Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.09.1978, Blaðsíða 6
6 Kiistiidaf'ur 29. septemher l!»7S Otgefandi Kramsóknarflokkurinn V Krainkvæmdastjóri: Kristinn Kinnbogason. Kitstjórar: Pórarinn t'órarinsson og Jón Sigurósson. Auglýsinga- stjóri: Steingrlmur Gislason. Kitstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Slöunnila 15. Sfmi 8«:ioo. . ' . Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86:187. Verft i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Erlent yfirlit Oliugróði Norðmanna minni en áætlað var Allar áætlanir hafa fariö úr böndunum List hins mögulega Gott dæmi um nauðsyn þess að heildarendur- skoðun islensku stjórnarskrárinnar ljúki hið fyrsta ' eru þær umræður sem að undan förnu hafa átt sér stað um réttmæti skattauka til að ráða bót á tima- bundnu neyðarástandi i efnahagsmálum. Það hef- ur komið fram að einhverjir telja að með slikum efnahagsúrræðum sé þröngvað að mannréttindum i landinu, og er sjálfsagt og brýnt að um slikt efni sé fjallað við endurskoðun stjórnarskrár, svo mikilsvert sem það er, einkum ef i ljós kemur að meirihlutavilji er fyrir takmörkun á umboði stjórnvalda að þessu leyti. 1 þessu sambandi ber að hafa það i huga að hinar umdeildu efnahagsaðgerðir nú eru timabundnar aðgerðir til þess eins ætlaðar að koma i veg fyrir atvinnuleysi og gjaldþrot fyrirtækja. Af sam- starfsyfirlýsingu rikisstjórnarinnar verður það alls ekki lesið að það sé stjórnarstefna að auka skattaálögur til frambúðar, heldur er þvert á móti tekið sérstaklega fram að strangt aðhald verði haft með rikisfjármálunum, upp verði tekin stjórnun á fjárfestingarmálum almennt og rikis- umsvifum haldið innan ákveðinna marka af efna- hagslifi og þjóðartekjum. Að þessu leyti er reyndar talsverður munur á núverandi rikisstjórn og fyrri vinstristjórnum, sem lögðu áherslu á auknar framkvæmdir og aukna einkaneyslu i stefnuyfirlýsingum sinum. í þessu sambandi er réttmætt að enn einu sinni sé á það minnt að núverandi rikisstjórn var mynd- uð á elleftu stundu og vitað að fram undan voru óskapleg efnahagsvandræði i upphafi september- mánaðar, ef ekki yrði gripið tafarlaust i taumana. Forsætisráðherra hefur sjálfur komist svo að orði á almennum og fjölmennum fundi i Kópavogi nú i vikunni að samstarfsyfirlýsing stjórnarflokkanna hafi verið „unnin i akkorði án bónus” vegna þess að skipið hafi ekki verið „komið lengra en i mesta lagi i hafnarmynnið” þegar honum var loks falið það verkefni að koma saman rikisstjórn. Og forsætisráðherra bætti þvi við að meðal ann- ars af þessari ástæðu væri það eðlilegt og æskilegt að samstarfsyfirlýsingin yrði endurskoðuð með tilliti til framtiðarstefnumála nú um næstu ára- mót, þegar hinar fyrstu efnahagsaðgerðir hafa komið fram allar og skilað árangri. Það er oft sagt að stjómmál séu „list hins mögu- lega” en ekki i reyndinni leikur að háleitum hug- sjónum. Nokkuð mun vera til i þessu, og mega menn þó aldrei missa sjónar á þeim hugsjónum og langmiðum sem vaka fyrir allri þjóðnýtri stjórn- málastarfsemi. Hinu verður sjálfsagt ekki neitað að það kann að vera vandinn meiri fyrir þá stjórn- málamenn sem gengu fram undir glæstum gunn- fánum og unnu fagra sigra með fagurgala sinum að standa nú andspænis þeim gráa og kuldalega efnahagsveruleika sem slútir yfir þjóðlifinu á þessu hausti. JS KINS 0(1 döur hefur veriö sagt