Tíminn - 14.09.1978, Síða 2
2
Fimmtudagur 14. september 1978
Stjámarbylting
i Níkaragúa á
næstu grösum
Reuter/Managua —Stjórnarherinn i Níkara-
gúa átti i vök að verjast á að minnsta kosti fjór-
um svæðum i gær og uppreisnarmennirnir
gegn Somoza forseta voru frekar að sækja i sig
veðrið en hitt.
i Chinandega eru uppreisnar-
menn sag&ir halda meira en
helmingi borgarinnar og
þrengja stö&ugt meir aö
stjórnarhernum. Flestir vegir
til Chinandega, Masaya, Leon
og Esteli eru lokaöir og eru þar
háöir haröir og mannskæöir
bardagar. Bardagar sem staöiö
hafa I fimm daga og þar á ofan
þriggja vikna verkföll kaup-
manna hafa leitt til matar- og
eldsneytisskorts i mörgum
borgum.
Að sögn Rauða kross manna i
Nikaragúa hafa uppreisnar-
menn betur i Masaya en mæta
enn mótspyrnu stjórnarhersins i
borgunum Leon og Esteli
Að sögn stjórnarinnar i
Nikaragúa hafa skæruliöar öðru
sinni gert árás frá landamærun-
um við Costa Rica. Engar nán-
ari upplýsingar vildu stjórnvöld
gefa en kváöust bregöast viö
árásinni samkvæmt alþjóöleg-
um lögum.
I höfuðborginni, Managúa, er
farið að bera mjög á eldsneytis-
skorti og skorti á ýmsum mat-
vörum. Aö sögn Rauöa kross
manna eru uppreisnarmennirn-
ir aö ná fastari tökum allt i
kringum borgina og þurfa þeir
við störf sin aö fara um mörg
könnunarhliö á vegum
Eyöilagöur jeppi stjórnar-
hermanna i Leon
uppreisnarmannanna. Þá virö-
ast uppreisnarmennirnir mjög
viða hafa almenningsálitið með
sér og er nú óttast að borgara-
styrjöldin geti ekki endað ööru
visi en meö stjórnarbyltingu úr
þessu vegna þess aö Somoza
gefur engan kost á að láta af
völdum.
Arangur í
Camp David?
Oswald var stoltur af
glæsileika Kennedy
— sagöi ekkja hans við yfirheyrslur rannsóknardómstólsins
Reuter/Washington — Ekkja Lee
Harvey Oswald, þess manns sem
talinn er hafa myrt John F.
Kennedy I Dallas 1963, kom I gær
fyrir rannsóknardómstóiinn sem
skipaöur hefur veriö tii aö rann-
saka moröiö aö nýju. Ekkja Os-
walds er sovésk aö uppruna og
DflLE CARNEGIE
Kynningarfundur
verður haldinn 14. september — fimmtudags-
kvöld — kl. 20:30 að Siðumúla 35 uppi.
Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö:
Oölast meiri trúá sjálfan þig og hæfileika þina.
Koma hugmyndum þinum örugglega til skila.
3^-iSigrastá ræöuskjálfta.
Þjálfa minniþitt — skerpa athyglina.
)^- Auka cldmóöinn — meiri afköst.
)f Sigrast á áhyggjum og kviöa.
Jf Eignast vini.ný áhugamál og fleiri ánægjustundir i lifinu.
Hjón hafa náö góöum árangri saman, viö hin ýmsu vandamál og
unga fólkið stendur sig betur I skóla og sjóndeildarhringurinn
stækkar
Þú getur sjálfur dæmtum þaö, hvernig námskeiöiö getur hjálp-
að þér.
Þú ert boöinn ásamt vinum og kunningjum, aö lfta viö hjá okkur
án skuldbindinga eöa kostnaöar. Þú munt heyra þátttakendur
segja frá þvi, hversvegna þeir tóku þátt i námskeiöinu og hver
var árangurinn.
Þetta veröur fræöandi og skemmtilegt kvöld er gæti komið þér
aö gagni.
FJARFESTING I MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐI ÆVILANGT.
Innritun og upplýsingar I sima *|
Einkaleyfi á Islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphsson.
