Tíminn - 18.08.1978, Qupperneq 6
6
Föstudagur 18. ágúst 1978
Íítgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og- auglýsingar Siöumúla 15. Simi
86300.
Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Nú skal reynt
Þegar vinstriviðræðurnar undir forystu
Benedikts Gröndals slitnuðu hvatti Timinn ein-
dregið til þess i forystugrein að aftur yrði i alvöru
reynt að ná samkomulagi sömu flokka um rikis-
stjórn.
Nú hefur Lúðvik Jósepsson lýst yfir þvi að hann
vilji beita sér fyrir þvi að þessar viðræður hefjist
að nýju, Eindregið ber að fagna þeirri ákvörðun
og vona að þar fylgi hugur máli.
Erfiðleikar „sigurflokkanna” eru orðnir auð-
sæir hverjum manni. Alþýðuflokkurinn hleypur
að tilefnislitlu út af hverjum viðræðufundinum af
öðrum, að þvi er virðist i þvi skyni að halda sam-
stöðunni svona nokkurn veginn i eigin röðum. Nú
siðast var einbeitni flokksins ekki meiri en svo að
frýjunarorð Guðmundar J. Guðmundssonar réðu
úrslitum um ákvörðun flokksins.
Siðustu viðbrögð Alþýðubandalagsins bera þvi
greinilegt vitni að forysta flokksins hefur skilið
að hún stóð uppi afhjúpuð eftir slit fyrri viðræðna
um vinstristjórn. Forystumenn Alþýðubanda-
lagsins i verkalýðshreyfingunni notuðu þetta
tækifæri til þess að veita þingleiðtogunum nokkra
ráðningu.
Það hefur komið fram i fréttum, að Fram-
sóknarmenn fagna þvi að viðræður hefjast af
nýju um vinstra samstarf. Forsendur þess að
slikar viðræður hef jist hljóta að vera þær að fyrri
ágreiningsefni Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
séu nú úr sögunni, en fyrir hendi sé raunveru-
legur samkomulagsgrundvöllur.
Málaleitan af hálfu Lúðviks Jósepssonar til
Framsóknarmanna um að þeir takiað nýjuþátt i
viðræðum þessara sömu flokka hlýtur að fela það
beinlinis i sér að ný staða sé komin upp i málinu.
Ef Alþýðubandalagsmenn og Alþýðuflokksmenn
hyggjast nota þetta tækifæri til þess eins að halda
áfram að rifast, þá munu aðrir að likindum telja
sér hentara að halda sig fjær.
Ef nú fylgir raunverulega hugur máli af hálfu
beggja „sigurflokkanna” þá er það eitt út af fyrir
sig verulegur áfangi á leiðinni til stjórnarmynd-
unar. Ef þeir eru reiðubúnir nú til þess að horfast
i augu við staðreyndir efnahagslifsins og snúa
bökum saman til varnar og sóknar, þá munu allir
félagshyggjumenn fagna slikum sinnaskiptum
þeirra.
Hitt verða allir menn að hafa hugfast að nú
verður að láta hendur standa fram úr ermum.
Það er á undanförnum vikum búið að margræða
málin og afstaða flokkanna hlýtur að vera orðin
nokkurn veginn skýr i aðalatriðum. „Sigur-
flokkarnir” verða einfaldlega að sliðra sverðin,
slá af kröfum sinum og taka stóryrðin aftur, en
snúa sér siðan að þvi af einbeitni og einlægni að
móta stefnuna út úr öngþveiti óðaverðbólgu, visi-
töluskrúfukerfis og upplausnar á vinnu-
markaðinum.
Nú skal manninn reyna. Nú verður það reynt til
endanlegrar þrautar hvort vinstra samstarf er
raunhæfur möguleiki eins og styrkleikahlutföll-
um flokkanna er háttað nú og hvort einlægur vilji
er fyrir hendi til þess að vinstristjórn verði
mynduð.
JS
Erlent yfirlit
Ceausescu tryggír
vel einræði sitt
Ættingjar hans fá að njóta þess
Ceausescu stigur dansspor meö ungu fólki
NICOLAE Ceausescu, hinn
kommUnistiski einræöisherra
Rúmeniu, hefur mjög veriö i
fréttum 1 sambandi viö feröa-
lög á þessu ári. Siöastl. vor
heimsótti hann Kina fyrstur
allra stjórnarleiötoga I Aust-
ur-Evrópu og hlaut konung-
legar móttökur hjá hinum
kommúnistisku leiötogum
þar. Nokkrum vikum siöar
hélt hann til Bretlands og
heimsótti Elizabetu Breta-
drottningu, sem tók honum
heldur kuldalega aö sögn, en
gætti þó vel allra formvenja,
en hann er fyrsti kommúnista-
leiötoginn, sem heimsækir
hana. Um þessar mundir tek-
ur Ceausescu svo á móti Hua
Kuo-feng, leiötoga
Kommúnistaflokks Kina og
valdamesta leiötoga Klnverja.
Sú heimsókn vekur heimsat-
hygli, þvi aö Hua er hér aö
herja á heimaslóöir leiötog-
anna I Moskvu og flytur dul-
búnar árásarræöur gegn þeim
rétt I hlaövarpanum hjá þeim,
ef svo mætti segja.
