Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. september 1978
Iðnaðarráðherra skipar
nefnd til að móta heildar-
stefnu í iðnaðarmálum
Markmiöið
aukin atvinna og
Hjörleifur Guttormsson iAnaðarráðherra ásamt
samstarfsnefndarmönnum og ritara hennar. Á
myndina vantar Davið Scheving Thorsteinsson og
Þórleif Jónsson.
Timamynd Tryggvi.
f 1 ölbreytni í atvinnulífi
— leita á næstunni til nefndarmanna vegna vandamála ullar-, skipa,
húsgagna- og rafeindaiönaöarins
SJ — Iðnaðarráðherra
hefur skipað niu manna
samstarfsnefnd um
iðnþróun á íslandi.
Hlutverk nefndarinnar
er:
Að vera iðnaöarráðherra til
ráðgjafar um mótun heildar-
stefnu i iðnaðarmálum og
leggja fyrir tillögur um það efni.
Að efla samstarf hinna ýmsu
aðila iðnaðarins um að fram-
kvæma þær aðgerðir, sem sam-
staða næst um innan nefndar-
innar og á vettvangi rikis-
stjórnar og Alþingis.
Að gera tillögur til iðnaðar-
ráðherra um ráðstöfun jöfn-
unargjalds af iðnaðarvörum,
samkvæmt lögum nr. 83, 1978
vegna ársins 1979, og svo sem
siðar kann að verða ákveðið, i
þágu iðnþróunaraögerða i sam-
ræmi við mótaða stefnu.
Hjörleifur Guttormsson
iðnaöarráöherra sagöi á fundi
með fréttamönnum að fram til
þessahefði rikisvaldið ekkihaft
nægilegt frumkvæði um mótun
islenzkrar iðnaðarstefnu og þær
framkvæmdir.sem henni þyrftu
að fylgja. Gat hann þess aö þó
hefði ýmislegt verið vel gert I
þágu iönaðarins og nefndi sér-
staklega starf Iðnþróunar-
nefndar á árunum 1973-1975 og
skýrslu hennar um eflingu
iðnaðar á Islandi fram til 1985,
sem væri mjög mikilvæg úttekt,
er hafa mætti gagn af i áfram-
haldandi starfi.
Samtök iðnaðarmanna og iðn-
rekenda hafa ekki setið auðum
höndum undanfarin ár heldur
markað sér stefnu og kynnt
sjónarmið sin varðandi iðn-
þróun. Einnig hafa samtök
launþega komið fram með til-
lögur um aðgerðir til eflingar
islenzkum iönaði. Samstarfs-
nefndinni, sem nil hefur verið
skipuö, er einnig faliö að taka til
athugunar þessar tillögur og
móta úr þeim heildstæða stefnu-
mörkun, sem ríkisstjórnin geti
lagt fyrir alþingi svo sem sam-
staöa næst um.
—Mér er ljóst aö her hlýtur að
verða um áfangavinnu að ræöa
og ætlunin er að vinnubrögð
nefndarinnar verði slik að hiín
fái viðbrögð við tillögum sinum
á starfstimanum, sagði
iðnaðarráðherra. —Skýrslur
sem unniö er að jafnvel i-nokkur
ár samfleytt eru góðar og
gildar, en gallinn er sá aö þær
hefa tilhneigingu til að rykfalla.
—Markmiðið hlýtur að vera
að iðnaöurinn geti veitt fleira
fólki atvinnu en nú er.
Ennfremur er mikilvægt að
auka á fjölbreytni i atvinnulifi
landsmanna bæði hér á þétt-
býlissvæðinu, en e.t.v. enn
frekar út um hinar dreifðu
byggöir landsins.
Iðanðurinn þarf að geta boðiö
starfsfólki sinu góö lffskjör fýrir
eðlilegan vinnudag, en einnig
aðlaðandi vinnustaöi þar sem
öryggi er tryggt.
Til þess að þessi markmiö
næðust kvað iðnaöarráðherra
fjölmörgóbein atriðiþurfa til aö
koma svo sem bætt verk-
menntun og verkmenning og
kæmi þar til kasta alls skóla-
kerfisins ekki sizt eftir-
menntunarog fullorðinsfræðslu.
