Tíminn - 05.07.1978, Page 6
6
Miðvikudagur 5. júli 1978
GEK — Þeir sem óku eftir Nes-
veginum i gærdag, tóku eftir þvi
að meðfram endilangri akbraut-
inni til vesturs, hafði verið komið
fyrir fjölda af nokkurs konar
grindum, sem gerðu þaö að verk-
um að Nesvegurinn þrengdist um
nær þriðjung á þessum kafla.
Þfrgar blaðamenn Timans fóru
út á nes i gær til að spyrjast tyrir
um hverju þetta sætti, var fátt um
svör. A lögreglustöðinni reyndust
vakthafandi lögreglumenn vera i
útkalli, en þeir sem á skrifstof-
unni vorukunnu engar skýringar
á fyrirbærinu og visuðu blaða-
mönnum á að tala við bæjar-
tæknifræðing.sem aðsetur hefur i
sama húsi. A hurðinni að skrif-
stofu bæjartæknifræðings var til-
kynnt áð viðtalstlmi væri milli
2-3.
Þar sem klukkan var rétt lið-
lega 2:30 þegar okkur bar að
garði þóttumst við vera hólpnir,
en viti menn, enginn bæjartækni-
fræðingur, allt lokað.
Aftur var leitað til þeirra, sem
á skrifstofu lögreglunnar voru og
vísuðu þeir nú á bæjarritara, sem
hefur aðsetur á næstu hæð fyrir
neðan. Varnúleitað tilhans, i von
um skýringar,en þrátt fyrir að sá
ágæti maður væri við, kunni hann
engin deili á grindunum og sagð-
ist rétt eins og hver annar hafa
tekið eftir þeim þá um morgun-
inn. Ekki þýddi aö leita á náðir
bæjarstjóra, þar sem hann var
ekki við og eru þvi umræddir
blaðamenn litlu nær um fyrirbær,-
ið á Nesveginum.
Ósköp væri nú gaman aö fá
vitneskju um þetta blessað
„grindastóð” og hver veit nema
vegfarendum væri gagn að þvl að
fá einhverjar útskýringar lika?
Er hér um að ræða tilraun til að
stemma stigu við of miklum um-
ferðarhraða, eða eiga grindurnar
kannski að mynda einhvers konar
skúlptúr, Ibúum á Nesinu til
ánægju og lífsfyllingar. Maður
veit jú aldrei, uppá hverju þessir
myndlistarmenn kunna að taka.
Hvað á þetta að fyrirstilla? Svar óskast!
Tfmamynd: GE.
Enn unníð
að framboði
Friðriks
MÓL. —,, A fundinum I Lúxem-
borg um næstu helgi munum við
ræða ýmis mál, sem verða á dag-
skrá á fundi Alþjóðaskák-
sambandsins n.k. haust og meðal
þeirra er auðvitað kjör nýs for-
seta FIDE eitt það mikilvæg-
asta”, sagði Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambands íslands, er
Timinn ræddi við hann i gær.
Fulltrúar frá tuttugu þjóðum i
Vestur-Evrópu, munu þinga n.k.
laugar- ogsunnudag I Luxemborg
og munu þeir reyna að koma sér
saman um sameiginlega stefnu i
þeim ýmsu málaflokkum, sem
verða ræddir á þingi FIDE i
Argentínu i haust.
„Eftir þennan fund ætti að vera
ljóst hvort Friðrik ólafsson verð-
ur eini frambjöðandinn frá
Vestur-Evrópu, en að þvi munum
við vinna”, sagði Einar. „Hins
vegar er of snemmt að segja til
um hve margir frambjóöendur
verða um embættið, þar sem um-
sóknarfresturinn rennur ekki út
fyrr en 7. ágúst, en kosningin
verður nákvæmlega þrem mán-
uðum siðar.”
Langar þig til
Filippseyja?
á heimsmeistaraeinvígiö?
MÓL — „Nokkrir hafa spurzt
fyrir um þessar feröir, en eng-
inn tekið endanlega ákvöröun
enn svo ég viti”, sagði Einar S.
Einarsson, forseti Skáksam-
bands tslands, er Timinn spuröi
hann um ferðir þær á heims-
meistaraeinvlgið I skák, sem
skáksambandið veitir fyrir-
greiðslu um hér á landi. „Þetta
eru mjög hagstæö kjör, sem
Skáksamband Filippseyja hefur
boðiðfélögum S.I., eöa um 40%
afsláttur á flugferðum.
Flogiðer frá London á laugar-
dögum með Philippine Airlines
og kostar 12 daga ferð með gist-
ingu 280 þús. kr. en 8 daga ferð
255 þús. og er ein máltið á dag
innifalin I veröinu. Veröiö mið-
ast við, að menn komi sér sjálfir
til Bretlands.
