Tíminn - 28.07.1978, Síða 6
6
it'il'i
Föstudagur 28. júli 1978
Úlgeiandi Frainsóknarnokkurinn
Framkvæmdasljóri: Kristinn Finnbogason. Kilstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Augiýsinga-
sljóri: Sleingrimur Cíislason. Kitstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúia 15. Simi
8<;:mo.
Kvöldsimar blaöamanna: 86582, 86495. Eftir kl. 20.00:
86287. Verö i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi. ... , ...
Blaöaprent h.f.
Boðorð dagsins
Margt bendir til þess að viðræður um myndun
samstjórnar Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks séu nú á timamótum. Flest
hnigur að þvi að i dag eða á morgun liggi það fyr-
ir hvert stefnir.
Nú reynir þvi alvarlega á það hver viljinn er til
verksins. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
verða greinilega að sliðra sverðin, en ýmsar
hnútur hafa gengið á milli þeirra i blöðum siðustu
daga. Samstöðuna innbyrðis i þessum flokkum
báðum verður og að styrkja ef traust á að rikja.
Foringjar Alþýðuflokksins virðast hafa lagt sig
fram i viðræðunum þrátt fyrir allt. Hins vegar
hefur afstaða Alþýðubandalagsins ekki verið
fyllilega ljós, og heyrst hefur að efasemdir séu
um raunverulegan áhuga þess á stjórnarþátttöku
og um samstöðuna i eigin röðum um aðgerðir.
Samstjórn þessara flokka nú kæmi að völdum
við alls ólik skilyrði en áður hafa verið þegar svo-
nefndar vinstri stjórnir hafa setst að völdum. Að-
stæðurnar nú eru á flesta lund örðugari og fleira
að varast.
Það er alveg ljóst að vinstri stefna nú fær ekki
framgang án aðhaldssamrar skipulagshyggju i
opinberum fjármálum og fjárfestingarstjórn. Hið
sama gildir, hvort sem mönnum likar betur eða
verr, um kaupgjaldsmál og þróun eftirspurnar i
efnahagslifinu.
Það verður hins vegar aldrei talin vinstri
stefná til farsældar að vilja ekki horfast af raun-
sæi i augu við efnahagsmálin eins og þau eru eða
halda að vandi verði leystur með tilfæringum ein-
um saman sem aðeins fela i sér frestun raun-
hæfra viðbragða.
Enn fremur má það fullvist telja, að vinstri öfl-
in nái þvi aðeins árangri að ábyrg stefna i kjara-
málum liggi fyrir þegar i upphafi og hafi fyrir
fram verið útkljáð við fulltrúa launþega og at-
vinnurekstrar. Engin hástemmd loforð mega
standa i vegi fyrir þvi að tekið verði á þessum
málaflokki af alvöru og með hag fólksins fyrir
augum.
Manna á meðal og i fjölmiðlum hefur nokkuð
verið rætt um svo nefnda ,,gengisfellingar-
stefnu”. En gengisfelling er ekki stefna, hvorki
góð né slæm, heldur er gengisfelling afleiðing
jafnvægisleysis i þjóðarbúskapnum. Sem slik
leysir hún heldur engan vanda i sjálfu sér, heldur
er hún nokkurs konar mælistika á það sem þegar
hefur farið úrskeiðis i frjálsu hagkerfi.
Með markvissri vinstri stefnu i efnahagsmál-
um, sem byggir á hagsmunum fólksins og frelsi
þess til athafna, næst það jafnvægi sem styrkir
gjaldmiðilinn ekki siður en æskilega þróun kaup-
máttar. Með ábyrgri stefnu er og hægt að ganga
til verks við erfiðar aðstæður og verja almenning
þeim áföllum sem hljótast af afturkipp þegar of
hratt hefur verið siglt.
Ábyrg og markviss vinstri stefna, sem virðir
frjálsræði og hagsmuni almennings, er boðorð
dagsins. Slagorð og óraunsæi leiða aðeins i haifs-
auga i þessum efnum og bera ekki vitni raun-
verulegum vilja til að takast á við verkefnin.
JS.
ERLENT YFIRLIT
Vopnasalar líta til
Kína hýrum augum
Herinn verður búinn nýjum vopnum
Hua, Yeh og Teng (taliö frá hægri)
ÞRIR æðstu menn Kinaveldis
eða þeir Hua Kuo-feng, Yeh
Chien-sing og Teng Hsiao-ping
hafa allir flutt fyrir skömmu
langar ræður, sem fjallað hafa
um eitt og sama efni eða and-
ann i hernum, sem ætti að
byggjast á kenningum Maós,
hlutverk hans, sem væri það
að standa vörð um rétt og
sjálfstæði Kinverja.og mikil-
vægi þess, að hann verði efld-
ur með nýtizkulegum vopna-
búnaði. Þótt allar væru þessar
ræður i einum og sama anda,
vakti ræða Tengs sérstaka at-
hygli að þvi leyti, að hann
lagði áherzlu á, að ekki mætti
túlka kenningar Maós of ein-
strengingslega, heldur yrði að
samlaga túlkun þeirra breytt-
um aðstæðum og nýjum tima.
Að öðrum kosti gætu þær mis-
skilizt.
