Tíminn - 20.06.1978, Page 6
6
Þriöjudagur 20. júnl 1978
Dómsmál III
Betur vandað til sakamálarannsókn-
ar - og rannsókn tekur að j afnaði
skemmri tíma en áður
1 árslok 1976 voru
samþykkt lög um rann-
sóknarlögreglu rikis-
ins. Jafnframt voru
gerðar til samræmis all
viðtækar breytingar á
lögum um meðferð
opinberra mála.
Þær breytingar fólu
einkum i sér að lög-
reglurannsókn var gert
hærra undir höfði en
áður. Stefnt var að þvi
að rannsókn lögreglu i
sakamáli nægði til þess
að gefa út ákæru og
kveða upp dóm i hlut-
aðeigandi máli. Gert
var ráð fyrir þvi að
rannsókn fyrir dómi
færi að jafnaði fram
eftir að ákæra hefði
verið gefin út, þó ekki
nær þvi alltaf.
Skilið á milli dóms-
valds og framkvæmda-
valds
Rannsóknarlögreglan i
Reykjavik heyröi undir
yfirsakadómara áöur en
lögin um rannsóknarlög-
reglu rikisins tóku gildi.
Þegar lögin tóku gildi
fluttust allir þeir rannsóknar-
lögreglumenn sem höföu
starfaö hjá sakadómaraem-
bættinu yfir til hinnar nýju
stofnunar. Sakadómaraembætt-
iö sinnir þvi einungis nú eigin-
legum dómsstörfum og öörum
verkefnum, þeim náskyldum.
Þessi skil sem oröiö hafa á
milli dómsstóls og lögreglu,
dómsvalds og framkvæmda-
valds, eiga að auka réttaröryggi
þeirra eintaklinga sem komast i
kast viö lögin, eins og þaö er
stundum nefnt. Sömuleiöis á
þessi breyting aö veröa til hag-
ræöis, þar sem sakadómarar og
fulltrúar þeirra geta nú einbeitt
sér aö dómstörfum i staö þess
aö hafa stjóm á rannsóknarlög-
reglu og yfirgripsmiklum
rannsóknum i sakamálum.
Verkefni sakadómaraem-
bættisins i Reykjavlk hafa dreg-
izt saman, ekki aöeins vegna
þess aö lögreglurannsóknir hafa
flutzt alfariö frá embættinu og
stórlega hefur dregiö úr dóms-
rannsóknum heldur hefur vinna
viö ýmis minni háttar mál
minnkaö sökum breytzt fyrir-
komulags hjá lögreglustjóra-
embættinu viö afgreiöslu slikra
mála. Sakadómurum og fulltrú-
um þeirrahefur aftur á móti aö-
eins fækkaö um einn þrátt fyrir
þessar stórfelldu breytingar.
Embættiö ætti þvi aö vera mun
betur i stakk búiö en áöur aö
fást viö þau viöfangsefni sem
undir þaö heyra, þá ekki sizt
flókin fjárdráttar- og fjársvika-
mál.
Rannsóknarlögreglu-
mönnum hefur fjölgað
t lögum um rannsóknarlög-
reglu rikisins er gert ráö fyrir
þvi aö rannsóknarlögreglan
hafi meö höndum rannsókn
meiri háttar sakamála. Viö
gildistöku laganna tók rann-
sóknarlögregla rikisins viö
rannsókn á öllum meiri háttar
sakamálum á höfuöborgar-
svæöinu, aö undanskildum
ávana- og fikniefnamálum.
Viö embætti lögreglustjóra á
höfuöborgarsvæöinu starfa aö
auki sérstakar rannsóknarlög-
regludeildir aö rannsókn fjöl-
margra málaflokka, svo sem
umferöarslysum og brotum á
umferöarlögum, brotum á lög-
reglusamþykktum, brotum á
áfengislögum (öörum en
áfengissmygli), minni háttar
llkamsmeiöslum, minni háttar
eignartjóni o.s.frv. Þótt þessir
málaflokkar séu sagöir minni
háttar, þá skiptir rannsókn á
þeim oft mjög miklu máli fyrir
einstaka borgara og sum þess-
ara mála eru aö auki vandrann-
sökuö.
Þá fellur rannsókn f ávana- og
fikniefnamálum enn undir
embætti lögreglustjóra. Þaö eru
þvi mörg mikilsverö verkefni
sem lögö hafa veriö til þessara
rannsóknarlögregludeilda ekki
siöur en rannsóknárlögreglu
rlkisins.
Nú nýlega hefur veriö sett á
stofn ný rannsóknardeild viö
embætti lögreglustjórans i
Reykjavik. I hinni nýju deild
starfa nú 25 rannsóknarlög-
reglumenn, þar af 1 yfirlög-
regluþjónnog3lögreglufulltrúar.
Viö embætti bæjarfógetans 1
Hafnarfiröi starfa 3 rann-
sóknarlögreglumenn og 1 rann-
sóknarlögreglumaöur er starf-
andi viö embætti bæjarfógetans
i Kópavogi.