Ennfremur skipti góð iön-
hönnun miklu máli og væri i
henni sjálfsagt að taka mið af
langri hefö islenzks heimilis-
iðnaðar og ætti hann þar jafnt
við þá hefð sem tiðkast hefði i
smiðju bóndans og dyngju hús-
freyjunnar á liðnum öldum.
Formaður samstarfsnefndar-
innar um iðnþróun á Islandi er
Vilhjálmur Lúðvíksson, sem
einnig var formaður Iön-
Framhald á bls. 23
Byggingar
vísitala
hækkar
um 10%
Kás —- Reiknuð hefur verið út ný
visitala byggingarkostnaðar fyrir
timabilið október-desember.
Hækkar hún um 10.6% frá þvi
sem var á siðasta timabili, þ.e.
júii-september.
Það er Hagstofan sem hefur
reiknað út hina nýju byggingar-
visitölu, og þá á verölagi I fyrri
hluta september á þessu ári.
Reyndist hún vera 240.8 stig sem
lækkar niður I 240 stig. Samsvar-
andi tölur reiknaöar eftir verðlagi
I fyrri hluta júni 1978, fyrir tima-
bilið júli-september, voru 217 stig.
Hækkúnin er þvi 23 stig, eða
10.6%.
Samsvarandi tölur fyrir bygg-
ingarvisitölu samkvæmt eldri
grunni eru 4767 stig fyrir tima-
bilið október-desember, en voru
4318 stig á timabilinu júli-
september.
Guðmundur Gíslason form. SIB:
Höfum ekki ákveðið
næsta skref okkar”
ESE — Eins og fram kemur
annars staðar I blaðinu i dag þá
hefur Samband islenskra banka-
manna harðlega mótmælt skipan
visitölunefndarinnar svokölluðu
og telja bankamenn sig eiga rétt á
þvi að hafa fulltrúa i nefndinni.
Timinn sneri sér af þessu tilefni
til Guömundar Gislasonar, for-
manns Sambands islenskra
bankamanna ogvar hann að þvi
spurður hvort þeir hefðu fengið
einhver frekari svör við bréfi þvi
sem þeir sendu rikisstjórninni 26.
sept. s.l.
Guðmundur sagði svo ekki
vera. Undirtektir þær sem þeir
hefðu fengið hjá forsætisráðherra
og viðskiptaráðherra er þeir
ræddu viö þá, hefðu verið þaö
litlar og neikvæðar að hann ætti
ekki von á þvi að frekar heyrðist
frá þeim. Það hefði veriö alveg
augljóst af viðræðum viö þá aö
þeir heföu verið búnir aö gera upp
hug sinn I þessu efni og að þeim
ákvörðunum yrði ekki breytt. Þá
hefði það mátt á þeim skilja að
það hefði aldrei verið ætlunin að
Samband isl. bankamanna yrði
með I þessari nefnd og reyndar
hefðu þeir taliö að sambandið
hefði þar ekkert aö gera, þar sem
bæði BSRB og BHM gætu gætt
hagsmuna þeirra i nefndinni.
Þetta ætti sambandið mjög erfitt
með aö sætta sig viö, þvf að enda
þótt helmingur þeirra félags-
manna ynni I bönkum og spari-
sjóðum i eigu annarra aðila.
Samband isl. bankamanna hefði
sin eigin lög sem það semdi eftir
og þaö semdi ekki við rikisvaldið,
heldur við bankana sjálfa.
Ekki sagði Guðmundur búið að
ákveða hvað gert yrði I þessu
máli. Fundur yrði haldinn i dag
og verið gæti að þá yröi ákveðiö
hvert yrði næsta skref Sambands
isl. bankamanna i málinu.
Valgeir Gestsson, formaður Sambands grunnskólakennara:
Vænti átakalausrar lausnar
Athugasemd við forsíðufrétt
A forsiðu Timans miöviku-
daginn 27. sept. sl. er fyrirsögn
um deilu kennarasamtakanna
um launajöfnun kennarapróf-
anna, er ég tel mjög villandi.
Hún er svohljóöandi:
„Æfingakennsludeilan: Gætum
þurft að beita skæruverkföllum
og fjöldauppsögnum”. Umrædd
deila er ekki deila um æfinga-
kennslu heldur um þaö hvort
kennarar eigi að hafa sömu laun
hafi þeir lokiö prófi frá
Kennaraskóla Islands eöa'
Kennaraháskóla íslands en
hvort prófið sem er veitir
kennsluréttindi við grunnskóla.
