Tíminn - 14.09.1978, Blaðsíða 12
12
Fimmtudagur 14. september 1978
í dag
Fimmtudagur 14. september 1978
Lögregla og slökkviliö
Reykjavik: Lögreglán
simi 11166, slökk viliöið og
sjúkrabifreið, simi 11100
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkviliðið og sjúkra-
biíreið simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreið simi 51100.
Bilanatilkynningar
Vatnsveitubilanir sími 86577.'
Símabilanir simi 05.
Hilanavakf borgarstofnana.
Simi: 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8;
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.,
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. 1
Hafnarfirði i sima 51336.
llitaveitubilanir: kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónpstu borgarstarfs-l
manna 27311.
Heilsugæzla
Ferðalög
Föstudagur 15. sept. kl. 20.00
1. Landmannalaugar — Jökul-
gil. (Fyrsta ferðin þangað á
þessu hausti. Gist i húsi)
2. Ferð út i bláinn. Farið um
svæði sem feröamenn eiga
sjaldan leiðir um. Forvitnileg
ferð. Gist i húsi. Fararstjóri:
Böðvar Pétursson o.fl.
Laugardagur 16. sept. kl. 08.00
Þórsmerkurferö. Gist i húsi.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni. — Ferðafélag Is-
lands.
Föstud. 15/9 kl. 20
Snæfellsnes. Gist á Lýsuhóli i
góðu húsi, sundlaug ölkelda,
skoðunar- og gönguferðir m.a.
i Búðahraun, Völundarhús,
Tröllakirkju hringferð um
Fróðárheiði, fararstj. Þorleif-
ur Guðmundsson og Jón I.
Bjarnason. Uppl. og farseðlar
á skrifst. Lækjargötu 6, s.
14606.
Útivist.
Tilkynningar, ]
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla apóteka i Reykjavik
vikuna 8. til 14. september er i
lyfjabúð Breiðhoits og
apóteki Austurbæjar.
Það apótek sem fyrr er nefnt
annast eitt vörslu á sunnu-
dögum, helgidögum og
almennum fridögum.
’ Slysavarðstofan: Simi 81200,'
eítir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, simi 51100.
Ilafnarfjörður — Garðabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inni, simi 51100.
Lækuar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst i heimilislækni, simi
11510.
lleimsóknartimar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til.
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
Laugardag og sunnudag kl. 15
til 16. Barnadeild alla daga frá
kl. 15 til 17.
Kópavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opið kl. 9-12 og
sunnudaga er iokað.
Fundartimar AA. Fundartim-’
ar AA deildanna i Reykjavik
eru sem hér segir: Tjarnar-
götu 3c, mánudaga, þriðju-
daga, miövikudaga, fimmtu-
,daga og föstudaga kl. 9e.h. öll
kvöld. Safnaðarheimilinu
Langholtskirkju föstudaga kl. >
9e.h. og laugardaga kl. 2 e.h.
Al-Anon fjölskyldur
Svarað er i sima 19282 á
mánudögun^ kl. 15-16 og á
fimmtudögum kl. 17-18.
Fundir eru haldnir i Safn-
aðarheimili Grensáskirkju á
þriðjudögum, byrjendafundir
kl. 20og almennir fundir kl. 21,
i AA húsinu Tjarnargötu 3C á
miðvikudögum, byrjenda-
fundir kl. 20 og almennir fund-
ir kl. 21 og i Safnaðarheimili
Langholtskirkju á iaugardög-
um kl. 14.
M lR-salurinn,
Laugavegi 178.
Kvikmyndasýning i kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30. Sýndar
verða þrjár heimildarkvik-
myndir frá úkrainu. öllum
heimill aðgangur. — MIR.
Minningarkort
Minningarkort Sjúkrahús-'
sjóðs Höfðakaupstaðar,
Skagaströnd, fást á eftirtöld-
um stöðum: Blindravinafélagi
Islands, Ingólfsstræti 16 simi
12165. Sigriði ólafsdóttur, s.
10915. Reykjavik. Birnu
Sverrisdóttur, s. 8433 Grinda-
vik. Guðlaugi Óskarssyni,
skipstjóra, Túngötu 16,
Grindavik, simi 8140. önnu
Aspar, Elisabet Arnadóttur,
Sofi'iu Lárusdóttur, Skaga-
strönd.
Minningarkort Barna-
spitalasjóðs Hringsins fást á
eftirtöldum stöðum: Bóka-
verzl. Snæbjarnar, Hafnar-
stræti 4 og 9. Bókabúð Glæsi-
bæjar, Bókabúð Olivers
Steins, Hafnarf. Verzl. Geysir,
Aðalstr. Þorsteinsbúð,
Snorrabraut. Versl. Jóhannes-
ar Norðfjörð,. Laugaveg og
Hverfisgötu. O. Ellingsen,
Grandagarði. Lyfjabúð Breið-
holts. Háaieitis Apotek.Vestur-
bæjar Apótek. Apótek Kópa-
vogs. Landspitalanum hjá
forstöðukonu. Geðdeild
Barnaspitalans við Dalbraut.^
Minningarkort Sjálfsbjargar
fást á eftirtöldum stööum:
Reykjavik. Reykjavikur
Apóteki Austurstræti 16,
Garðs Apoteki, Sogavegi 108.
