Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 29. september 1978
á víðavangi
Uppreisn utan
stjómmála-
flokka!
Bókin „Oprör fra midten”,
sem vakiö hefur mikla athygli i
Danmörku, hefur orðiö tilefni
nokkurrar umræöu hér á landi.
Mjög varasamt er aö þýöa nafn
bóka rinnar beint. þvi „Uppreisn
miöjumanna” gæti gefið
einhverjum þá röngu hugmynd,
aö hér væri á ferðinni einhver
boöskapur i ætt viö stefnu
Framsóknarflokksins. Meö
nafni bókarinnar er hins vegar
veriö aö gefa til kynna, aö hún
byggi ekki á „heföbundnum”
öfguni til vinstri og hægri, aö
boöskapur liennar er óbundinn
beinum stjórnmálalinum. Þetta
er mjög mikilvægt, þvi orða-
leikur meö nafn bókarinnar get-
ur beinlinis aftraö mönnum i
þvi, að skoöa hvað hún hefur að
boða.
Höfundar bókarinnar eru þeir
Niels I. Meyer, Helveg Petersen
og Villi Sörensen. Meyer var
nýlega staddur hér á landi til aö
kynna bókina. Viö þaö tækifæri
hafði l>jóöviljinn viö hann
viötal, sem birt var sl. sunnu-
dag. Fara glefsur úr því hér á
eftir:
ítök alþjóðlegra auð-
hringa hverfi
— Þið segiö i bókinni aö öll
stórfyrirtæki eigi aö vera al-
menningseign. Trúiö þiö aö
hægt sé aö yfirtaka þessi fyrir-
tæki á friðsamlegan hátt? _
— Hugmynd okkar er aö
kaupa fyrirtæki sem nú eru f
eigu alþjóölegra auðhringa og
losna þannig viö ítök þeirra I
landinu. Þessi kaup má annaö
hvort kalla borgun eöa skaöa-
bætur. Um þessar mundir er
danskt stórfyrirtæki aö vinna
oliu oggas úr Norðursjó, en ekki
hafa veriö gefin nein loforö um
aö Danir muni njóta góös af
þessum orkugjöfum. Rætt hefur
verið um að þjóönýta fyrir-
tækið, til að tryggja að afuröirn-
ar fari á danskan markaö, og
má þvi kannski segja aö hug-
myndir þær sem fram koma i
bókinni, eigi viö þegar i dag.
Ég get ekki séö að fyrirtæki
geti veitt viönám, ef ákveöiö
væri að þjóðnýta þau, þ.e. gegn
fyrrnefndri borgun. Fyrirtæki
eru yfirleitt i eigu hluthafa en
ekki einstakra manna. Fjár-
magniö i eigu þeirra er ekki
vopn, og ég get ekki trúaö þvi aö
fyrirtækin eigi vopnaðan her-
afla. Þar af leiðandi gætu þau
ekki gripið til vopna og variö sig
gegn kröfum þjóöfélagsins...
Hervarnir i algjöru
lágmarki
— t fyrirlestrinum sem þú
hélst I Norræna húsinu nefnd-
iröu aöskera ætti niöur fjárveit-
ingar til hermála og mætti verja
80% af þvi sem nú fer i herinn til
hjálpar þróunarlöndunum. Þú
minntist lika á aö sennilega yröi
ykkur hent út úr NATO ef þess-
ar ráöstafanir yrðu gerðar.
— Já, ég sagði það nú meira í
grini. Satt aö segja efast ég um
að okkur yröi hent út úr banda-
laginu, ef við skærum niður
herflota okkar, enda væri
bandamönnum okkar varla
nokkur akkur f þvi. Ef litiö er á
tsland sem ekki á eigin her, má
segja að félagsgjald ykkar sé
hluti af landi ykkar. Þaö er
óeðlilegt aö svo miklum pening-
um sé eytt i herbúnaö, þó ekki
væri nema vegna þess að við
sem borgum vopnin yröum fyrst
drepin ef til styrjaldar kæmi.
Okkar hugmynd er aö hafa
hervarnir I algjöru lágmarki og
þá aöallega i formi landhelgis-
gæslu og þess háttar.
Borgaralaun fyrir enga
vinnu
— 1 bókinni „Oprör fra
midten” variö þið viö þróun
þeirri sem á sér staö I nútíma-
þjóðfélagi. Er skoöun ykkar aö
skera eigi niður einhver þau
lifsgæöi sem fólk býr viö I dag?
