Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 5
Sunnudagur 12. febrúar 1978
Vilji islenzka þjóöin bera höf-
uðiö hátt verður margt aö
breytast, og margt verður að
laga. Það þarf stórum meira til
en hallalaus fjárlög, sem auð-
vitað eru sjálfsögð, þó að fjár-
lögin 1978 verði varla talin
sparnaðarfjárlög.
Ef von á að vera um árangur,
verður að krefjast samstöðu og
samhugar allra ábyrgra aðila
þjóðfélagsins, þar sem aðeins
eitt sjónarmið ræður — þjóðar-
heill. Byrja verður á réttum
enda — ofanfrá —. Aðgerðirnar
verða að vera róttækar og afger
andi. Byrja mætti á sjálfu Al-
þingi, og þar sniðasér stakk við
hæfi. Fækka þingmönnum um
allt að þriðjungi, sem störfuðu i
einni þingdeild, svo sem ýmsir
hafa lagt til. Þar væri um aug-
ljósan sparnað að ræða, m.a.
sparaðist ný Alþingishússbygg-
ing, oglaunasparnaöinn má lika
taka inn i dæmið. Sú skipan, að
Alþingi starfaði I einni þing-
deild, mundi vafalaust gera allt
þinghaldið léttara i vöfum.
Þingmenn hættu að eyða dag-
legum starfstima sinum i litils-
vert skvaldur utan dagskrár,
þjóðinni, og trúlega sjálfum sér
til léttis og ánægju. Þingmenn
verða að sýna það, eins og I
landhelgisdeilunni, að þeir geta
staðið saman sem einn maður
við að sniða af verstu og aug-
ljósustu gallana i þjóðarbú-
sttapnum. Ogþar eraf mörgu að
taka. Draga þarf bankakerfið
stórlega saman. Með samruna
rikisbankanna og raunar ann-
Þj óðarheill
arra banka og sparisjóða lika,
ásamt aukinni hagræðingu,
sparaðist stórlega bæði húsnæði
og marnafli. Það er hrein of-
rausn, að tuttugasti hver vinnu-
fær Islendingur eyði starfs-
kröftum sinum i banka. Tilsvar-
andi sameining og hagræðing
þarf að eiga sér stað hvarvetna i
öllu rikiskerfinu.
Þetta þýddi, i stórum drátt-
um, að I stað sifelldrar árlegrar
útþenslu, kæmi allsherjar hag-
raáiing, samdráttur, sparnaður.
Mikil endurnýjun og einföldun
þarf aðeiga sér stað hjá Trygg-
ingarstofnun rikisins. Setja þarf
lög um lifeyrissjóð allra lands-
manna, sem yfirtekur alla lif-
eyrissjóði landsins, undir stjórn
Tryggingarstofnunarinnar.
Ellilifeyrir sem slikur ætti að
falla niður, en hver þjóöfélags-
þegn, sem lætur af störfum við
67 eða 70 ára aldur, ætti rétt á
lifvænlegum launum, úr þeim
sjóði, samkvæmt þvi, sem hann
hefur til hans greitt. Þetta úti-
lokaði m.a. þá firru, að nokkur
geti, auk venjulegs ellilifeyris,
fengið greitt úr fleiri en einum
lifeyrissjóði.
Utanrikisþjónustuna þarf að
Leikfélag Kópavogs
frumsýnir
Leikrit eftir
Soya
Leikfélag Kópavogs frumsýn*
gamanleikinn „Jónsen sálugi”
eftir Carl Erik Soya föstudaginn
10. febr. n.k. kl. 20.30 i Félags-
heimili Kópavogs. Leikstjóri er
Guðrún Þ. Stephensen og er þetta
annað verkefnið sem hún leik-
stýrir hjá L.K. hið fyrra var söng-
leikurinn „Bör Börsson jr.” fyrir
tveimur árum.
Þetta er fyrsta leikritið eftir
Danann Soya sem sýnt er á is-
lenzku sviði en leikrit eftir hann
hafa verið flutt i útvarp. Soya var
fæddur skömmu fyrir siðustu
aldamót og dó fyrir fáum árum.
Hann samdi leikrit sögur og ævi-
minningar. Hnn er oft hæðinn og
ádeilinn i verkum sinum og
broddborgararnir fá oft kaldar
kveðjur. A efri árum urðu sögur
hans og leikrit erotiskari og hófst
sú þróun með sögunni „Sautján”,
en eftir henni var gerö fyrsta
„rúmstokksmyndin”, sá mynda-
flokkur með danska leikaranum
Ole Söltoft hefur orðið mjög vin-
sæll hérlendis.
„Jónsen sálugi” er saminn
Migrainesamtök
stofnuð í Reykjavik
og nágrenni
Laugardaginn 4. febrúar s.l.
var haldinn undirbúningsstofn-
fundur MIGRAINE-SAMTAK-
ANNA. Fundurinn var haldinn
til að kanna undirtektir við stofn-
un slikra samtaka. A fundinum
fluttu stutt erindi dr. med. Gunn-
ar Guðmundsson yfirlæknir og
Tryggvi Jónasson kirópraktor.
Regina Einarsdóttir bauð
fundargesti velkomna og setti
fundinn f.h. undirbúningsnefnd-
ar. Fyrst tók til máls Norma E.
Samúelsdóttir og skýrði i stuttu
máli frá þeim undirbúningi, sem
átt hefði sér stað fyrir þennan
fund. Dr. Gunnar flutti stutta tölu
um migraine. Tryggvi ræddi um
möguleika hnykkingaaðferða til
að draga úr tiðni migraineskasta
og Einar Logi Einarsson kynnti
nokkrar hugmyndir undirbún-
ingsnefndar um tilgang og stefnu-
mið samtakanna.
