Tíminn - 18.08.1978, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. ágiist 1978
5
Rykmengunin
hættulegust
Reykurinn frá Áburð-
arverksmiðjunni
áberandi og
þefillur, en
ekki skaðlegur
SJ — Köfnunarefnismengun
frá Aburðarverksmiðjunni
hefur aldrei mælst svo mikil
að hún teljist skaðleg, sagði
Pétur Sigurjónsson, forstöðu-
maður Rannsóknastofnunar
iðnaðarins, Timanum. Oft er
gulgrænn reykurinn frá
Áburðarverksmiðjunni mjög
áberandi og svo var t.d. nú á
sunnudaginn, og varð þaö til
að Tíminn leitaði upplýsinga
um málið. — Mengunin frá
verksmiðjunni hefur verið
mæld á ýmsum stöðum i ná-
grenninu, m.a. i Langholti, og
þegar hún hefur mælst mest
er hún svipuö og köfnunar-
efnismengunin frá bilaumferö
i miðborg Reykjavikur, sagði
Pétur Sigurjónssonn. Yfirleitt
dreifist reykurinn fljótt og þá
er mengunin að sjálfsögðu
hverfandi.
Reykurinn frá Áburðar-
verksmiðjunni er mun meira
áberandi en mengunareimur-
inn frá Álverksmiöjunni i
Straumsvik,ogeinnig er meiri
lykt frá reyknum úr Aburðar-
verksmiðjunni en við
Straumsvik þótt lyktnæmir
finni einnig lykt þar. Að sögn
Péturs hefur þó mælst mun
meiri mengun frá Álverk-
smiðjunni og er hún skaðleg
vissum gróöri. Barrtré og fjöl-
ærar jurtir þola hana einna
verst, mismunandi eftir teg-
undum, en birki, lauftré og
gras mun betur.
Mengunarmælingar fara
fram reglulega allt árið við ál-
verið, en við Aburðarverk-
smiðjuna hefur einkum verið
mælt þegar reykurinn frá
henni hefur verið áberandi og
dreifst með minna móti.
Pétur Sigurjónsson kvaöst
ekki trúaður á fregnir, sem
blaðinu hafa borist um að,
asma væri algengara i börn-
um í Hafnarfirði en annars
staðar á landinu og það væri
álitið stafa af menguninni I
Straumsvik.
— Mengunarmál innan
verksmiðjunnar, og áhrif
hennar á fólk almennt, heyra
raunar ekki undir okkur, sagði
Pétur Sigurjónsson, heldur
heilbr igðiseftirlitið.
— Annars er hættulegasta
mengunin hér á landi ryk-
mengun, en hún er oft mikil i
þurrviðri og þegar vindasamt
er. 1 rykinu eru alls konar
óþverraefni og bakteriur þrif-
ast vel I þvi.
Kjartan Jóhannesson:
Vísitalan og
kaupgjaldsmálin
,,Hætt verði að greiða verö-
lagsuppbætur samkvæmt
visitöluútreikningi.”
Kjartan Jóhannesson i Jörö
1. hefti 1943.
,,... meinsendin sjálf, hefur
verið látin afskiptalaus, en
alls kyns skottumeðul eru
notuö til að ráða bót á sjúk-
dómseinkennunum þ.e. verö-
bólgunni og fjármálaspilling-
unni.”
Magni Guðmundsson i
Morgunblaöinu 24. sept. 1947
„Það er óumdeilanlegt, aö
visitölukerfið hefur veriö böl-
valdurinn i islenzkum efna-
hagsmálum.” _
Þórarinn Þórarinsson i
Timanum 30. júli 1978
,,Nú búum við við brjálaö
visitölukerfi og brjálaða
hringrás efnahagslifsins, sem
leitt hefur til óðrar veröbólgu
og alls þess hryllihgs sem
henni fylgir.”
Vilmundur Gylfason i Dag-
blaðinu 11. ágúst 1978
Ýmsum virðist nú ljósara en
áður, hver áhrif hið svonefnda
„visitölukerfi” hefur á efnahag
þjóðarinnar. Kommúnistar og
nokkrir „nitjándu aldar” hag-
fræðingar munu þó ekki þeirra á
meöal, sbr. þýdda grein eftir
Irving Kristol i Lesbók Morgun-
blaðsins 13. júni 1965. Greinin
heitir: „Tuttugasta öldin hófst
árið 1945”. Þar segir svo m.a.:
„Nýja hagfræðin — hagfræði
20. aldarinnar — er svo nýstár-
leg frá rótum, að við erum jafn-
vel enn ekki farnir að gera okk-
ur grein fyrir þvi.”
