Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 21

Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 21
Föstudagur 29. september 1978 (sMÍÍÍJiili 21 Bókaflóðið aldrei stærra en í ár? Eftir öllum líkum að dæma mun bókaflóðið i ár verða stærra en nokkru sinni fyrr. Tim- inn hringdi til nokkurra útgefenda spurði hvers væri að vænta og fara svör þeirra hér á eftir: Hrólfur Halldórsson hjá Menningarsjóði sagöi að í heild væri útgáfan lik og undanfarin ár, — og þó hefði hún ef til vill aldrei verið stórkostlegri en núna vegna hinnar miklu Kortasögu Is- lands II., sem fjallar um timabil- ið frá dögum Guðbrandar Þor- lákssonartil ársins 1848. Þetta er stórkostlegtverk^agði Hrólfur og ber höfuö og herðar yfir aðrar bækur, sem við gefum út. — Þess má geta aö Kortasaga I. kom út árið 1971. Hún nær frá upphafi til loka 16. aldar. Hrólfur sagði einnig aö alfræöi- bókin i ár fjallaði um læknisfræöi og væri eftir Guðstein Þengilsson lækni. Þá nefndi hann tslensk plöntuheiti eftir Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum, og siðast en ekki sist Alþingismannatalið sem er nýlega komið út. Aðalgreinin i Andvara i ár er eftir Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli og fjallar um Hermann heitinn Jónasson fyrrv. ráöherra. „Meira en nokkru sinni fyrr” — Þetta verður meira en I fyrra sagöi örlygur Háifdánarson þeg- ar hann var spurður hvað væri á döfinni hjá bókaútgáfunni Erni og örlygi. — Viö gefum út fleiri is- lenskar skáldsögur en nokkru sinni fyrr, sagði örlygur, þær verða fimm núna og yfirleitt er meira af islensku en þýddu efni I ár. íslenska efnið er greinilega i sókn. Meöal þessa innlenda efnis má nefna bókina Þjóðllfsþætti eftir Pál Þorsteinsson fyrrv. al- þingismann. Þá nefndi örlygur alveg sérstaklega fjóröa og siðasta bindið af aidurminning- um séra Gunnars Benediktsson- ar, tiunda bindi bókaflokksins Þrautgóöir á raunastund eftir Steinar J. Lúðviksson. endur- minningabókina Astir i aftursæti eftir Guðlaug Guðmundsson en það eru endurminningar leigubil- stjóra frá striðsárunum. Og siðast en ekki sist sagöist örlygur Hálfdánarson vilja nefna bók Ólafs á Oddhóli, Afram með smérið.piltar. örlygur sagði að þar færi Ólafur tviefkiur að fróð- leik og skemmtan. — Viö gefum snöggtum meira út núna en i fyrra, sagði Jóhann Vaidimarsson hjá Iðunni, þegar hann var spurður, — og vafalaust meira en nokkru sinni fyrr, bætti hann við. Hann sggði einnig að Iö- unn myndi nú, eins og áður, gefa út bæöi þýddar bækur og frum- samdar á islensku, og hann taldi að aukningin væri álika mikil i hvorum flokkinum um sig. Þá lét hann þess og getiö að útgáfubæk- ur Iðunnar væru eins og jafnan áður mjög blandaðar: skáldrit, fræðirit og barna- og unglinga- bækur. Innlendir höfundar og efni Böðvar Pétursson hjá Helga- felli sagöi: Hjá okkur veröur álika mikiö gefiö út og undanfar- in ár og það er nær eingöngu efni eftir innlenda höfunda. Hafsteinn Guðmundsson,fram- kvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Þjóðsögu, sagði: — Hér verður útgáfan sist minni en að undan förnu, og það er eingöngu innlent efni, þjóðsagnaefni og margt fleira, þar á meðal fyrsta bindið af Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússon- ar. Svar Eiriks Hreins Finnboga- sonar hjá Almenna bókafélaginu var á þessa leiö: — Það verður mikið gefið út hér i ár, og mun meira en i fyrra en talsvert er af endurprentunum. Efnið er marg- vislegt.bæði eftir innlenda og er- lenda höfunda og bæðiskáldrit og ' annars konar efni. Nýjar islensk- ar skáldsögur eru tvær, þrjár þýddar skáldsögur og fjórar ljóöabækur, ein endurminninga- bók og ein ferðasaga. þrjár barnabækur, eitt leikrit og nokk- uð af fræðibókum. Auk