Tíminn - 24.09.1978, Qupperneq 16

Tíminn - 24.09.1978, Qupperneq 16
16 Sunnudagur 24. september 1978 ■■■■■•(■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i ■■ „___________________________________________________________________________________ ■■ / ■■ / ■■ )■*•■■ IHHI ■■■■■■■■■■■■■■■■■■ :::::::::::::::::: !■■■■*■■□■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! ■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! y :: Likan af DNA sameind. Sameindin er gormsnúin, gerð úr tveimur þáttum, sem tengdir eru saman með vcikum efnatengjum. Rætt við prófessor Guðmund Eggertsson, erfðafræðing, um erfðaverkfræði Nú má flytia erfðaefni B :: ■■ :: ■■ :: milli fjarskyldra :: ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ :: tegunda :: ■■ ■■ ■■ ■■ :: Nýjar og umdeildar rannsókn- araðferðir eru fundnar, sem gefið geta hugmyndafluginu lausan tauminn :: :: ■■ :: Hvað er erfðaverkfræði? Von er að margir spyrji þvi þetta er ung vis- indagrein, sem ekki hefur borið mikið á hérlendis. i>ó hafa nokkrir islenskir erfðafræðingar kynnt sér rannsóknaraðferðir erfðaverkfræðinnar. Einn þeirra er Guðmundur Eggertsson prófessor sem nýlega starfaði að rann- sóknum á þessu sviði við Kaliforniuháskóla i San Fransiskó. Til þess að fræða lesendur nokkuð um þessi visindi sem að undanförnu hafa vakið mikla athygli og umræðu fengum við Guðmund til þess að ræða við okkur nokkra stund um það sem efst er á baugi á þessu sviði. Kjarnasýrur, gen og litningar lltlftí Guðmundur Eggertsson. :: : :: 1 :: 1 1 Frumur bakteriunnar Escherichia coli, sem mikið er notuö við erfðafræðirannsóknir. Rafeindasjár- mynd, — stækkun 11000 föld. „Ég vil fyrst vekja athygli á því”, segir Guðmundur, ,,að notkun orðsins erföaverkfræði um þessar rannsóknir er að ýmsu leyti óheppileg og hefur valdið margs konar misskilningi. Hér er ekki um nýja verkfræðigrein að ræða heldur nýjar rannsóknarað- ferðir á sviði erfðafræði og lif- efnafræði. Það sem mestu máli skiptir við þessar nýju aðferðir er að þær gera mönnum kleift að tengja saman erfðaefni úr ólikum frumum og ólikum tegundum. Aður hafði einungis veriö hægt að flytja erfðaefni á milli einstakl- inga sömu tegundar eða á milli mjög skyldra tegunda. Með nýju aðferðunum er hins vegar hægt að flytja erfðaefni — að visu ein- ungis litla búta erfðaefnis, á milli fjarskyldra tegunda jafnt sem náskyldra t.d. úr spendýri j bak- teriu. Þessar rannsóknaraðferðir komu ekki til sögunnar fyrr en fyrir fimm eða sex árum. Meöal helstu upphafsmanna þeirra voru Svisslendingurinn Werner Arber og Bandarikjamennirnir Herbert W. Boyer og Stanley N. Cohen en þær höfðu átt sér langan aðdrag- anda: A fimmta og I byrjun sjötta áratugs þessarar aldar höföu lif- efnafræðingar og erfðafræðingar sannfærstum að kjarnsýran DNA er erföaefni lifveranna. Arið 1953 höfðu Watson og Crick skýrt byggingargerð DNA sameind- anna og á sjöunda áratugnum hafði loks tekist að sýna fram á með hvaða hætti þessar sam- eindir ráða myndun og gerð eggjahvituefna eða próteina. Jafnframt varð ljóst i stórum dráttum hvernig kjarnsýran mót- ar arfgenga eiginleika lifver- Kjarnsýrusameindirnar (DNA) sem fyrirfinnast i litningum allra lifvera eru mjög langar keðju- sameindir, settar saman úr ferns konar byggingareiningum. Það er röðun þessara eininga sem ræður sérhæfni kjarnsýrunnar. Þannig stýra mismunandi kjarn- sýruraðir myndun ólikra kjarn- sýruefna. Kjarnsýruröð sem stýrir myndun ákveöins eggja- hvituefnis er kölluð „gen.” Hvert gen er um þúsund „einingar” á lengd. í frumum mannsiris eru 46 litningar og i hverjum þeirra eru þúsundir gena i samfelldri röð. Kjarnsýrusameindir litninganna eru eftirmyndaðar nákvæmlega I sérhverri frumukynslóð. Þvi hafa allar frumur i sama einstaklingi sams konar erfðaefni. Mismun- andi einstaklingarsömu tegundar geta hins vegar veriö ólikir um ýmis gen. Þessu valda stökk- breytingar sem safnast hafa fyrir i erfðaefni tegundarinnar. Enn meiri verður þó mismunurinn þegar borin eru saman gen mis- munandi tegunda. Samt leynir sér ekki að erfðaefni allra lifvera er af einni rót runnið. Kjarnasýrubútum raðað saman Með rannsóknaraðferðum erfðaverkfræðinnar er nú hægt aö skera hinar geysilöngu kjarn- sýrusameindir i búta. Til þess eru notaöir mjög sérvirkir efnakljúf- ar svonefnd skerðiensim eða skerðihvatar. Búta sem myndaðir hafa verið með hjálp óakveðins skerðiensims er auðvelt að tengja saman og skiptir þá engu máli úr hvaða lif- verutegund bútarnir eru ættaðir. Þannig geta kjarnsýrubútar úr bakteriufrumum tengst bútum úr frumum myglusvepps, músar eða manns. Þannig er lika hægt að innlima litinn bút úr einni tegund inn i stóra kjarnsýrusameind annarrar tegundar. Genalerjur Hingað. til hefur þessum að- ferðum aðallega verið beitt til þess aö flytja búta erfðaefnis úr ýmsum tegundum inn I bakteriu- frumur. Framandi erföaefni t.d. úr spendýrafrumum, er þá i til- raunaglasi innlimað I litlar kjarn- sýrusameindir, t.d. svonefndar plasmiðasameindir sem siðar eru fluttar yfir i bakteriufrumurnar. ::::::::::::::::::::::::::::::::::: !■■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■ ■MMI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.