Fréttablaðið - 13.08.2006, Qupperneq 28
ATVINNA
8 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
Misjafnlega hefur gengið
að manna í hlutastörf í
frístundaheimilum ÍTR
undanfarin ár. Steinunn
Gretarsdóttir, deildar-
stjóri barnastarfs í
Frostaskjóli, segist þó
vongóð um að takist að
manna allar stöður í ár.
Um það bil 300 stöður eru í
boði á frístundaheimilum
ÍTR og mun það vera sami
fjöldi og síðustu tvö ár.
„Okkar stærsta vandamál
er að það eru svo fáir starfs-
menn í fullu starfi, það eru
aðeins umsjónamenn frí-
stundaheimilana sem eru í
100% starfi og svo eru ein-
staka starfsmenn í 50%
starfshlutfalli. Langflestir
okkar starfsmanna eru í
minna en 50% starfshlut-
falli, allt niður í einn eftir-
miðdag í viku,“ segir Stein-
unn.
Að sögn hennar er stærst-
ur hluti starfsmanna frí-
stundaheimilanna náms-
menn og hjá þeim breytast
allar forsendur í hvert skipti
sem þeir fá nýja stunda-
töflu. „Það gekk erfiðlega
að manna allar stöður í
fyrra þar sem mikið góðæri
var á vinnumarkaðnum og
launamálin voru heldur ekki
mjög hagstæð. Við gátum
ekki boðið fólki fulla vinnu
og það leitaði í betur launuð
störf. Launaumhverfið
breyttist þó með nýjum
kjarasamningum en miðað
við þessar forsendur þá
hefur okkur gengið nokkuð
vel að manna.“
Starfsmannastefna ÍTR
gengur markvisst út á það
að gera vinnustaðinnn aðlað-
andi fyrir fólk og segir
Steinunn ástæðuna fyrir því
að fólk sé að hætta ekki vera
þá að það sé óánægt í starfi.
„Ég lagði fram óformlegan
spurningalista til starfs-
fólks sem var að hætta og
spurði það út í ástæður upp-
sagnarinnar. Það kom í ljós
að fólk var ekki að hætta af
því það var óánægt í vinnu
hjá okkur, flestir voru að
hætta af öðrum ástæðum,
svo sem vegna námsins.“
Steinunn er bjartsýn á að
vel muni gagna að manna
frístundaheimilin í vetur.
„Ástandið á atvinnumark-
aðnum er ekki alveg eins
gott og það hefur verið. Von-
andi tekst okkur líka að gera
starfið að meira aðlaðandi
kosti. Við í borgarhluta 1
áttum þó aldrei í sérstökum
vandræðum með að manna í
stöður hjá okkur þar sem
við höfum nálægðina við HÍ
og LHÍ enda mikið af okkar
starfsfólki sem kemur
þaðan. Það hefur gengið
verr að manna í úthverfun-
um þar sem fjarlægðin við
háskólana er meiri.“ segir
Steinunn Gretarsdóttir.
valgeir@frettabladid.is
Hröð starfs-
mannavelta
Steinunn Gretarsdóttir, deildarstjóri barnastarfs Frostaskjóls, er vongóð um
að vel muni ganga að manna í stöður í frístundaheimilum ÍTR í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Beiðnir vegna hlutastarfa
á haustönn byrja að berast
Atvinnumiðlun stúdenta í ágúst
og á vorönn strax í byrjun
janúar.
Því fyrr sem þú skráir þig,
þeim mun meiri líkur á að fá
starf. Það er Stúdentamiðluninni
í hag að fá umsóknir sem fyrst
á skrá vegna hlutastarfa. Komið
hefur fyrir að of fáir hafa verið á
skrá þegar beiðnir berast og því
ekki verið hægt að manna þau
hlutastörf sem í boði eru.
Sýndu því fyrirhyggju og
skráðu þig tímanlega ef þú
ert ákveðin(n) í að vinna með
skóla. Haustið 2004 skorti til
dæmis umsækjendur í ágúst í
hlutastörf. (www.am.is)
Hlutastarf með skóla