leysið nær þá hámarki sinu, þegar raunverulegu stuðnings- fólki ákveðinnar stjórnmála- stefnu er ætlaö aö hafa úrslita- vald til þess að koma til áhrifa umbjóðendum skoðana annarra og andstæðra þeirra eigin. Þetta er alvarlegast af öllu og sýnir betur en nokkuð annað hversu lýðskrumið litilsvirðir áhrifa- vald fólksins og vegur að lýð- ræðinu sjálfu. En menn hafa þó alltént eitt- hvað lært og svo kemur auðvit- að aftur vor. sb 0 Sveitarfélög sunnudag I mai en 1 dreifbýlis- hreppum er kosið I hreppsnefndirsiðasta sunnudag I júni. Að þessu sinni um leið og kosiö er til alþingis, ef þing verður ekki rofið áður. Sama dag og sveitarstjórnir eru kosnar, velja kjósendur i hverjum hreppi landsins 1 aðalmann og 1 varamann i sýslunefnd. Selfoss og Selvogur eiga þannig t.d. hvor sinn fulltrúa I sýslunefnd Arnes- sýslu. Að afstaðinni skoðana- könnun á Selfossi liggur nú frumvarp fyrir alþingi um aö Selfosshreppur hljóti kaup- staðarréttindi. Ef frumvarpið verður samþykkt tekur það gildi eftir sveitarstjórnarkosn- ingarnar i vor. Hlutverk sýslunefndar er m.a. að hafa eftirlit með fjár- reiðum sveitarfélaga. Þær endurskoða reikninga hreppa. Sveitarfélög þurfa einnig að leita samþykkis sýslunefndar á ákveðnum ráöstöfunum, svo sem lántökum, kaupum og sölu á fasteignum og fleiru. Stundum verður þess vart að almenningur ruglast á merk- ingu orðanna hreppstjóri og oddviti (hreppsnefndar). Þessi ruglingur á sér sögulega skýr- ingu. A söguöld voru formenn hreppsnefnda kallaðir hrepp- stjórar. Siðar þegar hrepps- nefndirnar lögðust niður, færð- iststarfsheitið hreppstjóri yfir á embættismenn konungs. Um- boösmenn sýslumanna i hrepp- um landsins héldu siðar þessu nafni. Þegar hreppsnefndir voru endurreistar hér á landi á siðustu öld, var ákveðið að formenn þeirra skyldu heita oddvitar. Þá sagöi Magnús Guðjónsson að varla liði sá dagur að ekki væri talað eða ritað um „bæjar- og sveitarstjórnir.” Rangt er að taka svo til orða þvi skv. sveitarstjónarlögum er sveitar- stjórn samheiti yfir kaupstaði og hreppa. Mörg þúsund manns í nefndum Kjörnir aöalfulltrúar i sveitarstjórnum hér á landi eru 1251, svo sem aö framan sagði. Mörg þúsund manns starfa hinsvegar i nefndum á vegum sveitarstjórnanna. Þótt konur séu fáar i sveitarstjórnunum sjálfum hér á landi, eru þær margar I nefndum— Þetta er mjög lýðræðislegt stjórnarform með mikilli þátttöku almenn- ings, ekki sizt i minni sveitar- félögunum, sagöi Magnús Guðjónsson, þótt óneitanlega sé vald bæjarstjórna og hreppsnefnda minna en alþingis. Nefndir á vegum sveitar- stjórna eru sumar lögákveðnar, svo sem byggingarnefndir, skólanefndir, áfengisvarna- nefndir og heilbrigðisnefndir. Þær hafa i mörgum tilfellum ákvörðunarvald. Hins vegar eru frjálsar nefndir sem hafa til- lögurétt og eru ráðgefandi. Sveitarstjórnir skipa menn I þessar nefndir, en formaður þeirra, er stundum skipaður af ráðherra. Aldursforseti sveitarstjórnar kallar saman fyrsta fund hreppsnefndar eða bæjarstjórn- ar eftir kosningar. A þessum fyrsta fundi er kos- inn oddviti eöa forseti bæjar- stjórnar. Einnig er kosið i nef ndir. hljóðvarp Sunnudagur 12.febrúar 8.00 Morgunandakt Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn- ir. Útdráttur úr forustugr. dagbl. 8.35 Morguntónleikar: Frá Bach-vikunni i Ansbach i Þýzkaiandi i fyrra Flytj- endur: Rolf Junghanns og Bradford Tracey sembal- leikarar, Pierre Amoyal fiðluleikari og Bach-hljóm- sveitin i Ansbach. Stjórn- andi: Hanns Martin Schneidt. a. Sónata i A-dúr fyrir sembal eftir Johann Christoph Bach. b. Hljóm- sveitarsvita iD-dúr. c. Kon- sert i E-dúr fyrir fiölu og hljómsveit eftir Johann Sebastian Bach. 9.30 Veistu svarið? Jónas Jónasson stjórnar spurn- ingaþætti. Dómari: Ólafur Hansson. 