Tíminn - 24.09.1978, Side 11

Tíminn - 24.09.1978, Side 11
Sunnudagur 24. september 1978 n Rauðvfn er þungt - svona um hádegisbilið Ég tók ekki á mig langa göngutúra i þetta skiptið i Paris og var litið á eintali við frægar byggingar, — mest vegna þess að „veislan i farangrinum” hjá mér var flensa frá íslandi í fimm daga af tiu. Ég lagði þó á mig fagran göngutúr frá Óper- unni og snobbhverfinu þar niður að Signu, fram hjá Louvresafn- inu, sem vitlegra er að ganga framhjá en fara inn i, nema þá maður hafi vikuna fyrir sér. Siðan þrammaði ég smástund á Nýju-brú (Pont-Neuf) sem reynaar er elsta brúin á þessum slóðúm — frá þvi i byrjun 17. aldar. Bóksalarnir á Signubökk- Fallegasta brosið, sem vió feng- um. Var einhver að segja, að Parisarbúar væru hættir að brosa ,,SÍS”? jgiirro I "pRfSEmTt Þaö er ýmislegt, sem gerist undir brúm Parisar eins og segir I alþekktum söng: Sous les ponts de Paris. um voru að koma sér aftur i gang eftir dægilegan hádegis- verðmeð rauðvini og voru dálit- ið hvumpnir, þegar ég byrjaði að róta i dótinu hjá þeim. Ég fann ekkert bitastætt i þetta skiptið, en hefði sjálfsagt fundið eitthvaðhefði ég gefið mér betri tima. Notre-Dame kirkjan er þarna rétt við hendina og þótti mér vissara að skreppa þar inn til þess að dást að rósagluggun- um enn einu sinni. Þessari gönguferð lauk i Latinuhverf- inu, fyrir framan Panthéon-hof- ið, en þar hafa Fransmenn kom- ið fyrir sínum mestu mönnum m.a. Voltaire, Hugo, Zola og Napóleon. Frá Panthéon hefði verið gaman að ganga að Mouffe- tard-götunni, sem er örstutt frá, en þar búa og hafa búið margir Islendingar. Friðrik Páll Jóns- son fréttamaöur bjó þar lengi og Einar Már Jónsson, lektor við Sorbonne býr þar enn. A þessum slóðum gista einnig Viðar Vik- ingsson, sem er að læra kvik- myndastjórn og skammt frá Ragna Sveinsdóttir, sem undir- býr magisterritgerð i frönsku. „Múffan” eins og íslendingar kalla götuna gjarnan, er þekkt fyrir grænmetismarkaði sina og útimarkaði alls konar. 1 þessari götu var flóamarkaður allt frá 1350, en sá hvarf árið 1953. „Múffan” var tákn gömlu Par- isar og skartaði á bókakápum ekki siður en Eiffel-turninn og Notre-Dame. Seinast þegar ég sátilvarþessigataaðbreytast i eina allsherjar tiskuverslun og griska veitingastaði, sem væg- ast sagt voru ólystilegir. Von- andi fær eitthvað af grænmeti að fljóta með, en minna af mannakjöti, sem hér á að hafa verið selt meira og minna á miðöldum. Margt býr I þokunni Það er skrýtið, hvað maður kemst i raun að litlu, þegar maður æðir um stórborg. Eina ráðið til þess að finna andrúms- loftiðværi kannski að setjast við hlið þeirra, sem betla í neðan- jarðarlestunum og fá þá tii þess að segja sér, hvernig lifið i borginni er. Þrátt fyrir mann- mergð á götum úti, er mjög sennnilegt, að stór hluti borgar- búa sjái aldrei dagsins ljós nema á hlaupum og sé annað hvort i neðanjarðarlest á leið til vinnu eða hirist i köldum búðum og skrifstofubáknum. Vegna þessa koma fram ýmsar flækjur ámannssálina. Það er ekki auð- velt aðgreiða úrþeim, en menn gera sitt besta. Sumar aðferð- irnar fá okkur hin til þess að brosa. Gluggum i bók, sem blaða- maðurinn og rithöfundurinn Guy Breton skrifaði fyrir fimm- tán arum og ber titilinn „Nætur- leyndarmál Parisarborgar”. Þar er að finna viðtöl viö marga undarlega persónuleika, sem Breton komst i kynni viö á næt- urgöltri sinu, einnig eru taldir upp trúarhópar og hjadýrkend- ur. Einna merkilegastir eru nafladýrkendurnir, en þeir dýrka eigin nafla og ihuga hann mjög gaumgæfilega einu sinni i viku. Fyrir erfiði sitt hljóta sumir hverjir hreinleika og sakleysi Adams. Sjá þeir þá allt i einu naflann opnast sem auga inn i hy ldýpi aldanna. Taka þeir þá að dansa ákaft af fögnuði. Nafladýrkendur, sem svo ákaft leita hreinleika hins fyrsta manns, játa auðvitað á sig ýms- ar syndir og i lok hverrar ihug- unar skrifta þeir hver fyrir öðr- um. Hika þeir þá ekki við að krydda yfirsjonir sinar morð- um, bankaránum og nauðgun- um. Að lokum fara allir að gráta. Láta þeir ekki huggast, fyrr en yfirstjórnandinn gengur á milli og útbýtir beiskum brjostsykri! Fyrsti nafladýrkandinn, sem Guy Breton komst f kynni við, fór strax að tala um vandamál sin: ,,Við eigum öll viö mikil vandamál að striöa. Ég verð aö segja yður í trúnaði, að mitt vandamál er tengt konum i ein- kennisbúningum. Þær koma mér alveg útaf laginu. Þegar ég sé kvendáta titra ég. Mér hefur verið sagt, að þær gangi i kaki- brjóstahöldum. Haldið þér að það geti verið satt?” Breton hafði aldrei lent i kvendátum og gat ekki upplýst neitt um brjóstahöld þeirra. Þá fékk hann framan i sig spurn- inguna: ,,En þér? Hvað er það, sem kemur yður úr jafnvægi?” Nú voru góð ráð dýr. Breton laug upp á sig bitáráttu og sagðistekki geta að þvi gert, að þegar hann væri i neöanjarð- arlestinni á kvöldin gripi hann ætið áköf löngun til þess að bi'ta i nefi á næsta manni. Þetta var mjög ósennilegt og hlægilegt. En nafladýrkandinn varð him- inlifandi og svaraði að bragði: Vinur minn! Naflinn getur gert mikið fyrir þig. Sjáumst á laug- ardaginn! Það voru aðrir dýrkendur, sem ég varð áþreifanlega vör við i Paris nú og það voru fata- dýrkendur. Þeir streymdu alis staðar að úr Frakklandi til þess að sjá sýningar á hausttiskunni — fra þvi i vor. öll hótel voru yfirfuU og um tima var ég á göt- unni. Ég varð þvi fegnust að stiga upp i flugvélina áleiðis til Keflavikur og fá, hver veit? — hangikjöt með brúnuðum kart- öflum likt og á leiðinni út. — Stutt naflaihugun bjargaði mér frá þvi, en þetta er nú okkar á milli sagt. ,,Nei, ekki þetta bölvaður", hrópaði útigöngu- maðurinn um leið og Christian Errath mundaði vélina. En túristar eru grimmur þjóðflokkur og áfram var „skotið”.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.