Tíminn - 18.08.1978, Page 9
Föstudagur 18. ágúst 1978
9
Langbrækur og aðrar styttri
Valborg Bentsdóttir, þú hlýt-
ur a& hafa fariö öfugum megin
fram úr daginn sem þil snaraö-
ist í aö skrifa um siöleysiö og
starfsmannauppsagnir i Tim-
ann (12/8 ”78). —Súgrein er al-
deilis ófær.
Min vegna er ykkur, þér og
Leifi Karlssyni, þó jafngott aö
hnotabitast um annarlegar
hvatir enn annarra fram-
sóknarmanna og skal ég þvi
ekki blanda mér i þaö.
Þú segist ekki ætla aö svara
fyrir „stuttbuxnafólk” enlætur
svona aö því liggja i leiöinni aö
„langbræklingum” eins og Leifi
þyki ekkert gott nema þaö sé
gamalt. Þetta er liklega álikai
skynsamlegt og aö halda þvi
fram aö ekkert falli þér nema
þú haldir aö þaö sé nýtt og
brækur þá helst aö þær hvorki
hli'fi né klæöi — svona eins og
nýju fötin keisarans sæla.
Þér þykir aö vonum afleitt til
þess aö vita ef illa hefur tekist
til meö val fólks i stjórn
fulltrúaráösins. — Þaö hefur
svona i leiöinni ekki hvarflaö aö
þér aö besta fólki veröi á mistök
og jafnvel aö þaö geri asnastrik
— Þaö er auövitaö vont ef góöu
fólki veröur á, en þá er aö benda
þvi á mistökin og þaö heföir þú
betur gert i staö þess aö æpa.
Kjarni málsins
1 Timanum 11/8 spyr Þóra
Þorleifsdóttir, og er aö tala um
„kjarna málsins”: „Hvaö er
svona furöulegt aö starfsmanni
sésagtupp störfum meö lögleg-
um uppsagnarfresti? Af hverju
gera úlfalda úr mýflugu? Menn
eru misjafnlega til starfa falln-
ir. Einum hentar þaö sem öör-
um hentar ekki”
Valborg Bentsdóttir, hér er
réttilega kjarni málsins:
„Starfsmanni er sagt upp störf-
um”, og nú heföiröu svo sem
eins og rikisstarfsmaöur átt aö
spyrja: Af hverju segir maöur
starfemanni sinum upp starfi?
Astæðurnar gætu veriö þess-
ar:
I Af þvi aö þeirri starfsemi
sem hann vann viö skal nú
hætt eöa veröur aö hætta. —■
Ætlum viö þaö? —
II Hin tiltekna starfsemi skal
nú (óhjákvæmilega) flutt i
annaö héraö og starfsmaöur
vill dcki eöa getur ekki flutt
meö. — Ætlum viö þaö? —
III Starfsmaöurinn hefur van-
rækt starf sitt vegna óreglu
eöa annars og i engu sinnt
aövörunum okkar. — Hefur
hann þaö? —
IV Starfsmaöur vinnur starf
sittallt annan veg (og verri)
en starfslýsing og „kröfur”
okkar um vinnuaöferöir
segja til um, og tekur engum
ábendingum um aö bæta ráö
sitt. — Hefur hann unniö svo,
og ef svo er: Höfum viö fært
fram kröftugar athuga-
semdir og mótmæli? —
V Starfsmaður vinnur
beinlinis gegn hagsmunum
stofnunarinnar og lætur sér
ekki segjast viö áminningar
og/eða aðvaranir. — Hefur
hann þaö, og ef svo er: Höf-
um viö látiö aö okkur kveöa
um mótmæli? —
Siðleysi og
ekki siðleysi
Nei, Valborg Bentsdóttir, þaö
er eidci siöleysi aö gagnrýna
brottrekstur starfsmanns sem
geröur er án raunverulegra
ástæöna. Sú gagnrýni getur
auövitaö veriö misjafnlega vel
fram borin, en siöleysi er hún
ekki.
