Tíminn - 29.07.1978, Side 3

Tíminn - 29.07.1978, Side 3
Laugardagur 29. júli 1978 3 Gunnar Thoroddsen „Mjög hallað réttu máli” sagði Gunnar Thoroddsen um skrif Visis HR — „Það var mjög hallaö réttu máli ileiðara VIsis i gær, þar sem talað er um að ég hafi gert tilraun til að ná undirtök- um i útgáfustjórn blaðsins”, sagði Gunnar Thoroddsen ráð- herra þegar Timinn ræddi við hann i gær. Gunnar sagði ennfremur, að hann hefði verið beðinn á sfn- um tima af stórum hluthöfum blaðsins að taka sæti I stjórn VIsis. Þá voru deilur uppi um ritstjóra og hefði hann gert þetta fyrst og fremst til að reyna að koma á sáttum milli deiluaðila. ,,A aðalfundinum þar sem ég var kosinn I stjórn, lagði ég til, að sú samkomu- lagsleið yrði farin að bæði Jónas Kristjánsson og Þor- steinn Pálsson yrðu ritstjórar VIsis, og eftir þau úrslit skipti ég mér lltið af málefnum blaðsins. Fór ég úr stjórn strax á næsta aðalfundi” bætti Gunnar við. Þá var hann spurður út i ummæli sin á umræðufundi Sjálfstæðisflokksins nú fyrir skemmstu, en þar sagði hann, að Morgunblaðið og Visir hefðu ekki stutt flokkinn sem skyldi i siðustu kosningum. „Morgunblaðið og Visir hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn allt frá stofnun hans 1929, og það sem ég lét i ljós var að ég vænti þess að sá stuðningur héldi áfram”, sagði Gunnar að lokum. Vandamál ullaríðnaðarins: „Þá gæti vantrúin á íslenskri vöru breiðst út eins og hundaæðið í Evrópu” — rætt við Hjört Eiriksson og Bergþðr Konráðsson hjá Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri ESE — Engum þeim sem fylgst hefur með þróun þjóðmála að undanförnu hefur dulist, að Is- lenskur iðnaður á I sffellt rikari mæli undir högg að sækja i sam- keppninni viö erlendar iðnaðar- vörur, og nú er svo komiö aö stór- felld vá er fyrir dyrum i hinum ýmsu greinum iðnaðarins ef ekk- ert verður að gert til þess að bæta samkeppnisaðstöðu islenskra iðnaðarvara gagnvart hinni er- lendu framleiðslu. Prjóna- og fataiðnaður er sú grein iðnaðarins sem á I hvað mestum erfiðleikum um þessar mundir en við þessa grein iðn- aðarins starfa um 1500 manns. Útflutningur á unnum prjónavör- um hefur um árabil átt sér stað til margra landa og fáar Islenskar vörur eru betur þekktar eriendis en einmitt prjónavörurnar. A undanförnum árum hefur það einkum verið Iðnaöardeild Sam- bandsins sem hefur flutt út full- unnar prjónavörur til hinna hefð- bundnu markaðssvæða erlendis, þ.e. Bandarikjanna, Kanada, Vestur-Evrópu og Sovétrikjanna, en aftur á móti hefur Iðnaöar- deildin ekki sinnt pöntunum er- lendis frá um kaup á óunnum prjónavörum heldur haldiö fast við þá stefnu sina að fullvinna vöruna hér heima. Nú hefur það aftur á móti gerst að eitt fyrirtæki hérlendis, Ala- foss, hefur að undanförnu flutt út mikið af óunnum lopa til lág- launasvæða og þá einkum Suður- Kóreu, þar sem unnar eru úr hrá- efninu prjónavörur, sem merktar eru „Icelandic Style” og sökum þess hve vinnuaflið er ódýrt á þessum svæðum geta lönd eins og Suður-Kórea og Puerto Rico boðið vöruna á allt að þriðjungi lægra verði en Islenskir framleiðendur og það á hinum hefðbundnu Is- Hjörtur Eirlksson lensku mörkuðum. Ekki þarf að fjölyrða um hættuna sem af þessu getur stafað fyrir hinn Islenska iðnað. Vegna þessa máls hafði Timinn I gær samband við þá Hjört Eiriks- son, framkvæmdastjóra Iðnaðar- deildar