Tíminn - 14.09.1978, Qupperneq 5
Fimmtudagur 14. september 1978
5
Réttað
í nýrri
Stafnsrétt
ESE — t dag veröur réttaö i
fyrsta skipti i nýrri rétt sem
byggö hefur veriö viö Stafnsrétt.
Að sögn Jóns Tryggvasonar,
bónda Astiinum, þá hefur réttar-
byggingin gengiö mjög vel aö
undanförnu og var lokiö viB verk-
iB fyrir u.þ.b. 10 dögum. Jón
sagBi, aB mikill kraftur hefBi
hlaupiB i verkiB seinni part sum-
ars eftirfremur rólega byrjun, og
á lokakaflanum unnu mjög marg-
ir við verkiB, þannig aB ljúka
tókst réttarbyggingunni i tæka
tiB.
Hin nýja rétt er steypt aB hluta,
en að öBru leyti er notast viB
timbur og virnet. Langir sima-
staurar voru reknir niBur i jörB-
ina til þess aö sem best hald feng-
ist þar sem ekki var steinsteypa
og sagði Jón aB staurarnir heföu
verið reknir niöur fyrir frostiinu
Stafnsrétt er nú sporöskjulöguö,
en óskir komu fram um misstóra
dilka, og þótti þvi máli best borg-
iömeö þvi aöhafa réttina þannig i
laginu.
Eins og áöur segir þá veröur
réttaö iStafnsrétt n.k. fimmtudag
og eru leitarmenn nú í göngum.
Ef aB likum lætur þá má búast viö
miklu fjölmenni i réttunum og er
það vel viö hæfi viB vlgsluathöfn-
ina.
Mosfellssveitín
er að kólna
Timamynd GE
SJ — Þessa blómlegu
hvitkálsakra gat aö lita aö
Reykjum I Mosfellssveit i gær
þegar Timamenn voru þar á
ferö. Jón Guömundsson odd-
viti á Reykjum sagöi okkur, aö
tíöarfar heföi verið mjög gott I
júli og ágúst og þvi mætti
þakka þessa blómlegu
uppskeru, og var gott aö úr
rættist, þvi aö I mai og júni
spratt illa vegna kulda.
Jón bóndi á Reykjum vakti
athygli okkar á breytingu,
sem oröiö hefur á landi i Mos-
fellssveitinni siöan djúpboran-
ir vegna hitaveitufram-
kvæmda hófust þar upp úr
1970. Einmitt á þessum staö
fraus áöur aldrei jörö og Jóni
þótti þaö búhnykkur á sinum
fyrstu búskaparárúm um 1947,
a& hann gat selt kartöflur i
verzlanir i júlimánuöi. En þær
ræktaöi hann einmitt á þeim
staö, sem hvitkálsakurinn er
nú. Jörö frýs nú á þessum
staö rétt eins og annars staöar
innlendar
fréttir
Slldarvinnslunámskeið á Höfn:
Sfldin þarf að fá
sömu meðferð í
gæða-
mati og
annar
fiskur
— eins og kveðið er á
um f reglugerð, en
er þvl miður ekki
fyigt
Kás — „Ekki veitir af því aö nýta
hráefniö vel nd þegar viö höfum
aftur hafiö vei&ar á sild eftir þetta
langa hlé. Það er mikill vilji I
þessum nemendahópi aö svo
veröi”, sagöi Jóhannes Björg-
vinsson, einn af 13 nemendum
sem nú taka þátt I sildarvinnslu-
námskeiöi á vegum Framleiöslu-
eftirUts sjávarafuröa á Höfn I
Hornafir&i. En þetta námskeiö er
annað I rööinni sem haldiö er á
Höfn, og þaö þri&ja I rööinni sem
haldiö er siöan sild fór aö veiðast
aftur viölandiö. Þátttakendur eru
af svæ&inu frá Stykkishólmi til
Reyöarfjarðar.
Námskeiöiö hófst þann 5. sept-
ember og lýkur þann 15. A þvi er
bæöi verkleg ogbóklegkennsla og
veitir þaö réttindi til aB verka
sild.
,,Viö sem erum á þessu nám-
skeiöi”, sagöi Jóhannes, „ætlum
aö beita okkur fyrir þvi aö fariö
veröi eftir þeim reglugeröum sem
sildina varBa, en nú er almennt
ekki fylgt. ViB vonumst til aö geta
komið öllum i skilning um, aö þaö
veröi aö fara meö sild eins og
annan fisk, þvi hún þarf aB fá
sömu meöferö i gæBamati og ann-
ar fiskur. Um þetta er kveöiö á i
reglugerB sem ekki er fylgt”,
sagBi Jóhannes aö lokum.
og viröist djúpboranirnar hafa
dregið hita úr jaröveginum.
Sama sagði Jón oddviti aö átt
heföi sér stað á nokkrum stöö-
um i Mosfellsdalnum. Bæridur
telja sig eiga rétt á bótum frá
Reykjavikurborg vegna þess-
ara breytinga. Bændur á fjór-
um jörðum i Reykjadal seldu
á sinum tima borginni jarö-
hitaréttinn i löndum sinum
gegn peningagreiöslu og af-
notum af ákveönu magni af
heitu vatni, Reykir fá þannig
þrjá sekúndulitra. Telja þeir
sig nú eiga rétt á að fá aukiö
vatnsmagn vegna þeirra
breytinga, sem orðiö hafa.
Þá gat Jón þess, að land
heföi þornaö meö vaxandi bor-
unum eftir heitu vatni, en
bændur væru ekki að gera
veöur út af því.
Fleiri breytingar hafa oröiö
á Mosfellssveitinni. Fjallið
fyrir ofan hvitkálsakurinn er
nú orðið mun grænna en þaö
var fyrir fáum árum, og þakk-
ar Jón Guðmundsson á Reykj-
um það hæfilegri beit. Aöur
hafi oft verið ágangur af aö-
komufé á þessum slóöum, en
það er nú breytt þegar færri
stunda fjárbúskap.
Grautur al
sterkum
leiðurum!
„Til gaman mætti geta þess,
aö Rannsóknarstofnun iönaöar-
ins hefur búiö til smásýni af
plötum úr hökkuöum pólitlskum
leiöurum dagbla&anna, bætt I
þann graul svolitlu af perlusteini
og sementi og pressaö úr þessu
plötur, sem eru mjög sterkar,
eins og við var búist.” Þessi orö,
sem eru aö finna I nýútkomnum
Sveitarstjórnarmálum, viöhaföi
Höröur Jónsson hjá I&nþróunar-
stofnun tslands á ráöstefnu um
sveitarstjórnir og iönþróun I
fyrra.
Byko
býöur þilplötur
íþúsundum!
Þilplötuúrvalið hjá okkur hefur aldrei verið annað eins, og þá
er mikið sagt.
Þú kemur aðeins með málin og færð þá þilplöturnar afgreiddar,
beint úr upphituðu húsnæðinu, i þeim stærðum sem þú óskar.
Úrval og þjónusta sem fagmenn meta mikils.
Þvi er þér alveg óhætt.
Mm
BYKO
BYGGINGAVÖRUVERSLUN KÓPAVOGS SF. SÍMI41000