Tíminn - 14.09.1978, Page 6
6
Fimmtudagur 14. september 1978
r
Wímwrn
tHgefandi Framsóknarflokkurinn
Aframhaldandi hagvöxtur í þróunarlöndunum:
En matvælafram
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón SigurOsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumúla 15. Slmi
86300.
Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi.
Blaöaprent h.f.
V______________________________________________________________J
Hinir hljóðlátu
Allt árið ómar þetta þjóðfélag af hvers kyns
kröfugerð. Og jafnan eru það sterk samtök sem
njóta mikilla áhrifa er mest láta til sin taka.
Sannleikurinn er sá að oftast er verið að slást um
það að dragast ekki aftur úr einhverjum öðrum,
halda sinum hlut i samanburðinum hvað sem það
kostar, enda þótt engum haldi við verulegum
vandræðum i framfærslu sinni,hvað þá beinum
daglegum örðugleikum i einkalifi.
En i þessu þjóðfélagi eru einnig til hópar, sumir
fámennir — aðrir undrafjölmennir — sem ekki
láta svo hátt endranær eða gera slikar kröfur til
náunga sinna sem hinir sihrópandi kröfu-
gerðarhópar. Og sumir þessara hljóðlátu sam-
félagshópa búa við svo erfiða og bága aðstöðu i
lifinu, að enginn venjulegur heilbrigður maður
getur gert sér það i hugarlund, — og hætt við að
sumum brygði ef þeir gætu það, þó ekki væri um
alvöru að ræða.
í öllu okkar daglega amstri og allri okkar
valda- og hagsmunatogstreitu höfum við gleymt
þessum hópum. Við höfum ekki einbeint athygli
okkar að lifsaðstöðu og högum blindra, fatlaðra,
lamaðra öryrkja, langlegusjúklinga, þroska-
heftra, geðveilla eða annarra meðbræðra og
meðsystra okkar sem þannig lifa með okkur i
þessu þjóðfélagi — i skugganum af þeirri vel-
megun sem við hin njótum af hlakkandi fögnuði
og leyfum okkur i blindni að litilsvirða og telja
sjálfsagða.
Vissulega hefur ákaflega margt verið gert og
bætt i þessum efnum á umliðnum árum. En það
er svo litið þegar miðað er við þörfina annars
vegar og lifskjör okkar hinna hins vegaryað það er
sannarlega skömm að framkomu okkar og
hugsunarleysi.
Nú;þegar samtök þessa fólks hafa vakið athygli
á högum þess, eigum við hin að staldra við og
hlusta. Nú á ekki að þurfa að verða bið á röskleg-
um athöfnum af okkar hálfu til þess að verða við
réttmætum óskum þeirra. Okkur á ekki að muna
um að rétta þeim veika styrka hönd, ekki vegna
þess að við vitum að slikt verður launað þótt siðar
verði, heldur vegna þess að hér er spurt um okkar
manndóm, okkar siðferði i raunverulegri merk-
ingu þess orðs.
Hér er loks komið að alvörumáli i þjóðmálaum-
ræðum þessa árs. Hér er loks verið að fjalla um
þjóðfélagsmál, sem snertir sjálfan grunn menn-
ingar okkar og siðar. Um stund að minnsta kosti
er það skylda okkar hinna að vikja hlutfallstölum
efnahagsmálanna og allra þessara kjaramála til
hliðar, þvi að nú er hér drepið á dyr hvers manns
sem ekki þekkir af eigin reynd þá erfiðleika sem
eru úti fyrir daglegur kostur.
Og það er ekki beðið um nein forréttindi. Það er
ekki beðið um að fá neitt frá neinum sem ekki
verður endurgoldið. Samtök hinna hljóðlátu biðja
þess eins að fá tækifæri til að láta gott af sér leiða
i þjóðlifinu,fá að starfa og leggja af mörkum full-
gildan skerf.
JS
leiðslan er ennþá
aðaláhyggjuefnið
I ARSSKVRSLU Alþjóöa-
bankans, sem opinberlega er
gefin út I dag, kemur m.a.
fram, aö hagvöxtur I þró-
unarríkjunum er meiri en i
þróuöu rikjunum, en svo
hefur einnig verið siöustu ár.
En I skýrslunni er hins vegar
lögö áhersla á, aö ekki hefur
enn tekist aö uppræta hinar
raunverulegu orsakir
ónægrar matvælafram-
leiðslu I þróunarrikjunum.
Þá kemur fram, aö geysi-
mikil fátækt er enn einkenn-
andi þáttur I flestum aöildar-
rikjum Alþjóðabankans.
Alþjóöabankinn, sem er
ein af sérstofnunum Samein-
uöu þjóðanna, heitir á ensku
International Bank for
Reconstruction and
Development, en er oftast
aöeins kallaður World Bank.
Markmiö bankans er aö
greiða fyrir þróun I aðildar-
rfkjunum meö þvi aö afla
fjármagns til framkvæmda,
stuöla aö alþjóðaviðskiptum
og annaö svipaö. tsland
hefur átt aðild aö bankanum
frá upphafi og hefur þegiö
lán frá honum.