Flest viröist geta bent til
þess, aö Rússar séu lltiö hrifn-
ir af þessari heimsókn og telji
Ceausescu gera þeim lltinn
greiöa. En þetta er ekki neitt
nýtt. Þótt Rúmenia sé I nánum
hernaöarlegum og viöskipta-
legum bandalögum viö Sovét-
rikin, hefur Ceausescu lagt
kapp á aö sýna, aö hann er
ekki eins háöur Rússum I
utanrikismálum og valdhafar
annarra kommúnistarlkja I
Evrópu. Vafalaust hafa
Kremlverjar oft átt erfitt meö
aö þola þetta, en annaö hefur
bætt úr skák. Ceausescu leyfir
minna frjálsræöi og heldur
uppí strangari aga en nokkur
annar leiötogi kommúnista I
Austur-Evrópu. I Rúmeniu
finnast ekki neinir andófs-
menn, þvi aö þeir eru fjar-
lægöir i tima, ef þeir stinga
upp kollinum. I stjórn innan-
landsmála er Ceausescu
ómengaöur Stalinisti.
Ceausescu hefur lýst ævi-
ferli slnum þannig, aö hann
hafi veriö Rúmeni slöan hann
fæddist, en kommúnisti siöan
hann var sextán ára, en hann
er nú rétt sextugur aö aldri.
Hann er kominn af fátæku
bændafólki og var sendur aö
heiman, þegar hann var ellefu
ára gamall, til aö vinna I skó-
verksmiöju I Búkarest. Þar
kynntist hann kommúnistum
og var kominn I flokk þeirra,
þegar hann var sextán ára
gamall. Tveimur árum slöar
var hann fangelsaöur I fyrsta
sinn fyrir pólitiskan áróöur og
haföur i haldi um skeiö. Næstu
árin var hann meira og minna
I fangelsi. Flokkur kommún-
ista i Rúmeniu var fámennur,
þegar siöari heimsstyrjöldinni
lauk, enda höföu forustu-
mennirnir ýmist verið I
fangelsum eöa dvalizt land-
flótta I Sovétrlkjunum. Meöal
þeirra var Ana Pauker, sem
réöi hvaö mestu I Rúmenlu
fyrst eftir strlöslokin. Þegar
Stalin taldi hana oröna svo
óvinsæla, aö heppilegast væri
aö losna viö hana, hóf hann
Gheorgiu-Dej til valda I rúm-
enska kommúnistaflokknum.
Hann tók upp aö ýmsu leyti
þjóðlegri og sjálfstæöari
stefnu, en var ekki slöur
strangur kommúnisti en
Pauker. Hann varö þó stórum
vinsælli. Þeir Gheorgiu-Dej
og Ceausescu höföu kynnzt I
fangelsi og falliö svo vel, aö
Cheorgiu-Dej geröi Ceausescu
aö nánasta samverkamanni
sinum. Þegar Gheorgiu-Dej
féll frá 1965, var Ceausescu
sjálfkjörinn eftirmaöur hans
sem formaður kommúnista-
flokksins og valdamesti maö-
ur landsins. Hann hefur siðan
unnið markvist aö þvi aö
styrkja persónuleg völd sin..
Auk þess aö vera formaöur
kommúnistaflokksins, er hann
æösíí yfirmaður hersins og
formaður sérstakrar nefndar,
sem hefur meö höndum eftirlit
meö framvindu allra atvinnu-
mála og félagsmála i landinu.
Siöast bætti hann viö sig for-
setatitlinum, og má segja, aö
Brésnjef hafi nú fylgt fordæmi
hans aö þessu leyti. Úhætt er
aö segja, að Ceausescu hafi
treyst völd sln betur og ræki-
legar en nokkur annar leiðtogi
kommúnista I Austur-Evrópu,
aö Brésnjef ekki undanskild-
um.
ÞAÐ er yfirleitt sagt Ceau-
sescu til hróss, aö hann sé góö-
ur starfsmaður og skipuleggj-
ari, sem hefur lag á þvl aö
hafa mörg járn I eldinum I
einu. Hann ferðast mikiö
innanlands til aö fylgjast meö
gangi mála og getur skotiö
upp óvænt, eins og t.d. I verk-
smiöju, þar sem reksturinn
gengur illa.
í seinni tiö hefur þótt bera á
þvl I slvaxandi mæli, aö Ceau-
sescu skipi ættmenni sln og
tengdafólk I valdastööur og
tryggi völd sin þannig til viö-
bótar ööru. í Rúmenlu er þvi
farið aö tala um Ceausescu-
ættina næstum þvl eins og tal-
aö var um konungsættina áö-
ur. Eiginkona hans, Elena,
hlaut sæti I æöstu fram-
kvæmdastjórn flokksins á
siöastl. ári og er sögö hafa þar
þaö hlutverk á höndum aö
fylgjast með öllum ráðningum
I helztu trúnaöarstöður hjá
flokknum. Einn af sonum
þeirra, Nicu, er formaöur
æskulýössamtaka kommún-
ista. Annar þeirra, Ion, er að-
stoöarlandbúnaöarráöherra.
Svili Ceausescu, Manea, er
nýlega oröinn forsætisráö-
herra, og tveir frændur hans
og tengdafaðir eins sonar
hans, eru varaforsætisráð-
herrar. Einn bræðra hans er
hershöfðingi og annar veitir
forystu rúmenskri viöskipta-
stofnun I Vlnarborg.
Eins og gefur aö skilja hefur
Ceausescu haldið mikiö af
ræðum, sem hafa aö sjálf-
sögöu verið gefnar út og fylla
mörg bindi. Auk þess hefur
hann skrifað nokkur rit til viö-
bótar. Bókabúöir I Rúmeniu
eru fullar af þessum ritum
hans. Aöeins Kim II Sung einn
mun nú standa framar en
Ceausescu I þvi að kynna þjóö
sinni skoöanir sinar. h b
Ceausescu-hjónin meö Hua I Peking