— Hjá sumum þjóöfélagshóp-
um, já. Mjög mikill munur er á
rikasta manni landsins og þeim
fátækasta. Jafna þarf þennan
mismun, meöal annars með aö
skera burt efstu toppana. t dag
er gengið hömlulaust i náttúru-
auðlindir jaröarinnar, en var-
lega þarf að fara í þær.sakir, og
miða neyslu nútimaþjóðfélags-
ins við það sem raunverulega
stendur til boða.
Við minnumst á atriöi i bók-
inni sem viö köllum borgara-
laun. Þau fá allir þegnar
þjóöfélagsins, án tillits til þess
hvort viðkomandi vinnur eður
ei. Borgaralaunin eru rétt nægi-
Ieg til að fólk geti lifað af þeim,
þaö er aö segja haft i sig og á.
Meö þessu móti yröi fólki frjálst
aö vinna. Ef fólk vildi veita sér
eitthvaö, segjum til dæmis aö
fara i ferðalag eða kaupa sér
einhver verömæti yröi það að
vinna.
Meö þessari hugmynd um
borgaralaun teljum viö aö fólk
yröi sett undir sama hatt, hvort
sem þaö stundaði andlega eöa
likamlega vinnu. Listamanni
veröur gert kleift aö stunda sina
iön, án þess aö vera undir
markaðnum kominn. Hann get-
ur ráöiö því sjálfur hvort hann
selur listaverk sin eöa gefur
þau. Ef listamanni gengur vel
og hann nýtur vinsælda, má
hann njóta þess. Ef rithöfundur
skrifar metsölubók má hann
græöa peninga á skrifum sinuin.
Valdið úr höndum sér-
fræðinga
— Hvert er hlutverk rikisins I
þjóöfélagi ykkar þremenning-
anna?
— Rikið á ekki að vera rikis-
bákn. Akvarðanir eiga að koma
að neðan i jafn rikum mæli og
unnt er. Fólkið á að velja yfir-
menn sina en þeir eiga ekki aö
vera valdir af rikinu.
Þingið fer með stærri mál
sem varöa alla þjóöina I heild,
svo sem utanrikismál. Hinn al-
menni borgari á þó að geta haft
áhrif á störf þingsins milli kosn-
inga, annaö hvort meö þjóðar-
atkvæöagreiösiu eða ályktunum
og ábendingum.
Æskilegt er að ákvaröanir og
framkvæmdir annarra mála
fari fram með sem virkastri
þátttöku allrar þjóðarinnar.
Bæjarfélög og hverfasamtök
annist þau mál i staö fjarlægra
stjórnenda sem fólk þekkir aö-
eins af sjónvarpsskerminum.
Meö þessu móti gæti hinn al-
menni borgari haft meiri áhrif
og fylgst betur meö hvaö er að
gerast, hvernig og hvers vegna.
Valdiö á að færast úr höndum
sérfræðinga, sem halda hlutun-
um leyndum og reyna ekki aö
auka skilning fólks.
i lok viðtalsins við Þjóðvilj-
ann segir Niels Meyer uni blaö,
sem þeir félagarnir hyggjast
gefa út fyrir þá peninga, sem
koma inn fyrir bókina: „Viö
vonumst til að_ geta drifið fólk
upp úr dægurmálum sem nú
eiga hug þcss allan og fengið
þaö tii aö hugsa lengra fram I
timann. Náttúruauðlindir eru
ekki botnlausar og viö verðum
að gera okkur grein fyrir á
hvaöa leið viö erum og hvert
hún liggur, i von um aö geta
breytt um stefnu áöur en allt er
komiö i óefni.”
. —SS
HORLAND FYLKESKOMMUNE, Norge
FYLKESSJUKEHUSET/SJUKEHEIMEN
Ljósmæður óskast
Við fæðingardeild sjúkrahússins hefur
verið ákveðið að bæta við tveim ljósmæðr-
um.
Gætir þú hugsað þér að starfa á slikri
deild i ómenguðu iðnaðarhéraði á
Hardangri?
Ef svo er, þá bjóðum við þig velkomna
hingað.
Hægt er að stunda hollt útilif i viðáttum
Harðangurs, sumar og vetur. Bústaður 20
minútna ferð frá vinnustað — og
sjúkrahúsið aðstoðar við útvegun
húsnæðis.
Laun eru samkv. kjarasamningum opin-
berra starfsmanna i Noregi, launaflokkar
10-17, allt eftir aldri og starfsreynslu.
Norskar kr. 57.593-78.145 á ári.
Fyrirspurnum, simleiðis eða bréflega, -
óskast beint til hjúkrunarstjóra.
Umsóknir, ásamt prófskirteini og
meðmælum, skulu sendar til:
Sjeffsjukepleier ved Fylkessjukehus-
et/Sjukeheim i Odda,
5750 Odda
Norge.
