Tíminn - 28.07.1978, Blaðsíða 1
Föstudagur 28. júlí 1978 -
161. tölublað - 62. árgangur
Er SÍS auðhringur?
— Sjá bls. 11
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Dæmi Alþýðubandalagsins gengur ekki upp:
10% niðurfærsla kostar
Ofl rni 11 i n i»J|n — stendur I mönnum að
Cé\I llllilj dl Ud finna þá upphæð
HEI Það geröist helst i
stjórnarrnyndunarviöræðunum
i gær, að fjallaö var um þær
tillögur sem Alþýðubandalagið
lagði fram i gær um lausn efna-
hagsvandans.
Sagði Steingrimur Her-
mannsson, að bæði Fram-
sóknar- og Alþýðuflokksmenn
hefðu gert sinar athugasemdir
við útreikninga Alþýðubanda-
lagsins. Tillögur þeirra fælust i
mikilli tekjuöflun bæöi til niður-
greiðslna á verölagi og til milli-
færslu til útflutningsatvinnu-
vega nna.
Við Framsóknarmenn, sagði
Steingrimur, höfum alltaf lagt á
Ese — Eins og menn hafa vafalaust veitt athygli þá hefur hinn umdeildi gosbrunnur i Tjörninni ekki
verið starfhæfur að undanförnu og að sögn Hafiiða Jónssonar garðyrkjustjóra þá mun ástæðan vera sú,
að bæði komst vatn inn á legu i dæluútbúnaði og eins voru unnin „skemmdarverk” á tæki, sem komið
var fyrir á tjarnarbakkanum og átti að stjórna þvi hvenær gysi úr brunninum og þá hve mikið i hvert
sinn. Nú er hins vegar verið að Ijúka við að gera við það sem afiaga fór, þannig að strókurinn úr gos-
brunninum ætti að geta farið að gleðja vegfarendur og aðrar endur sem á vappi eru f kring um Tjörnina.
Tipamynd: G.E.
það rika áherslu, aö við viljum
gjarnan fara niðurfærsluleið-
ina, ekki sist ef hægt er með þvi
aðlosna viö gengisfellingu. En i
fáum orðum sagt sýnist okkur
þetta dæmi Alþýöubandalagsins
ekki ganga upp. Bæði teljum við
að kostnaöur sé vanmetinn,
tekjur ofætlaðar og ýmsum
mjög mikilvægum liöum sleppt.
Þá sagði Steingrimur aö þaö
Framhald á bls. 19.
Maður fórst
í bruna
Kona hans flutt á sjúkrahús í
Reykjavík
Kás — Sá hörmulegi atburður
skeði á Siglufiröi I gær, aö eldur
kom upp i húsinu númer 10 við
Lindargötu, með þeim afleiðing-
um að maður á fimmtugsaldri,
eigandi hússins, kafnaði I reyk.
Eldsins varð vart klukkan
tuttugu minútur gengin i tvö i
gærdag, og gaus hann upp mjög
snögglega, þannig að húsið, sem
er bárujárnsklætt timburhús,
varð nær alelda á svipstundu. 1
húsinubjó átta manna fjölskylda,
ogtókstaðbjargaöllumsem voru
heimavið, að einum undanskild-
um. Kona mannsins sem lési,
brenndist nokkuö, og var flutt
suður með flugvél frá Vængjum.
Ekki ef vitaö til að aðrir hafi slas-
ast.
Slökkvistarfiö gekk vel, og
tókst að ráöa niöurlögum eldsins
á skömmum tima. Svo mikill
varð hitinn frá hinu brennandi
húsi, að gluggar i næsta húsi
sprungu.
Eldsupptök voru enn ókunn i
gærkveldi, en húsiö er talið gjör-
ónýtt eftir brunann.
Vantar 4-6% upp á að grundvöUur
sé fyrir rekstri frystUiúsanna
Segir Guðmundur framkvæmdastjóri I Fiskiðjunni
JB —Sem fram kemur i annarri
frétt i blaðinu, hafa öll fisk-
vinnslufyrirtæki i Vestmanna-
eyjum, sagt upp fastráðnu
starfsfólki sinu með viku fyrir-
vara og boðað lokun. 011 nema
Isfélag Vestmannaeyja, sem
eftir þvi sem blaðið kemst næst,
hyggst halda rekstri áfram.
Framkvæmdastjóri Fisk-
vinnslunnar h.f. i Vestmanna-
eyjum tjáði blaðinu i gær, að
siðustu þrir til fjórir mánuðir
hefðu veriö afar erfiðir rekstri
fyrirtækisins, og heföu þeir átt I
miklum erfiöleikum meö að
standa skil á eðlilegum reikn-
ingum, greiðslu á hráefni og
launum. Sagöi hann, að eins og
venja væri yrði húsinu lokaö yf-
ir þjóðhátiðina, en alls óvist
værihvenærvinnsla yröi hafin I
þvi að nýju. Taldi hann, að sú
ákvöröun rikisstjórnarinnar,
m.a. að tryggja frystihúsunum
greiöslur úr Verðjöfnunarsjóði
nægði ekki til að tryggja
rekstrargrundvöll þeirra, og þvi
yrðu þau aö hætta rekstri.