Samband grunnskólakennara
hefur frá þvi I mars s.l. reynt I
viðræöum við fjármála-
ráðuneytiö og menntamála-
ráðuneytið aö ná samkomulagi
um túlkun ákveðinna greina I
kjarasamningum til þess að
leysa deiluna. Avallthefur veriö
stefnt að þvi, að semja um
málið án aðgerða, sem alltaf
eru neyðarúrræði og ætti aldrei
aö þurfa aö gripa til. Engin
ákvörðun hefur verið tekin af
hálfu stjórnar eða fulltrúaráös
S.G.K. um aðgerðir utan
fundarhalda kennara um málið.
I viðtalinu við blaðamann
Timans að loknum fundi
fulltrúaráös S.G.K. 26. sept. s.l.
svaraði ég aöeins spurningu
blaöamannsins um hvaöa að-
gerðir væru hugsanlegar ef slikt
kæmi til umræðna á næsta fundi
fulltrúaráösins.
1 ályktun fulltrúaráösins segir
m.a.
„Fundurinn væntir þess að
tillögur menntamálaráöherra
sem hann hyggst leggja fyrir
fjármálaráöherra næstu daga
leiði til lausnar málsins”.
Undir þetta vil ég taka,
sérstaklega, og vænti þess að
átakalaus lausn fáist næstu
daga.
innlendar fréttlr
Olympiuliöiö I skák:
Ingvar i
stað Inga
ESE —Þær breytingar hafa orðið
á skáksveit tslands, sem teflir á
23. ólympiuskákmótinu sem
haldið verður i Argentinu I næsta
mánuði, að Ingvar Asmundsson
mun taka sæti Inga R. Jóhanns-
sonar sem ekki sér sér fært að
taka þátt I mótinu i sveitinni.
Ólympiulið Islands fkarlaflokki
veröur þvi þannig skipaö: Friörik
Ólafsson, Guðmundur Sigurjóns-
son, Helgi Ólafsson, Jón L. Arna-
son, Margeir Pétursson og Ingvar
Ásmundsson.
Kvennaliöið verður óbreytt frá
þvi sem áður hefur verið uppgefið
og fararstjóri verður Einar S.
Einarsson, forseti Skáksambands
íslands, sem jafnframt mun sitja
þing Alþjóðaskáksambandsins,
bæði fyrir hönd islenska og
danska skáksambandsins.
Höfn:
Síld-
veiöin
treg.
Kás — „Það er heldur litið að
frétta af okkur hérna. t dag
var landað um 800 tunnum af
sild, sem er sáralitið miðað
við fjölda þeirra báta sem
héðan róa”, sagði Aðalsteinn
Aðalsteinsson, fréttaritari
Timans á Höfn, I samtali við
blaðið I gær.
„Ekki vantar að nóg sé af
sildinni, heldur virðist þetta
vera eitthvert millibilsástand
Hún er óvenju stygg núna
þannig að illa gengur aö veiða
hana. Bátarnir voru hérna rétt
undan landi i nótt, svo sjá
mátti Ijósadýrðina frá þeim
langar leiðir. Hins vegar voru
fjórir eða fimm bátar nokkru
vestar, og fengu þeir reitings
afia”.
Saman-
burður
gerður
á skatt
byrði
- hér og erlendis,
segir
Tómas Árnason
Kás — „I fyrsta lagi hættir
mönnum til að gleyma þvl, að
þeir borga skattana sina eftir
á, þannig að veröbólgan sker
þá niður um 30-40%. t öðru lagi
verða menn að gæta þess, að
rikissjóð verður að reka i
jafnvægi", sagði Tómas
Arnason, fjármálaráöherra I
viötali viö Timann i gær,
þegar hann var spurður að þvi
hvort hann teldi skattabyrði
orðna óhóflega hér á landi.
,,£g hef áður sagt það," sagði
Tómas,” að ég er að láta taka
saman skýrslu um samanburö
á skattbyröi hér á landi og
erlendis. Þegar sú skýrsla
liggur fyrir mun ég skýra frá
þeim samanburði sem þar
kemur i Ijós.”