þess eru svo átta bækur i Bókaklúbbi Al- menna bókafélagsins en þær eru ekki á almennum markaði. Þorieifur Hauksson hjá Máli og menningu sagöi: — Hjá okkur verðurgefiðúttalsvertmeiraen i fyrra og aukningin er mest I is- lenskum skáldritum. Við gefum út ljóðabækur eftir ólaf Jóhann Sigurðsson, Guðberg Bergsson og Hannes Sigfússon, skáldsögur eftir Guðlaug Arason, Ólaf Hauk Simonarson og Úlfar Þormóðsson og smásagnasafn eftir Böðvar Guömundsson. Haldiö veröur áfram að gefa út bækur Heine- sens i þýöingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. Sú þeirra sem núna kemur út,' heitir Fjandinn hleypur i Gamaliel,en alls veröa gefnar út fjórar þýddar skáldsögur og tvær þvddar barnabækur hjá Máli og menningu i haust. Þá mun Mál og menning einnig senda frá sér rit- gerðasafn eftir Einar Olgeirsson fyrrv. alþingismann. Geir S. Björnsson hjá Prent- verki Odds Björnssonar á Akur- eyri sagöi að bókaútgáfan hjá þeim yrði lik og i fyrra. Við gefum út ejtirtaldar fjórtán bækur á þessu ári sagði hann: Um margt að spjalla eftir Valgeir Sigurðs- son. Það eru fimmtán viðtals- þættir. Þá er bók eftir Erling Daviðsson. Hún heitir Nói báta- smiður og er endurminnningar Kristjáns Nóa Kristjánssonar bátasmiðs á Akureyri. Skoðað i skrinu Eiriks Isfeld á Hesteyri i Mjóafirði eru þjóösögur, ævin- týri, frásagnir af dulrænum fyrir- bærum o.fl. Jón Kr. ísfeld hefur búið bókina til prentunar. Næst koma þrjár skáldsögur: óskason- urinn eftir Ingibjörgu Sigurðar- Framhald á bls. 23 Grettis saga í nýjum búningi — Ætluð til kennslu i skólum Grettissaga er komin út I nýj- iö ákatlega vinsæl á Islandi. um búningi hjá bókaútgáfunni Vinsældir sinar á sagan ekki að- Skuggsjá I Hafnarfiröi og hefur eins þvi að þakka að hún er Skúli Benediktsson annast út- ágætlega rituð og fjölbreytt að gáfuna, en hann hefur áður séð efni heldur og þvi að hún er al- um hliðstæða útgáfu á Gísla þýðlegust allra sagna.” sögu Súrssonar. 1 þessari nýju útgáfu Grettis Iformála Guðna heitins Jóns- sögu eru efnisskýringar neöan sonar að Grettis sögu (Islensk máls, viö hvern kafla fyrir sig fornrit VIII. bindi) segir svo: og hverja siöu og auðveldar það „Grettis saga hefur alla tiö ver- mjög notkun bókarinnar. L ®andákóii QjiHinðar (§7(ákomrðoimi „DANSKENNSLA" í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði. Innritun daglega frá kl. 10-12 og 1-7. Börn — ungl-fullorðnir (pör eða einst.) Kennt m.a. eftir Alþjóðadanskerfinu einnig fyrir: Brons — Silfur — Gull. ,,At- hugið” ef hópar svo sem félög eða klúbbar hafa áhuga á að vera saman i timum, þá vinsamlega hafið samband sem allra fyrst. Nýútskrifaðir kennarar við skólann eru Niels Einarsson og Rakel Guðmunds- dóttir. — Góð kennsla — Allar nánari upplýsingar i sima 41557 Bændur Vil kaupa notaðan mjólkurtank 800-1200 litra. Upplýsingar i sima 27460 Reykjavik. nPÍl ÍÍIiill Kennara vantar við grunnskóla Tálknafjarðar. Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 94- 2537 eða 94-2538. Skólanefndin. Orkustofnun vill ráða sem fyrst starfsmann til bók- haldsstarfa. Reynsla i tölvuvinnslu æskileg. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Orkustofnun Laugaveg 116 Reykjavik eigi siðar en 5. okt. n.k. Skrifstofustjóri - fulltrúi óskum eftir að ráða skrifstofustjóra, sem jafnframt er fulltrúi kaupfélagsstjóra. Góð ibúð til reiðu. Abyrgðarstarf, sem gefur góða mögu- leika. Skriflegar umsóknir, er greini ald- ur, menntun og fyrri störf, sendist til Halldórs K. Halldórssonar kaupfélags- stjóra, eða Baldvins Einarssonar, starfs- mannastjóra Sambandsins Kaupfélag Vopnfirðinga ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAk'VINNUFÉLAGA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.