Tíminn - 24.09.1978, Page 26
Sunnudagur 24. september 1978
Nútíminn ★ ★ ★
Graeme Taylor
Þó a6 allt séu þaft andans
menn sem eru i Albion Band
og fátækir af þvi sem kallast
beinharðir peningar, þá
verður ekki annað sagt en að
Phil Pickett sé sæmilega
efnaður. Pickett, sem er aðal-
blásturshijóðfæraleikari
Albion Band á nefnilega
stærsta trébiásturshljóðfæra-
safn sem til er á Bretlands-
eyjum i einkaeign og er það
lauslega metiðá um 18 þúsund
sterlingspund. Pickett er
sprenglærður i tónlistarfræð-
um og hefur hann meira að
segja prófessorsnafnbót sem
slikur. llann er að sjálfsögðu
allur á kafi i klassískri tónlist
fyrir utan það að vera i Albion
Band, en eitt er það sem hann
gerir, eða réttara sagt honum
feilur vel i geð, sem ekki ætti
upp á pallborðið hjá starfs-
bræðrum hans i háskólanum,
en það er „punk” tónlist, og
m.a. telur hann að Ian Dury sé
hreint frábær i sinni list.
Ekki verða hér taldir upp
þeir skólar sem Pickett hefur
stundað nám I, en þess aðeins
getið að þeir eru ófáir.
Phil Pickett
Mike Gregory
Pete Bullock
Margir hafa orðið til þess að útnefna Ashley
Hutchings sem meistara breskrar þjóðlagatónlistar
og til vitnis um hæfileika hans nægir að nefna að
hann hefur staðið að baki allra bestu bresku
þjóðlagahljómsveitanna og þá um leið nokkurra af
bestu hljómsveitum heims. Sjálfur segir Hutchings
aö ef aö hann eigi að nefnast meistari þá verði það
að takast fram að hann sé fátækasti meistari I
heimi.
Hutchings er maöur smár vexti og fámæltur, en
þeir sem til hans þekkja bera fyrir honum tak-
markaiausa virðingu sem stjórnanda og tónlistar-
manni og á þvf sviði hefur hann sannaö hæfileika
sina svo að ekki veröur um villst. 1 hljómsveit eins
og Albion Band, sem nú er skipuð nlu hljóðfæraleik-
urum, er viöbúið að upp komi erfiðleikar og þá er
það verkefni Hutchings að leysa úr þeim þannig að
öllum liki og að hagur hljómsveitarinnar sé ekki
fyrir borð borinn. Annars sér hann um meira en að
stjórna hljómsveitinni og þykir hann stjórna bass-
anum ekki siður.
Ashley Hutchíngs
Ric Sanders
John Trams
Mike Gregory trommuleikari er einn af þeim
meðlimum Albion Band, sem að segja má að sé orð-
inn rótgróinn. Hann er velskur að uppruna, sem að
sjálfsögðu er mikil synd þegar um er að ræða
hljómsveit sem byggir á enskri menningararfleifð.
Hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum um
dagana, s.s. Kuschia, „reggae” hljómsveitinni
Greyhound o.fl. Greg, eins og hann er nefndur,var
ráðinn i Albion Band f gegnum tónlistarblað sem
mælti með honum, en Asley Hutchings hafði þá
veriö að svipast um eftir trommuleikara vegna þess
að Dave Mattacks hafði ekki getað gefið ákveðin
svör iUm það hvort að hann myndi tromma með
hljómsveitinni. Nú sjá þeir Mattacks og Greg báðir
um ásláttinn, en Greg sér þó meira um hið hefð-
bundna trommusett. Aðall Gregs er sá hvað hann er
hreinskilinn og hæverskur. t þvi sambandi má geta
þess aö hann hefur gagnrýnt þá trommuleikara sem
eru með trommur á heilanum og segist hann læra
meira af þvi aö horfa á góðan trommuleikara en að
fara með bæklinga um trommusett með sér I rúmið.
Nýjasti meðlimur Alion Band er Pete Bullock.
Hann er sonur kolanámumanns frá Derby og frá
unga aldri hefur hann lagt stund á klassiska tónlist
og jazz þannig að jafvel hann er undrandi á að vera
kominn út I þjóðlagatónlistina. Hann lagði stund á
tónlistarnám við háskólann I Birmingham og að
loknu námi hafði hann ofan af fyrir sér með
kennslu, auk þess sem hann var I bæjarhljómsveit-
inni. Vendipunkturinn I lifi Bullocks var þegar hann
átti að taka við embætti skólastjóra I smátónlistar-
skóla, en um það leyti hitti hann mann að nafni John
Tams. sem þá var með hliómsveitina Excelsior
Band en hún var „country” hljómsveit. Tams bauö
Bullock aö vera með, hvað hann þáði, og þá var ekki
aftur snúið. Tams gekk stuttu siöar I Albion Band og .
eitt sinn þegar vantaði hljóðfæraleikara til aö vinna
við upptöku á sólóplötu Hutchlngs, sló Tams á þráð-
inn til Bullocks og bað hann að vera með og það
hefur hann verið siðan.
Kic Sanders hleypti á sinum
tima nýju blóði i Albion Band
ineö hinum frábæra fiöluleik
sinum og eftir að hann fór aö
njóta sin hefur tónlist hljóm-
sveitarinnar nálgast jazz
rokkiö æ meir.
