Tíminn - 20.06.1978, Blaðsíða 24
Svrð eik er
fjiy^P sígild eign ^
Z. HÚftGiÖGill
TRÉSMIDJAN MEIÐUR
u | \\ SÍÐUMÚLA 30 - SÍMI: 8682?
Gagnkvæmt
tryggingafélag
WmÉm Þriðjudagur 20. júní 1978 — 128. tölublað — 62. árgangur.
GISTTING
MORGUNVERDUR
ÍraudarárstIg 18 S^;;;„inninn n
mkE «
SÍMI 2
Stórfellt
innbrot
upplýst
Grjótaþorp:
Þorkell lokar bílastæði
Mor gunblaðsins!
Þorkell Valdimarsson, eigandi
portsins aB baki Morgunblaðs-
húsinu, sem starfsfólk blaðsins
hefur frá upphafi notað sem bila-
stæöi fyrir bfla sina, lokaöi þvl
með keðju snemma i gærmorgun
og verður bilum ekki lagt þar að
sinni.
Þorkell kveðst ekki opna portiö
aftur nema fyrir komi leigugjald
frá þeim, sem hann vill leigja þaö
undir bilastæði eða annað.
Timamynd: Tryggvi.
GEK — Um helgina tókst rann-
sóknarlögreglu rikisins að upp-
lýsa stórfellt innbrot sem framiö
var I Reykjavik siðast liðið haust.
Tveir menn á þritugsaldri hafa nú
játað að hafa I októbermánuöi
siðast liðnum brotizt inn I ibúðar-
húsið að Lambastekk 9 og haft á
brott með sér þaðan um eina
milljón króna i reiðufé auk happ-
drættisskuldabréfa og nokkurs
gjaldeyris. Samtals var verðmæti
þýfisins um ein og hálf milljón
króna.
Þessir sömu menn voru hand-
teknir á Keflavikurflugvelli
skömmu eftir að innbrotið var
framið og voru þeir þá á leið úr
landi. Vegna gruns um að þeir
væru valdir að innbrotinu voru
þeir hnepptir i gæzluvarðhald óg
gjaldeyrir sem þeir höfðu I fórum
sinum gerður upptækur. Ekki
fengust mennirnir til aö játa á sig
innbrotið það skiptið og var þeim
þvi sleppt lausum að nokkrum
dögum liðnum. Nýjar upplýsing-
ar, sem fram komu i málinu fyrir
skömmu leiddu siðan til þess að
mennirnir voru teknir til yfir-
heyrslu aftur og hafa þeir nú sem
fyrr segir játað á sig innbrotið.
17. júni í ár:
Kahlid konungur Saudi-Arablu
ásamt tveim ráðherra sinna.
Sa udi-Arabar vildu ekki hækkun
áoliuogréðu mestu um ákvöröun
þess efnis á OPEC — ráðstefn-
unni.
Ráðstefna OPEC
i Genova:
Oliuverð fryst
a.m.k. til árs-
loka 1978
„Pólitisk ákvörð-
un”, segir
fulltrúi Alsir
Genova. Það rak heldur betur á
fjörur vestrænna iðnrikja I gær,
þegar samþykkt var á ráöstefnu
Sambands Oliuútflutningsrikja,
Opec, sem haldin var i Genova,
að halda áfram frystingu á oliu-
verN, sem nú hefur verið I gildi i
eitt og hálft ár. Nokkrar deilur
urðu um þetta á fundinum, en
Saudi-Arabia, sem er langstærsti
oliuútflutningsaöilinn knúði mjög
fast á um að oliuverð yrði ekki
hækkað, og taliö er vist aö það
hafi vegið þyngst á metunum,
varöandi ákvörðunina. Ahmed
Zaki Yamani, oliumálaráðherra
Saudi-Arabiu, sagði að hækkun á
oliu kæmi alla vega ekki til
framkvæmda það sem af er þessu
ári og bætti hann þvi við, aö hann
fagnaði þeim úrslitum.
Mesti brennivínsdagur
í langan tíma?
Reykjavik
SSt — Mikil ölvun i mörgum
stærstu bæjum landsins setti
mjög mark sitt á skemmtana-
hald 17. júni að þessu sinni þótt
það færi að ööru leyti vel fram.
