Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 29. september 1978
Pieter Botha forsætisráöherra S-Afriku:
Engar breytingar né eftirgj ðf
Höfðaborg/Reuter— Pieter Botha, harðlínumaður og
hernaðarsinni tók í gær við forsætisráðherraembætt-
inu í Suður-Afriku af John Vorster. Einhver hin fyrsta
yfirlýsing hans i nýja embættinu var: „Við munum
hvorki knékrjúpa fyrir marxistum né byltingarmönn-
um." Klukkustundu eftir embættistökuna lýsti hann
ennfremur yfir að engar breytingar yrðu gerðar á
rikisstjórninrfi og hann mundi sjálfur eftir sem áður
gegna embætti varnarmálaráðherra.
Botha forsætisráðherra er 63
ára gamall og i fyrstu umferö
atkvæðagreiðslu i Caucus-
flokknum hlaut hann 78 atkvæði
af 172 til forsætisráðherraem-
bættisins. Styrkasti andstæðing-
ur hans, Connie Mulder
kynþáttamálaráðherra, hlaut 72
atkvæði en hinn ungi og vinsæli
utanrikisráðherra, Pik Botha,
aðeins 22 atkvæði. 1 siðari um-
ferð þegar kosið var á milli
Pieter Botha
Botha og Mulder fóru atkvæði
9874 fyrir Pieter Botha.
Pieter Botha birtist stuttu eft-
ir atkvæöagreiðsluna brosandi á
svölum þinghússins með Caucus
þingflokkinn aö baki og konu
sina sér við hliö og hélt stutta
ræðu um varnarmál og utan-
rikismál.
Botha sagði að hernaðarlegri
stöðu S-Afriku yrði viðhaldiö og
hvergi slakað á gagnvart bylt-
ingarmönnum og kommúnist-
um. Það væri keppikefli stjórn-
arinnar að koma á friði og góðri
sambúð i landinu. Slikt kæmi
ekki að sjálfu sér, sagöi hann,
heldur þyrfti að vinna til þess.
A blaðamannafundi skömmu
eftir embættistöku var Botha
spurður aö þvi hvort sambúöin
við Bandarikin yrði vinsamleg.
Botha svaraði þvi til að það ylti
á þvi hvernig framkoma
Bandarikjanna yrði i garð S-
Afriku. „Komi þeir fram við
okkur sem fullvalda og sjálf-
stætt riki munum við gera hið
sama”, sagði Botha. Þá tók
hann fram að i þessu fælist að
ekki yrði um nein afskipti af
innanrikismálum S-Afriku að
ræða.
,Við viljum Pik’
— hrópaði mannfjöldinn þegar Pieter Botha
hafði tekið við embætti forsætisráðherra
Swapo:
Ráðherraskiptin
hafa enga þýðingu
Höföaborg/Reuter — Þegar
Pieter Botha, nýkjörinn forsætis-
ráðherra S-Afriku, var að koma
frá þingfundi i gærdag stöðvaði
hann á götu tii að taka f höndina á
svertineium sem bó vpru aðeins
ör fáum meöal mannfjöldans sem
beiö fyrir utan þinghúsiö eftir
úrslitum.
Nokkrir úr mannþrönginni
heilsuöu Pieter Botha hinsvegar
meö þvi aö hrópa ,,Viö viljum Pik
(Botha)”. Samkvæmt skoöana-
könnunum var meirihiuti þjóöar-
innar þvi fylgjandi aö Pik Botha
tæki viö embætti forsætisráö-
herra en hann fékk fæst atkvæöi
hinna þriggja er I kjöri voru i
flokkuum. Ekki er taliö ósenni-
legt aö Pik taki viö af Pieter áöur
en allt of langur tfmi Höur.
Salt-ráðstefnan:
Pik Botha
Sameinuöu þjóðirnar/Lus-
aka/Reuter — Sam Nujoma, for-
seti Swapo sem herjar meö
skæruárásum á S-Afrfku, sagöi I
gær aö forsætisráöherraskiptin i
S-Afríku heföu ekkert aö segja
fyrir Swapo. Hinn nýi forsætis-
ráöherra, sagöi Nujoma, heföi á
siöasta ári gert alit sem í hans
vaidi stóö til aö fá þingiö til aö
samþykkja heimild tii handa
stjórninni til aö ráöast á nálæg
Afrikuriki sem ögruöu kynþátta-
stefnu stjórnarinnar. Mátti skilja
á Nujoma aö ráöherraskiptin
væru sizt i átt til hins betra.
utan úr heimi
Hussein
af stað
— til viðræðna við
Arabariki á
sama tlma og
Assad
hverfur heim
Amman/Reuter — Hussein
Jórdaniukonungur mun næst-
komandi laugardag leggja af
staö I heimsókn til fimm
Arabarfkja tii aö ræöa stööuna
i málum Miö-Austurlanda.
Löndin fimm sem Hussein
heimsækir eru' Sádi-Arabla,
Kuwait, og arabisku fursta-
dæmin viö Persaflóa.
Þá geröist þaö einnig i gær
aö Assad Sýrlandsforseti sneri
heim mjög övænt án þess aö
Ijúka heimsóknum slnum til
allra Arabarikjanna sem hann
haföi fyrirhugaö aö heim-
sækja til aö vinna stuöning
andstööunni viö Camp David.
Aðeins stolt kemur í veg fyrir
samkomulag
New York/Reuter — Góðar vonir eru um árangur i
þessari viku á Salt-ráðstefnunni, sem nú stendur i
Bandarikjunum. Vance, utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, og Gromyko, utanrikisráðherra Sovét-
rikjanna áttu i gær saman tveggja stunda viðræður.
