Tíminn - 31.08.1978, Page 13
Fimmtudagur 31. ágúst 1978
13
Erlendur skógfræðingur lét
nýlega það álit sitt i ljós, að
skógrækt á Islandi væri nii kom-
in af tilraunastiginu, og nú væri
sjálfsagt að fara að ala upp
nytjaskóg i stórum stil alls staö-
ar þar sem skilyrði eru góð til
skógræktar. Ég skora hér með á
hinn nýskipaða skógræktar-
stjóra að gangast nú þegar fyrir
undirbúningi að stórfelldri út-
plöntun nytjaskógar, þegar á
næsta vori. Israelsmenn
gróðursettu 4 milljónir trjá-
plantna, eitt i minningu hvers
tsraelsmanns sem nasistar lif-
létu i siðasta striði. Við þurfum
að gróðursetja minnst 1/2
milljón barrtrjáa i nokkur ár I
bestu skógræktarsvæðin, þvi þá
væri nokkuð öruggt að næsta
kynslóð þyrfti ekki að eyða dýr-
mætum gjaldeyri i timburkaup
erlendis eins og nú, þvi miður.
Það er athyglisvert, aö nokk-
ur hluti þjóðarinnar hefir I
gegnum niðurlægingaraldirnar
tekið eins konar skógleysispest.
Þessi pest situr nú blýföst i
mörgum forustumönnum og
ýmsum afturhaldsöfuguggum
þjóðarinnar. T.d. skrifaði ein
kona fyrir nokkru i Velvakanda
áskorun til þá nýskipaðs skóg-
ræktarstjóra að hætta nú þegar
allri barrtrjáaræktun.
Þetta minnir á þegar einn
ágætur kvenprófessor við Há-
skóla Islands lýsti þvi fyrir al-
þjóð i sjónvarpi, að hennar heit-
asta nýársósk væri að banna
með lögum ræktun barrtrjáa á
Islandi.
Ég vona bara aö núverandi
skógræktarstjóri láti slikar hjá-
róma raddir sem vind um eyru
þjóta, þvi hann veit vel af feng-
inni reynslu að barrskógarækt-
un er hér viða auðveld. Fyrr-
verandi skógræktarstjóri, Há-
kon Bjarnason, hefir lyft hinu
ótrúlegasta grettistaki i skóg-
ræktarmálum, þrátt fyrir hinar
svæsnustu árásir skammsýnna
manna.
Nýlega var samtal i dagblaði
við erlendan tslandsvin, sem
var hér siðast á ferö um 1930.
Hann var mjög undrandi yfir
Síöari grein
hinum hávaxna skógi, sem nú
gnæfir við himin viðs vegar um
borgina. Ég vil benda á öskju-
hlíðina, þar sem ekkert var
nema stórgrýtisurð, en er nú að
verða eitt fegursta skógsvæði
borgarinnar. Það má með sanni
segja um hið myrka afturhald
gegn bæði skógræktarmálum og
fleiri framfaramálum, t.d.
virkjunum, að „sjáandi sjá þeir
eigi og heyrandi heyra þeir eigi
né skilja”. Að lokum vil ég
skora á skógræktarstjóra og
yfirvöld að hrinda nú þegar af
stað barrskógaáætlun sem
tryggir þjóðinni gnægð trjávið-
ar eftir 60-70 ár.
Jónas Hallgrimsson kvað:
„Veit þá engi að eyjan
hvita
á sér enn vor ef fólkiö
þorir
hlekki hrista, Guði treysta,
hlýða réttu, góðs að blða.
Fagur er dalur og fyllist
skógi
og frjálsir menn þegar
aldir renna.
Skáldið hnigur og margir
I moldu
með honum búa en þessu
trúiö.”
Ingjaldur Tómasson.
Námskeið
Zukofsky
/
lýkur
í dag...
— tónleikar
i kvöld
Síðan 21. ágúst hefur staðiö yfir
námskeið i kammertónlist i
Tónlistarskólanum I Reykjavik
undir stjórn bandariska fiðluleik-
arans Pauls Zukofskys. Um þrjá-
tiu manns hafa tekið þátt i nám-
skeiðinu, bæöi strengjaleikarar
og blásarar. Af viðfangsefnum
má nefna Konsert i D eftir Stra-
vinsky, Octandre eftir Varese,
Blikksmiðir
Óskum eftir að ráða blikksmiði eða menn
vana blikksmiði.
Upplýsingar hjá verkstjóra, ekki i sima.
Nýja blikksmiðjan h.f.
Ármúla 30.
Valhúsaskóli
Seltjarnarnesi
Kennara i handmenntun (saumum)
vantar að Valhúsaskóla, Seltjarnarnesi.
Upplýsingar veittar i simum 2-77-44 og 2-
77-43.
Skólastjóri.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Lausarstöður
1. Staða hjúkrunarforstjóra
2. Staða kennslustjóra við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri eru lausar til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 30.
september n.k. en stöðurnar verða veittar
frá 1. nóv. n.k.
Laun skv. launasamningi Hjúkrunar-
félags íslands við Akureyrarbæ. Umsókn-
ir berist til stjórnar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Alcureyri og greini aldur menntun og
fyrri störf.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu framkvæmdastjóra i sima 96-22100.
Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
Staða forstöðumanns
við leikskólann Arnarborg er laus til
umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningi
borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur
er til 10. sept. Umsóknir sendist til
skrifstofu Dagvistunar, Fornhaga 8 en
þar eru veittar nánari upplýsingar.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Dagvistun barna, Fornhaga 8, simi 2 72 77
Þessi mynd var ttkin i fyrrakvöld, og er það Zukofsky sem heldur um
sprotann.
Quiet City eftir Copland, Unan-
swered Question eftir Ives og
kvartett op. 7 eftir Schönberg.
t kvöld kl. 20.30 verða siðan
haldnir tónleikar f Menntaskólan-
um við Hamrahliö, þar sem leikin
verða einhver af verkunum, sem
hafa verið æfð siðastliðna daga,
meðal annars munu þau Rut
Ingólfsdóttir, Helga Hauksdóttir,
Sesselja Halldórsdóttir, Auður
Ingvadóttir og Gunnar Egilson
flytja kvartett op. 7 eftir Schön-
berg.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
t
Jón D. Guðmundsson
Austurbrún 6
andaðist 30. ágúst i Heilsuverndarstööinni.
Maria Tómasdóttir
Hörður Arinbjarnar
Ragnheiður Harcldsdóttir
Utför eiginkonu minnar ogmóöur
Sigriður Sigfúsdóttur
Kirkjuvegi 18, Keflavfk.
Fjer2fram frá Keflavikurkirkju föstudaginn 1. september
Þorgrrmur Guðbrandsson.
Sigfús G. Þorgrimsson og vandamenn.