Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. september 1978 5 Samband fsl. bankamanna: Mótmælir skipan vísitölunefndarinnar • • A1 "'i.. / * A — Settl niður spinir I vor og fær nú ágætis uppskeru ATA — Ég hef alltaf veriö grúsk- ari og gerði þetta bara af fikti, segði Jóhannes Jónsson frá Asparvik, er blaðamenn Tlmans fylgdust með þegar hann tók upp kartöflur við hús sitt i Kópavogi. Þaö óvenjulega við þessar kartöflur er það að þær uxu af kartöfluspfrum, en ekki útstæöis- kartöflum. — Ég hef aldrei heyrt um sllka kartöflurækt fyrr, sagði Jóhannes. Ég haföi sjálfur enga trú að þetta tækist, setti fáeinar spirur niðuri vor og var I seinna lagi með það. Otkoman af þessu varð ótrúlega góð. Þaö eru ekki færri kartöflur undan þessum grösum en grösunum, sem spruttu af útsæðiskartöflunum, sagði Jóhannes. — Ég ætla að gamni minu aö láta þessar kartöflur spira i vet- ur, setja nokkrar þeirra niður i vor, brjóta spirurnar af öðrum og láta þær niður einnig. Það verður fróðlegt að fylg jast með þvi hvort þær frjóvgast. Jóhannes frá Asparvik er eng- inn byrjandi i kartöfluræktun. Þaurúmlega 24 ár(sem hann hef- ur átt heima á Reykjavikursvæð inu hefur hann alltaf sett niður kartöflurogaldrei hefur iqjpsker- an brugðist. — Ég hef gert ýmsar kúnstir ræk tuninni, sagði Jóhannes og mérhefur þótt gaman að gera tUraunir. Þetta með spirurnar er tilraun sem virðist hafa tekist bærilega. Það er ekki vist að það spari tima að setja niður spirur i stað kartaflna, sennilega er það seinlegra, en það sparar óhemju peninga, sagði Jóhannes frá Asparvik að lokum. , STOR RYMINGARSALA á gólfteppum og bútum AFSLATTUR Við erum aðe/ns að rýma fyrir nýjum birgðum pi Stendur i nokkra daga TÉPPfíLfíND Grensásvegi 13 Símar 83577 og 8343o! ESE — t bréfi sem Samband is- lenskra bankamanna hefur sent rikisstjórninni er skipun visitöiu- nefndarinnar svoköiluðu mót- mælt harðlega. Telja þeir það óeðlilegt að Sam- band bankamanna skuli ekki eiga fulltrúa i nefndinni þar sem i henni séu fulltrúar frá öllum öðr- um heildarsamtökum launþega i landinu. í bréfi bankamanna til rikis- stjórnarinnar segir m.a.: Sú ákvörðun rikisstjórnar- innar, að útiloka ein heildarsam- tök launþega, Samband isl. bankamanna, frá þátttöku i nefndinni er óskiljanleg. Ekki verður annað séö, en að nefnd þessari sé ætlað það hlut- verk að freista þess að ná sam- komulagi um nýtt visitölukerfi, sem gildi fyrir alla launþega I landinu, þar á meðal félagsmenn Sambands isl. bankamanna. Samtök bankamanna eru hins vegar útilokuð frá þvi að hafa áhrif á gang mála og niðurstöðu nefndarinnar. Þá segir ennfremur: Þrátt fyrir yfirlýsingu við- skiptaráðherra hinn 22. þ.m. um að skipan nefndarinnar verði ekki breytt, krefst stjórn SIB þess, að fá fulltrúa I greinda nefnd á sama hátt og önnur heildarsamtök launþega I landinu. Verði ekki fallist á þessa sjálf- sögðu kröfu stjórnar Sambands isl. bankamanna verður að lita á vinnubrögð rikisstjórnarinnar I þessu máli sem iitilsviröingu við Jóhannes frá Asparvik tekur upp kartöflu undan fyrsta grasinu og sér aö tiiraun hans hefur heppnast. Mynd: Róbert Eru útsæðiskart- Uppskeran af spirunum, sem Jóhannes setti niður i vor. Kartöflurnar voru undan fimm grösum. Mynd: Róbert Hún er girnileg þessi kartafla og ekkert smælki, eins og best sést af samanburðinum við tóbakspontuna. Mynd: Róbert. stéttarsamtök bankamanna. Ennfremur lýsir stjórn Sam- bands Isl. bankamanna yfir þvi, að verði ekki breyting á stöðu rikisstjórnarinnargetur það leitt til þess, aö endurskoðuð verði að- staða samtakanna tii þátttöku I öðrum nefndum um kjaramál, sem rikisstjórnin hefur boðiö bankamönnum þátttöku I. Nordkultráðstefnan 1978 Bókmenntaverðlaun Norðurhjarans verði veitt FI — í lokaályktun Nordkult- ráöstefnunnar 1978, sem haidin var i Rovaniemi i Norður-Finn- landi dagana 29. — 31. júli sl. var þvi fagnað sérstaklega aö grænlenskir rithöfundar hafa nú stofnaö eigin samtök. Þá var lýst þvi áliti, aö Samarithöfund- ar eigi að verða þátttakendur í samnorrænum samtökum. Ráð- stefnan litur á menningu Sama sem sjálfstæöan þátt hins nor- ræna mennjngarsamfélags, en viðurkennir jafnframt, að Samaþjóðin búi viö þær menn- ingarlegu og efnahagslegu að- stæöur, að stuðningur norrænna þjóða, saman og hverrar fyrir sig, verði að koma til. 1 annarri ályktun ráðstefn- unnar segir, að brýn nauðsyn sé á stuðningi við útgáfu á bók- menntum Norðurhjarans. Og til Norðurlandaráðs var skotiö þeirri hugmynd, að til viðbótar bókmenntaverðlaunum Norður- landaráðs kæmu sérstök bók- menntaverðlaun Norðurhjar- ans. Menn af þjóöernisminnihlut- Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.