Tíminn - 18.08.1978, Side 2
LSliiii IJL6
Föstudagur 18. ágúst 1978
i
ik.
^ I*r.aá
Ben Abruzzo og Max Anderson á Beykjarvikurflugvelli eftir aö hafa
verið bjargaö af bandariska varnarliöinu eftir nauölendingu á isafiröi i
fyrstu tilraun sinni til aö fljúga loftbelg yfir Atlantshaf.
Fyrsta flugi í loftbelg
yfir Atlantshaf lokið
Paris — Reuter. Þrir
Bandarikjamenn luku i gær för i
loftbelg yfir Atlantshafiö. Voru
þeir viku á leiöinni frá Maine á
austurströnd Bandarikjanna til
Evreux i Frakklandi. Þetta er i
fyrsta sinn, sem tekist hefur aö
fara i loftbelg yfir Atlantshaf.
Fyrir nokkrum dögum mistókst
tveimur Bandarikjamönnum aö
fara þessa leiö. Þeir komust þó
lengra en nokkrir höföu áöur
gert, og áttu aöeins 160
kilómetra ófarna aö strönd
Frakklands er þeir lentu á sjón-
um.
Iraki myrtur í Tripoli
Kóm — Keuter. Fimmtugur
sendimaöur frá trak var i gær
skotinn til bana fyrir utan sendi-
ráö traks i Tripoli, höfuöborg
Libýu. Arásarmaöurinn var
handtekinn, en ekki hefur verið
gefiö upp hvaö hann heitir né
hverrar þjóöar hann er.
Dollarinn styrkist
á peningamarkaði
Lundúnum — Reuter. Verö doll-
arans hækkaöi verulega á
peningamörkuöum Evrópu i gær.
Er hann nú nær þvi jafngiidi
tveggja vestur-þýskra marka.
Staöa doilarans styrktist eftir aö
Carter Bandarikjaforseti til-
kynnti I gær, aö i undirbúningi
væru aögeröir til aö tryggja verö-
giidi hans. Dollarinn hækkaöi enn
I véröi er fréttist um þau ummæli
bandariska fjármálaráöherrans
Michael Blumenthals, aö hann
mundi athuga aögeröir til aö efla
hinn bandariska gjaldmiöil
Gullverð hefur aldrei verið
hærra en i siðustu viku, er únsan
kostaði 216,38 dollara. Verð á
gullúnsu i dag var hins vegar 209
dollarar.
Blumenthal sagöi á fundi
fjárhagsnefndar Oldungadeildar-
innar, aö ástæðurnar fyrir falli
dollarans væru einkum tvær:
annars vegar verðbólgan i
Bandarikjunum, sem væri yfir 10
af hundraði ári, og hins vegar
óhagstæður viðskiptajöfnuöur.
Carter tilkynnti i gær, aö hann
hefði falið Blumenthal
fjármálaráöherra og William
Miller, yfirmanni bandariska
seðlabankans, að finna leiöir til
að efla dollarann.
Ekkert er vitað til hverra ráö
verður gripið.
Bretar banna síldveiðar
Lundúnum Reuter. Bretar ætla
sér aö banna slldveiði á yfir-
ráöasvæöi sinu á trlandshafi.
Veröur þetta gert I siöasta lagi
24. september n.k. Þangaö til
veröur aö sækja um leyfi til
veiöanna. Þegar banniö gengur
i gildi veröa sildveiöar i bresk-
um höfum bannaöar meö öllu
nema á litlu svæöi viö mynni
Clyde-fljóts I Skotlandi.
John Silkin, landbúnaðarráð-
herra Breta sagði i dag, að
Bretar yröu að gripa til þessara
ráða þar eö bandalagsriki
þeirra i Efnahagsbandalaginu
vildu ekki fallast á friðunartil-.
lögur Breta frá þvi i júli.
Leyft verður að veiða 9000
tonn af sild, og þegar þvi marki
er náð verða sildveiðar bannað-
ar. Það eru einkum breskir og
irskir fiskimenn, sem veiða sild
á þessu svæði, en einnig koma
Frakkar og Portúgalir þar við
sögu.
Króatar taka
gísla í Chicago
Chicago-Reuter. Tveir króatiskir
þjóöernissinnar réöust i gær inn i
ræöismannsskrifstofu Vestur-
Þýskalands i Chicago og halda
þar átta manns i gislingu. Krefj-
ast þeir þess, að Þjóðverjar
sleppi úr haldi Stjepan Bilandzic.