Rannsóknarlögregla rikisins
I næstu grein
verður m.a.
greint frá
frumvarpi til
lögréttulaga
og nýjum
lögum um
gjaldþrot og
þinglýsingar
hefur þó ekki aöeins meö
höndum rannsókn á flestum
meiriháttarsakamálum á höfuö
borgarsvæöinu, heldur tekur
starfssviö hennar til landsins
alls I þeim skilningi aö starfs-
menn hennar eiga aö vera lög-
reglu úti á landi til aöstoöar viö
uppljóstrun mála. Á þeim tima
sem liöinn er frá stofnun rann-
sóknarlögreglunnarhafa starfs-
menn hennar hvaö eftir annaö
veriö beönir liösinnis ef mál,
erfiö viöureignar, hafa skotiö
upp kollinum á landsbyggöinni.
Hjá rannsóknarlögreglu ríkis-
ins starfa nú 45 fastráönir
starfsmenn. Auk rannsóknar-
lögreglustjóra og vararann-
sóknarlögreglustjóra starfa
tveir löglæröir deildarstjórar
viö sto&iunina. Rannsóknarlög-
reglumenn eru alls 37, aö meö-
töldum yfirlögregluþjóni, 3 aö-
stoöaryfirlögregluþjónum og 5
lögreglufulltrúum. Aörir starfs-
menn vinna á skrifstofu, viö
skráningu og skyld störf. Til
samanburöar má geta þess aö 1
rannsóknarlögreglunni 1
Reykjavik voru starfandi 27
rannsóknarlögreglumenn, en
þeir eru sem fyrr segir 37 talsins
I dag og hefur þvi f jölgaö um 10.
Starfssvæöiö er aö visu stærra,
en á móti kemur aö málaflokk-
arnir eru þó nokkru færri en
áöur var. Rannsóknarlögreglan
ætti þvl, sé litiö til mannafla, aö
geta sinnt betur en áöur rann-
sókn hinna meiri háttar saka-
mála.
Aö framansögöu sést aö rann-
sóknarlögreglumönnum á
höfuöborgarsvæöinu hefur
fjölgaö allverulega á siöustu
tveimurárumþótt erfitt sé aö til-
greina nákvæma tölu 1 þvl sam-
bandi.
Stórbætt aðstaða til
rannsóknar
Rannsóknarlögreglu rikisins
hefur veriö valin staöijr i Kópa-
vogi, nánar tiltekiö aö Auö-
brekku61. Staöarval þetta vará
sinum tima umdeilt, en þvi
hefur ekki veriö á móti mælt aö
húsiö aö Auöbrekku 61 er staö-
sett eins nálægt miöju höfuö-
borgarsvæöisins og hægt er aö
hugsa sér.
Hús þetta er alls 1470 ferm aö
stærö, á þremur hæöum. Til
samanburöar má geta þess aö
húsnæöi þaö er rannsóknarlög-
reglan i Reykjavik var I til
skamms tima er u.þ.b. 600
fermetrar aö stærö.
I húsinu aö Auöbrekku 61 er
gert ráö fyrir 35 aöskildum
skrifstofuherbergjum auk al-
mennrar skrifstofu, rúmgóðr-
ar móttöku og þriggja fundar-
herbergja, en i þvi stærstaþeirra
veröur m.a. hægt aö koma viö
sakbendingu.
Aöstaöa til skráningar, fjar-
skipta, tölvuvinnslu og endur-
skoöunar á bókhaldsgögnum
verður öll önnur en hún hefur
verið til þessa. Siöast en ekki
sizt þá' stórbatnar aöstaöa
tæknideildar rannsóknarlög-
reglunnar.
Deildin fær til umráöa húsnæöi
sem er þrisvar sinnum stærra
en það sem hún ræöur yfir i dag.
Vonir stóöu til þess aö hægt
yröi aö taka húsiö i notkun I
byr jun þessa árs. Af óviðráöan-
legum orsökum tókst þaö ekki,
en væntanlega getur rann-
sóknarlögreglan flutt starfsemi
sina I hiö nýja húsnæöi I júli- eöa
ágústmánuöi n.k.
A þvi tæpa ári sem liöiö er frá
stofnun rannsóknarlögreglu
rikisins hefur tækjabúnaöur
stofnunarinnar veriö stórbætt-
ur, þ.á.m. hefur bifreiöakostur
hennar veriö aukinn. Þá hefur
verið leitazt viö aö auka mennt-
un og þekkingu rannsóknarlög-
reglumanna, bæöi meö þvi aö
senda þá utan i náms- og kynn-
isferöir og meö þvi aö efaa til
Framhald á bls. 15
Hrafn á þriðjudegi
Hið hundsaða blóð uxans
Magnús L. Sveinsson I miöri breiöfylkingunni viö hiiöina á borgar-
stjóranum sinum áöur en hann tók sinnaskiptunum og lagöist i yfir-
bótina.