Sambandsins á Akureyri og Bergþór Konráðsson, aðstoð- arframkvæmdastjóra og voru þeir spuröir álits á þessu máli. Hjörtur svaraði þvl til, að það væri vitaö mál að útflutningsiðn- aðurinn væri kominn I mjög mikla erfiöleika vegna efnahags- þróunarinnar hérlendis að undan- förnu og ekki bætti sú mikla sam- keppni sem Islenskar iðnaðarvör- ur ættu I erlendis úr skák. Hjörtur sagði, að þaö væri úti- lokað að misbjóða atvinnuvegun- um á þann hátt sem nú væri gert. Allt kapp væri á það lagt að sjávarútvegurinn fengi þær fyrir- greiðslur sem hann þyrfti I gegn Bergþór KonrúOsson um verðjöfnunarsjóð á meöan iðnaðurinn væri látinn sitja á hakanum og ekkert um hann skeytt. Um útflutninginn á óunnum lopa sagði Hjörtur að ef bæta ætti samkeppnisaðstöðu islensks iðn- aðar, þá yröi að gera eitthvaö I málunum af hálfu stjórnvalda og það strax. Það væri krafa fram- leiöenda að mörkuð yrði ákveðin stefna i þessu máli sem gilti fyrir a.m.k. næstu 5 árin. Ef þetta væri ekki gert þá væri ómögulegt að segja til um það hvernig færi. Við höfum nú á hendinni allviðamikil viðskipti sem okkur eru opin við Austur-Asiu þ.e.a.s. um sölu á ó- unnum lopa og I þau viðskipti verðum viö að fara ef engin ákveðin stefna verður mörkuð innan tiðar, hversu óljúft sem það kann aö reynast. Viö erum hér meö stóra verksmiðju, sem við getum ekki látið vera verkefna- lausa. En ég bendi á, aö þessi viö- skipti geta hitt okkur sjálfa illi- lega innan fárra ára. Það er bara spurningin, hvort stjórnvöld vilja taka þá áhættu og hugsanlega stofna með þvi atvinnuöryggi þeirra rúmlega 1500 Islendinga, sem i prjóna- og fataiðnaði vinna, I bráöa hættu, sagði Hjörtur Eiriksson aö lokum. Bergþór Konráðsson tók mjög I sama streng og Hjörtur og benti á, að það einhliða útflutnings- bann, sem Sambandið heföi sett sér á óunnar iðnaöarvörur heföi þjónað litlum eða engum tilgangi, þvi að Alafoss hefði sinnt öllum þeim pöntunum sem Sambandinu hefðu staðið til boöa, og enn væri Alafoss að auka við spunaafköst sin. Bergþór sagði að af þessum orsökum hefði Iðnaðarráöuneyt- inu verið ritað bréf um siðustu áramót þar sem stjórnvöldum var tilkynnt, að Iðnaðardeild Sambandsins treysti sér ekki að óbreyttu ástandi til að hafna þeim viðskiptum sem stæðu til boða er- lendis. Við gerum okkur fulla grein fyrir þvi að þetta getur orð- ið til þess að auka enn frekar framboðið á eftirlikingum á is- lenskum fatnaði, úr Islenskri ull á hinum hefðbundnu islensku markaðssvæöum, en eins og margtekið hefur verið fram, þá getum við — að óbréyttu — ekki hafnað þessum viðskiptum. Þá gat Bergþór þess, að ekkert væri hægt að segja til um hvaða afleiö- ingar aukinn útflutningur óunn- innar vöru til láglaunasvæða hefði, en vitnaði til orða Þráins Þorvaldssonar framkvæmda- stjóra Hildu, um þaö, að ef svo mikið færi að berast af eftirlik- ingum af íslenskri vöru inn á hina Islensku markaði, eins og allt benti til að yrði, þá myndi vantrú umboðsmanna okkar og annarra viðskiptavina okkar á hinni is- lensku framleiðslu breiöast út eins og hundaæðið i Evrópu. Við vUjum ekki gamla uppbótakerfið — sagði Kjartan Jóhannsson HEI — „Já nú er vinstri stjórn strönduð og verður ekki af henni nema að það falli að aftur, en eins og allir vita nást skip stundum af strandstað mpð flóði, sagði Kjart- an Jóhannsson. Um framhaldið sagði hann ómögulegt að segja, bilið