Júgóslavneska stjórnin hefur
krafist þess, að Þjóðverjar fram-
selji Bilandzic, en hann er nú i
fangelsi i Vestur-Þýskalandi,
dæmdur fyrir margar árásir á
júgóslavneska sendiráðsstarfs-
menn.
Mennirnir réöust inn i ræöis-
mannsskrifstofuna, sem er i
hjarta Chicago-borgar, snemma
að morgni, tóku átta gísla, þar á
meðal ræðismanninn, en slepptu
einum gislanna eftir nokkra
stund.
Stjórnarmyndun
gengur hægt
Lissabon — Reuter Stjórnar-
kreppan i Portúgal hefur nú
staöiö i nær fjórar vikur.
Nobée da Costa, sem falin hef-
ur veriö stjórnarmyndun,
sagöi þó, aö hann heföi ráö-
herraiistann tilbúinn — I höfö-
inu. Kvaöst hann hafa lokiö
stjórnarmyndun eftir hálfan
mánuö. Taliö er, aö hann
myndi stjórn, sem aöallega
veröi skipuö sérfræöingum á
ýmsum sviöum og veröi hlut-
verk þeirra m.a. aö undirbúa
kosningar i vor.
Uppgjöf og spilling i Salisbury
Fé til stríðsrekstursins var skotið inn á
einkareikninga stjórnarherranna í Sviss
Meöan skæruhernaðurinn
færist æ meir i aukana að
grimmd og umfangi er svo að
sjá sem jafnvel Ian Smith,
maöurinn sem eitt sinn var
einingartákn áframhaldandi
yfirráða hvits minnihluta i
Ródesiu, sé tekinn að missa
móðinn: ,,Ég held. að öllum
hljóti aö vera þaö ljóst að hvað
þvi viðvikur að binda enda á
styrjaldarástandiö, þá er það
ekki á annarra færi, en svartra
samstarfsmanna minna”, sagði
ródesiski forsætisráöherrann
fyrir skemmstu. ,,Ég get afar
fátt gert.”
Þegar skæruliðar gripu til
vopna fyrir sex árum, varö
flestum hinna hvitu þaö fyrst
fyrir aö hlægja aö þessu, þeim
fannst það svo mjög út i bláinn.
Nú er hins vegar svo komið eins
og orð Smiths benda til að meöal
þeirra rikir almennur ótti, ef
ekki örvænting. Þessar tilfinn-
ingar eru liklegar til aö eflast aö
mun eftir aö tilkynnt var um
það fyrir nokkrum dögum aö
upp á slökastiö hefðu 39 svartir,
almennir borgarar, veriö
drepnir af iiösmönnum svartra
þjóðernissinna og að stjórnar-
hermenn hefðu liflátiö meira en
100 skæruliöa.
Að nokkru leyti má skýra von-
leysiö út með þvl, aö hér hafi
oröiö „bakslag” vegna þess
ákafa og hrifningar sem vakn-
aöi i kring um samþykktina frá
3. mars, er sett var á fót sam-
stjórn svartra og hvitra. Menn
vonuöu að Vesturlönd mundu
styöja þetta fyrirtæki þótt enn -
væri gert ráö fyrir áframhald-
andi forréttindum hvitra aö
hjaöningavigin hættu og aö
striöiö lognaöist út af. Ekkert af
þessu hefur gerst.
Bretar sem eru ofurseldir
miklum þrýstingi heimafyrir,
hafa lítillega slakað á hinni
hörðu afstöðu gagnvart Ródesiu
en haldiö að sér höndum, hvað
allar tegundir stuðnings varðar.
Bandarikin hafa haldið áfram
aö styðja málstað skæruliða.
Þeir hvitu höfðu vonað að Jos-
hua Nkomo , zambesiski
þjóðernissinninn f mundi segja
skilið við félaga sinn, Robert
Mugabe, sem er mjög hallur
undir marxisma.en þær vonir
hafa ekki rætst. Nkomo sér litla
ástæöu til þess að hefja
samninga, meðan striösgæfan
er skæruliöanna megin.
Enn er þaö aðhvitir og svartir
friðarsinnar sem trúaö höföu
(eða vildutrúa) aðorð nokkurra
svartra manna innan bráöa-
birgöastjórnarinnar gætu
megnað að koma á vopnahléi,
hafa oröið að varpa allri bjart-
sýnihulu frá augum sinum. Á
fundi með hvitum ibúum I einu
úthverfa Salisbury, var gerður
aösúgur aö Ian Smith fyrir
skemmstu, þegar hann var að
reyna aö verja þá ákvörðun sina
aö veita svörtum mönnum þátt-
töku i rikisstjórn sinni. „Vit-
leysa,” sögöu þeir sem kölluðu
fram i ræöu hans. „Hve margir
þurfa aö láta lifið enn?” I auka-
kosningum til þingsins nýlega
var frambjóöandi rikisstjórnar-
innar kjörinn meö 49% greiddra
atkvæöa og var það 20% minna
en I kosningunum fyrir ellefu
mánuðum.