Þeir félagar lögðu mikla
áherzlu á, að herinn yrði að
vera i nánum tengslum við
Kommúnistaflokkinn, enda
þótt hann starfaði sem sérstök
heild og hefði ekki bein af-
skipti af stjórnmálum. Innan
hans yrði að rikja hinn rétti
kommúnistiski andi og hann
þyrfti jafnan að vera viðbúinn
að standa vörð um kenningar
Marx, Lenins og Maós. Þetta
hefði hann lika trúlega gert á
liðinni tiö. t þvi sambandi má
minna á, að það var herinn,
sem átti mestan þátt i þvi, að
rétta Kina við aftur eftir
menningarbyltinguna og
tryggja völd Chou En-lais og
félaga hans að nýju. Aftur var
þaö herinn, sem greip i taum-
ana og tryggði Hua og siðar
Teng sigur i átökum við
„þorparana fjóra”. Sennilega
hefur Yeh, sem er hershöfð-
ingi, gegnt mikilvægu hlut-
verki ibvi tafli, og yfirleitt er
hannígiynd talinn valdameiri
en Hua og Teng, ef hann beitir
sér. Hann gegnir nú orðið
stöðu, sem svipar til forseta
rikisins i öðrum löndum.
ÞAÐ þykir komið i ljós, að
þéir þremenningar ætli ekki
að láta sitja við orðin tóm,
hvað varðar eflingu hersins. A
vopnasýningum, sem hafa
verið haldnar vestan tjalds aö
undanförnu, ber nú ekki á öðr-
um meira en skoðunarmönn-
um frá Kina. A sölusýningu,
sem brezkir hergagnafram-
leiðendur héldu nýlega i
Aldershot, var kinverska
sendinefndin langfjölmennust
og notaði timann bezt til að
skoða hinar fjölbreytilegu
vopnategundir, sem þar voru
sýndar og voru ekki færri en
tiu þúsund talsins, en þarna
sýndu vopnaframleiðendur
viðs vegar að vörur sinar. Þeir
lögðu sig fram við aö útskýra
gæði vörunnar sem bezt fyrir
kinversku fulltrúunum, enda
gerðu margir þeirra sér vonir
um, að þar væri á ferð stærsti
viðskiptavinur þeirra i fram-
tiöinni. Sérfróðir menn um
hermál Kina telja sig hafa
heimildir fyrir þvi, aö hern-
aðarútgjöld Kina verði 36
milljarðar dollara á þessu ári
og þar af verði um 10 milljörð-
um varið til vopnakaupa á
Vesturlöndum. Fyrir vopna-
salana var þvi ekki eftir litlu
að slægjast, þar sem kin-
versku fulltrúárnir voru.
Það er mat hernaðarlegra
sérfræðinga, að þessi miklu
vopnakaup geti vart talizt
óeðlileg, þegar litið sé til þess
hversu vanbúinn herinn sé að
nær öllum vopnum, miðað viö
það, sem þekkist annars stað-
ar. Herinn skorti bæði litil og
stór hergögn á nær öllum sviö-
um, tiltölulega litið hafi verið
keypt af erlendum vopnum
siðan samvinnan rofnaði viö
Sovétrikin, en áður fengu Kin-
verjar mikið af vopnum það-
an. Hergagnaiðnaður Kin-
verja sjálfra sé enn skammt á
veg kominn, og styðjist mest
við rússneskar fyrirmyndir,
sem séu orðnar meira og
minna úreltar.
Meðal bandariskra vopna-
framleiðenda rikir litil ánægja
yfir þvi, að bannað er að selja
vopn frá Bandarikjunum til
Kína, m.a. með tilliti til þess,
að þau kunni að verða notuð
gegn Taiwan. Það verða þvi
evrópskir vopnaframleiöend-
ur, sem einkum munu hagnast
á vopnasölunni til Kina, nema
bandariskir vopnasalar finni
einhverjar krókaleiðir til aö
komast framhjá banninu.
HVAÐ mannafla snertir, er
kinverski herinn nú talinn sá
stærsti i heimi. Talið er að
hann telji nú um 3.950 þúsund-
ir manna. Til samanburðar
má geta þess, að talið er að
rússneski herinn telji um 3.670
þús. manns og bandariski her-
inn um 2.000 þús. manns. Her
Kinverja er hins vegar talinn
að öllu leyti verr búinn. Þetta
mun hins vegar breytast eftir
að hann fær betri búnað, sem
bæði mun byggjast á auknum
innflutningi og aukinni fram-
leiðslu i landinu sjálfu. Þá
gæti hann ekki aðeins átt eftir
að verða fjölmennasti her i
heimi, heldur einnig sá öflug-
asti.
Sagt er, að herinn hafi siðan
i byltingunni notið vinsælda i
Kina, m.a. vegna þess, að
hann hafi bæði stundaö alþýð-
lega framkomu og hjálpsemi
við almenning. Þannig hefur
hann verið boðinn og búinn til
starfa, ef einhver óhöpp hafa
komið fyrir, t.d. af völdum
náttúruhamfara. Algengt er
einnig, að hann hjálpar til við
samgöngubætur. Að vissu
leyti er hann þvi eins konar
vinnuher. Ungir menn hafa
sótzt eftir að komast i herinn
og sennilega dregur ekki úr
þvi eftir að hann fær betri og
nýtizkulegri búnað. þ.Þ.
Herinn er vinsæll i Kina