10.20 Veðurfregnir. Fréttir. 10.30 Morguntónleikar, — framh. Konsertar fyrir flautu og kammersveit op. 10 eftir Antonio Vivaldi. Severino Gazzelloni og Kammersveitin i Helsinki leika. Stjórnandi: Okko Kamu (Hljóðritun frá finnska útvarpinu). 11.00 Messa i Hallgrímskirkju Prestur: Séra Ragnar Fjal- ar Lárusson. Organleikari: Páll Halldórsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir og frettír. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Þjóðfélagsleg markmið IsIendingaGylfi Þ. Gislason prófessor flytur hádegiser- indi. 14.00 Miðdegistónleikar: Frá Beethoven-hátiðinnii Bonn i sept i haust Claudio Arrau leikurtvær pianósónötur: a. Sónötu i C-dúr op. 53 „Wald- stein-sónötuna”. b. Sónötu i C-dúr op. 2 nr. 3. 15.00 Upphaf spiritisma á ts- landi: — siðari hluti dag- skrár Helga Þórarinsdóttir tekur saman. Lesarar með henni: Broddi Broddason og Gunnar Stefánsson. 15.50 Létt tónlist: Sigmund Groven leikur á munnhörpu Ketil Björnstad pianóleik- ari, Hindarkvartettinn o.fl. ieika meö. 16.15 Veöurfregnir. Fréttir. 16.25 Endurtekið efni: a. Sag- an af Söru Leander Sveinn Asgeirsson hagfræðingur tekur saman þátt um ævi hennar og listferil og kynnir lög, sem hún syngur. Fyrri hluti. (Aöur útvarpaö 6. ágúst I sumar) b. Kynni af merkum fræðaþul Siguröur Guttormsson segir frá Sig- fúsi Sigfússyni þjóðsagna- ritara. (Aöur á dagskrá i mai 1976). 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Dóra” eftir Ragnheiði Jónsdóttir Sigrún Guðjóns- dóttir les (3). 17.50 Djassgestir i útvarpssal Niels Henning Orsted Pedersen, Ole Koch Hansen og Axel Riel leika. Kynnir: Jón Múli Arnason. 18.30 Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 úm kvikmyndir Friðrik Þór Friðriksson og Þor- steinn Jónsson sjá um þátt- inn, sem fjallar um hvernig kvikmynd er unnin. 20.00 Kammertónlist Eva Németh og Bar- tók-strengjakvartettínn leika Pianókvintett op. 57 eftir Sjostakóvitsj. (Hljóð- ritun frá útvarpinu i Búda- pest). 20.30 Útvarpssagan: „Sagan af Dafnis og Klói” eftir Longus Friörik Þóröarson sneri úr grlsku. Óskar Hall- dórsson les sögulok (9). 21.00 islensk einsöngslög 1900-1930 VI. þáttur Nina Björk Eliasson fjallar um lög eftír Sigvalda Kalda- lóns. 21.25 „Heilbrigð sál I hraust- um likama”: þriðji þáttur Umsjón: Geir V. Vilhjálms- son sálfræöingur. Rætt er við læknana Björn L. Jóns- son, Leif Dungal og Sigurð B. Þorsteinsson, Martein Skaftfells og fleiri. 22.15 Sónata fyrir selló og pianó eftir Arthur Honegger Roman Jablonski og Chrystyna Boruzinska leika 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.45 Kvöldtónleikar: Frá ný- árstónleikum danska út- varpsins Sinfóniuhljómsveit útvarpsins leikur. Ein- söngvari: Jill Gomez. Stjórnandi: John Eliot Gardiner. a. „Silete venti”, kantata fyrir sópranrödd og strengjasveit eftir Georg Friedrich Handel. b. Kon- sert fyrir flautu, sembal og strengjasveit op. 4 nr. 3 eftir Johann Joachim Agrell. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Mánudagur 13. febrúar 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar Ornólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Bjarni Sigurðsson lektor flytur (a.v.d.v.). Morgunstund barnanna kl. 9.15: Guörún Guölaugsdótt- ir les „Söguna af þverlynda Kalla” 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Maður uppi á þaki" eftir Maj Sjö- wall og Per Wahlöö Ólafur Jónsson les þýöingu sina (8). 15.00 Miðdegistónleikar: ts- lensk tónlist. , 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn Þorgeir Ast- valdsson kynnir. 17.30 Tónlistartimi barnanna Egill Friöleifsson sér um timann. 