Tíminn - 24.09.1978, Qupperneq 14

Tíminn - 24.09.1978, Qupperneq 14
14 RJ99R9SH Sunnudagur 24. september 1978 „Ég varði lífinu í ljóð ... ” — Afmælisrabb við Kristján Röðuls sextugan Kristján Röðuls skáld er sextugur i dag. Af þvi til- efni var hann sóttur heim af blaðamanni frá Timan- um og lagðar fyrir hann nokkrar spurningar. Og þá er best að vikja strax aö upphafinu og spyrja þig Kristján: — Ert þú Reykvikingur að upp- runa? — Já, ég fæddist og ólst upp i Reykjavik. Æskuheimili mitt var að Óðinsgötu 26, —örskammt frá þeim stað þar sem ég bý núna, svo þú séö aö ég held mig enn á bernskustöðvunum. Blaðasölustrákur i Reykjavík — Þú hefur auðvitað snemma vanist vinnunni, eins og flest þau börn sem voru aö alast upp fyrir hálfri öld eða svo? — Já, ég var ekki gamall þegar ég fór að vinna utan heimilis. Fyrsta trúnaðarstarfið sem ég tókst á hendur var að selja Visi á götunum. Ég held mig muna það rétt, að um 1930 hafi Visir kostaö tiu aura, en sölulaunin voru víst þrir aurar. Ég seldi lika Fálkann, en man ekki með vissu hvaö hann kostaöi. — Var hægt aö hafa eitthvað svolitið upp úr þessu? — Já, það var alls ekkert svo mjög slæmt. Kaupgjald var ekki hátt á þessum árum og ég hygg að þetta hafi ekki verið neitt lakari atvinna en aðrir snúningar, sem börn áttu kost á þá. Löngu seinna bar ég út Nýja dagblaöiö á morgnana, og fékk fyrir þaö 45 krónur á mánuöi. Það var ágætt kaup, enda var útburðarsvæöiö stórt — ég fór með blaðið alia leiö inn að Elliðaám. Texti: V.S. Myndir: Róbert — Þú hefur þurft að vakna eld- snemma ef blaðið átti að komast nógu snemma til þeirra kaup- enda, sem lengst voru I burtu? — Já, vist þurfti ég þess, en ég tók það ekki nærri mér. Það er eðli mitt að vakna fyrir allar aldir á morgnana, ég ris yfirleitt aldrei seinna úr rekkju en klukkan fimm. — Þú gengur þá snemma til náða á kvöldin? — Nei, ekkert sérstaklega, mér nægir alveg þriggja til fjögurra klukkutima svefn á sólarhring. Ég var strax svona, þegar ég var barn, og þessi eiginleiki að þurfa litinn svefn, hefur fylgt mér fram á þennan dag. — Varstu ungur, þegar þú byrj- aöir að yrkja? — Já, ég byrjaði mjög snemma aö hnoða einhverju saman I bundnu máli, en annars er ég ekki neinn einstefnumaður i þeim efn- um. Ég held, að höfundum sé hollt aö glima við sem flest form skáldskapar, það er þroskandi. A unglingsárunum hélt ég ekki kveöskap mínum til haga. En svo kynntist ég ýmsum mönnum, sem höfðu hvetjandi áhrif á mig, og það varð til þess, aö ég fór a6 leggja meiri rækt viö þessa áráttu mina, og kannski líta hana öðrum augum en ég haföi gert I upphafi. En svo kom lika annað til: Þó að sumir hvettu mig til þess aö halda áfram þessum yrkingum, voru aftur aðrir, sem töldu það hina mestu fásinnu af erfiðismanni eins og mér að vera að fást við einhverja bókiöju. Hún var aðeins fyrir lærða menn og langskóla- gengna, sögðu þeir. Ég gat ekki samþykkt þetta viðhorf, — fannst það meira að segja fáránlegt — og þetta held ég að hafi ekki slst orðið til þess aö stappa f mig stál- inu og Iáta ekki deigan siga og gefast ekki upp, þótt á móti blási. Hvert viðfangsefni heimtar sitt form. — Hvað heldur þú að þú hafir veriö gamall þegar þú fórst aö yrkja ,,I römmustu alvöru”? — Ég hef verið rúmlega tvitug- ur en fyrsta ljóðabók min kom út árið 1947, — haustið sem ég varð tuttugu og niu ára. Það kallast vfst fremur snemmt, því að á þeim árum biðu ungir menn leng- ur með aö birta ljóð sfn I bókum heldur en seinna varð. Hún heitir Undir norrænum himni, og ég held að ýmsum hafi þótt hún ný- stárleg ekki sfst vegna þess, aö hún var prentuð með grænu letri. Jóhannes Kjarval sá mikli meist- ari, skrifaöi fyrsta ritdóm um þessa bók, hann minntist sérstak- lega á letrið og á mjög skemmti- legan hátt. — Siðan urðu bækurnar fleiri, sem þú sendir frá þér. — Já, rétt er það. Þrem árum seinna kom bók, sem ég kallaöi Undir dægranna fargi. Þar lágöi meistari Kjarval hönd að verki, þvi að hann myndskreytti þessa bók. Þaö var auövitað hin besta auglýsing fyrir bókina og höfund hennar, aö Kjarval skyldi gera þetta, en mér er ekki grunlaust um að sumu fólki hérna i bænum hafi fundist meistarinn vera að leggja nafn sitt við hégóma! — Við skulum telja bækur þinar hér i röö, fyrst þær eru til umræðu. — Já. Næsta bók min hét Svart á hvítu, og kom út árið 1953. Sú þarnæsta hét Fugl i stormi, og kom út 1957, Sólúr