Tíminn - 26.04.1978, Síða 10

Tíminn - 26.04.1978, Síða 10
10 Miövikudagur 26. april 1978 IIEI — Ferðaskrifstofurnar Samvinnuferðir og Landsýn hafa nú nýlega hafið kynningar á ferðaáætlunum sinum fyrir nýbyrjað sumar. Hafa þær upp á svo mikla fjölbreytni og margar ferðir að bjóða, að allir ættu hjá þeim að geta fundið siijá' óskaferð, hvað svo sem hugurinn girnist. Velja má um sólar-, skoðunar-, fræðslu- og heilsubótarferð og meira að segja möguleikiað fá allt þetta i einni og sömu ferð. Samvinnuferðir og Landsýn tóku á s.l. ári upp nána sam- vinnu i því skyni að geta vcitt landsmönnum sem greiðasta, ódýrasta og fullkomnasta ferða- þjónustu um allan heim. Það hefúr sýnt sig nú þegar, að sam- starf þessara tveggja ferða- skrifstofa, sem reknar eru af stærstu almenningssamtökun- um i landinu, launþegasamtök- unum og samvinnufélögunum Marga lysir eflaust aö feta I fótspor forsætisráöherrans og fara til Sovétrikjanna. Samvinnuferöir og Landsýn bjóða upp á tvo mögu- lcika- tii þessa i sumar. Er önnur ferðin m.a. sólarferð til Svarta- hafsins en hin frekar kynnisferð um sögufræga staöi. Landsýn hefur áður skipulagt svona ferðir og hafa þær þótt heppnazt m jög vel. þar sem hægt er að kynnast ver- öld gjörólikri þeirri, sem við lif- um i. Ótal möguleikar út frá Portoroz t Júgóslaviu er eins og fyrr seg ir boðið upp á dvöl i Portoroz við Adriahafið, en það er einn þekktasti baðstrandastaður Júgóslaviu, Þar eru sömuleiðis 1. flokks gististaðir, aðstaða til sólbaða mjög góð og hægt að taka þátt i m jög vinsælum skoð- unarferðum, m.a. til Austur- rikis og Feneyja á Italiu. I sambandi við ferðirnar til Júgóslaviu hafa verið skipu- lagðir margir möguleikar til að nota hluta af þriggja vikna ferð- um til annars en baðstrandalifs. I ferð 17. mai er boðið upp á viku sem nefnist „ferðist og fræðist”. Er þessi vika skipu- lögð i sambandi við verkalýðs- hreyfinguna á Islandi. Heim- ast og megrast”. 1 Portoroz er rekin heimsfræg heilsubótar- stöð, sem margir tslendingar þekkja nú þegar. Nú hefur stöð- in tekið upp 10 daga megrunar- meðferð, sagt er algengt að menn geti losnað við 10 óæskileg aukakiló á timabilinu, jafnvel dæmi um meira, á auðveldan hátt. Öneitanlega er þetta freistandi tilboð, að koma heim úr sumarfriinu með linurnar i lagi, þvi oft hefur viljað brenna við að heldur hafi sótt á hinn veginn. írland vinsælt ekki sist af auralitlum Eins og kunnugt er hafa Sam- vinnuferðir og Landáýn staðið fyrir ferðum til Irlands, sem nú eru orðnar það vinsælar, að ákveðnar eru þangað margar ferðir i sumar. Bæði er, að það sem trland býður upp á er ólikt Samvinnuferðir - Landsýn: FJOLÞÆTT URVAL FERÐA VIÐ FLESTRA HÆFi hefur gefið góða raun og leitt til meira ferðaúrvals og hag- kvæmari ferða. Það kom fram á blaðamanna- fundi, sem Samvinnuferðir og Landsýn boðuðu til nýlega, að annaðhvort hafa þessar ferða- skrifstofur i sinu stutta sam- starfi, nú þegar áunnið sér ein- staklega góðan orðstir og traust i hinni hörðu samkeppni is- lenskra ferðaskrifstofa, eða þá að ferðamönnum til útlanda mun fjölga gifurlega nú i sum- ar, nema að hvorttveggja se'. Ráða ferðaskrifstofumenn þetta af þvi, að nú þegar er orðið meira pantað i hinar ýmsu ferð- ir en þá hafði nokkurn tima órað fyrir. Það hefur einnig komið glögglega i ljós sögðu þeir, að fólk hefur óskað aukinnar fjöl- breytni um ferðaval. þvi nýj- ungum þeim sem ferðaskrif- stofurnar hafa boðið, hefur verið ákaflega vel tekið. Er jafnvel nú þegar farið að huga að fjölgun þeirra ferða. Sólarferðirnar vinsæl- astar Aðalferðamannastraumurinn liggur að visu ennþá til sólar- stranda. Þar bjóða Samvinnu- ferðir og Landsyn upp á ferðir til Costa del Sol og