Tíminn - 17.03.1978, Blaðsíða 19
Föstudagur 17. marz 1978
19
I
flokksstarfið
Framsóknarfélag Akureyrar
Framvegis verður skrifstofan opin á milli kl. 13 og 19 virka daga.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er hvatt til að lita inn og
kynna sér starfsemina.
Borgnesingar — Borgnesingar
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarness verður haldinn i
Snorrabúð mánudaginn 20. marz kl. 21 (kl. 9).
Framsóknarfélag Sauðárkróks
Næstu mánuði verður skrifstofan i Framsóknarhúsinu opin milii
17 og 18 á laugardögum. Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er
hvatt til að lita inn á skrifstofuna. Stjórnin
Akranes
Þeir sem ætla að taka þátt i skoðanakönnun vegna bæjar-
stjórnarkosninga eða vilja koma með ábendingar, hafi samband
við Andrés Olafsson Kirkjubraut ll.simi 2100, fyrir 19. þ.m.
Kosninganefndin
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Neðstutröð 4 verður fyrst
um sinn opin mánudaga til föstudaga frá kl. 17.15 til kl. 19.15.
Stjórnir félaganna.
Akureyringar
Fyrsta spilakvöld Framsóknarfélags Akureyrar af þremur,
verður föstudaginn 17. marz (i kvöld) að Hótel KEA og hefst það
kl. 20.30. Góð verðlaun verða i boði og eru allir velkomnir.
Nefndin.
hljoðvarp
Föstudagur
17. mars
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Guðrún Asmundsdóttir
lýkur lestriá „Litla húsinu i
Stóru-Skógum” sögu eftir
Láru Ingalls Wilder i þýð-
ingu Herborgar Friöjóns-
dóttur, Böðvar Guðmunds-
son þýddi ljóðin (14). Til-
kynningar. kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Það er svo margtkl.
10.25: Einar Sturluson sér
um þáttinn. Morguntónleik-
arkl. 11.00: Maurice André
og kammersveit leika
Trompetkonsert i D-dúr eft-
ir Leopold Mozart, Je-
an-Francöis Paillard stj.
Cleveland hljómsveitin leik-
ur Sinfóniu nr. 6 i F-dúr op.
68 eftir Beethoven, George
Szell stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Reynt
að gleyma" eftir Alene Cor-
liss Axel Thorsteinson les
þyðingu sina (8).
15.00 Miðdegistónleikar Kon-
unglega filharmóniusveitin
i Lundúnum leikur Scherzo
Capriccioso op. 66 eftir Dvo-
rák og Polka og Fúgu úr
óperunni „Schwanda” eftir
Weinberger, Rudolf Kempe
stjórnar. Jascha Heifetz og
Emanuel Bay leika lög eftir
Wieniawski, Schubert o.fl.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Dóra” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur Sigrún Guöjóns-
dóttir les (17).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
■ kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Viöfangsefni þjóðfélags-
fræða Ingibjörg Guðmunds-
dóttir þjóðfélagsfræðingur
flytur erindi um öldrunar-
félagsfræði.
20.00 Frá óperutónleikum
Sinfóniuhi jóms veitar ís-
lands og Karlakórs Reykja-
vikuri Háskólabiói kvöldið
áður. Stjórnandi: Wilhelm
Bruckner-Ruggeberg Ein-
söngvarar: Astrid Schirmer
sópran og Heribert Stein-
bach tenór — öll frá Vest-
ur-Þýskalandi. Fyrri hluti I
efnisskrár, sem útvarpað
verður þetta kvöld, er tón-
list úr óperunni „Fidelio"
eftir Ludwig van' Beet-
hoven: Forleikur. Aria
Leónóru. Fangakórinn. Tvi-
söngur Leónóru og Flore-
stans. — Jón Múli Arnason
kynnir tónleikana.
20.50 Gestagluggi Hulda Val-
týsdóttir stjórnar þætti um
listir og menningarmál.
21.40 Ballettmúsik úr óperunni
„Céphale et Procris” eftir
Andrc Grétry i hljóm-
sveitarbúningi eftir Felix
Mottl. Sinfóniuhljómsveitin
i Hartford leikur, Fritz
Mahler stjórnar.
21.55 Smásaga: „Ballið áGili”
eftir Þorleif B. Þorgrimsson
Jóhanna Hjaltalin les.