Sanders hóf feril sinn með
hinum frábæra japanska tón-
listarmanni Stomu Yamastha
og einnig hefur hann leikið
með Dave Bristow. Sanders er
eins og nokkrir aðrir Albion
meðlimir innan vébanda
annarra hljómsveita, en hann
hefur um langt árabil leikiö
meö hljómsveitinni Soft
Machine. Þá hefur hann
einnig leikiö meö sinni eigin
hljómsveit Surrounding
Silence, en hún kemur fram af
og til ef vel liggur á honum.
Sanders hefur þetta um veru
sina I Albion Band að segja:
„Ég hef alltaf haft gaman af
hefðbundinni þjóðlegri tónlist,
en hún ásamt jazz rokkinu er
mér llfsfylling. Mér finnst sem
tónlistarsmekkur manna hafi
mikiö breytst til batnaðar á
undanförnum árum og þá tek
ég mikiö tillit til þess hvað
tónlistarmenn eru orðnir
opnari en áður.
Aður en Taylor gekk I Albion
Band var hann að eigin sögn
heldur ráövilltur poppari.
Hann hafði leikiö um skeið I
hljómsveitinni Gryphon og
siðar með Precious Little, sem
m.a. gerði garðinn frægan á
klúbbum i Kaupmannahöfn.
En er honum barst tilboð um
að gerast liösmaður Albion
Band árið 1976, hikaði hann
ekki, lieidur greip gæsina og
eftir þvi hefur hann ekki séð
siðan.
„Ég hef mjög gaman af þvi
að spila rokk, þrátt fyrir að
það sem við i Albion erum að
gera samræmist þvi ekki.
Annars hef ég alltaf haft
gaman af hinum ýmsu tón-
listarafbrigðum og t.d. hef ég
mjög gaman af þvi sem
Ashley og Fairport Con-
vention gerðu i gamla daga”.
Taylor, sem er einn gltar-
leikara Albion, segist eiga sér
einn gitarleikara umfram
annan sem fyrirmynd, en það
er gitarleiki Grateful Dead
Jerry Garcia.
John Trams, sem er fyrr-
verandi blaðamaður, gekk I
Albion Band árið 1976. Hann
hefur á þeim tima sem liðinn
er síðan.mest megnis séð um
söng og munnhörpuleik, auk
þess sem hann er aöalkynnir
hljómsveitarinnar á hljóm-
leikum. Þá er hann og góður
lagasmiður og þau eru orðin
nokkur lögin eftir hann sem
Albion Band hefur flutt opin-
berlega. Trams, sem er frá
Derby skiri, hefur lengi haft
mikinn áhuga á þjóðlagatón-
list og meðal áhugamála hans
á þvi sviði er irsk þjóölagatón-
list. A sinum' tima stofnaði
hann hljómsveitina Excelsior,
og með honum I þeirri hljóm-
sveit var t.d. Pete Bullock,
sem áður hefur verið nefndur.
Að mörgu leyti lítur-Trams
á Albion sem „fjölskyldufyrir-
tæki” og þannig vill hann reka
það. Eitt af hans áhugamálum
er að efnisval hljómsveitar-
innar verði leikrænna, en þar
er hann á öndverðum meiði
við félaga sinn Simon Nicol.
Þjóðlagatónlist hefur löngum átt upp á pallborðið hjá breskum og úr bresku
þjóðlífi hafa sprottið á siðari árum margar frábærar þjóðlagahljómsveitir. Nægir
þar að nefna hljómsveitir eins og Fairport Convention og Steeleye Span. Nú er það
hljómsveitín Albion Band sem heldur merki breskrar þjóðlagatónlistar á lofti og er
það mál þeirra sem grannttil þessara hluta þekkja# að Albion Band gefi Fairport
og Steeleye Span ekkert eftir/ nema síður sé.
Saga Albion Band er saga margra hljómsveita og eru þar fyrrgreindar
hljómsveitir undanskildar. Ashley Hutchings stofnandi Atbion Band.sem nú er
aðalmaður hljómsveitarinnar, átti á sínum tíma þátt í að stofna bæði Fairport og
Steeleye Span. Það var skömmu eftir 1970 að hann stofnaði Albion Country Band en
auk hans voru í henni Roger Swallow, Simon Nicol, John Kirkpatrick, Sue Harris
og Martin Carthy. Hljómsveitinni var ætlað eins og nafn hennar reyndar ber mað
sérVáð flýtjá „country" tónlist. Ekki er hægt að segja að lífið hafi gengið átaka-
laust hjá hljómsveitinni, enda fór svo um hana árið 1973, að hún leystist upp.
Hitchings og kona hans Shirley Collins tóku eftir þetta þátt i stofnun hljómsveitar-
innar Etchingham Steam Band, og með henni léku þau i nokkur ár eða fram til
ársins 1976. Það ár stofnaði Hutchings, eða endurvakti réttara sagt, Albion Band,
en undir nafninu Albion Dance Band og var henni ætlað það hlutverk sem hinum
-hafði mistekist þ.e. koma spílamennskunni á fastan f járhagslegan grundvöll
I fyrrasumar hætti siðan Shirley Collins í hljómsveitinni og skömmu síðar
ákvaðu þeir sem eftir voru að leggja niður dansnafnbótina og þá um leið það
markmið sett að starfa aðallega sem danshljómsveit og má segja að það sé upp-
haf ið að Albion Band eins og hljómsveitin er í dag.
Hér á eftir verður leitasf við að bregða Ijósi á Albion Band eins og hljómsveitin er
í dag, og fer hér á eftir kynning á hverjum einstökum meðlimi auk þess sem birt
eru brot úr viðtölum, sem blaðamaður Melody Maker átti við þá fyrr á þessu ári.
ALBION BAND