Portoroz i Júgóslaviú, staða sem fyrir löngu hafa unnið sér sess hjá sóldýrkendum. A þessa staði veröa íerðir frá miðjum mai þar til siðast i september, en þó flestar i ágúst. Á Costa del Sol bjóða þessar ferðaskrifstofur upp á þrjá glæsilega gististaði, i ferða- mannabænum Torremólinos, sem notið hefur hvað mestra vinsælda hjá Islendingum hin siðari ár. Eingöngu er um að ræða mjög góð hótel með öllum hugsanlegum þægindum og ein- stakri sólbaðsaðstöðu við s jó og sundlaugar. Ferðaskrifstofu- fólkið sagði reynslu komna á það, að fólk vildi fyrst og fremst njóta þæginda og velliðunnar á ferðum sinum, þótt það kostaði svolitið meira. Einnig er þarna gefinn kostur á að taka þátt I ýmsum skoöunarferðum m.a. tveggja daga ferða til Marokko, 1 hinu sérstæða og fallega landi Irlandi hefur ferðamaðurinn ótelj- andi tækifæri til ánægjulegrar dvalar og skemmtunar hjá góðu fólki. Þetta nýja og stórglæsilega 5 stjörnu ibúðahótel, Castillo de Santa Clara, er eitt af þeim, sem stendur til boða fyrir farþega Samvimu- ferða og Landsýnar á Torremolinos. Geta má þess að lyftur flytja hótelgesti niður á baðströndina. Hótel þetta ásamt hinum tveim, sem um er að velja, standa öll við ströndina, örskammt frá mið- borginni. Framkvæmdastjóri Samvinnuferöa Eysteinn Helgason, sölustjóri I.andsýnar Ellen Ingvadóttir og sölustjóri Samvinnuferða, blaða I hinum nýja glæsilega ferðabæklingi Samvinnuferða og Landsýnar. sóttir verða vinnustaðir og fvrirtæki, og fræðst um hagi fólks, i fvlgd islenzks farar- stjóra. Komið verður til Bled, Zagreb, Plitvice, Sarajevo og Split. Sólarferð til fimm landa nefn- ist einn möguléikinn. Það eru Júgóslavia, Austurriki, Þýzka- land, Svissog Italía. Eftir fimm daga i Portoroz verður farið til Salzburg þá til Múnchen i þrjá daga, þaðan til Zurich i tvo daga og siðan til Milanó og Feneyja, en að lokum slappað af i sólinni i Portoroz i tæpa viku.Sá galli er þó á þessari einstæðu ferð að þessu sinni, að upp pantað var i hana á þrem dögum, svo fleiri komast ekki á þessu sumri. Þá er einn möguleikinn enn „septemberdagar á Italiu”. Eru i þeirri ferð 2 vikur af 3 notaðar til að ferðast um ítaliu. Skoðað- ar verða tvær frægar borgir Bologna og Florenz, frægar af sögu, listum og fegurð. Þá er siglt til Elbu og siðan dvalið i 3 daga i' Róm, borginni eilifu. Ekið með Adriahafsströndinni með viðdvöl i Pescara, Rimini, dvergrikinu San Marino og að lokum til Feneyjá en siðustu 3 dagana aftur i Portoroz. Ónefnt er ennþá það sem margur kynni að hafa áhuga á, en það er sá möguleiki að ,,ferð- flestu þvi sem finna má á hefð- bundnum ferðamannastöðum, og einnig hitt að verðið á þess- um ferðum er einstaklega hag- stætt svo og verðlag almennt 1 landinu. Þá hefur vegna fjölda fyrir- spurna verið ákveðið að gefa kost á mánaðar enskunámi á Ir- landiijúni. Þátttakendur dvelja ágóðum irskum heimilum allan timann og fara i taltima einu sinni á dag. Efalaust áhrifa- mikil aðferð til að æfa sig i enskri tungu og verðið ótrúlega hagstætt. Að lokum má geta þess, að Samvinnuferðir bjóða upp á mjög ódýrar ferðir til Norður- landanna i sumar, jafnvel þær ódýrustu sem völ er á. 1 sam- bandi við nokkrar þeirra hafa verið skipulagðar ferðir þar sem gist er i tjöldum allan tim- ann,fyrir þá sem þess óska. Þá er einnig það nýmæli um að ræða, að Samvinnuferðir sjá nú um leigu sumarhúsa á Norður- löndunum. Unnt á að vera að leig ja mjög góð hús fyrir 45 þús. á viku. Virðist með þessu hafa opnazt mjög ódýr leið fyrir alla fjölskylduna til dvalar á Norðurlöndunum og vissulega ástæða fyrir þá, sem áhuga hafa á ferðum þangað að kynna sér tilboð Samvinnuferða.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.