ÞAÐ VORU MARGIR
þættir, sem ollu þessum hag-
vexti á siöasta ári. Meöal
þeirra má nefna, aö dollara-
viröi útflutnings þessara
rikja jókst um 14% og kom
þannig fram veröhækkun á
mörgum vörum þróunarrlkj-
anna. Vöxturinn siöan um
miöbik yfirstandandi ára-
tugs varö einnig mögulegur
vegna aukins aöhalds, sem
þróunarrikin uröu aö viöhafa
vegna erfiðleikanna i efna-
hagslifi heimsins.
Hagvöxturinn i þróunar-
rikjunum hefur gert þessum
rikjum kleift að minnka
heildarskuldir sinar við önn-
ur riki úr 37.300 milljónum
dollara áriö 1975 niöur i
22.000 milljónir dollara i
fyrra.-Þar að auki var vöru-
skiptajöfnuður rikjanna
óhagstæður um 12.700
milljónir dollara áriö 1977,
sem er aðeins helmingur af
meöaltalinu fyrir árin 1974
og 1975.
VÖXTUR ÚTFLUTNINGS
þróunarrikjanna er aö mati
Alþjóöabankans ekkert
stundarfyrirbrigöi. I skýrsl-
unni segir, aö útflutningur
frá þróunarrikjunum muni
halda áfram aö aukast, þ.e.
ef ekki koma til nýjar og
auknar hömlur frá hendi
annarra rikja. Hins vegar er
bent á i ársskýrslunni, aö
forsvarsmenn i þróunarrikj-
unum eru aö veröa æ
áhyggjufyllri yfir mætti
þeirra, sem ráöa efnahags-
lifi I iðnveldunum, til aö
koma á innflutningshöftum.
Þaö er þvi skoöun þeirra,
sem semja ársskýrslu
Alþjóöabankans, aö mikil-
vægasta verkefniö sé aö lyfta
öllum hömlum á alþjóðaviö-
skipti, hvort sem þaö er að
setja nýjar hömlur á eöa
heröa hinar eldri.
ÞRÓUNARRtKIN KAUPA
i dag um 28% af heildarút-
flutningi iönveldanna á full-
unnum iönaðarvörum. En
þau gætu hjálpaö sér sjálf, ef
felld væru niður mörg atriöi,
sem eru órættmæt gagnvart
útflutningi frá þróunarrikj-
Arsskýrsla
Alþjóða
bankans
kemur út
í dag,
14. sept.
unum. Meöal þeirra má
nefna, aö nýjar iðngreinar
eru ekki nægilega verndaðar
og svo aö gjaldmiölar þess-
ara rikja eru gjarnan of hátt
skráðir.
1 ársskýrslu Alþjóðabank-
ans kemur fram sú vissa, að
ef haftastefnusinnar veröa
ekki ofan á i baráttunni, og ef
útflutningsstefnan fær enn
aö ráða i þróunarrikjunum,
þá gæti hin árlega verð-
mætaaukning á útflutningi
frá þróunarrikjunum oröiö
um 15%.
ÞRATT FYRIR þessa
framþróun hjá fátækustu
rikjum veraldar, þá gerir
Alþjóöabankinn sér grein
fyrir, aö ekki er allt komið i
lag, ef viðskipti aukast, út-
flutningsverömæti aukast og
vöruskiptajöfnuöur veröur
ekki eins óhagstæöur og
áöur.
Eitt helsta vandamálið,
sem lausn verður á aö finn-
ast, er aö sjá til þess aö mat-
vælaframleiðslan aukist
hraöar en ibúunum fjölgar.
Staðreyndin er nefnilega, að
matvælaframleiðsla á ibúa
er i dag minni en fyrir tveim
árum á öllum þróunarsvæö-
um veraldar nema þá i Asiu.
Og jafnvel þar, er ekki
gott að segja til um hvort sú
aukning heldur áfram eöa
hvort hún kemur til vegna
góðrar uppskeru undanfarin
ár.
Sérstaklega er ástandið
erfitti' Afriku, en þaö er staö-
reynd að matvælafram-
leiðsla á hvern ibúa i Afriku
hefur minnkað um 10% frá
meðaltalinu fyrir árin
1961—1965.
Eftir nokkrar vangaveltur
um lausn þessa vandamáls,
hafa höfundar ársskýrslunn-
ar komist að þeirri niöur-
stööu, að innflutningur mat-
væla bjóði ekki upp á neina
varanlega lausn. Hin auknu
matvæli veröa aö vera fram-
leidd i þróunarrikjunum
sjálfum, segir i ársskýrsl-
unni.
,,ÞVt MIÐUR VIRÐIST
allt benda til þess, aö i aö-
ildarrikjum Alþjóðabankans
riki enn geysileg fjölda-
fátækt i sveitunum. Þessi
þróun heldur áfram vegna
fólksfjölgunar, takmarkaðra
auðlinda og ófullkominna
samgangna”, segir i skýrsl-
unni.
I skýrslunni er fagnaö
breyttum viðhorfum gagn-
vart fátæklingum i' sveitum
þróunarrikjanna og þeim aö-
gerðum sem hefur veriö
gripið til varðandi lausn á
vandamálinu. Hins vegar er
bent á aö áhugi manna á
þessu viöfangsefni er frekar
nýtilkominn og þvi erfitt aö
meta árangurinn.
Að lokum er lögö áhersla á
i ársskýrslunni, aö hinir
tveirólikulhópar —iðnveldin
og þróunarrfkin- taki
höndum saman, þvi ööru visi
verði ekki tryggöur áfram sá
bati, sem hefur aö undan-
förnu átt sér staö.
MÓL