Siöferöisþrek hvitu lbúanna
hefur enn fremur beöiö mikinn
hnekki viö þaö er upp komst að
háttsettir ródesiskir embættis-
menn höföu laumað meiru en
einni milljón dollara, —ef tilvill
15 milljónum, — af leynibanka-
reikningi sem notaður skyldi til
vopnakaupa inn á bankareikn-
inga sina i Sviss. Þegar
hernaðarútgjöldin nema 1.3
milljónum dollara dag hvern,
var þetta hneyksli sérstaklega
tilfinnanlegt.
Þar sem til hervarnanna er
teflt fram ágætlega þjálfuðu
flugliði og næstum öllum fuil-
færum hvitum körlum I landinu,
njóta ródesisku herirnir enn
sem fyrr yfirburða og þeir eru
tvimælalaust jafnan full færir
um aö gera leifturárásir á búöir
skæruliöa i Mosambik. En hvaö
sem þessu liður, hafa skæru-
liðar brugðiö fæti fyrir öll Itök
og yfirráö stjórnvalda á stórum
svæöum til sveita, þar sem þeir
ógna öryggi hvitra ibúa og
hrekja þá til þess að flytja á
eftir Michael T. Kaufman
brott. I dal nokkrum, þar sem
fjöldi stóreignabænda bjó geng
ur aðalþjóðvegurinn nú undir
nafninu „launsátra leiðin” og
ekki nema 18 af 135 bændum
þrauka þar enn. Sjúkrahús trú-
boða og landbúnaðarþjónustu-
stöðvar stjórnvaldanna hafa
verið yfirgefnar.
Hin mislita bráðabirgða-
stjórn, sem I sitja þeir Ian Smith
og þrir s vartir stjórnmálamenn,
— Abel Muzorewa biskup,
Ndabaningi Sithole og Jeremiah
Chirau — reynir að gefa sem
fæstar fréttir af hernaðar-
ástandinu. Muzorewa biskup og
svartir félagar hans leggja
Ródesiskir stjórnarhermenn leita skæruliða í grennd við landamæri
Mosambik.
mesta áherslu á fréttir af deil-
um og illindum milli tveggja
aðalhreyfinga skæruliða. Þeir
gera mikið úr atviki eins og þvi
þegar 15 fyrrverandi foringjar
Mugabe sluppu úr fangelsi I
Mosambik og dauða næstráð-
anda Nkomos i Zambiu.
Margt er hæft i þessum vis-
bendingum um sundrung I bar-
áttu þjóðfrelsisaflanna en þaö
breytir þvi ekki að hruniö blasir
við hvitum yfirráöum og sið-
ferðisþreki. „Þaö sem skeð
hefur er,að frá þvi er mars-sam-
komulagið var gert brjótast
hvitir um i feninu ekki slður en
hver annar,” sagði ródesiskur
lögfræðingur nýlega, sem and-
vlgur hefur veriö stefnu Smiths.
Annar lögfræðingur, svartur,
sagöi: „Þegar skæruliða skorti
eiginlega allan hernaðarlegan
styrk lögðu þeir málstað sinn
undir alþjóðadóm. Nú er Smith
tekinn að svipast um eftir stuðn-
ingi frá umheiminum, meöan
skæruliöar treysta I auknum
mæli á mátt sinn og megin.”
Möguleikinn á sáttaumleitun-
um af hálfu alþjóölegra aöila
kom á ný til tals, þegar önnur
skæruliöasamtök sem háöu
slriö fyrir frelsi Suö-Vestur-Af-
riku féllust á uppástungu frá
Vesturlöndum um vopnahlé og
kosningar undir eftirliti Sam-
einuöu þjóöanna. Angóla og
Zambia sem bæöi styöja f relsis-
öflin i Ródesiu áttu drjúgan hlut
aðmáli þegar Suö-Vestur-Afrik-
anar féllust á þetta.
En jafnvei þótt stuöningsöfl-
um skæruliöa tækistaö reka þá
aö samningaboröinu aö nýju
Framhald á bls. 23