Tíminn - 02.04.1978, Síða 26

Tíminn - 02.04.1978, Síða 26
26 Sunnudagur 2. aprll 1978 Anthon Mohr: Árni og Berit barnatíminn Ævintýraför um Kyrrahafið og Suður-Ameríku fræðingurinn, en héraðið austan við Titicacavötn- in er næstum óbyggt. Allt, sem við þörfnumst á ferðalaginu, verðum við að hafa með okkur. Ætlast er. til, að hver burðarmaður beri að meðaltali 30 kg. Helm- ingurinn af þeirri þyngd er hans eigið nesti til hálfsmánaðar ferðar. Auk þess má alltaf búast við að einhverjir af þeim, sem ráðnir eru, gangi úr skaftinu eða forfallist á siðustu stundu, svo að ekki veitti af að ráða svo marga menn, og liklega eru þeir fremur of fáir en of margir”. Báðir höfðu þeir Clay og Wilson fengið leyfi til fararinnar og þeir hlökkuðu mjög til að hefja þessa ferð. 10. Næsta morgun 21. mai, lögðu þau upp frá Lima með járnbraut- inni. Grainger hafði leigt sér einkavagn, sem var tengdur aftast i les- ina. Aftan á vagninum voru breiðar svalir með körfustólum og bekkj- um. Af þessum svölum höfðu þau ágætt útsýni yfir héraðið. Þau systkinin Árni og Berit höfðu nú, eftir þriggja ára þrotlaust ferðalag, misst alla til- hlökkun og ferðagleði. Þau urðu ekki uppnæm fyrir smámunum, og það þurfti talsvert að gerast til þess að þau yrðu fyrir hrifningu. En á þessari leið urðu þau þó reglulega hrifin. Aldrei höfðu þau séð neitt þessu likt. Það er lika talið vafasamt, hvort nokkursstaðar i veröidinni sjáist slik náttúrufegurð, sem blasir við sýn á járn- brautinni frá Lima upp á hásléttuna. Fljótið Rimac sem á upptök sin efst uppi i Andesfjöllun- um, hefur grafið sér þröngan dal eða gljúfra- leið niður hliðarnar, en upp með fljótinu liggur jámbrautin i stöðugum krókum og beygjum, eins og krákustigur, si- hækkandi, þar til há- marki er náð 4775 m yfir hafið (Mont Blanc er 4810 m.) Ofan til er dalurinn þröngur og gnúpur f jall- anna ógnandi. Útsýnið var þá viða likt og i ævintýrum, þrungið ógn og spenningi en ekki ein- skærri fegurð, en öðru hverju opnaðist þó hrif- andi útsýni til f jarlægra, himinhárra, snjóþak- inna f jallatinda, og vegna þeirra augnablika gleymdust h%tturna og eriðleikarnir, en hrinf- ingin tók allan huga ferðafólksins. En jámbrautarferð upp til hárra fjalla er sérkennilega erfið mörgum farþegum. Vitanlega þurfa þeir ekkert að strita, en sitja i mjúkum þægilegum sætum. Sterkar vélar og margskonar útbúnaður knýr og togar vagnana upp á við, en eftir þvi sem hæra dregur þynn- ist andrúmsloftið og loftþunginn minnkar. Þá er það „loftveikin” (soroche) sem segir til sin. Er hún sérstaklega hættuleg fólki, sem er hjartabilað eða veiklað fyrir hjarta. Eina meðalið, sem læknar þessa veiki, er að hraða sér sem mest niður til lægri byggða. Berit fann þá einu breytingu á sér, að æða- sláttur hennar varð ör- ari, en annars fann hún ekki til neinna óþæg- inda, og smátt og smátt komst þetta i samt lag aftur. Ámi og ferða- félagarnir þrir, fjall- göngumennirnir, urðu einskis varir og ekki Linda litla heldur, þótt allir óttuðust, að hún þyldi háfjallaloftið illa, en það var kennslukon- an ein, sem átti erfitt. Nokkm áður en komið var upp i 4000 m. hæð, fékk hún ákafan hjart- slátt og ógleði. Fyrst reyndi hún að harka af sér, en endirinn varð sá, að á næstu stöð yfirgaf hún lestina og tók sér far með apnarri lest niður til strandar- innar, og var svo ákveð- ið, að hún dveldi i skip- inu meðan hin væru á Næsta morgun lögöu þau