„Þaö vantar ennþá 4-6% upp á
aö sá grundvöllur náist, og
munum við ekki hefja rekstur
fyrr en hann hefur verið tryggð-
ur. Hvort það verður, og
hvernig það veröur gert vitum
við ekkert um hér. Það vita þeir
i Reykjavik, sem á málum
halda,” sagöi hann.
Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja:
I okkar þjóðfélagi verður að vera rekstrargrundvöllur
fyrir fiskvinnslunni
— ella getum við sagt
okkur tíl sveitar
JB —Fyrirsjáanlegt er stórfellt
atvinnuleysi verkafólks i fisk-
iönaði í Vestmannaeyjum og á
Suðurnesjum á næstunni, en
sem fram hefur komið i frétt-
um, hafa frystihús þar sagt upp
öllu fastráönustarfsfólki sinuog
boðað lokun fyrirtækjanna.
Fjöldi þess verkafólks, sem hér
um ræðir skiptir hundruöum, en
auk þess fólks sem I landi vinn-
ur stöövast einnig bátarnir.
Blaðið ræddi I gær við Jón
Kjartansson, formann Verka-
lýðsfélagsins i Vestmannaeyj-
um, en i Vestmannaeyjum hafa
öll fiskvinnslufyrirtækin, að
undanskildu Isfélagi Vest-
mannaeyja, sagt upp fólki. Jón
kvaö hljóöið ekki gott I fólki i
Eyjum þessa dagana. — „ööru
nær,” sagði hann, „þetta setur
allt i loft og hleypir öllu 1 bál og
brand.” sagði hann, að bæöi
verkalýösfélögin i Vestmanna-
eyjum, Snót og Verkalýðsfélag
Vestmannaeyja hefðu tilkynnt
um yfirvinnubann i þeim stöðv-
um, sem hafa boöað lokun.
Gekk það i gildi að lokinni dag-
vinnu I gær, kl. 5. Jón sagði, aö
þetta væri einkum hugsað sem
táknræn mótmæli, og það segði
sig kannski sjálft að það væri til
litils að vera aö setja yfirvinnu-
bann á hús sem væru að loka.
Hins vegar sagði hann, að félög-
in heföu i gærmorgun sent
frystihúsaeigendum bréf meö
ályktun frá fundi i stjórnum og
trúnaöarmannaráðum félag-
anna I fyrrakvöld, þar sem
ályktaö var um tilmæli Verka-
mannasambands Islands að
aðildarfélög þess frestuðu út-
flutningsbanninu. Telur fundur-
inn að útflutningsbannið sé til-
komið vegna kjaradeilna aöila
vinnumarkaðarins og bein af-
leiðing af lögum rikisstjórnar-
innar I efnahagsmálum og
bráðabirgöalögum við þau, þar
sem atvinnurekendur voru
leystir undan þvi að greiða um-
samin laun. Litur fundurinn svo
á, aö ekkert hafi gerst I þessari
deilu sem réttlæti þaö að bann-
inu sé aflétt.
Var þaö þvi skoðun fundarins,
að þaö væri ekki tilefni til að af-
létta útflutningsbanni á þeim
stöðvum, sem þegar hafa boöað
lokun og sagt upp fólki, og þar
meö halda opnum leiðum til út-
flutnings frá þeim fyrirtækjum,
sem ekki væri unnið i aö ööru
leyti.
Jón sagöi aö sér virtist sem
ákvörðun frystihúsaeigenda að
loka, þrátt fyrir fyrirgreiöslu
rlkisstjórnarinnar á dögunum
væri pólitisk ákvörðun, til að
þrýsta á komandi rikisstjórn,
sem tæki viö súpunni aö velja
þeim góða bita, en hann teldi
ekki rétt að láta þá pólitisku
ákvörðun bitna á verkafólki.
Varðandi uppsagnirnar sagði
hann, að i kauptryggingar-
samningi segði, að hægt væri að
segja upp fólki vegna hráefnis-
skorts. Þaö heföi alltaf tiökast i
Eyjum, aö einn togari hefði ver-
iö látinn landa á mánudag eftir
þjóðhátið, en nú hefði sá veriö
látinn sigla svo og smærri bát-
ar, þannig aö hráefniö yröi ekki
til staöar, eftir hátiðina nú.
Aö endingu var Jón spurður
hvort hann teldi sjálfur, aö
grundvöllur væri fyrir rekstri
fyrirtækjanna, og sagði hann
þá:
„1 þjóðfélagi sem okkar,þar
sem allt stendur og fellur með
fiskiönaöinum, verður aö vera
rekstrargrundvöllur fyrir hon-
um, annað er heimska. Þvi ella
getum við öll sagt okkur til
sveitar og gerst aftur undir-
dánug við einhvern, sem getur
haldið okkur uppi.”