17.45 úngir pennar Guörún Þ. Stephensen les bréf og rit- gerðir frá börnum. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki Til- kynningar. 19.40 Um daginn og veginn Óðinn Sigþórsson bóndi i Einarsnesi á Mýrum talar 20.00 Lög unga fólksins Rafn Ragnarsson kynnir. 20.50 Gögn og gæöi Magnús Bjarnfreösson stjórnar þætti um atvinnumál. 21.55 Kvöldsagan: „Mýrin heima, þjóðarskútan og tunglið" eftir Ólaf Jóhann Sigurösson. Karl Guð- mundsson leikari les fyrsta lestur af þremur. 22.20 Lestur Passiuslma Hlynur Arnason les 18. sálm. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Frá tónleikum Sinfonfu- 'hljómsvcitar tslands i Há- skólabiói á fimmtudaginn var: — siðari hlutí Stjórn- andi: George Trautwein a. Sónata eftir Eric Stokes. b. Siníónia nr. 2. „Róman- tiska hljómkviðan” op. 30 eftir Howard Hanson. — Jón Múli Arnason kynnir — 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Sunnudagur 12.febrúar 16.00 Hdsbændur og hjtí (L) Breskur myndaflokkur. Heimili óskast Þýðandi Kristmann Eiðsson. 17.00 Kristsmenn (L) Breskur fræðslumyndaflokkur. 8. þáttur. Að vinna sálirFljót- lega gerðist helmingur Evrópubúa mótmælendur. En kaþólska kirkjan tók stakkaskiptum og á hennar vegum var ótullega unnið aö kristniboöi i Asiu og Ame- riku. Þýöandi Guðbjartur Gunnarsson. 18.00 Stundin okkar (L) Um- sjónarmaður Asdls Emils- dóttír. Kynnir ásamt henni Jóhanna Kristin Jónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés Ind- riðason. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Reykjavikurskákmótiö (L) 20.45 Heimsókn Styrktarfélag vangefinna Litiö er inn á dagheimilin Lyngás og Bjarkarás og fylgst með bóklegu og verklegu námi. Rætt er viö forstöðukonurn- ar Grétu Bachmann og Hrefnu Haraldsdóttur. Magnús Kristinsson, for- mann Styrktarfélags van- gefinna og Margfeti Mar- geirsdóttur félagsráögjafa. Þá eru viðtöl við foreldra vangefinna barna og vist- menn á dagheimilunum. Umsjónarmaður Valdimar Leifsson. 21.45 Röskir sveinar (L) Sænskur sjónvarpsmynda- flokkur 5. þáttur. Efni fjóröa þáttar: Farandsali heimsækir Idu meðan Gústaf er ekki heima og gerist nærgöngull við hana. Henni tekst aö losa sig við hann en kjólefni sem hann hafði boðiö henni verður eftír. Farandsalinn ber út óhróður um samband þeirra Idu. og margir verða til að trúa honum, meðal annarra Gústaf, ekki sist eftir að hann finnur kjólefnið i læk, þar sem Ida hafði sökkt þvi. Matarskortur hrjáir, fjöl- skyldu Gústafs og veldur óbeinlinis dauöa Marteins, yngsta sonar þeirra. Þýð- andi óskar Ingimarsson. (Nordvision — Sænska sjón- varpiö) 22.45 Jasshátiðin I Pori (L) Upptaka frá tónleikum hljómsveitarinnar Wallace Davenport All Star New Or- leans Band i Pori sumarið 1977. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 23.15 Að kvöldi dags (L) Séra Brynjólfur Gislason sóknar- prestur I Stafholti i Borgar- firði flytur hugvekju. 23.25 Dagskrárlok Mánudagur 13. febrúar 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Reykjavikurskákmótið (L) 20.45 tþróttir Umsónarmaður Bjarni Felixson. 21.15 Silfurbrúðkaup Sjón- varpsleikrit eftir Jónas Guömundsson. Persónur og leikendur: Þóra / Sigíiöur Hagalin Bryndis / Bryn- dis Pétursdóttir. Leikstjóri Pétur Einarsson. Leikmynd Gunnar Baldursson. Stjórn upptöku Egill Eövarðsson. Fumsýnt 23. nóvember 1975. 21.40 Hvað má sýna? (L) Umræöuþáttur um kvik- myndaeftirlit á Islandi. Bein útsending. Umræðum stýrir Gunnar G. Schram. Þátttakendur I umræðunum verða Ihor Vilhjálmsson, forseti Bandalags Islenskra Iistamanna, og Þórður Björnsson rikissaksóknari, en auk þess verða kannaöar skoðanir ýmissa annarra á málinu. 22.40 Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.