Þannig varð lögreglan I Reykja-
vik að hafa afskipti af tugum
unglinga og barna allt niður I 12
ára aldur vegna ölvunar, þegar
leið fram yfir miðnætti. A Akur-
eyri varð einnig mikið fylleri
þegar leiö á kvöldið.
Að sögn Sveinbjörns Bjarna-
sonar, varðstjóra hjá lögregl-
unni I Reykjavik var ölyun mest
við Austurbæjarskóla, par sem
flestir unglingar söfnuöust
saman og urðu lögregluþjónar
þar að fá aukamannskap frá Ar-
bæjar- og Fellaskólum til að
hafa undan viö aö aka drukkn-
um unglingum heim eða ná i
foreldra þeirra. Var lögreglan
við þennan starfa framundir
morgun.
Sagðist Sveinbjörn ekki muna
aðra eins ölvun 17. júni i langan
tima. Sagði hann einnig að ung-
lingarnir virtust aðallega hafa
þrjár leiðir til að ná sér i áfengi:
það væri með heimabruggi eða
þeir hefðu stolið áfengi frá for-
eldrum sinum, og i þriðja lagi
létu krakkarnir fólk á lögaldri
kaupa það fyrir sig. Óhöpp eða
meiðsl 17. júni i Reykjavik voru
smávægileg.
Akureyri
A Akureyri varð ölvun
iskyggileg þegar liða tók á
kvöldið, og fylltust fanga-
geymslur lögreglunnar margoft
að sögn lögreglunnar þar. Mest
bar á ölvun aldurshópsins 18-20
ára. Óhöpp vegna ölvunar urðu
lltil eða engin á Akureyri.
Norskir blaðamenn:
Hyggjast sigla
kringum landið á
litlum hraðbáti
Bátur norsku blaöamannanna.
GEK—Fyrir rúmri viku komu
hingað til lands fjórir blaðamenn
á vegum norska timaritsins Vi-
menn, þeirra erinda áð sigla
kringum landið á litlum hraðbáti.
Eftirað hafa dvaíið i viku I lan-
dinu héldu tveir þeirra af stað
sjóleiðina vestur með landinu 118
feta plastbát knúrium öflugum
utanborðsmótor.
Hinir tveir munu fara landleið-
ína norður til Akureyrar þar sem
þeir taka viö bátnum og halda
ferðinni áfram og ljúka
hringnum. Að sögn þeirra félaga
hyggjast þeir ljúka ferð sinni um
næstu mánaðamót ef allt gengur
að óskum.
Fjögurra pilta saknað:
Leitin enn árangurslaus
GEK — Um klukkan 19 I gær-
kvöldi hafði leitin að piltunum
fjórum sem lögðu af stað á smá-
bát fráDalvIk áleiðis til Hriseyj-
ar, aðfararnött sunnudagsins
engan árangur borið.
Piltarnir fjórir, allir búsettir
á Dalvik eru á aldrinum 16-18
ára. Þeir lögðu af stað á 10 feta
plastbát knúnum 10 hestafla
utanborösmótor um klukkan 4
aöfararnótt sunnudagsins og
ætluðu þeir til Hriseyjar. Þegar
ekkert hafði til þeirra spurzt á
sunnudaginn var skipulögð leit
hafin og stóö hún enn yfir þegar
siöast fréttist.
Yfirstjórn leitarinnar er i
hönduiri björgunarsveitar
Slysavarnafélags tslands á Dal-
vík og nýtur hún aðstoðar ann-
arra björgunarsveita við Eyja-
fjörð. A milli 20 og 30 bátar tóku
þátt I leitinni á sunnudag og i
gær voru um 8 bátar við leit.
Fjörur bcggja vegna Eyja-
fjarðar hafa verið gengnar og
verður þvi haldið áfram næstu
daga. Leitað hefur verið úr lofti
og einnig hafa froskmenn leitað
og slætt höfnina I Ilrisey.
t gær rak á fjörur Hriseyjar
ár úr bátnum og tréskór eins
drengjanna. Þá fannst úlpa en
við athugun reyndist hún ekki
tengjast hvarfi bátsins. Ekki
verður skýrt frá nöfnum pilt-
anna að svo stöddu.