22.20 Lestur Passiusálma
Kjartan Jónsson guðfræði-
nemi les 45. sálm
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Afangar Umsjónar-
menn: Asmundur Jónsson
og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Föstudagur
17. mars
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Lundinn og vargurinn
(L) Kanadisk heimilda-
mynd. A eyju nokkurri und-
anströnd Nýfundnalands er
einhver mesta lundabyggð
Ameriku. Lifsbarátta lund-
ans harðnar með hverju ár-
inu vegna vaxandi fjölda
máva, sem verpa á sömu
slóðum. Þýðandi og þulur
Eiður Guðnason.
21.00 Kastljós (L) Þáttur um
innlend málefni. Umsjónar-
maður Helgi E. Helgason.
22.00 Þriðja atlagan
(Harmadik nekifutás) Ung-
versk biómynd. Leikstjóri
Peter Bacsó. Aðalhlutverk,
István Avar. István Jukas
stjórnar stórri verksmiðju.
Hann var áður logsuðumað-
ur en hefur komist vel
áfram. Vegna óánægju seg-
ir hann upp starfi sinu og
reynir að taka upp fyrri
störf. Þýðandi Hjalti Krist-
geirsson.
23.30 Dagskrárlok.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21 sunnudaginn 19. marz og hefst
kl. 16.00.
öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Aðalfundur V.-Skaftfellinga
Aðalfundur Framsóknarfélags V-Skaftfellinga verður haldinn i
Vikurskála, þriðjudaginn 21. marz kl. 21.
Veniuleg aðalfundarstörf.
A fundinum mæta alþingismennirnir Jón Helgason og
Þórarinn Sigurjónsson.
Stjórnin
Miklar úraníumnámur finnast í
Ástraliu
Canberra, Astralia. Nyjar úrani-
umauðlindir hafa fundizt i
norðurhluta Astralfu. Úranium
fannst nú á svokölluðu Ranger
svæði, sem er innan fyrirhugaðs
hióðearðs Kakadu. Aðstoðarfor-
sætisráðherra Astraliu hefur látið
hafa ef tir sér að verði niðurstöður
frekari borana samhljóða fyrri
rannsóknum, sé líklegt að úrani-
umnámurnar i Ranger séu hinar
stærstu i heimi. Framkvæmdir
við vinnslu úraniums getaþó ekki
hafizt á þessu svæði fyrr en gerð-
ar hafa verið umfangsmiklar um-
hverfisrannsóknir, þar eð náma-
gröftur hefði i för með sér mikla
röskun á þjóðgarðssva;ðinu.
Nýju svæðin.sem nú eru hafnar
rannsóknir á^virðast mun úrani-
umauðugri en þau svæði i Ranger
þar sem þegar er hafin vinnsla.
Yfirmaður úraniumrannsókn-
anna telur þó að of snemmt sé að
gera spár og enn þurfi að bora
fleiri tilraunaholur.
• •—♦•••••MtMMf MMtff M
j Tímínn er •
• peníngar |
j AuglýsícT í
: & Timanum j
Tyrkland:
Sex farast
í spreng-
ingu
Istanbúl/Reuter. Sex stúdentar
létu lifið og 44 særðust i sprengju-
árás áháskólann i Istanbul i gær.
Lögreglan sagði að hópur vinstri-
sinnaðra stúdenta hefði varpað
sprengjunni en þeir komu til há-
skólans eftir hádegismat. Allir
höfðu þó farið gegnum skoðun ör-
yggisvarða. Fimm stúdentar létu
þegar lifið i sprengingunni, en
hinn sjötti dó skömmu siðar á
sjúkrahúsi.
O Missagnir
forystumenn Þórshafnar teldu
sig þurfa að kvarta undan tóm-
læti eða aðgerðaleysi þeirra i
þessum efnum.
Hvað snerti kaup Sildarverk-
smiðja rikisins á sildarbræðsl-
unni á Þórshöfn, sagði Ingvar
ennfremur, myndu þau mál
hafa gengið fram i sildarverk-
smiðjustjórn ef fulltrúar Fram-
sóknarflokksins hefðu þar einir
fengið að ráða. Stefán Jónsson
mætti hinsvegar kynna sér af-
stöðu fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins I stjórn Sildarverk-
smiðja rikisins, sagði Ingvar
Gislason að lokum.
FYRIR PASKANA
Full búð af kjarnmiklum
r m
nyjum vorum
Fallegar tweed-kápur
m/hettu og ullarúlpur
á góðu verði.
Takiö eftin
Páskasendingin af barnakjólunum
okkar er komin. Nýrómantíska
línan, mjög fallegir. Ennfremur ný
sending af pevsum og spariskyrtum.
Sá Bleiki býóur alla velkomna,
jafnt unga sem aldna.
Skíðajakkarí páskafrfinu
BLEIKIPARDUSINN
VIÐ BANKASTRÆTI