Tíminn - 24.09.1978, Page 29
Sunnudagur 24. september 1978
29
Kvikmyndir Jens Kr. Guðmundsson
Óperan Quadrophenia
kvikmynduð
— Jimmy Pursey í aðalhlutverki
Laga- og texta-
smiðurinn Pete Towns-
hend, sem jafnframt er
leiðtogi rokkhljóm-
sveitarinnar Who,
hefur i mörgu að snúast
þessa dagana. Fyrir
nokkrum dögum var
frumsýnd i Bretlandi
ný kvikmynd, ,,The
Kids Are Alright”, með
honum og hljómsveit-
inni Who i tilefni 15 ára
afmælis hljómsveitar-
innar.
Um svipaö leyti sendu hann
og Who frá sér nýja hljómplötu
samnefnda kvikmyndinni.
Daginn eftir frumsýningu
myndarinnar lést trommuleik-
ari Who, Keith Moon. Lát hans
er mikið áfall fyrir hljómsveit-
ina. Auk þess að vera einn besti
rokktrommuleikari i heimi var
Keith Moon mjög skemmtilegur
og líflegur persónuleiki.
Það kom þvi fáum á óvart
þegar Pete Townshend lýsti þvi
yfir, að ekki yrði fenginn nýr
trommuleikari i hljómsveitinni,
heldur ætlar hljómsveitin að
notast við „session”menn i hans
stað, eftir þvi sem henta þykir
hverju sinni.
A árinu 1975 gerði kvik-
myndaíeikstjórinn sérstæði Ken
Russell kvikmynd, sem byggö
er á plötu, sem Who sendi frá á
árinu 1969 og bar heitið
„Tommy”.
- Nú stendur til að leikstjórinn
Frank Rhoddam kvikmyndi
verk, sem byggt verður á plötu
Pete Townshend.
Jimmy Purrsey (t.h.) á erfitt
með gang eftir að hafa lent i
áflogum, — einu sinni enn.
sem Pete Townshend og Who
sendu frá sér árið 1973 og bar
nafnið „Quadro-phenia”.
Verk þetta fjallar um svo-
kallaða ,,mod”-kynslóö. Henni
tilheyrðu uppreisnargjarnir
unglingar, sem komu frá yfir-
stéttarheimilum og klæddust
skrautlegum fötum. Auk þess
neyttu þeir eiturlyfja, töluöu
sérstakt götumál og svölluðu
meiraen góði fólki þykir sæma.
Ekki er ennþá alveg ákveðið
hverjir muni fara með aðalhlut-
verkin i myndinni. Þó koma
meðlimir Who til með að leika
eitthvað.
Með aðalhlutverkiö, hlutverk
Jimmys, eru sterkar likur á að
söngvari hljómsveitarinnar
Sham 69, Jimmy Pursey fari
með.
Pete Townshend sá Sham 69 i
sjónvarpinu fyrir skömmu og
leist þannig á Pursey aö hann
væri eins og sniðinn fyrir hlut-
verk nafna sins.
Jimmy Pursey er einn vin-
sælasti blaðamaturinn i Bret-
landi þessa dagana. Hann er
einn af þessum svokölluðu góð-
kunningjum lögreglunnar.
Fyrir það hefur t.d. hljómsveit
hans, Sham 69, verið meinaö að
leika i Bandarikjunum.
Aðspurður hefur Pursey lýst
yfir áhuga sinum að spreyta
sig á hlutverki nafna sins i
„Quadro-phenia”. Hann hefur
verið mjög hrifinn af plötunni
alveg frá þvi hún kom út og
kann hana utan að. Auk þess
þykir hann eiga ýmislegt sam-
eiginlegt með aðalhetju verks-
ins. Þannig að hann ætti að eiga
tiltölulega auðvelt með aö setja
sig inn i hlutverkið.
„Tommy” fékk mjög góða
dóma á sínum tima og er
reyndar enn talið vera eitt af
mestuverkum poppheimsins og
jafnframt kvikmyndin eitt af
mestu verkum kvikmynda-
heimsins.
„Quadro-phenia” er af flest-
um talið mun betra verk en
„Tommy” Þaö er þvi ástæða til
að biða spenntur eftir útkom-
unni.
—énz
(Á næstunni:
Convoy
í Regn-
boganum
Einhvern tímann á
næstunni tekur Regnbog-
inn til sýningar kvik-
myndina „Convoy".
