Tíminn - 22.07.1978, Qupperneq 7

Tíminn - 22.07.1978, Qupperneq 7
Laugardagur 22. júli 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Slðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsímar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi. „. . ,. , Blaöaprent h.f. Efnahagslögin voru óhj ákvæmileg Sú athugun, sem nú fer fram á vegum þeirra þingflokka, sem vinna að stjórnarmyndun, mun leiða það i ljós, að nauðsynlegt verður að gera mjög viðtækar efnahagsráðstafanir, ef fjölmörg atvinnufyrirtæki eiga ekki að stöðvast og stórfellt atvinnuleysi að fylgja i kjölfarið. Sú athugun mun einnig staðfesta það, að þessi vandi hefði orðið stórum meiri, ef efnahagslögin hefðu ekki verið sett á siðasta þingi. Þá hefði kaupgjald hækkað enn meira, aðallega þó hjá þeim betur settu og verðlagið svo hækkað i kjölfar þess. Hækkun verðlagsins hefði svo leitt til nýrra kauphækkana og þannig koll af kolli. Verðbólgan hefði þá orðið mun miklu hærri en hún þó er nú. Það liggur þannig ótvirætt fyrir, að vandinn hefði verið stórum meiri, ef efnahagslögin hefðu ekki verið sett. Vegna þeirra verður þeirri rikis- stjórn, sem tekur við, auðveldar að fást við hann en ella. Fari svo, að látið verði undan kröfum þeirra sem heimta samningana i gildi, mun það fljótt koma i ljós, að það getur ekki gerzt nema i orði en ekki á borði. Atvinnureksturinn mun ekki þola þá útgjaldahækkun, sem hlýzt af þessu, og þvi verður að eyða áhrifunum af fullgildingu samninganna með einhverjum hætti. Þegar svo er komið, ris sú spurning, hvort hægt verði að gera það á einhvern annan og réttlátari hátt en gert var með efnahagslögunum. Óhætt er að fullyrða, að slik leið verður vandfundin. Efnahagslögin voru byggð á þeim grundvelli, að þeir, sem hefðu breiðust bökin, skyldu bera mestar byrðar. Visitölubætur þeirra skyldu verða helmingi minni en ella meðan láglauna- fólkið héldi sinu. Ef samningarnir kæmu aftur i gildi, yrði hagnaður mestur hjá hátekjumönnum. Vilja þeir flokkar sem urðu sigurvegarar i kosn- ingunum og kenna sig við jafnrétti og bræðralag, stuðla að þvi að slik skipan verði varanleg? Þegar hita kosningabaráttunnar lýkur, og' menn fara að athuga staðreyndir betur og þær koma einnig gleggra i ljós, hljóta menn að sann- færast um, að eins og á stóð voru efnahagslögin óhjákvæmileg og réttlát. Þeim fylgdi ekki heldur meiri kjaraskerðing en svo, að kaupmáttur tima- kaups verkamanna er meiri nú en hann hefur nokkru sinni áður verið, nema ef vera kynni i nokkra mánuði á árinu 1974. Þegar málin skýrast þannig betur, verður nú- verandi rikisstjórn ekki sakfelld fyrir það, að hún hafi gripið til óþarfra og ranglátra ráðstafana. Það sannast þvert á móti, að hún hefur á rétt- sýnan hátt gert óhjákvæmilegar ráðstafanir til að hamla gegn verðbólgunni og afstýra atvinnuleysi fram yfir kosningar, þegar þeir flokkar, sem þjóðin treysti bezt, fengju tækifæri til að sjá um áframhaldið. Hitt verður svo ekki deilt um, þvi að það sýna kosningaúrslitin, að þetta hefur verið pólitiskt óklókt af rikisstjórninni. Henni hefði farnazt betur, ef hún hefði sýnt einhver Potemkintjöld fyrir kosningar. En þetta getur átt eftir að breytast og þarf að breytast. Þvi aðeins mun þjóðinni vel farnast, að hún meti meira þá stjórnmálamenn, sem þora að segja sannleikann fyrir kosningar, en hina sem beita blekkingum og gefa fögur loforð, sem þeir vita, að ekki er hægt að efna. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Frestar Callaghan kosningum til vors? Taka Bretar upp 35 tima vinnuviku? í BREZKUM BLÖÐUM eru nú hafnar vangaveltur um þaö, aö Callaghan forsætis- ráöherra muni ekki efna til þingkosninga i haust, heldur reyna aö fresta þeim til vors eöa hausts 1979, en kjörtima- bilinu lýkur ekki f yrr en i októ- ber 1979. Sjálfur lætur Callag- han ekkert uppi um þetta, enda hefur hann öörum hnöppum aö hneppa um þess- ar mundir. Hann og nánustu samstarfsmenn hans eru aö undirbúa hvita bók um stefnu rikisstjórnarinnar I launamál- um, en hún er talin væntanleg fyrir næstu mánaöamót. 