Mennirnir eru syndum hlaön-
ir. Þaö er ekki ný bóla, þvi aö
þeim hefur lengi gengiö illa aö
feta veg dyggöarinnar. Kristur
var negldur á kross til þess aö
friöþægja fyrir syndir mann-
anna. Þaö segja prestarnir okk-
ur. Syndugt fólk á aö lauga sig I
blóöi lambsins.
Magnús frá Uxahrygg sem
annars heitir MagnúsL. Sveins-
son fullu nafnihefur veriö mikiö
stykki i mublusafni Sjálfstæöis-
flokksins. Hann sat keikur I niu
manna sveit Sjálfstæöisflokks-
ins i borgarstjórn á siöasta kjör-
tlmabili og nú er hann þar viö
sjöunda mann.
Magnús þessi er ekki af þvi
taginu aö hann lækki i sæti þó aö
fækki I kring um hann. Hann
hefurleyntá sérá liönum árum.
Hann er ekki nein sparimubla
þegar til kastanna kemur. A
siöasta borgarstjórnarfundi hóf
hann sig yfir flokksbræöur sina
Heródes og Pilatus og þá alla og
bauö sig fram á kross. Hann vill
feta I fótspor frelsarans og friö-
þægja fyrir syndirnar — ekki
kannski syndir alls mannkyns
eöa allra tslendinga en aö
minnsta kosti fyrir sinn gamla
borgarstjórnarmeirihluta.
Hann stóö þar upp á þessurn
borgarstjórnarfundi Magnús
frá Uxahrygg, kannski eftir
stranga nótt i grasgaröinum
meösinum mönnum og baö þess
lengstra oröa aö láglaunafólkiö
hjá Reykjavlkurbæ fengi fullar
bæturá launsinalltfrá 1. marz I
vetur. Hann stóö þarna upp-
litsprúöur og einaröur eins og
allir frelsarar veröa aö vera og
bauö fram blóö uxans handa
þrælum syndarinnar til þess aö
lauga sig 1 og þvo af sér alla
flekki. Hann stóö meö sinn kross
á bakinu og rétti fram naglana:
Hér er ég tfl friöþægingar fyrir
minn lýö.
Viö tökum hljóðir ofan höfuö-
fatið séum viö ekki svo óheppnir
aö vera I berhausaféiaginu. Viö
drúpum höföi andspenis þessari
einlægni og þessum kjarki. Viö
þökkum þaö i huganum, aö
þessi öld er þó ekki rúin allri
reisn.
Aö vfsu viröist Magnús okkar
ekki hafa alveg fulla vog ef hann
er settur á metaskálarnar á
móti okkar fyrri frelsara. Krist-
ur er talinn hafa veriö syndlaus
fæddur og hafa auk þess synd-
laust lifaö en Magnús er ekki al-
veg syndlaus af þvi aö hafa
samneytt vlxlurunum, sem ekki
þóttu musterishæfir foröum.
Magnús gáöi ekki heldur aö sér,
þegar hann var leiddur upp á
fjallið, þar sem dýrö veraldar-
innar blasir viö augum. Og hon-
um fipaöist meö vitjunartimann
I vetur, þarna i kring um 1.
marz, þegar hann haföi yfir
nægan liöskost aö horfa.
En aö ööru leyti stendur
Magnús L. Sveinsson fyrir sinu I
hlutverki friöþægjarans.
Hitt er svo ekki annaö en viö
var aö búast, aö honum var af-
neitaö i hallargaröinum. Fylgi-
nautar hans þekktu hann ekki.
Svo hrapallega tókst til, aö eng-
imi vildi stuöla aö þvi aö hann
yröi hengdur upp.
Þess vegna varö sagan dálitiö
afkáralega. Magnús stóö þarna
á sviöinu meöteygt andlit,ekki
kannski eins og maöurinn sem
missti glæpinn heldur maöur-
inn, sem missti af friö-
þægingunni og blóöi uxans var
aldrei úthellt i neina handlaug
handa þeim Birgi og Albert og
Ólafi Thors.
Þannig uröu laun heimsins
vanþakklæti. Magnúsi stendur
ekki annað til boöa en skokka á
vegum vixlaranna. Þeir sitja
viö þann keip aö honum sé ekki
annað fyrirbúiö. Þeir þiggja
hann ekki á kross. Þeir vilja
bara þann Magnús i syndinni
sem var 1 meirihlutanum
þeirra. Þvi aö hann kunni þeir
vel viö.
Og nú kemur an upp á Magnús
sjálfan. Heldur hann sig viö sina
þráöu friöþægingu fyrir syndir
sinna manna eöa gefst hann upp
á krossgöngunni?
Þaö mætti helzt ekki henda
Magnúsi frá Uxahrygg. Þá gæti
hvarflaö aö sumum aö allir friö-
þægingartilburöirnar I borgar-
salnum viö Skúlatún heföu veriö
færöir upp á skökkum staö og
aldrei annaö veriö en leikþáttur
handa framúrstefnufólki til þess
aö spreyta sig á. Hrafn