Tíminn - 31.08.1978, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.08.1978, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 31. ágúst 1978 w *> * Uiilil'.i! Rændu pólskrí flugvél — 10 báðust hælis í V-Þýskalandi Reuter/V-Berlin — Pólskri flugvél var i gær rænt barn og voru þau vopnuð byssu en beittu ekki of- þegar hún var i áætlunarflugi milli Varsjár og A- beldi þar sem fyrirskipunum þeirra var hiýtt. Vélin Berlinar. Ræningjarnir voru maður og kona með lenti á bandariskum herflugvelli i V-Berlin. 1 flugvélinni voru 63 farþegar og átta manna áhöfn. Flug- ræningjarnir eru i haldi hjá bandariskum hernaöaryfirvöld- um en þeir eru austur-þýskir. Sjö aörir A-Þjóöverjar sem um borö i vélinni voru báöust landvistar af pólitiskum ástæöum. A-þýsk yfirvöld hafa beðiö um framsal þessara 10, en fengu þau svör aö málið væri i höndum þeirra þriggja þjóöa sem stjórna V-Berlin, það er Bandarikja- manna, Breta og Frakka, og ekki útkljáð enn. Aörir farþegar, utan einn sem var V-bjóðverji, fóru aftur til A-Berlin meö rútu. Þeir sem eftir uröu þurfa ekki aö sækja um landvistarleyfi i V- Þýskalandi aö sögn yfirvalda, þar sem þeir eru Þjóðverjar og fá leyfið þvi sjálfvirkt. Arið 1969 var pólskri flugvél rænt af tveimur A-Þjóðverjum og fengu þeir aðeins tveggja ára fangelsisdóm i V-Þýskalandi. V- þýskir embættismenn beita þeim rökum aö sá stóri munur sé á austantjaldsflugræningjum og öörum aö þeir reyni aöeins aö komast vestur yfir en hinir beiti lönd og riki ýmsum þvingunum. Nýttnjósnamál í V-Þýskalandi Reuter/Bonn, Nýtt njósnamál er nú i uppsiglingu i Vestur-Þýska- iandi. Upplýsingar sem benda til þess aö mjög háttsettur einbætt- ismaöur stundi njósnir fyrir So- vétrikin i V-Þýskalandi hafa borist CIA og er þegar hafin leit aö réttum manni. V-þýska blaðið Bild segir i gær að samkvæmt upplýsingum CIA starfaöi þessi njósnari i rööum æöstu manna v-þýska stjórnkerf- isins og hann væri ekkert siöur — hjá Iranskeisara Reuter/Teheran — Hua Kuo-feng átti i gær niutiu minútna viðræður við írans- keisara en ekkert hefur verið látið uppi um hvað þeim fór á milli. Er þetta i fyrsta sinn að forustumaður i kinverska kommúnistaflokknum fer i opinbera heim- sókn til lands sem ekki býr við kommúniskt stjórnar- far. I dag er gert ráö fyrir að Hua og keisarinn ræöist aftur viö, en síöanmun Hua meöal annars skoöa stórfenglegt eöalsteinasafn irönsku krún- unnar. 1 ræðu I gær fjallaði Hua sem oftar um útþenslustefnu Sovétrikjanna og fordæmdi hana. Keisarinn minntist aftur ekki á málið i sinni ræöu. Kina og tran eru bæöi landamæra- riki viö Sovétrikin, og er þögn keisarans um þetta atriöi túlk- uö svo aö hann vilji þvo hendur sinar af öllum ásökunum i þessa átt. mikilvægur en Gunter Guillaume á sinum tima. Þegar upp komst um njósnir Guillaume á sinum tima varð Brandt að segja af sér kanslaraembætti eins og kunnugt er enda um náinn samstars- manna að ræða. Þær upplýsingar sem CIA hefur frá rúmenskum flóttamanni þykja benda nokkuð ákveðið á mann aö nafni Joachim Broudre Groeger, en hann er aðstoðar- maður ráðherrans Egon Bahr. Hefur Groeger heitið rannsóknar- lögreglu fullri samvinnu i málinu til aö