SÍMI 82411.
sagöi viö yfirheyrslurnar aö allt
sem hún heföi á þessum tima vit-
að um John F. Kennedy heföi hún
haft frá manni sinum og hann hafi
aldrei sagt annaö en gott um for-
setann og raunar veriö montin
yfir þvi hversu ungan og glæsileg-
an forseta Bandarikin ættu.
Oswald giftist konu sinni, Mar-
inu, er hann dvaldist i Sovétrikj-
unum. Þau fluttust saman til
Bandarikjanna árið 1962 vegna
þess að Oswald likaði ekki lofts-
lagið i Sovétrikjunum, sagöi
ekkja hans. Hann haföi einnig
orðið fyrir vonbrigðum vegna
þess að hann fékk ekki inngöngu i
háskóla þar i landi. Vonbrigði
hans áttu enn eftir að aukast er
hann, kominn aftur til Bandarikj-
anna, fékk hvergi atvinnu, en,
sagöi Marina, um forsetann sem
hann er talinn hafa myrt viðhafði
hann aldrei nokkurt styggöar-
yrði.
Reuter/Maryland — Áreiðanlegar heimildir i Camp
David hermdu i gær að viðræðurnar hefðu þegar
leitt til mikilvægs árangurs og hefðu brotið á bak
aftur þá stifni sem farin var að einkenna friðarum-
leitanirnar áður en til Camp David fundarins kom.
Þó útkoman sé enn óljós, sögðu
þessar heimildir, er það ljóst að
viðræður þeirra Carters, Begin og
Sadat eru alls ekki árangurslaus-
ar. Akveöinn ágreiningur rikti
enn en stöðugt nálgaðist þó sam-
komulag sögðu þessar sömu
heimildir.
Þá lét blaðafulltrúi Hvita húss-
ins, Jody Powell, hafa eftir sér i
gær, að fundurinn væri aö komast
á lokastig og af hálfu rikisleiðtog-
anna þriggja væri ákaft leitað eft-
ir samkomulagsleiðum. Hann
bætti þóviðað fundurinn væri enn
á viðkvæmu stigi og hvorki allt of
mikil bjartsýni eða svartsýni
væri viðeigandi.
utan úr heimi
Kortsnoj:
Karpov skortir þrek til
að gera út um einvígið
Reuter/Baguio — Kortsnoj vann i gær mikils-
verðan sigur yfir andstæðingi sinum, Anatoly
Karpov, er hann vann 21. skákina með all-
glæsilegum tilþrifum á sama tima og Karpov
gerði nokkur slæm mistök.
Kortsnoj sagði eftir skák- klukkustundir en að henni lok-
ína: „Þetta sannar að ég er
ekki búinn að vera. Ég hef á
tilfinningunni að Karpov sé að
þreytast og hann skorti þrek
til að gera út um einvigið”.
Karpov er þó kominn með
fjóra vinninga gegn tveimur
vinningum Kortsnoj.
Skákin I gær stóð i tvær
inni var Kortsnoj enn i skapi
til að tefla og dreif aðstoðar-
menn sina með sér i ibúð.sina
uppi i fjöllum til að leggja á
ráðin um 22. skákina sem telfa
á I dag. Sérfræðingarnir i Ba-
guio telja þó liklegt að Karpov
noti rétt sinn til að fresta nú i
dag.
Dollarinn féll vegna
hræðslu við olíukreppu
Reuter/London — Eftir nokkurra daga stöðugleika á gjaldeyrismörkuðum
féll dollarinn i verði i gærdag að þvi er talið er vegna hræðslu við olíukreppu
sem hafa mundi gifurleg áhrif á efnahag i Bandaríkjunum.
Talið er að verðfall dollarans i
gær og hækkun á gulli eigi rætur
að rekja til ummæla utanrikis-
ráðherra Saudi-Arabiu þess efnis
að Arabar yröu aö endurskoða af-
stöðu sina i heild ef Camp David
fundurinn reyndist árangurslaus.
Ekki vildi ráðherrann viðurkenna
að gripið yrði til oliusölubanns i
þvi tilviku en þó óttast margir
þann möguleika.
Haft er eftir einum gjaldeyris-
kaupmannanna i gær að „engar
fréttir séu varla góðar fréttir”
hvað varðar Camp David^fundinn
og þögnin sem um hann rfki verði
aðeins til að auka á spennuna og
óvissuna.