Hitt er alvarlegt siöeysi aö
hlaupa til og reka starfsmann
sinn og segja eftir á aö honum
henti ekki öll störf: — hverjum
gerir þaö nú? — og hafa aldrei,
svo vitaö sé, gagnrýnt hvernig
störfin voru unnin. Og það siö-
leysi ert þú aö bauka viö aö
ver ja.
Nú dugir ekkert minna en aö
fulltrúi kvenfélagsins i stjórn
fulltrúaráösins gefi um þaö
greinargóöa skýrslu hvernig og
hvaöa mótmæli, athugasemdir
og gagnrýni hefur veriö fram
borin i stjórninni, af þessum
sama fulltrúa á undanförnum
árum, á störf skrifstofustjórans
Alvars Óskarssonar, og þaö
sakaði heldur ekki aö stjórn
kvenfélagsins tiundaöi sinar at-
hugasemdir vegna sama og
hvern þátt sú stjórn átti i
uppsögn Alvars.
Meöan ekkert kemur annaö
fram en vesældarlegt klóriö frá
11/8 sem áöur hefur veriö á
minnst, er þátttaka fulltrúa
kvenfélagsins i uppsögn Alvars
óskarssonar siöleysi.
Ofan i allt saman, Valborg
Bentsdóttir, leyfiröu þér aö
snúa „blinda auganu” aö ástæö-
um F.U.F.-piltanna og elta bull
og vind meö hávaöa til þess aö
drepa málinu á dreif, en þaö
dugir ekki.
Legið í flækingi
Fyrir nokkrum árum fengum
viö .framsóknarmenn nokkra
unglinga inn á okkur sem fyrst i
staö voru ekki svo óálitlegir, en
reyndust viö frekari skoöun
vera sem næst sjálfsgagnrýnis-
lausir hávaöamenn gerandi si
og æ kröfur fyrir sjálfa sig og
eigin frama innanflokks, án
þess endilega aö hafa of mikiö
fyrir þeim frama. Flokksstjórn-
in og flokksmenn fóru sér hægt
t.d. meö framboösmál, en
greiddu þó veg piltanna á marg-
an hátt innanflokks.
Einstaka rpenn höföu þó uppi
andmæli við hóp þennan, en þeir
kröfðust þá bara aö viökomandi
„dólgur” væri rekinn úr starfi.
— Menn muna liklega aöförina
að blaöafulltrúa vinstri stjórn-
arinnar sálugu. — Fóru þá ýms-
ir aö efast um gagnsemi fbkks-
ins aö hópnum sem fékk nafniö
„Mööruvallahreyfing” og
íabbaöi sig, til allrar hamingju,
einn dag út úr Framsóknar-
flokknum og hefur legiö i flokks-
pólitiskum flækingi siöan.
Framsóknarmönnum er þó
e.t.v. ekki óhollt aö minnast
þess að hve langt sem þessum
hóp tókst aö komast á vegum
flokksins má efalaust rekja til
þess pólitiskt klóka leiks þeirra
aö raöa „sinum mönnum” i
lykilstööur innan flokks.
Flokkurinn sýndist nú dálitiö
miöur sin eftir þessi umbrot og
liklega hálfbanginn, þvi aö næst
þegar ungir menn fóru meö
hávaöa þótti mest um vert aö
lo£a þeim nú bara að ráöa fram-
kvæmd prófkjörs, svo aö þeir
mættu sýna hvaö i þá væri
spunnið, a.m.k.hér íReykjavik.
Heföi nú heil hugsun komist
aöheföi flokkurinn getaö sparaö
sér seinni vitleysuna þvi aö
fyrirbrigöiö framagosar án
sýndra og prófaöra veröleika
hefur til fjölda ára veriö alþekkt
hjá Ihaldinu og veriö kallaö
stuttbuxnadeildin, en nú vildu
menn ekki heyra eöa sjá fengna
reynslu.
