Tíminn - 31.08.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 31.08.1978, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 31. ágúst 1978 á víðavangi „Ekki svona hratt, Vilmundur” Makalaus ummæli eru höfð eftir Vilmundi Gylfasynj i Morgunblaðinu í gær. Hann gefur viðræðunum um stjórnarmyndun eftirfarandi dóm: „Ég er í þeirri persónulega einkennilegu stöðu, aðcg er nú að upplifa leiðinlegasta og subbulegasta sumar sem ég hef lifað og það finnst mér I sannleika sagt hart eftir að hafa verið einn af arkitektum mesta kosningasigurs I sögu lýöveldisins.” Bragö er að þegar einn af „arkitektum” þess undarlega stjórnmálaástands sem nú rlkir kemst að svo rosalegri niðurstöðu sem þessi orð lýsa. Þaö kynni að vera að einhverjir fleiri gætu komist að þeirri niðurstöðu að fram- koma Alþýðuflokksmanna nú i sumar — og reyndar lengur — hafi verið næsta „subbuleg”, einkum ef menn hafa i huga hagsmunamál þjóöarinnar allrar sem þessir menn hafa verið að hnoðast með slöan kosningum lauk. Og Vilmundur Gylfason heldur áfram kokhraustur: „Ég vil ekki bera ábyrgð á langri stjórnmálalegri kreppu I landinu en ég hef ekki svo vitt kok að ég gleypi hvað sem er. Ég verð aö sjá stjórnarsamn- inginn i heild sinni áður en ég geri upp hug minn til þessa stjórnarsamstarfs og ef ég sé ekki að þar sé stefnt að þeirri kerfisbreytingu i efnahags- málum, sem ég tel nauðsyn- lega til að komast fyrir ræt- urverðbólgumeinsins þá er tómt mál að tala um minn stuðning”. Alveg verður það að teljast furöulegt að slik ummæli skuli vera höfð eftir þingmanni og ,,arkitekt”,.eftir aö hann sjálf- ur og flokkur hans hafa fengið öll tækifæri til þess að láta hendur standa fram úr ermum i rúma tvo mánuði. Dæmir forystuna Það verður að segjast eins Gunnar Vilmundur og er að orð Vilmundar verða ekki skilin öðru visi en sem harður áfellisdómur um for- ystu Alþýðuflokks ins og1 Alþýðubandalagsins. Það er að sjálfsögðu ekki i verka- hring Framsóknarmanna að skera úr um það hvað er hvor- um þessara „tvilembinga” að kenna fremur en hinum. En hitt leynir sér ekki, bæði í þessum orðum Vilmundar og reyndar einnig i ýmsum öðr- um ummælum flokksbræöra hans nú siðustu dagana, að það er kominn upp klofningur i þingflokki Alþýðuf lokksins. Virðist ljóst að verulegur hluti flokksins hefur fullan hug á þvi að kljúfa stjórnarmynd- unarviðræðurnar nú á loka- stigi þeirra. Ef ekki fæst annað til munu þessir menn reyna að nota ráðherrastólana til ágreinings. Alþýðuflokkurinn er likast- ur lofthræddum manni. Hann er alltaf að bcra sig aö þvi að klíf a upp i turn og ætlar þar að taka að sér ábyrgðarstarf, en i fyrstu þrepunum gefst hann jafnan upp. Hann sundlar og honum sortnar fyrir augum, og siðan álappast hann vesa- ldarlega niður aftur. Sá sem þessi orö ritar vonar aö þau reynist ófyrirsynju, og að Alþýðuflokkurinn reki nú af sér slyðruorðið i þessari viku. Reyndar verður að viður- kenna það aö óþolinmæöi Vilmundar og fleiri þing- manna á sér stoð i þvi að Al- þýðubandalagið viröist ekki geta hugsað sér að taka á vanda þjóðarinnar til fram- búðar, heldur er svo að skilja að flokksmenn þess hafni þvi meö öllu að eiga þátt I aðgerö- um nema þær séu hreinar skammtíma- og bráðabirgða- aögerðir með algera ovissu um framhaldið. Mikil raun fyrir stuöningsmennina A öörum stað i Morgunblað- inu I dag svarar Gunnar Thoroddsen stóryrðum þeim sem Vilmundur hafði um hann i löngu og undarlegu við- tali i Vikunni fyrir nokkru, en þar ræddi Vilmundur hrak- lega um fyrri afskipti Gunnars af málefnum Reykjavikur- bogar og fjármálaráðuneytis- ins. Lokaorðin i svari Gunnars Thoroddsen eru þessi, og verður að segja að þar er margt sagt í fáum orðum: „Ef til vill munu einhverjir telja það Vilmundi til vork- unnar, að þegar þessir at- burðir gerðust, var hann barn við móður kné.Að visu eru það litlar málsbætur fyrir þessar skröksögur, að hann hafi ekki verið kominn til vits og ára. Nú er hann kominn til ára og nokkurs vits. Nú er þvi ætlast til ábyrgðarkenndar. En hinn óvandaði m álflutningur Vilmundar hlýtur að vera mikil raun fyrir þá fylgjendur hans, sem i öndverðu litu á hann sem hreinsunar- og sið- bótarmann. Einhver þeirra ætti að hvisla I eyra hans þeim orðum, sem eitt sinn voru sögð: Ljúgðu ekki svona hratt, ég hef ekki við að trúa.” JS mmmmmmmmmmmmmmmm—mmmJI Tilkynning frá Valhúsaskóla Valhúsaskóli, Seltjarnarnesi mun hefja starfsemi sina sem hér greinir: 1. sept. 1978 föstudagur kl. 9, kennara- fundur, 4. og 5. sept. mánudag og þriðjudag, undirbúningsstörf, 6 sept. miðvikudagur kl. 14 skólasetning i Miðgarði. Skólastjóri Hestauppboð Uppboð á 15-20 reiðhestum og hlaupurum verður haldið við tamningastöðina á Blönduósi, laugardaginn 2. sept. kl. 14. Hæfileikavottorð mun fylgja hverjum hesti auk sýningar áður en sala hefst. Sölufélag A-Húnvetninga. NÝKOMNIR VARAHLUTIR í: f Cortina árg. '68\ Ope/ Cadatt '68\ Ramb/er Classic '651 Chevrolet Nova - '67 Land Rover - '65l BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 —Sími 1-13-97 TONUST VIÐ HÆFII TILVALIN TONLISTIBILINN Nú bjóðast snceldur (cassettur) á bensínstöðvum Esso i Reykjavík með fjölbreytilegri tónlist við flestra hcefi, s.s. klassískri-, rokk-, disco- og léttri tónlist. EKKI SPILLIR VERÐIÐ Þcer kosta frá kr. 1.895.- stykkið. ÁNÆGJfA FYRIR ALLA Ökumenn og farþegar geta því unað glaðir við sitt með tónlist við hcefi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.