upp frá Lima meö járnbrautarlestinni. hásléttunni og gengu á fjallatindana. Berit þótti leitt, að kennslukonan skyldi þurfa að snúa aft- ur. Vitánlega var hún kaldlynd og skapstirð, en hún vildi þó heldur hafa hana en bera alla ábyrgð á Lindu ein. ll. Eftir hádegi kom járnbrautarlestin á efstu brún hásléttunnar. Þessi háslétta heitir „Punaen” á máli Indiánanna og er við- áttumikil háslétta og skiptist milli rikjanna Perú og Boliviu. Áður en járnbraut var lögð upp á hásléttuna, var það að- eins fyrir hraustleika- menn að komast þessa leið, og enn i dag er þessi háslétta litið þekkt af umheiminum. Hásléttan „Punaen” er yfirleitt um 3500-4000 metra yfir hafflötinn. (öræfajökull er rösk- lega 2100 m.) Þarna vex enginn reglulegur skóg- ur, vegna þess, hve landið er hátt yfir sjávar mál, en aðeins kræklótt kjarr, og þó er þetta rétt fyrir sunnan miðbaug. Veðráttan þarna er eiginlega hörð. Stór- viðri, hriðarveður og næturfrost geta komið þarna á öllum timum árs. Það var þó á þessari hásléttu, sem hinir fornu Inkar áttu heima. Og þarna hafði þessi dular- fulla þjóð myndað menningarriki, sem Spánverjar lögðu i rúst, er þeir námu land og lögðu undir sig Perú á sextándu öldinni. Allt þetta vissi Árni, er hann steig á land i Perú, en nú þegar hann ók um þessa hásléttu, sem áður var heimkynni Inkanna, þá langaði hann til að vita meira um þessa merkilegu fornþjóð. Hann langaði einkum til að vita, hvað- an þessi þjóð hafði kom- ið til Suður-Ameriku, og hvers vegna þeir höfðu valið sér bústað svo hátt til fjalla. Hann ætlaði að spyrja Wilson um þetta. Hann hlaut að vita meira en aðrir, þar sem hann var prófessor i sögu Inkanna og þeirra fornu fræðum. ,,Það er sorglegur sannleikur”, svaraði prófessorinn, ,,að við vitum svo nauðalitið um þessa fornu þjóð. Við vitum ekki, hvaðan þessi þjóðflokkur og aðrir Indiánar hafa komið til nýja heimsins. (Amerika er oft nefnd nýi heimurinn). Við vit- um ekki, hvaðan þeir komu, eða hvaða leið þeir fóru. Við vitum bara, að allt svæðið norðan frá Alaska suður á Eldland var byggt af Indiánum, er Columbus fann Ameríku. En byggðin var ákaflega strjál. Á hásléttum eins og i Mexíko og Puna- en-hásléttunni, var tals- vert þéttbýlt, en annars- staðar strjálbýlt og langt á milli byggða. En hvers vegna þeir tóku sér bústaði i þessari háfjallaauðn, en ekki á hlýrri svæðum á lág- lendinu, eins og t.d. i Brasiliu eða Argentinu, það er okkur hulið. Við vitum sáralitið um sögu Inkanna áður en Colum- bus kom til Ameriku. Sumir visindamenn telja, að þeir likist Mon- gola-kynþáttum i Norð- austur-Asiu. Þess vegna er talið, að þeir hafi komið yfir Beringssund- ið til Alaska, einhvern tima, er kaldari veðrátta var i þessum hluta heims, og hafi þá komið á isi yfir sundið, en allt eru þetta ágizk- anir, sem ekki eru visindalega sannaðar. , ,En hvað geturðu sagt mér um Inka-þjóðstofn- inn?” spurði Árni. „Hvers konar fólk var það? Af hver ju voru þeir nefndir Inkar?” „Inkar er i raun og veru ekki þjóðarheiti”, svaraði prófessorinn. „Inka er naifnið á þeirra æðsta höfðingja, sem var i senn æðsti prestur þeirra, forseti eða þjóð- höfðingi og sjálfur Guð. — Fólkið taldi, að hann væri sonur sólguðsins. Hann var svo hátt hafinn yfir alla aðra menn, að hann lifði eiginlega á öðrutilverustigi. Enginn mátti nálgast hann, nema berfættur með þunga byrði á baki. Allir

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.