Tíminn - 24.09.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 24.09.1978, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 24. september 1978 Eftir fimm daga blasti viö hús- næðisleysi, öll hótel full, þökk sé tiskukóngunum. T.f.v. Helga Heimisdóttir meinatæknir á Landspitalanum og greinarhöf- undur. og er á vinstra blaðinu, Charlie Hebdo, svo að skilja, að menn verði bara að pissa I mótorinn hér eftir eigi þeir ekki að fara á hausinn. Okuskirteini fást ekki afhent, nema með mun hærri þóknun en áður og alls konar skattar dynja á fólki. Biða menn nú eftir, að ástin verði skattlögð lika! — samkvæmt Charlie Hebdo, og fara sér hljóölega i ibúðum sinum, ef vera skyldi að Parísarbúar eru hættir að bera það við að brosa. Þetta var nú helsta niðurstaðan, sem ég komst að, þegar ég heimsótti þá í byrjun september. Lífið er erfitt, — ekki síst í París, þar sem stéttaskiptingin eykst stöðugt. Mjög ranglátt skattakerfi í Frakklandi spilar þarna inn í líka, en það kerfi heldur stjórnin dauðahaldi í, þrátt fyrir fögur kosningaloforð og til- lögur um umbætur. Útvarpsmaöurinn Fabrice Rouleau, sem ég hitti yfir eggjaköku og bjór i Latinu- hverfinu staðtesti grunsemdir minar. Hann sagöi að deyfðin yfir Parisarbúum hefði ekki lengi veriö slik. Menn var farið að langa i nýja stjórnarherra, en sú von rann út i sandinn með rifrildi Mitterands og Marchais á siðasta augnabliki fyrir kosn- ingar. Og nú er landiö stjórnar- andstöðulaust, þvi að ekkert heyrist I fyrrverandi leiðtogum hennar. Robert Fabreformaður róttækra vinstri manna er sá eini, sem leggur leiö sina i Ely- sée og þá yfirleitt til þess að sendast eitthvað fyrir Giscard d’Estaing. Gyöingar á göngu. Gáfulegir, ekki satt? ^ nágranninn væri frá skatt- heimtunni. Tvær milljónir á atvinnuleysisskrá Fylgi verkalýðshreyfinganna stærstu GFDT og CGT, sem ná- tengdar eru sósialistum og kommúnistum, hefur hrunið samfara fylgi flokkanna. Þess vegna hefur þessum hreyfing- um i Paris gengið mjög illa að ná fólki saman til aðgerða gegn efnahagsráðstöfunum stjórnar- innar. Jafnvel yfirvofandi at- vinnuleysi tveggja milljón manna i desember nk. hefur ekki enn verkað sem olia á éld- inn. Menn biða og sjá til. Barre hefur sagt, að Frakkar komist út úr þessari lægð árið tvö þús- und, — hann lofar engu fyrr, og talað er um að kippa konum út af vinnumarkaðinum alla vega að bannaþeim aðgang að heils- dagsvinnu! Ekki lyftir þetta brúninni á Frökkum. Skattar og ást Enginn blómstrar nema ef vera skyldi forsetinn. Hann hefur komið sér upp þeirri að- stöðu að fólki finnst hann hátt yfir flokkadrætti hafinn. Hægri hönd hans, Barre forsætisráö- herra, fær allar skammirnar. En hann er áræðinn stjórnmála- maður og hefur gripið til fjár- hagsaðgerða, sem enginn á und- an honum hefði nokkurn tima dirfst aö láta sig dreyma um. Franskbrauðið, sem er Frökkum jafn nauðsynlegt, og spaghettið ítölum, hefur stórhækkað og verö- lagning á þvi hefur verið gefin frjáls. Bensin er einnig selt á háu verði, enda þóttBarre kaupi það inn á nokkuð hagstæðu verði Þaðsést á svipnum ! Þau eru aö fara yfir á rauöu ljósi á Saint-Germain breiögötunni i Latinuhverfinu. Þaö er aö veröa meödýrustu hverfum. Jafnvelá Champs-Élysée getur veriö ódýrara að versla. | „Naflinn getur gert mikið fyrir yður” Myndirnar tók franskur ljósmyndari Christian Errath Fanny Ingvarsdóttír skrifar um ferð tíl Parísar:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.