Ihaldinu hefur á stundum
gengiö bögsulega meö slna
deild. Þó hafa ýmsir þaöan
mannast vel, en aörir miöur aö
dómi heimamanna, og hafa þeir
siöari nú hlotiö samheitiö
„sperrileggir” meö sjónhring
sem takmarkastaf Elliöaám aö
noröan og austan en Kópavogs-
læk aö sunnan og vestan, en þó
sagöir hafa frétt um pláss sem
kallast Kefla vik og tengist flugi.
Borin von
Þegar ráöamenn F.U.F. i
Reykjavik sem hafa fengið
frjálsar hendur um framboö og
kosningast jórn og klúöraö
hvoru tveggja herfilega, berja
sér á brjóst kalla sig „vinstri”
menn, en skrifa helst I og sýnast
trúa á Dagblaöiö i staö þess aö
láta sér hægt og viðurkenna
vesöldina þá er full ástæöa til aö
muna „stuttbuxnanafniö”.
Þegar þeir svo ætla aö fela
vandann meöþvi aö reka starfs-
fólk flokksins og væntanlega
einnig aö tryggja sig f gegnum
ráöningu nýs, er von aö mönn-
um detti „Mööruvallamenn” i
hug.
Og miöað viö allra siöustu
viöbrögö fulltrúa kvenfélagsins
er borin von aö úr þeirri átt
komi skynsamlegt innlegg I
máliö sem þessum ungmennum
mætti veröa til frekari þroska.
Þiö stefnið beint á „sperrilegg-
ina” á þröngsýni og sérhags-
munapólitík.
Og Valborg, svona i tilefni
jafnréttis og samvinnu: Hvers
vegna sérstakt flokkspólitiskt
kvenfélag? — ég bara spyr.
Bragi Kristjánsson skrifar um heimsmeistaraeinvigið
Aðalvandamálið á Filippseyjum:
Hvernig býður maður jafntefli?
MóL —Eftir fimm tima baráttu
var þrettánda einvigisskák
Kortsnojs og Karpovs sett i biö,
og samkvæmt fréttaskeytum
Reuters, álitu sérfræðingar i
Baguio aö staða áskorandans
væri þaö miklu betri, aö hann
stæöi til vinnings. En eftir að
Kortsnoj haföi hugsaö sig um biö-
leikinn i 40 minútur, fóru hinir
sömu sérfræöingar aö halda aö
eitthvaö meira leyndist I stöðunni
en séð veröur i fyrstu.
Þar sem Kortsnoj notaöi 40
minútur til að hugsa sig um
þennan eina leik veröur hann aö
leika 15 leikjum á aöeins 20 min-
útum. Þaö getur reynst erfitt i
viökvæmri stööu. En vist er, aö
stór hópur skákmeistara i
Baguio-borg á Filippseyjum hef-
ur litiö sofiö i nótt.
Annars beindust augu frétta-
manna, sem fylgjast meö einvig-
inu, mest aö vandamáli, er hing-
að til hefur veriö óþekkt f sögu
heimsmeistaraeinvígjanna. Og
það er hvernig eigi aö bjóöa jafn-
tefli. Kortsnoj neitar meö öllu aö
eiga bein oröaskipti við heims-
meistarann og því er liklegast aö
kapparnir veröi að notast við
milligöngumann, ef þeir vilja
semja um jafntefli.
13. skákin
Hvitt: Kortsnoj
Svart: Karpov
Drottningarbragö.
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4.
d4 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 ...
önnur leiö er hér 6. Bxf6 Bxf6 7.
e4 dxe4 8. Rxe4 Rc6 9. Rxf6+
Dxf6 10. Dd2 0-0 11. Dc3 b6 12.
Bd3 Bb7 13. Be4 Hfd8 14. Hdl
með örlitið betri stöðu fyrir hvit.
6. ...0-0 7. Hcl b6
Karpov veiur Tartakover-af-
brigðið, sem fyrrverandi heims-
meistari, Boris Spasskij, hefur
miklar mætur á.
