Tíminn - 24.09.1978, Side 12

Tíminn - 24.09.1978, Side 12
12 ííöí t'aíhfl'iiím ,fc§ ■itt'tsijunnHS Sunnudagur 24. september 1978 ( »lj 'Íil'iP Bátur, sem getur ekki sokkið Ég sá ekki betur en aö mennirnir væru að reyna að drekkja sér skammt frá bryggjunni á Blönduósi/ og for- vitnin var vakin. Það væri nú ekki alveg ónýt frétt ef þeim tækist þetta — og myndavélin við hendina! Þeir voru þarna á litlum báti og gerðu allt sem þeir gátu til að sökkva honum. Þeir reyndu að keyra hann niður# þeir veltu honum á hvolf og aftur til baka og fylltu hann af sjó en þeim tókst ekki að sökkva honum. Þeir reyndu að keyra hann niður Eftir margar misheppna&ar tilraunir komu þeir að landi og ég vék mér að þeim og spuröi hvort þeir væru orðnir leiðir á lifinu (skattarnir eru enn að hækka og svo er komin enn ein hækkun i „rikinu”) eða vitlausir (sömu ástæður gátu ráðið þvi) eða hvort hér væri eitthvað enn annaö á seyöi. — Néi nei, sagði Ingvar Páls- son, sem varö fyrir svörum — en hinir voru bræðurnir Benedikt og Sigurjón Olafssynir — vertu óhræddur, sagði Ingvar, hér er allt i lagi við erum að prófa nýjan bát, sem vil teljum að geti alls ekki sokkið hverjar svo sem aðstæöur eru, — sem gætu komið til greina við eðlilega notkun bátsins. — Hver er galdurinn? (Maður er nú löngu hættur að trúa á galdra) — Lokuðu hólfin þarna aftur i bátnum og eins stafninn og undir fremstu þóftunni eru fyllt með „pólý-úrethan” kvoöu, sem hefur geysimikinn flotkraft, er ekki eldnærandi og hefur gott einangr- unargildi. Ingvar til vinstri, Benni við stýrið og Sigurjón hægra megin. Það er alsiða að ausa vatni úr bátum, en inn f þá... Ljósmyndir S.V. ...og veltu honum á hvolf. Myndir og texti: Sigurjón Valdimarsson Þarna hafa þeir bjargast á kjöl. — En ef kemur gat á kassana og vatn kemst að kvoöunni? (Þarna negldi ég hann, auðvitað mundi dollan steinsökkva. Það er ekki hægt að telja manni trú um hvað sem er!) — Það breytir engu, kvoðan dregur ekki i sig vatn og heldur sama flotkrafti þótt hún blotni. Eina leiðin til aö sökkva bátnum er að þyngja hann meira en flot- krafturinn þolir. — Hvaö er þaö mikið? — Við teljum hann öruggan með 350 kg fullan af sjó. Við höf- um fyllt hann af sjó, verið fjórir um borð og með utanborðsvél og keyrt hann þannig. Og við ætlum að bæta enn meiri flotkrafti i hann með þvi að fylla borðstokk- ana lika með kvoðu. — Hvar er þessi bátur búinn til? (Liklega verður maður að trúa þessu) — Hjá Trefjaplast h.f. hér á Blönduósi. Fyrir nokkrum árum fékk fyrirtækið mót af svona báti erlendis frá og þá voru nokkrir bátar framleiddir. Þeir höfðu minni flotkraft og hentuðu islenskum aðstæðum illa á ýmsan hátt. Eggert Þór Isberg, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins og Hjörleifur Júliusson gerðu siöan ýmsar breytingar á mótinu, til að gera bátinn öruggari og hentugri fyrir islenskar aðstæður. Þeir breikkuðu hann og hækkuðu hann um tvær tommur, settu á hann kjöl úr sandfylltu trefjaplasti og juku flotkraftinn verulega. Auk þess settu þeir liflinu utan á hann og langt band i liflinuna, þannig að hvolfi bátnum á maður að geta náð þvi og velt bátnum við sjálf- ur. — Hvað er hann stór? — Þessi er þrettán feta langur (um 4 m) um 50 cm á dýpt og mesta breidd er um 1,50 m — Er þetta eina stærðin? — Nei, við erum með ellefu feta bát lika og svo er i athugun með stærri bát, hefur verið talaö um átján fet, en það er óráöið ennþá. — Og verðið? — Þessi kostar núna 260.000 krónur með söluskatti, en minni báturinn kostar um 223.000 krón- ur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.