Tíminn - 12.02.1978, Page 21

Tíminn - 12.02.1978, Page 21
Sunnudagur 12. febrúar 1978 21 Arnað heilla 5.11. ’77 voru gefin saman i Bústaöarkirkju af sr. Ólafi Skúlasyni.Guö- riöur Sveinbjörnsdóttir og Sveinn Lárus Gunnarsson og Sigriöur tsól Gunnarsson og Guðmundur Björn Gunnarsson. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suöurveri Simi 34852). 22.10 '77 voru gefin saman i hjónaband af sr. Þóri Stephensen i Dómkirkjunni Ingibjörg L. Arnadóttir og Jón Baldursson heimiliEngjaseli 65 R. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suöurveri). 15.10. ’77 voru gefin saman I hjónaband af sr. Garðari Þor- steinssyni i Bessastaðakirkju As- laug Guðmundsdóttir og Sigurður Halldór Einarsson heimili Lang- holtsvegi 95 R. (Ljósm.st. Gunn- ars Ingimars Suðurveri). 15.10. ’77 voru gefin saman i h.iónaband i Háteigskirkju af sr. Grimi Grimssyni Hildur Sigurðar dóttir og Sigurjón A. Ólafsson heimili Flúðaseli 91, R. (Ljósmst. Gunnars Ingimars. Suðurveri). 5.11. ’77 voru gefin saman i hjónaband af sr. Halldóri S. Gröndal i Háteigskirkju Arndis Gisladóttir og Asgeir Sigurðsson heimili Spólahólum 12, R. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri). . Astraliufararnir sex, nánast einkennisbúnir til sins postullega embættis Timamynd: Róbert, Á vegum Rótarýsamtakanna: Sex í kynnisför til Ástralíu Sex ungir tslendingar lögðu I gær af stað i kynnisferð á vegum Rótarýsamtakanna til Astraliu, og er þessi ferð farin til þess að endurgjalda heimsókn sex Ástra- liumanna siðast liðið vor, sagði Jón R. Hjálmarsson fræöslustjóri við Timann i gær. Þessi menn eru þó ekki úr Rótarýsamtökunum sjálfir, þvi að það skilyröi er ein- mitt þeim sett, er slikar kynnis- og kynningarferðir fara aö þeir séu hvorki Rótarýmenn sjálfir né tengdir þeim. Samkvæmt reglum Rótarý- samtakanna eiga þeir að vera 25- 35 ára gamlir og vammlausir borgarar. Til fararinnar voru valdir Baldur Snær Ólafsson, kennari á Egilsstöðum, Bjarni Þór Jónsson, bæjarstjóri á Siglu- firði, Svavar Stefánsson sóknar- prestur i Neskaupstað, Sveinn Hannesson, viðskiptafræðingur i Kópavogi, Jón Sigurðsson, for- stjóri i Reykjavik, og Óskar Þór Sigurbjörnsson, kennari i Ólafs- firði, sem er fararstjórinn og tók þátt i hinni einu ferð þessarar tegundar, er áður hefur verið far- iö héðan af landi. Ætlunarverk þeirra sexmenn- inganna er að kynna tsland , islenzka menningu og islenzka lifshætti sem bezt. íswSL! -y 1 S3| Ný gullsmiðaverzlun var nýlega opnuð I nýju verzlunar- og skrifstofuhúsnæði aö Laugavegi 71 i Reykjavik. Eigandi verzlunarinnar er Ulrich Falkner gullsmiður sem áöur var með gullsmiðaverzlun við Lækjartorg. I hinni nýju verzlun verður veitt alhliða þjónusta á sviði gullsmiða. A þessari mynd er eigandi verzlunarinnar, Ulrich Falkner, ásamt eiginkonu sinni og tveimur starfsstúlkum. Fánakynning og ritgerðar - samkeppni í skálum á Suðumesjum A undanförnum árum hefur félagið Junior Chamber Suðurnes kynnt nemendum i 11 ára bekkj- um barnaskóla og siðan grunn- skóla á Suðurnesjum sögu Is- lenzka fánans og þær reglur sem gilda um notkun hans, svo og upp- lýst við hvers konar tækifæri hann er notaður. I framhaldi af þessu verkefni hefur félagið nú fært öllum grunnskólum á Suðurnesjum, 7 að tölu, islenzkan fána og fótstall, og væntir þess að skólarnir noti fán- ann okkar við hátiðleg tækifæri og tryggi að nemendur kynnist þannig notkun hans og hvernig ber að sýna þjóðfánanum tilhlýði- lega virðingu. Við sama tækifæri var nemend- um kynnt nýtt verkefni sem til þeirra höföar: Ritgeröarsam- keppni um iðnað á Suðurnesjum. Hún nær til nemenda I 9. bekk grunnskólanna á svæðinu svo og i Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún fer fram á næstu vikum og lýkur um miðjan febrúar, en úr- slit munu liggja fyrir i byrjun marz. Ritgerðarsamkeppnin er hluti af fjölþættu verkefni, sem fjallar um iðnað á Suðurnesjum, aðstöðu hans i mörgum atriðum, vaxtar- möguleika og hugsanleg ný tæki- færi i iðnaði. Aðrir þættir þessa verkefnis eru: Ráðstefna 4. febrúar nk. hvar fram munu koma erindi og umræður um þessi mál. Starf i umræöuhópum til að kryfja upplýsingar og hug- myndir frá ráðstefnunni, svo og sem fengnar yrðu með öörum hætti. Sérstakt blað mun flytja niður- stöður þessara umræðuhópa, er- indi frá ráðstefnunni, verðlauna- ritgerðir, svo og annað efni sem málið snertir. Borgarafundur verður siðan haldinn til að skýra nánar niður- stöðurnar, kynna höfunda verð- launaritgerða og ræða málið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.