Ýmislegt þykir og benda til
þess aö samkomulagstrundvöllur
sé fyrir hpndi um ráðstafanir til
að takmarka framleiðslu kjarn-
orkuvopna. 1 fréttatima ABC
sjónvarpsstöðvarinnar banda-
risku var haft eftir háttsettum
embættismanni að I raun og veru
gæti hvort rikið fyrir sig fallist á
tillögur hins.ef ekki væri vegna
stolts og áhuga á aö leggja fram
tillögurnar sem samþykktr yrðu.
Salt-viðræðunum er ætlaö aö
ljúka á laugardag meö viöræöu-
fundi 1 Hvita húsinu meö Carter.
Náist samkomulag i viðræöunum
verður það mjög llklega til þess
aö gera mögulegar slökunarvið-
ræður milli Carters og Breshnevs
I Washington siðar á árinu en
slikar viöræður eru á dagskrá
með það i i huga að lifga upp að
nýju ,,detente”-andrúmslo*ft i
samskiptum rikjanna.
Fundir hefjast í Ismalíu í
næstu viku
Kairó/Reuter — Sadat fagnaði i gær úrslitunum i
israelska þinginu og er nú reiknað með að friðarvið-
ræðurnar hefjist að nýju i ísmaliu i Egyptalandi á
miðvikudag eða fimmtudag i næstu viku. Megin-
viðfangsefnið verður brottflutningur israelsks her-.
liðs frá Sinaieyðimörkinni.
Þá var I gær haft eftir utan-
rikisráðherranum að hann vonaði
að þessi úrsljt i israelska þinginu
gætu orðið til þess að Arabarikin
þrjúSýrland, Libanón og Jórdan-
fa, endurskoöuðu afstöðu sina og
tækju nú þátt I friðarviðræðunum.
Meöal þess sem rætt veröur i
Ismaliu i næstu viku er á hvern
hátt hersveitir Sameinuðu þjóð-
anna komi inn i dæmiö og þá með
hvaða móti ísraelsmenn láti af
hendi svæöi þar. sem ollunám fer
fram. Ennfremur verða rædd
afnot Israels af Suezskurði, fisk-
veiöiréttindi út af Sinai, flug-
umferö og járnbrautaumferö um
og yfir Sinai og slðast en ekki sist
þarf að ákveöa hvaöa dag
traelsmenn verði að fullu horfnir
frá Sinai.
Sextán
létust á
Nato
æfingu
Bonn/Reuter — Sextán hafa
látist og a.m.k. 100 særst al-
varlega á árlegri haustæfingu
Nato I V-Þýskalandi. I fyrri-
nótt létust þrir bandarikja-
menn þegar bill þeirra var
klesstur af bandarískum
hergagnaflutningabil. Her-
mennirnir þrir voru þátttak-
endur i æfingu sem kölluö var
„Traustur skjöldur”.
Meðal hinna látnu eru þýsk-
ir, breskir, kanadiskir og
bandariskir hermenn, og auk
þess almennir borgarar.
Umræddum æfingum lýkur i
dag, en þær hófust 17. septem-
ber og hafa um 200.000 her-
fylki tekið þátt i þeim.
Begin aldrei
bjartsýnni
— en eftir sigurinn i þinginu
Jerúsalem/Reuter — Begin, for-
sætisráðherra Israels, var bjart-
sýnn I gærdag eftir sigurinn i
þinginu þar sem ákvæöi Camp
David sáttmálans voru samþykkt
meö 84 atkvæöum gegn 19 en 17
sátu hjá. Sagöi Begin aö aldrei
fyrr I 30 ár heföu friöarhorfur
veriö svo góöar. Hann hefur áöur
sagt aö meö Camp David
sáttmálanum sé þegar lokiö 90%
af því starfi sem vinna þarf til
þess aö ná endanlegum friöi viö
Egyptaland.
Baráttan i israelska þinginu um
Camp David samkomulagið stóö I
18 klukkustundir og máttj Begin
þola margar ákúrurnar pg áköf-
ustu samstarfsmenn hané fyrir 30
árum i striöinu við Breta yfirgáfu
hann og formæltu á þinginu I fyrri
nótt. Aöeins 11 af 21 þingmönnum
verið
hans eigin flokks, Herutflokksins,
studdu hann, fimm voru á móti og
fimm sátu hjá.
Carter:
Hrósar Begin
— en segir jafnframt að hann fari
með rangt mál
Washington/Reuter — Carter
Bandarikjaforseti sendi Begin
heillaóskir I gær meö sigurinn I
þinginu og sagöi aö þar meö
væri annaö skrefiö i friöarátt
stigiö I Miö-Austurlöndum. Þá
sagöi Carter I bréfi slnu til
Begin aö hann virti hugrekki
hans og geröi sér fulla grein
fyrir hversu erfiöar ákvaröanir
hann heföi þurft aö taka i
þessum efnum aö undanförnu.
Á öðrum stað i gær lét Carter I
ljós áhyggjur gagnvart þvi aö
Begin héldi fast viö þann skiln-
ing sinn á Camp David sátt-
málanum aö þaö væri aöeins til
skamms tima sem Israelsmenn
skuldbindu sig til að stöðva
landnám Israelsmanna á
Vesturbakkanum. Sagði Carter
það hafakomiö ótvirætt fram I
viðræöum sfnum við Begin að
ákvæði þetta ætti að standa I sex
mánuöi eöa á meðan samninga-
viðræöur stæðu.