á milli væri of langt og menn stæðu fast hver á sinu. Alþýðuflokkurinn teldi leiðir Alþýðubandalagsins óraunhæfar. Aðspuröur sagði hann þessar leiðir geta lækkað verðbólguna eitthvað, en I stað kæmi mjög mikill halli á viö- skiptunum við útlönd. Einnig væri stór hætta varðandi atvinnu- ástandið, þannig að hætta væri á að draga mundi úr atvinnu. „En kannski er þetta fyrst og fremst spurningin um það að við viljum ekki millifærsluleið, viö viljum ekki gamla uppbótakerf- ið” sagöi Kjartan. Kjartan Jóhannsson. Ragnar Arnalds: „Samningar í gildi” prinsippmál Ragnar Arnalds en taka síðan hækkúnina í aukasköttum HEI — „Já, þetta er sprungið núna”, sagði Ragnar Arnalds i gær er Timinn hitti hann aö máli. Astæðuna sagði hann auðvitað vera ágreining samningsaðila. Alþýðuflokkurinn leggur til að gerð verði 7% kjaraskerðing I formi gengisfellingar, sem ekki - kæmi inn I visitölu. En Alþýðu- bandalagsmenn telja að leita þyrfti annarra ráða. Þeir vilja hvorki leysa vandann á kostnað launþeganna né með gengislækk- un. Þótt á það yrði fallist nú kæmi sami vandinn upp aftur að nokkr- um mánuðum liðnum, sagði Ragnar. Um það hvort Alþýðubandalag- ið yrði þá likast til utan stjórnar, sagði Ragnar aö ekki væri gott að segja um það, þótt óneitanlega horföi svo nú. En hann sagðist ekki sjá i fljótu bragði um hvers konar stjórn gæti verið að ræða, ef Alþýðuflokkurinn meinti það að hann færi ekki I stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Hann ætti líka eftir að sjá að kjósendur Al- þýðuflokksins og fylgismenn þeirra i verkalýðshreyfingunni yrðu hrifnir af því að efnahags- vandinn væri leystur með sömu ihaldsúrræðum og slöasta stjórn beitti. Þvi vildi Ragnar ekki úti- loka að vinstristjórnar viðræður yrðu teknar upp aftur. Ef við ætt- um fyrir höndum langvarandi stjórnarkreppu, mætti vel fara svo, að Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur sæju að við þyrft- um vinstristjórn, og yrðu þá eftir nánari ihugun reiðubúnir að fall- ast á að efnahagsmálin þyrfti að taka nýjum tökum. En Ragnar vildi ekki fallast á, að þeirra leiðir væru uppvakning á áratugagömlu haftakerfi, eins og haldið hefur verið fram, þótt sumar tillögurnar hafi ekki verið framkvæmdar á undanförnum árum. Ragnar sagði, að það sem haft er eftir Davið Sch. Thorsteins- syni, að millifærsluleiöin legði iðnaðinn I rúst væru algerar ýkj- ur. Hann tryði þvi ekki að 0.6% veltugjald munaði svo miklu, enda hefði aöstööugjald verið lækkað fyrir nokkrum árum. Það sem gerðist væri, aö fjölmörg fyrirtæki slyppu ekki lengur við aö greiða skatt. Um þá spurningu hvernig lækkun álagningar færi með dreifbýlisverslunina sagði Ragnar, að þann vanda yrði auð- vitað að skoða sérstaklega og það yrði bara að koma i ljós hversu langt væri hægt að ganga. Alagn- ing hefði nýlega verið hækkuð og hann teldi að allir yrðu nokkuð að taka sig á, undir núverandi kring- umstæðum. Um „samningana i gildi” sagði Ragnar, að það væri prinsipp mál að geröir samningar giltu. En hins vegar væri ekkert þvi til fyrirstööu að hækka á móti skatta á háum tekjumXHlýtur það aö þýða að launahækkunin, sem auö- vitað yröi fyrst og fremst á háum tekjum, yrði aftur tekin. Enda sagði Ragnar, aö óhjákvæmilegt væri að fá viðbótarálagningu á þessu ári á háar tekjur og miklar eignir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.