Tíminn - 08.07.1978, Qupperneq 2
2
li'iilíili
Laugardagur 8. júli 1978
Hver vilt þú, að verði
næsti borgarstjóri?
FI —Þann 20. júli rennur út um-
sóknarfrestur um embætti
borgarstjóra i Reykjavik.
Margir biöa spenntir eftir þvi aö
vita, hverjir hafa gefiö sig fram
til þessa embættis. Og þó. Við
Ósk Baldursdóttir húsmóöir
Vestmannaeyjum: Ég hef nú
litið pælt i þvi. Er Magnús Torfi
ekki ágætur. Hann vantar alla
vega vinnu.
Páll Arnason verkamaöur og
nemi: Mér er nákvæmlega
sama. Þeir geta valið þann sem
þeir vilja.
Haukur Stefánsson stýrimaöur:
Magnús Torfi Ólafsson ætti aö
veröa næsti borgarstjóri.
Agætismaður það.
Hannes ólafsson verzlunar-
maöur: Daviö Sch. Torsteins-
son.
stöövuðum um 20 manns á förn-
um vegi i gær til þess aö ganga
úr skugga um, hvern þeir kysu
sérhelzt sem borgarstjóra. Fátt
varð um ákveðin svör. Menn
reyndu ekki einu sinni að slá
Helle Lorange skrifstofustúlka:
Ég hef ekki hugsað neitt um
það.
Stefán Þór Haraldsson véistjóri
Siglufiröi: Ég vil að Birgir
Isleifur verði það áfram. Það
hefur enginn staðið sig betur.
Sigrún Björnsdóttir hefur það
bara gott: Guörún Helgadóttir.
Ég held að hún sé skást. (Eftir
nánari umhugsun) Asmundur
Stefánsson hagfræöingur.
Anna Samúelsdóttir starfar I
banka: Bjarni Einarsson fyrr-
verandi bæjarstjóri á Akureyri.
þessu upp i grin. Helzt var það
utanbæjarfólkið og þá sérstak-
lega Akureyringar, sem virtust
vissir i sinni sök. Svörin fara hér
á eftir.
Birgir Aðalsteinsson véltækni-
fræðingur: Ég hef enga ákveðna
skoðun á þvi, en næsti borgar-
stjóri þyrfti að vera fram-
kvæmdasamur.
Helga Sigurðardóttir hjúkr-
unarfræðingur: Einhvern góðan
mann, sem tækist að fjarlægja
streituna úr borginni. Hann má
gjarnan huga að „grænni bylt-
ingu” af alvöru.
Guðmundur Guömundsson
innheimtumaður: Ég vil Magna
Guðmundsson hagfræðing,
þennan, sem var að tala um
„Daginn og veginn” um daginn.
Kristin Bcnediktsdóttir banka-
ritari:Sigurjón er hann ekki lik-
legur?
Tímamyndir:
Tryggvi
Magnús Hafsteinsson starfs-
maður hjá Sambandinu:
Guðrún Helgadóttir. Ég þekki
hana bara úr sjónvarpinu, en
þar kemur hún vel fram.
Guðrún Hansdóttir banka-
fulltrúi: Ég hef nú ekki heyrt,
hverjir bjóða sig fram, en ég hef
búið á Akureyri og hef þaðan
góða reynslu af bæjarstjórum,
þar eru þeir yfirleitt ekki
stjórnmálamenn og þannig á
það lika aö vera i Reykjavik
Guðný Guömundsdóttir fiölu-
leikari: Ég hef enga sérstaka
ósk fram að færa. Vona bara að
væntanlegum borgarstjóra
farnist vel.
Guðjón Mýrdal hárskeri: Þvi á
ég bágt með að svara.
ívar V algarðsson
lögreglumaður: Eg hef engar
sérstakar óskir varðandi það og
hef ekkert hugsað um það.
llafliði Júliusson sjómaður
(ráðfærði sig við konuna sina:
Magnús Torfi ólafsson.
Guðmundur Borgþórsson
byggingarverkamaöur:
Einhvern verkfræðing. Ekki
veitir af, þvi að hér i borginni
þarf allt að endurskipuleggja.
Sérstaklega veita meira undir
lóöir.
Gestur Emilsson verkamaður
Djúpavogi: Ég hef ekki myndað
mér skoöun um það. Við eigum
marga færa menn.
Jón Þorláksson lögfræðingur:
Ég þekki Birgi ísleif dálitið og
þekki engan mann betri.