ogáttaviti 1960 og loks Svört tungl 1964. Þrjár siðasttöldu bækurnar hlutu allar mjög lofsamlega^dóma, enda var ég oröinn fullmotaður, þegar ég orti efni þeirra. — Hvernig hagar þú vinnu- brögðúm þinum, og hvenær á sól- arhringnum þykir þér best að skrifa? — Mér finnst langbest að vinna á morgnana, enda ekki óliklegt, slikur morgunmaður sem ég er, — þótt ég eigi reyndar lika auö- velt meö að vaka á kvöldin. Ég vinn alltaf daglega, alla daga og skrifa þá gjarnan i tvo til þrjá klukkutima i einu, en ekki heldur meira. Ég get ekki hugsað mér að skrifa siöari hluta dagsins. — Hér á árunum var mikið tal- að um „heföbundið ljóðform”, „atómskáldskap”, og margt fleira sem snertir ljóðaskáldskap. Hvað af þessu heldur þú að standi næst skáldgáfu þinni? — Þvf treysti ég mér ekki til að svara. Oftast er eins og hvert við- fangsefni sem glimt er við, heimti form viö sitt hæfi og þá á höfund- urinn ekki annars kost en hlýða og velja það form, sem verkið heimtar. Ég tel mig vera jafnvig- an á hvort tveggja — bæði hið ný- tiskulega og hitt, sem kennt er við klassik. Ef við til dæmis athugum bók mina, Sólúr og áttaviti, þá kemur i ljós, að þar eru bæði rim- uð ljóð og órimuð. Auk þess hef ég alltaf verið hrifinn af kliðmýkt og hrynjandi islenskrar tungu, og hef reynt aö láta slíkt njóta sin i verkum minum. Áratuga löng vinátta við Jóhannes Kjarval — Þú minntist áðan á meistara Kjarval. Hvenær kynntist þú hon- um fyrst? — Ég kynntist honum fyrst, þegar ég var blaöasölustrákur, tólf ára gamall. Hann keypti af mér blöð, og ég fór ýmsar sendi- ferðir fyrir hann. Jóhannes var fram úr skarandi barngóður maður, enda ljúfmenni, og þarna tókst meö okkur vinátta, sem hélst á meðan hann lifði. Það bar aldrei skugga á vináttu okkar, og ég á aðeins góðar minningar um hann. Ég á mörg sendibréf frá honum, flest eða öll meira og minna myndskreytt, og satt að segja hef ég ekki viljað hafa þau hér heima hjá mér, heldur hef geymt þau i bankahólfi. Fyrir utan listhneigðina held ég að rikasti þátturinn i fari Jóhann- esar Kjarvals hafi verið hjálp- semin og kærleikurinn til náung- ans. Hann vildi alltaf vera að gleöja aðra og hjálpa þeim, og mér er kunnugt um, að hann steypti sér meira aö segja i skuld- ir til þess aö geta létt undir meö öðrum, ef einhver átti erfitt með aðborga húsaleiguna. En Kjarval var ekki allra, fremur en titt er um mikla menn, og hann hafði eitthvert undravert lag á þvi aö ná fundi þeirra manna, sem voru honum að skapi. Þaö var engu li'kara en að I þeim efnum hefði hann ósýnilegan áttavita og „radar”. Aldrei heyrðist Kjarval Skáldið viö skrifborö sitt. tala illa um nokkurn mann, ekk- ert var fjær honum en að baktala aðra listamenn eða gera litiö úr verkum þeirra, og var hann þó sannarlega maður, sem hafði efni á að tala djarflega um slika hluti. Geðrikur var Kjarval, eins og flestir listamenn, en hann var fá- gætlega tær persóna. — Hvatti Kjarval þig til rit- starfa? — Já, það gerði hann, og hann lét ekki við hvatninguna eina sitja þvi að hann studdi mig lika með beinum fjárframlögum, — það er mér bæði ljúft og skyit að játa og þakka. Ég bað Kjarval ekki um peninga — þess þurfti ekki. Hann kom sjálfur með krónurnar til min, og margra annarra ungra manna, og þá tjáöi ekki undan að mælast, ef hann ætlaði aö rétta manni eitthvað. Þá varð það aö vera svo sem hann vildi. Jóhann- es Kjarval er eftirminnilegasti listamaður, sem ég hef kynnst. En hann var miklu meira en góö- ur listamaður, hann var lika sannur maður. — Þú sagöir áöan, aö Kjarval hefði skrifað ritdóm um bók eftir þig. Manst þú ekki enn þann dag i dag hvað hann hafði um bókina að segja? — Jú, og ég skal meira að segja lofa þér aö heyra dálitla glefsu úr dóminum, ég er með hann hérna hjá mér. Grein Kjarvals hét Ein- kennilegur maöur. Þar stendur m.a. þetta: „Kristján Röðuls hefur gefiö út snyrtilega ljóðabók, sem hann Brúðarkjóllinn Hún saumar kjólinn kalda nótt, og kalda nótt — er glöð á brá. Og hjartað slær svo ört og ótt, af ungri, heitri, villtri þrá. Og ljúfsár andvörp liða hljótt, þau líða hljótt i þögn og nótt... — En máninn brosir beiskt og kalt, svo beiskt og kalt, hann veit það allt — Hún sautnar kjólinn kalda nótt, — og kveikir dag, en verður nótt. Kristján Röðuls. / V Kristján Rööuls situr hér hjá gömlu, virðulegu skattholi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.