I sumar og haust veröur f jöld-
inn allur af opnum skákmótum
haldinn i nágrannalöndunum i
Englandi, Noregi ogHollandi og
er hægt að fá upplýsingar um
þau hjá stiórnarmönnum S.í.
Stöðvarfjörður:
Góður af li
Kás — „Tið hefur verið heldur
risjótthér á Stöðvarfirði það sem
af er, bæöi verið úrkomu- og
vindasamt, þótt núí dag sé ágætis
veður,” sagöiBjörn Kristjánsson,
fréttaritari Tímans á Stöðvar-
firði, i samtali við blaðið I gær.
Sláttur er viðast hvar hafinn, að
sögn Björns, og hefur spretta ver-
ið sæmileg. „Atvinnuástand er
gott hér á Stöðvarfirði og það hef-
ur aflazt alveg ljómandi vel. Tog-
arinn hefur svo dæmi sé tekið,
landað 1800 lestum af slægðum
fiski frá áramótum, sem verður
að teljastþokkalegt”,sagði Björn
Kristjánsson.
Dularfullt
fyrirbæri
a Nesvegi
Taugin við
Móður Jörð
Findhorn háskólinn i Skotlandi kynntur
H.R. Rannsóknarstofnun vit-
undarinnar og Sálarrannsókna-
félag Islands boðuðu nýlega
fréttamenn á sinn fund. Tilefnið
var heimsókn Peters Caddy,
aöalhvatamanns að stofnun
Findhorn háskólans skozka.
Findhorn háskólinn er um
margt ólikur öðrum háskólum.
Þar er aöaláherzlan lögö á al-
hliöa menntun, og er þar bæði
stundað hagnýtt og fræðlegt
nám. Þjálfun i hópstarfi, sam-
vinna viö náttúruna og sajn-
ræming visinda og þjóöfélags-
þróunar er þar höfö aö leiðar-
ljósi.
Peter Caddy lagöi á það
áherzlu, að I skólastarfinu væru
jafnt andlegir sem efnislegir
þættir mannsins ræktaöir.
Einnig aö maöurinn væri skoö-
aöur sem hluti af lífkeöju
náttúrunnar, en ekki sem herra Caddy sagði einnig að skólinn
hennar. væri óháður öllum trúarbrögð-
Caddy ásamt Ævari Kvaran, forseta Sálarrannsóknarfélags tslands
og Geir Vilhjálmssyni, frá Rannsóknastofnun vitundarinnar.
um og að þarna kæmu saman
menn af ýmsum trúarbrögðum,
þjóðernum og á öllum aldri. Að-
spurðurviðurkenndihannþó, aö
skólinn aðhylltist vissa heim-
speki. Væri þar um að ræða þá
skoðun, að nattúran væri kyngi-
mögnuð, — jurtir hefðu tilfinn-
ingalif og að til væru náttúru-
andar i ætt við blómálfa.
Markmið skólans væri að
nemendur kynntust þessum
sviðum tilverunnar, aö þeir
radctuðu taugina við Móöur
Jörð.Aðaláherzlan væriþóá þvi
að rækta gott mannlif. Þar væri
hreyfiaflið, kærleikurinn eöa
samúðartilfinningin á milli
manna.
Caddy greindi einnig frá
starfsemi og skipulagningu
skólans. Kom þar fram að
nemendur væru um 300, en auk
þess væru þar fleiri á stuttum
námskeiðum. Nemendur skipt-
ust síðan I margar deildir, m.a.
útgáfudeild, listadeild og siðast
en ekki sizt garðyrkjudeild.
Sú deild hefur ræktað upp
mikinnskrúðgarð, þarsem áður
var aðeins urð og grjót. Staður-
inn var talinn óhæfur til ræktun-
ar en að sögn Caddy er garð-
urinn nú viðfrægur sökum
frjósemi. Kvað hann það að
þakka þeirri stefnu skólans, aö
nemendur liföu i samhljóðan við
náttúruna.
Caddy var spuröur hvort skól-
inn væri á einhvern hátt sér-
Peter Caddy, aðalhvatamaður
að stofnun Findhorn háskólans.
stakur eða frábrugðinn öðrum
slikum skólum. Hann kvað svo
ekki vera heldur væri skólinn
gott dæmi um stofnun, er vildi
leggja áherzlu á heilnæm mann-
leg tengsl og að maðurinn lifði
meö náttúrunni, en ekki gegn
henni.
Peter Caddy mun halda fyrir-
lestur um Findhorn háskólann á
Arnagarði, miövikudagskvöldið
5. júli kl. 20.30 Mun hann þar
kynna starfsemi skólans.