Leikstjóri er Sam Peck-
inpah. Hann hefur frægur
orðið fyrir myndirnar
„Guns In The After-
noon", „Major Dundee",
,,The Wild Bunch",
„ Bring Me The Head Of
Alfredo Garcia" o.fl.
Ekki verður sagt, meö góðri
samvisku, að „Convoy” sé ein
af bestu myndum Sam Peckin-
pahs. En hún stendur samt fyrir
sinu.
I sumar hafa kvikmyndahús
borgarinnar verið afkastamikil
við að bjóða viðskiptavinum
sinum upp á að sjá svokallaöar
hraðakstursmyndir. Þær
samanstanda af hröðum og
mjög glannalegum akstri.
„Convoy” er ein af þessum
Kvikmyndir
Kris Krisrofferson
venjulegu og dæmigerðu hrað-
akstursmyndum.
Aðal „töffari” myndarinnar
er Krist Kristofferson. Hann
ekur um á 18 hjóla vörubifreið.
Ernest Brognine leikur vonda,
klaufalega lögreglustjórann. AIi
MacGraw leikur blaðaljós-
myndara og unnustu Kris
Kristoffersonar.
Aðrir leikarar i „Convoy” eru
m.a. Burt Young, sem leikur
svo skemmtilega m.a. i
„Rocky”, „Kolbrjálaðir Kór-
félagar” og „Imbakassanum”
og Franklyn Ajaye.
Þó „Convoy” sé ekki ein af
bestu myndum Sam Peckinpah
þá er hún i hópi betri hrað-
akstursmynda og nýtur þvi
nokkurra vinsælda erlendis sem
slik. Enda skarta fæstar hrað-
akstursmyndir stórstjörnum á
borð við Kris Kristofferson, Ali
MacGraw og Burt Young.
—énz
Jens Kr. Guömundsson
ísland — Búlgaría
Fyrirhuguð er stofnun samtaka til efling-
ar auknum kynnum tslands og Búlgariu.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku i samtök-
um þessum sendi nafn, heimilisfang og
símanúmer i pósthólf 107 Reykjavík.
Undirbúningsnefndin.
Rannsóknarstyrkir frá Alexander von
Humboldt-stofnuninni.
Þýska sendiráðið i Reykjavik hefur tilkynnt að Alexander
von Humboldt-stofnunin bjóði fram styrki handa erlend-
um visindamönnum til rannsóknastarfa við háskóla og
aðrar visindastofnanir I Sambandslýðveldinu Þýskalandi.
Umsækjendur skulu hafa lokiö doktorsprófi I fræðigrein
sinni og eigi vera eldri en 40 ára. — Sérstök umsóknar-
eyðublöö fást i menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6,
Reykjavik en umsóknir skulu sendar til Alexander von
Humboldt-Stiftung Schillerstrasse 12, D-5300 Bonn 2,— Þá
veitir þýska sendiráðið (Túngötu 18, Reykjavik) jafn-
framt nánari upplýsingar um styrki þessa.
Menntamálaráðuneytið
20. september 1978
w 1 Kópavogi
Lítið og skemmtilegt einbýlishús
Höfum i einkasölu fjögurra herb. einbýlis- hús með stækkunarmöguleikum ásamt
sextiu ferm. bilgeymslu. Falleg lóð við
Vallargerði Kópavogi •
Sölumenn: Örkin /sf
Páll Helgason Fasteignasala
Eyþór Karlsson Hamraborg 7.
Lögmaður 200
Sigurður Helgason Kópavogi. Simi 44904.
Heimilislæknir
mun opna stofu að Laugavegi 43, frá 1.
okt. 1978.
Simatimi kl. 9-10, i sima 4-37-10.
Stofutimikl. 12-15, simar 2-23-50 og 2-11-86.
Ingunn H. Sturlaugsdóttir.
læknir.
Nauðungaruppboð
Samkvæmt ákvörðun skiptaréttar
Strandasýslu, verður haldið opinbert upp-
boð, þriðjudaginn 3. október 1978 kl. 11.
Selt verður lausafé þrotabús Háafells h.f.
svo sem rafstöð og ýmis tæki og áhöld til
notkunar við rækjuvinnslu.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Sýslumaður Strandasýslu.
Sumarbústaðaland
Litið starfsmannafélag óskar eftir landi
undir sumarbústað til leigu eða kaups.
Æskileg staðsetning er á suður- eða vest-
urlandi. Upplýsingar um landkosti og
verðhugmyndir skulu hafa borist af-
greiðslu blaðsins fyrir 2. okt. n.k., merkt
,,Sumar og sól”.