8. Bxf6 Bxf6 9. cxd5 exd5 10 g3
Nýr leikur i þessari stööu.
Venjulega er leikið hér 10. e3
Kortsnoj hefur i hyggju aö
þrýsta á svörtu peðin á d5 og c6.
10. ... c6
Karpov veröur aö leika þennan
leik fyrr en siðar.
11. Bg2 Bf5
1 framhaldi skákarinnar fellur
þessi biskup en þaö veldur
svarti miklum erfiðleikum.
Sennilega hefði veriö betra aö
leika 11. ... Bb7, þótt biskupinn
verði ekki virkur á þeim reit.
12. 0-0 Dd6 13. e3 Rd7 14. Rel
Hfe8 15. Rd3 g6 16. Rf4 Bg7 17. g4
Með þessum leik tryggir Korts-
noj sér Bf5 f skiptum fyrir Rf4,
en eftir það veröa svörtu peðin á
c6 og d5 mjög veik.
17. ... Be6 18. h3 Rf8
Betra viröist 18. ... Rf6 19. Rxe6
Hxe6 o.s.frv.
19. Rxe6 Rxe6 20. Dd3 Had8 21.
Hc2 Rc7 22. Ra4 ...
Kortsnoj kemur f veg fyrir c6-
c5.
22. ...Dd7 23. b3 ...
Svartur hótaði 23. ... c5
23. ... He6 24. Rc3 Hd6
Ekki gengur 24. ... c5 25. dxc5
bxc5 26. Hdl Hd6 27. Hcd4 d4 28.
Re4dxe3 (28. ... Hd5 29. Dc4) 29.
Dxe3 og hvitur vinnur peö.
Leikur Karpovs er mjög
óvirkur og hugsanlega hefði
hann betur leitað gagnfæra meö
R-e8-f6-e4.
25. b4 Bf8 26. Re2 b5!?
Hugmyndin með þessum leik er
þekkt úr svipuöum stööum i
uppskiptaafbrigöi Drottningar-
bragös. Svartur ætlar aö verja
veikleikann á c4 með R-a8-b6-
c4.
Svartur getur varla beöiö aö-
gerðarlaus eftir Hc3, Dc2 Hcl
o.s.frv.
27. Db3 Ra8
„Ég er á leiöinni...” til c4
28. a4 bxa4
Eftir 28. ... Rb6 29. axb5 cxb5 30.
Hc5 ásamt Rc3 eöa Rf4 verður
peðiö á d5 mjög veikt.
29. Dxa4 Rb6 30. Db3 Hb8 31.
Rf4 Rc4 32. Da4 ...
1 fréttaskeytum frá Baguio var
32. e4 talinn mjög sterkur leik-
ur, en 32. ... Hf6 viröist sterkt
svar, t.d. 33. Rd3 (33. exd5 Hxf4
34. dxc6 Dxd4) a5 o.s.frv.
32. ... f5
Hvaö annaö átti svartur til
bragös aö taka?
33. gxf5 Dxf5 34. Dxa7 Dc8
Hótar 35. ... Ha8
35. Ha2 Hxb4 36. Hcl Hb7 37.
Da4 Hf7 38. Hxc4 ...
Kortsnoj hikar ekki viö að fórna
skiptamun, enda fær hann strax
eitt peð i kaupbæti og svarta
peðiö á c6 viröist ekki eiga langa
lifdaga fyrir höndum.
38. ... dxc4 39. Dxc4 Df5 40.
Rd3 ...
Auðvitað ekki 40. Bxc6? Hxc6
41. Dxc6 Dbl+ o.s.frv.
40. ... Bg7
1 þessari stööu fór skákin i biö.
Kortsnoj stendur betur i biö-
stöðunni, en hann veröur að
rannsaka stööuna vel, þvi hann
notaði 40 minútur á biöleikinn.
Kortsnoj hefur þvi einungis 20
minútur til aö leika næstu 15
leiki.