1 til- efni af þessu átti Callaghan viöræöur viö fulltrúa verka- lýössamtakanna 18. þ.m. og viö fulltrúa atvinnurekenda 19. þ.m. Undanfarin þrjú ár, hefur rikisstjórnin lýst yfir árlega i júlímánuöi ákveöinni stefnu i launamálum, sem yröi fylgt næstu tólf mánuöina. Megin- atriöi þessarar stefnu hefur veriö þaö, aö launahækkanir færuekki yfir ákveöiö hámark á þessu timabili, en gegn þvi hét rikisstjórnin vissum aö- geröum í verölagsmálum og skattamálum. Fyrstu tvö árin féllust helztu verkalýössam- tökin á þetta hámark, en ekki á síöasta ári, en þá lýsti rikis- stjórninyfir þvi, aö hún myndi beita sér fyrir þvi aö laun hækkuöu almennt ekki meira en 10%. Taliö er, aö þótt verkalýössamtökin samþykki þetta hámark ekki formlega hafi flestþeirra gert þaö óbeint og stjórnin því getaö treyst á stuöning þeirra. Callaghan er nú aö vinna aö yfirlýsingu um hver stefnan i launamálum skuli vera næstu tólf mánuö- ina. Viöræöur hans viö verka- lýöshreyfinguna þykja benda til.aö hún muni geta sætt sig viö mjög hófiegt hámark launahækkana, en hins vegar vilji hún i staöinn fá 35 klukku- stunda vinnuviku. Kröfur um stytta vinnuviku eru m.a. byggöar á þvi, aö styttingin munidraga úr atvinnuleysinu. Atvinnurekendur munu hins vegar ófúsir til aö stytta vinnuvikuna, nema þá I áföng- um. Beöið er nú eftir þvi, hver veröur afstaöa rlkisstjórnar- * innar til vinnutimastyttingar- innar. STJORN Verkamanna- flokksins er nú I minnihluta á þingi. Frjálslyndi flokkurinn hefur veitt henni stuöning slö- ustu misseri, en hefur lýst yfir þvi, aö honum veröi lokiö, þegar þingiö lýkur störfum aö þessusinni. Af því hafa menn yfirleitt dregiö þá ályktun, aö Callaghan muni efna til þing- kosninga I október. Nú eru ýmsir fréttaskýrendur farnir aö efast um þetta. Úrslit tveggja aukakosninga, sem fóru frami siöustu viku, benda til þess, aö Verkamannaflokk- urinn sé aö styrkjast aö nýju, en tæpast nógu mikiö til þess aö vera öruggur um sigur. Fyrir ári sýndu skoöanakann- anir fylgishrun hjá honum. Efnahagsþróunin hefur hins vegar veriö hagstæö aö undanförnu og þaö hefur styrkt stööu flokksins. Dýrtiö- in hefur stórminnkað og er nú komin niöur i 7.4%. Einnig hefur dregið úr atvinnuleysi. Margar spár benda til, aö þessi þróun haldist næstu mánuöina. Þvl gæti veriö æskilegt fyrir Callaghan aö draga kosningar á langinn. Nokkurt atriöi er þaö einnig, aö ný kjörskrá tekur gildi i febrúar og venjulega á Verka- mannaflokkurinn meira af yngstu kjósendunum en Ihaldsflokkurinn. Þaö hefur ýtt undir þá spá- dóma, aö Callaghan reyni aö þrauka til vorsins, aö hann getur átt von á nýjum liös- auka. Ihaldsmenn gera sig nú liklega til aö nota sér aöstöö- una 1 lávaröadeildinni til aö tefja fyrir aö frumvörp um heimastjórn Skotlands og Wales nái fram aö ganga aö þessu sinni. Skozki þjóöernis- flokkurinn mun hins vegar leggja áherzlu á, aö frum- varpið um skozku heima- stjórnina verði samþykkt, þótt hann sé ekki aö öllu leyti ánægöur meö þaö. Meö tilliti til þess kynni hann aö veita rikisstjórn Verkamanna- flokksins stuöning á næsta þingi, ef frumvarpiö dagaöi uppi á þinginu nú. ÞOTT skoöanakannanir bendi til þess, aö fylgi Verka- mannaflokksins og thalds- flokksins sé nú svo svipaö, aö tvisýnt sé um úrslitin, viröist þaö ótvirætt, aö mun fleiri kjósendur treysta CaUaghan betursem forsætisráöherra en Margaret Thatcher. Af hálfu Verkamannaflokksins veröur þvi lagt mikiö kapp á þann áróöur, aö kjósendur veröi aö tryggja forystu Callaghans áfram. Þetta getur þó ráöizt nokkuö af þvi, hvernig Callag- han tekst aö móta launastefn- una næstu tólf mánuöi. Takist honum þaö á þann hátt ab al- menningur láti sér vel lika, mun hann vafalítiö styrkja stöðusinaog spurningin er þá, hvort ekki sé hyggilegast fyrir hann aö láta til skarar skriöa strax. Þ.Þ. Healey fjármálaráöherra og Callaghan á ieiötogafundinum i Bonn

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.