Simi (054) 41022
Til upplýsingar fyrir fjölskyldufólk skal
þess getið, að völ er á störfum i margvis-
legum greinum málmiðnaðar i héraðinu.
Ráðast úrslitin í dag?
Vel kann svo aö fara, aö úrslitin
i maraþoneinvíginu f Baguio ráö-
ist i dag. Þegar 27. einvfgisskákin
fór I biö i gær var staöa Karpovs
svo vænleg, aö jafnvel aöstoöar-
menn Kortsnojs örvæntu. Enski
stórmeistarinn R.D. Keene, sagöi
t.d., aö ekkert nema heppni gæti
bjargaö Kortsnoj, og argentfnski
stórmeistarinn Oscar Panno, sem
einnig er aöstoöarmaöur Korts-
nojs sagöi meö óræöum svip:
„Allt getur gerst i biöstööum,
jafnvel umslögin meö innsiglaöa
leiknum geta týnst”.
Út úr byrjun skákarinnar fékk
Kortsnoj mun þægilegra tafl, en
Karpov tefldi vörnina óaöfinn-
anlega og þegar áskorandinn var
kominn i bullandi timahrak lék
hanngróflega af sér.tapaöi peöi,
og trúlega skákinni.
27. skákin
Hvitt: V. Kortsnoj
Svart: A. Karpov
Enski leikurinn
1. c4 — Rf6
2. Rc3 — e5
3. Rf3 — Rc6
4. g3 — Bb4
5. Rd5
(Óvenjulegur leikur i þessari
stöðu. Algengara er 5. Dc2, eöa 5.
Bg2)
5. - Rxd5
(Stofnar til mikilla uppskipta,
5. — Bc5 kom einnig vel tií
greina).
6. cxd5 — Rd4
7. Rxd4 — exd4
8. Dc2 — De7
9. Bg2
(Auövitaö ekki 9. Dxc7 — De4!
og svartur stendur betur).
9. - Bc5
10. 0-0 — 0-0
11. e3 — Bb6
12. a4 — dxe3
(Nú fær hvitur fallegt miöborð,
en hjá þessum kaupum fékk
svartur varla komist til lengdar).
13. dxe3 — a5
14. Bd2 — Bc5
(Ferðalag þessa biskups er orð-
ið æriö langt. Hvitur hefur nú
óneitanlega rýmri og þægilegri
stööu, en eins og svo oft áöur i
þessu einvigi á Kortsnoj engan
veginn auðvelt meö að notfæra
sér yfirburði sina).
15. Bc3 — d6
16. Dd2 — b6
17. Hfel — Bd7
18. e4 — Hfe8
19. Khl — c6!
(Agætur leikur, sem sundrar
hvita peöamiðboröinu og jafnar
taflið að mestu. Nú féll Kortsnoj i
þunga þanka og hugsaöi um
næsta leik sinn i 45 minútur. Þá
áttihann aöeins 25'minútur eftir á
20 leiki).
20. e5 — cxd5
21. Bxd5 — Had8
Hefurðu áhuga
á kvikmyndagerð?
Stofnfundur Samtaka áhugamanna um kvikmyndagerö
veröur haldinn laugardaginn 30. sept. I Tjarnarbiói kl. 14.
Allir áhugamenn velkomnir.
Undirbúningsnefndin.
22. Df4 — Df8
23. Df 3 — dxe5
24. Bxe5 — Bg4!
(Annar mjög góður leikur. Nú
verður Kortsnoj aö fara i
biskupakaup og þá er mesti
broddurinn úr stöðu hans).
25. Dxg4 — Hxd5
26. Bc3 — Hed8
(Ekki 26. — Hxel+ 27. Hxel —
Bxf2??, 28. He8 og vinnur).
27. Kg2 — Bd4
28. Hacl — g6
29. De2 — g6
29. De2 — Dd6
30. Bxd4 — Hxd4
31. Db5??
(Herfilegur afleikur, sem kost-
ar peð. Eftir 31. b3 þurfti hvítur
ekkert aö óttast, t.d. 31. — Hd3,
32. Hbl — Db4, 33. Hedl!).
31. — Hb4
32. He8+ — Kg7
33. Hxd8 — Dxd8
34. De2 — Dd5+
35. f3 — Hxa4
(Nú átti Kortsnoj aðeins tvær
minútur eftir af umhugsunartima
sinum).
36. Hc2 — Hd4
37. De3 — b5
38. h4 — h5
39. De2 — a4
40. De3 — b4
41. Hf2
1 þessari stööu lék Karpov biö-
leik. Hann hefur óneitanlega góöa
vinningsmöguleika, en kannski er
of mikiö sagt að segja stööu hans
beinlínis unna. JónÞ.Þór.