CD
Fjórum árum siðar en greinin
varbirtvarö „pappirsgullið” að
veruleika á fundi Alþjóða gjald-
eyrissjóösins 3. okt. 1969, sjá
Morgunblaðið 5. okt. 1969.
Þannig miðar i þekkingarátt.
Vist er kaupgjaldiö ekki nema
einn þáttur fjármálanna, en sá
þáttur þarf lika að vera i lagi.
Spurningin er, hvort reynslan
hefur kennt nógu mörgum, aö
kjarasamningar um kaup-
greiöslur bundnar framfærslu-
visitölu fá aldrei staðist. Aö
halda fram öðru er hagfræði-
skekkja frá liðinni öld.
Reykjavik 14. ágúst 1978
Kjartan Jóhannesson
Karfavogi 34
Helgi Þorgils
sýnir í SÚM
Föstudaginn 18. ágúst 1978 kl.
20opnar Helgi Þorgils Friöjóns-
son myndlistarsýningu i Galleri
SÚM, Vatnsstig 3B, Rvk.
Helgi Þorgils er fæddur i
Reykjavik 1953. Hann útskrifaöist
frá Myndlista- og handlöaskóla
Islands voriö ’76 og stundaöi
framhaldsnám 1 Hollandi, De
Vrije Academie Pcychopolis i
Haag, og Jan Van Eyck
Academie I Maastricht.
Þetta er þriðja einkasýning
Helga Þorgils.
A sýningunni i Galleri SÚM eru
19 verk. sem sum hver eru i
mörgum hlutum. Þaö eru mál-
verk og teikningar, stimplaverk,
grafik og bækur. Flest verkin eru
unnin á þessu ári.
Sýningin i Galleri SÚM er opin
daglegafrá kl. 16-22. Henni lýkur
þann 27. ágúst nk.
w&m
lesendur segja
Halldór Kristjánsson:
Ég kem þessu ekki
saman
Fyrir kosningarnar skildist
mér á þeim Alþýðubandalags-
mönnum að þeir vildu breyta
þjóöfélaginu, þeim fyndist að
illa hefði verið stjórnað og á þvi
vildu þeir ráða bót. Mér skildist
lika að þeir væru ekki mikið i
vafa um það hvernig ætti að
stjórna og leysa vanda efna-
hagslifsins og þaö til frambúð-
ar. Þeir áttu uppskrift og
formúlur að þessu i góöum bók-
um sem var veifað framan i
alþjóö.
Eftir kosningar heyrðist mér
lika aö Alþýðubandalagið vildi
ekki fara i rikisstjórn nema með
þvi móti að einhverju yrði
breytt til frambúðar. Það hefði
litinn áhuga á káki til bráöa-
bir gða.
En svo gerist það aö talsmenn
þessara samtaka segja hver I
kapp við annan að tillögur
þeirra i stjórnarumræöurri hafi
bara verið um það aö fleyta at-
vinnuvegunum yfir næstu mán-
uði með sömu aðferðum og þessi
rikisstjórn hafi notað. Svo hafi
átt að endurmeta stöðuna um
áramótin. Þangaö til hafi þeir
viljað láta hverjum degi nægja
sina þjáningu.
Þetta er nú kannski skiljan-
legt út af fyrir sig en mér hefur
ekki auðnast að koma þvi heim
og saman við fyrri yfirlýsingar
og fyrirheit.
Ólafur Ragnar Grimsson seg-
ir nú að framtiöin sé alltaf i
óvissu og þvi sé vandkvæðum
bundið að gera ráðstafanir
nema rétt frá degi til dags.
Skyldi hann ekki hafa vitaö
þetta fyrir kosningar? Einhver
hefði átt að geta sagt honum
það.
En hvað sem um það er vil ég
benda Alþýðubandalagsmönn-
um á þaö að þeim mun vera full
þörf á að skýra sambandið milli
fyrri og siöari afstöðu ef þeir
vilja láta almenning skilja sig.
Græna veltan
áSELFOSSI
Einn af hinum fjölmörgu og athyglisverðu þáttum Land-
búnaðarsýningarinnar 1978 á Selfossi, er vafalaust Græna
veltan, hlutavelta garðyrkjubænda. Á Grænu veltunni gefst
þér tækifæri til að vinna ríflega útilátin sýnishorn afurða
garðyrkjubændanna, — fallegt grænmeti fyrir sama og
ekkert verð.
Sýningin er opin 11.-20. ÁGÚST
Virka daga kl. 14 — 23, kl. 10 — 23 laugardaga og sunnudaga.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978
Ævintýri fyrir alla f jölskylduna