Helgi Hannesson form. Sam-
taka sykursjúkra lýsti yfir
ánægju sinni með það frumkvæði
sem sýnt hefði verið meö að halda
þennan fund. Ma \,.r aðrir
fundargesta tóku til máls og virt-
ist einhugur rikja um nauðsyn
stofnunar samtakana.
Undirbúningsnefnd fyrir eigin-
legan stofnfund samtakanna, þar
sem fólki yröi gefin kostur á aö
gerast stofnfélagar, var skipuð
þeim Normu E. Samúelsdóttur,
14003 Reginu Einarsdóttur, s.
26568, Einari Loga Einarssyni s.
14777, Mariu Gunnarsdóttur og
Jóhannesi Jónssyni s. 82599.
Fundinn sóttu á annað hundrað
manns og gerðist 91 stofnfélagi.
taka til vandlegrar skoðunar, og
verður þjóðin þar að sniða sér
stakk við hæfi, og ekki of viðan.
Vinnulöggjöfin þarfnast alls-
herjar endurskoðunar, og stór-
legrar einföldunar. Orlofs-
greiðslur ætti að fella niður með
öllu, en gengju beint til launþeg-
ans I hærra timakaupi. Þetta
sparaði margs konar skrif-
finnsku, og tryggði að allir laun-
þegar fengju sitt, en á þvi er nú
mikill misbrestur, sem nemur
milljónum eða milljónatugum
árlega. Orlofsfé tryggir lika
hvorki eittné neitt, þvi útilokað
er að hafa nokkurt eftirlit með
þvi hvort menn taka orlofsfri
eða ekki. Hér er aðeins verið að
halda fé fyrir fólki að ástæðu-
lausu, og ættum við launþegar
að knýja á forsjármenn okkar i
launþegafélögunum að veita
þessu stórmáli brautargengi.
Eitt af verstu meinum þjóðfé-
lagsins eru hinar tiðu vinnudeil-
ur með tilheyrandi vinnustööv-
unum, auðvitað alltaf i' nafni lit-
ilmagnans, þar sem jafnréttis-
stefnan er sett i öndvegi. í viga-
. móði hnotabitast tugir eða
, hundruð samningamanna i
glæsisölum Loftleiða,viku eftir
: viku meðan þjóðinni blæðir, og
allt heilbrigt atvinnulif er sett
úr skorðum. Þegar svo þessir
galvösku samningamenn vakna
til fullrar meðvitundar eftir
undirskrift, samþykkt sáttar-
gjörðarinnar, kemur i ljós, að
jafnlaunastefnan er orðin að
lágláunastefnu. Hálaunamenn-
irnir fleyta rjómann, enda fylla
ekki svo fáir samningamann-
anna einmitt þann flokk, en lág-
launafólkið fær óðaverðbólguna
i sinn hlut. Þeir, sem alltaf hafa
grætt á veröbólgunni og allri
ringulreiðinni brosa sætt og
hugsa: ,,Ó, þetta indæla strið”.
Verkfallsófreskjan, sem upp-
lýst þjóðætti að hætta að trúa á
og setja á bekk með forynium
og tröllum er sá skaðvaldur
öllu heilbrigðu atvinnulifi þjóð-
arinnar, að leysa verður ágrein-
ingsefni vinnumarkaðarins i
framtiðinni, eftir öðrum ábyrg-
ari og happasælli leiðum. En
þar verður að koma til löggjöf.
Forkólfum stéttarfélaganna
virðist, þvi miður, vera með öllu
fyrirmunað aö rifa sig út úr
þeirri einu rás, sem þeir hafa
anað ár og sið og alla tið, og
meðlimir hinna ýmsu stéttarfé-
íaga eru lika alltof sinnulitlir
um sin mál, og veita þvi for-
sprökkunum ekki það aðhald,
sem þörf er á.
Næst: Að takast á við vand-
ann' _ JKr.
skömmu fyrir 1960. Leikurinn
gerist I Helsingör á Sjálandi um
1920. Sumum kann að finnast það
fulldjarft, þó ætti landinn að vera
orðinn ýmsu vanur i þeim efnum.
Leikfélag Kópavogs æfir nú
leikritið „Vakið og syngiö” eftir
Clifford Odets undir leikstjórn
Hauks J. Gunnarssonar. Frum-
sýning verður i marz.
Áskriftarkort á þessi tvö leikrit
fást i Verzl Gjábakki i Skiptistöð
SVK og Bókaverzl. Vedu, Hamra-
borg 5. Þáu eru mun ódýrari en
venjulegur leikhúsmiði.
Ætlunin var að hætta brátt
sýningum á „Snædrottníngunni”
en aðsókn hefur aukizt svo að
sýnilegt er að fjölga verður
sýningum, en leikritið hefur verið
sýnt einu sinni i viku alla sunnu-
daga kl. 3.00 s.d. og verður svo
framvegis.
Þá hefur L.K. ákveðið að efna
til leikmóts i Kópavogi dagana
15.-22. april undir nafninu „Kópa-
vogsvakan” Leikfélög utan af
landi eru þá velkomin með verk
sin til sýninga i Félagsheimili
Kópavogs.
Só/argeis/inn frá F/orida
ER ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA
[
/ Herradeild JMJ
VIÐ HLEMM
HUbSTV
Æl
SIACA