hreinsa af allan grun. Brandt þurfti aö vfkja njósnamáls. vegnaI Taiwan og ekki Kína — á Olympíuleikunum í Moskvu 1980 REUTER Prag — Sovétrikin munu fallast á þátttöku Taiwan í ólympiuleikunum I Moskvu áriö 1980 en þykir miöur ef Kina tekur ekki þátt, er haft eftir opinberum tals- manni iþróttamála i Prag I gær. Vladimir Koval formaöur skipulagsnefndar leikanna lét einnig hafa eftir sér á blaöa- mannafundi nýlega aö Sovét- rikin mundu I einu og öllu fara eftir reglum aiþjóölegu Ólympfunefndarinnar og þvi gæti Taiwan tekiö þátt. Ilonum þættihins vegar miöur ef þaö yröi til þess aö Kinverj- ar tækju ekki þátt i leikunum, en svo yröi þó aö vera e,f ekki yröi komist aö samkomulagi fyrir 1980. Kinverjar hafa lengi gert þetta atriði að skilyrði fyrir þátttöku i iþróttum, að Taiwan yrði ekki með. Alþjóöa Ólympiunefndin hefur ekki viljað útiloka Taiwan frá keppni en það hafa ýmis önnur iþróttasamtök gert i þvi skyni að fá Kinverja til leiks. Páfi biður um - kveðst ókunnur stjórnkerfi Rómversk-kaþólsku kirkjunnar Reuter/Vatikanið — Hinn nýi páfi, Jóhannes Páll fyrsti, kallaði i gær eftir hjálp leiðandi kardinála, kvaðst enn ekki hafa áttað sig á kjöri sinu og ekki þekkja nógu vel stjórnkerfið i hinni rómversk- kaþólsku kirkju. Páfinn bað um þessa hjálp á kardi- nálasamkomu og vék frá gamalli hefð i þvi að hann talaði i fyrstu persónu i stað þess að þéra sjálfan sig. 1 sjónvarpsræöu sagði páfinn ennfremur: „Hafið samúð meö þessum nýja páfa sem sannar- lega átti þess ekki von aö veröa kjörinn til svo mikils embættis.” Páfi hefur þegar endurskipaö alla þá kardinála sem i embætt- um voru. I ræðu sinni sagöi hann m.a. við þá : „Við verðum allir aö vinna saman. Þið verið að hjálpa mér og við verðum að sýna verð- öldinni fram á að viö stöndum sameinaðir, jafnvel þó við þurf- um einhverju að fórna til þess”. Páfi þéraöi ekki sjálfan sig. Japanir vinna að 7% hagvaxtaraukningu Stuðlar að auknum viðskiptajöfnuði Reuter/Tokyo — Japanir hyggjast nú verja auka- lega 13,2 billjónum doliara til almennra fram- kvæmda á þessu ári til að auka hagvöxt í landinu um sjö %. Aukínn hagvöxtur leiðir aftur til meiri eftirspurnar á innf luttum vörum, og þessar aðgerð- ir Japana stefna þvi að auknum viðskiptajöfnuði. Það er einmitt viðskiptajöfnuður mjög hagstæður Japönum sem hvað helst orsakar gengisfall dollarans gagnvart yeninu. Japanir hafa undanfarið verið undir mjög þungum alþjóðleg- um þrýstingi um að gera einhverjar ráðstafanir til auk- ins innflutnings til viðskipta- jöfnuöar. A efnahagsráðstefnu sjö þjóða i Bonn i siðasta mán- uði lofaði japanski forsætisráð- herrann, Takeo Fukuda, að i Japan yrðu gerðar ráðstafanir til að auka hagvöxt um sjö % i þessu skyni. Takeo Fukuda og þrir japanskir efnahagsmálaráð- herrar komust á fundi i gær að þeirri niðurstöðu að besta leiðin til að ná þessum aukna hagvexti og viðskiptajöfnuði væri að verja á þessu ári aukalega 13,2 billjónum dollara i ýmislegar framkvæmdir innanlands. Verði þetta samþykkt af stjórn- inni á laugardag kemur það fyrir þingið i formi fjárauka- laga að likindum seint i næsta mánuði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.