Vesturbæ jar Apoteki,
Melhaga 20-22. Kjötborg H/f.
Búðargeröi 10. Bókaversl. í
Grimsbæ við Bústaðaveg.
BókabUöin Alfheimum 6.
Skrifstofa Sjálfsbiargar,
Hátúni 12. Hafnarfiröi. Boka-
búö Olivers Steins, Strandgötu
31 og Valtýr Guðmundssyni,
öldugötu 9. Kópavogur. Póst-
húsið. Mosfellssveit. Bókav.
Snorra Þverholti.
'Minningarkort sjúkrasjóðs'
Iðnaðarmannafélagsins Sel-
.fossi fást á eftirtöldum stöfii-
um: I Reykjavik, verzlunin
Perlon, Dunhaga 18, Bilasölu
Guðmundar, Bergþórugötu 3.
A Selfossi, Kaupfélagi Arnes-,
inga, Kaupfélaginu Höfn og á
simstöðinni i Hveragerði..
Biómaskála Páls Michelsen..
Hrunamannahr., simstöðinni
Galtafelli. A Rangárvöllum,
Kaupfélaginu Þór, Hellu.
Minningarkort Barna'spitala-
sjóðs liringsins fásf' á'V^ftir-
töldum stöðuni:
Bókaverzlun ^n'æbjarnar^
Hafnarstræti 4 og 9. Bókabúð
Glæsibæjar, Bókabúð ölivers
Steins, Hafnarfir.öi. Verzl.
Geysi, Aðalstræti. Þorsteins-
búð, Snorrabraut. Verzl. Jóh.
Norðfjörð hf., Laugavegi og
Hverfisgötu. Verzl. Ó. Elling-
sen, Grandagarði. Lyfjabúð
Breiöholts, Arnarbakka 6.
‘Háaleitisapóteki. Garðs-
apóteki. Vesturbæjarapóteki.
Landspitalanum hjá forstöðu-1
konu. Geðdeild Barnaspitala
Hringsins v/Dalbraut.
Apóteki Kópavogs v/Hamra-
.borg 11.
i Minningarkort byggingar-'-
sjóðs Breiöholtskirkju fást
hjá: Einari Sigurðssyni
Gilsárstekk 1, simi 74130 og
Grétari Hannessyni Skriöu-|
stekk 3, sfmi 74381.
Minningarkort Sambands
dýraverndunarfélaga Islands
fást á eftirtöldum stöðum :
1 Reykjavik: Loftið, Skóla-
vörðustig 4, Versl. Bella,
Laugavegi 99, Bókav. Ingi-
bjargar Einarsdóttur,
Kleppsv. 150, Flóamarkaði
Sambands dýraverndunar-
félaga Islands Laufásvegi 1,
kjallara, Dýraspitalanum,
Viðidal.
1 Kópavogi: Bókabúðin
VEDA, Hamraborg 5
1 Hafnarfirði: Bókabúð
Olivers Steins, Strandgötu 31.
AAkureyri: Bókabúð Jónasar
Jóhannssonar, Hafnarstræti
107.
1 Vestmannaeyjum: Bóka-
búðin Heiðarvegi 9
krossgáta dagsins
2855.
Lárétt:
1) Gosefni 6) Lukka 8) Tal 10)
Þæg 12) Hasar 13) Drykkur
14) Aria 16) Venju 17) Þvotta-
efni 19) Mylsna.
Lóðrétt:
2) Vond 3) Stafur 4) Sár 5)
Fjárhriðir 7) Kæti 9) Svif 11)
Matur 15) Mánuður 16) Sunna
18) 1050.
Ráðning á gátu No. 2854.
Lárétt:
1) Aldin 6) Jól 8) Ská 10) Löt
12) Ká 13) öö 14) Ata»16) Lök
17) Kró 19) Vitur.
Lóðrétt:
2) Ljá 3) Dó 4) 111 5) Æskan 7)
Stöku 9) Kát 11) ööö 15) Aki
16) Lóu 18) RT.
Hall Caine:
I í ÞRIÐJA 06 FJÓRÐA LIÐ I
Bjarni Jónsson frá Vogi þýddi
,,En”, tók ég aftur fram i, ,,hún heimtar aftur að hann lúti vilja dá-
valds.”
„1 fyrsta sinn, jú, þvi verður ekki neitaö”, sagði La Mothe.
,,Að eins i fyrsta sinn?”
,,Nú ja, fyrstu tvö, þrjú skiftin.”
„Það er að segja,” sagöi ég, ,,að sá sem hefir einu sinni tvisvar sinn-
um, þrisvar sinnum lotiö viija dávalds missir smám saman vald á sin-
um eigin vilja?”
,,Já, það verður víst aö heita svo.”
,,Ef tilraunirnar eru gerðar nógu oft, þá veröur niðurstaöan siðast sú
aö vilji dáleidds lýtur fullkomlcga vilja dávalds er ekki svo?”
,,Um það eru skiftar skoðanir sem stendur hjá sérfróðum mönnum í
þessari grein,” sagði La Mothe. „Það er deiluefni milli stefnunnar I
Salpetriéreog Nancy hvort dáleiðsla láti viljafrelsi óskert eða hvort sá
verði að siðustu að verkfæri sem oft er dáleiddur.”
„Og hver er yöar skoöun?”
„Min skoöun er að vilji dáieidds sveigi sig eftir vilja dávalds, þegar
til lengdar lætur og hann hefir oft veriö dáleiddur.”
„Það er með öðrum orðum,” svaraöi ég „áhrif dávalds verða góð ef
hann er góður maöur.”
„Það er rétt,” sagði La Mothe.
úg reyndi ekki að koma með það gagnstæða, að áhrif hans yrði að
veröa ill, ef hann væri illur maður. Þvi að ég hafði ráðið við mig hvað
gera skyldi. Ef dávaldur hefir slikt vald yfir sjúklingi sem La Mothe
sagöi, þá lægi s'vo óttaleg hætta fyrir Lucy I meðferö hans að enginn
ágóði gæti jafnast þar við. Meðaliö gæti vel oröið miklu verra en sjúk-
dómurinn. öðrumegin var drykkjufýsnin og hræöileg bölvun hennar,
hinumegin siðferöishættan sem I þvi lá að maður fengi slikt vald yfir
kvennmanni sem hann ætti aldrei að hafa og tæki allan hug hennar á
sitt vald til tjóns fyrir andlegan þroska hennar.
Mér þótti nóg komið af dáleiðslu og Mesmersdái. Raunar gat verið að
Lucy læknaðist með þvi, en ég þoldi ekki að hugsa um, hvað slik
lækning gæti haft i för með sér. Eitthvað var i þessu sem mér var óþol-
andi. Ég borgaði La Mothe fyrirhöfn sina og fór hann siðan frá mér
með háðsbrosi, ypti öxium og hélt til Lundúna. Ég varð að spyrja sjálf-
an mig, þegar hann var farinn hverju ég heföi nú til vegar snúið. Tak-
mark mitt var svo fjarri sem það hafði nokkru sinnl veriö. Hér hafði
hepnast að seinka einu kasti, eða hjálpað Lucy alveg framhjá þvi. En
bráðum mundi koma annaö og ef til vildi þeim mun ákafara.
IX
Ég var hálfan mánuð enn i Cumberlandi. Voru það sorgbliöu dagar.
Lucy varð hressari og hressari með hverjum degi sem leiö en hún var
ætið jafnfá. Kviöasvipur á andlitinu og augun fyltust stundum meö tár-
um, þegar sem hæst stóðu samræöurnar og ég reyndi sem mest aö vera
glaður og ánægður. Ég sá að skozki presturinn kom þar oft og að þau
Lucy voru mikiö saman. Ég gerði enga tilraun til aö vera viðstaddur
þessar samræður, af þvi að ég hugði þær vera um góðgjörða fyrirtæki
sem þau ynni að I sameiningu. En einn dag sá ég hann ganga burt i reiði
og ég skildi að annaö hefði búið undir honum nærkomnara.Lucy var
vandræðaleg á svipinn i þetta sinn en hún sagði mér siöar hvað það var.
Það kom mér jafnmikið við sem henni. Hún horfði niður i saumana sina
sem hún hélt i skjálfandi hendinni og mælti:
„Róbert þú mált ekki dæma mig of hart.” ■
„Hvað er um?” spurði ég.
„Reyndu að fyrirgefa mér alla þá sorg og mæðu, sem ég hefi valdiö
þér.”
Nú sá ég hvað koma mundi.
„Segðu mér — hvað er að Lucy?”
„Ég hefi einsett mér að ganga i klaustur.”
„Guð hjálpi þér Lucy! ” æpti ég. „Þetta getur ekki verið þér alvara.”
„Ég hefi hugsað það mál nákvæmlega” sagði hún, „og ég er komin
aö þeirri niöurstööu aö fyrir mig sé ekki annað fært. Það er min eina
von mitt eina athvarf. Þar verð ég að vera ef ég á að sigrast á bölvun
ættar minnar. Og ef ég sigrast ekki á henni er þá nokkur staður þar sem
ég get betur falið mig? Ég finn líka aö þetta er skylda min af öðrum
ástæðum. Ég þekki söguna um afa minn og hvernig hann grundvallaöi
auð okkar. Fyrir þá synd hans verður aö bæta og vel vitum viö hvaö
skrifaö er um „þriðja og fjórða lið”. Mér þykir það að eins sárt þin
vegna, Róbert. Vonir okkar voru svo fagrar — en —en — ”
Hún var rjóð af geðshræringu augun voru full af tárum og rödd henn-
ar var hálfkæfö i gráti.
„Maður hlýtur að halda eitt-
livað skrýtið uin fólk sem hefur
kjúkling sem gæludýr”
DENNI
DÆMALAUSI
í