frá hér i blaöinu, setti norska rikisstjórnin nýlega bráöabirgöalög um bindingu verölags og kaupgjalds næstu 15 mánuöi eöa til ársloka 1979. A þeim tima má hvorki hækka kaupgjald eöa verölag, nema á innfluttum vörum. Gert er ráö fyrir að þetta muni rýra kaup- mátt meðallauna um 4% á um- ræddu timabili. Þótt ýmsum kunni að þykja þaö ótrúlegt.er oliugróöinn sem Norömenn hafa gert sér vonir um, ein helzta orsök þessara ráðstafana. I trausti þess aö mikill gróöi af oliuvinnslu úr hafsbotni myndi koma til sög- unnar innan skamms tima, hef- ur rikisstjórn Verkamanna- flokksins veriö ógætnari i efna- hagsmálum en hún heföi senni- lega verið ella. Kaupgjald hefur verið látið hækka og fram- leiöslukostnaður þvi orðiö meiri i Noregi en i samkeppnislöndun- um, t.d. Vestur-Þýzkalandi. Jafnframt hefur ekki verið skeytt um.þótt mikill halli hafi oröið á verzlunarjöfnuöinum. Norömenn hafa safnað gifurleg- um skuldum erlendis siöustu ár- in. Allt hefur þetta verið byggt á þvi, að oliugróðinn myndi bæta úr þessu, þegar hann fær aö renna i þjóöarbúiö. Nú eru hins vegar allar horfur á að hann verði minni og komi siöar til skila en sérfræðingarnir höföu áætlaö. Jafnframt hefur reynzt miklu dýrara að byggja vinnslustöövarnar en áætlað haföi verið. Margt i þessum efn- um minnir óneitanlega á Kröflumálið hér. Rikisstjórnin hefur gripiö til áöurnefndra efnahagsráöstaf- ana að verulegu leyti vegna þess.aö áætlanir hafa brugðizt varöandi oliuvinnsluna og oliu- gróðann. ÞAÐ MA nefna sem dæmi um þetta.aö áætlað var fyrir þrem- ur árum aö þaö myndi kosfa um 14,4 milljaröa norskra króna aö koma upp fullnægjandi vinnslu- stöövum á Statfjordsvæöinu Odvar Nordli forsætisráöherra svonefnda. Nú er hins vegar oröiö ljóst aö kostnaðurinn verður minnst 35 milljarðar norskra króna. Siöustu tölur, sem hafa verið greindar i þess- um efnum,varða vinnslustöðina, sem er kölluð Statfjord B. 1 desembermánuði siöastl. var áætlaö aö hún myndi kosta sjö milljaröa norskra króna. Nú er þessi áætlun komin upp i 10 milljarða norskra króna. Þessu verki á ekki að verða lokiö fyrr en 1981 og þykir ekki ósennilegt ef dæmt er eftir fyrri reynslu að þessi siöasta áætlun eigi eftir að hækka mikið á þeim tima. Þaö eru aö sjálfsögöu margar ástæöur, sem valda þessum hækkunum. Oliuvinnsla á hafs- Per Kleppe fjármálaráöherra botni er enn svo ný af nálinni og aðstæöur svo mismunandi aö erfitt er aö áætla kostnaöinn fyrirfram. Nýjar og nýjar öryggiskröfur eru alltaf að koma til sögunnar og hækka að sjálfsögöu kostnaöinn. Einstak- ar framkvæmdir tefjast af ýms- um ástæöum og drátturinn.sem hlýzt af þvi,eykur kostnaöinn á margan hátt. Margt fleira sem ekki hefur veriö fyrirsjáanlegt i upphafi, hefur aukiö kostnaö- inn. HIN mikla kostnaðarhækkun, sem hefur hlotizt af framan- greindum ástæöum, veldur aö sjálfsögðu þvi að tekjurnar, sem búizt er viö af oliuvinnslunni, verða bersýnilega stórum minni en áætlað haföi veriö i upphafi. Samkvæmt slðustu áætlun veröa tekjurnar, sem reiknaö er með af oliuvinnslunni á árunum 1978-1981, um þriöjungi minni en áætlaö haföi veriö i upphafi. Þessi mikla lækkun stafar ekki eingöngu af þvi, að fram- kvæmdirnar hafa oröiö dýrari en reiknaö var meö. Þær stafa einnig af þvi,aö oliuverðiö hefur hækkaö minna en spár bentu til fyrst eftir oliuveröhækkunina miklu veturinn 1973-1974. Trúin á hinn mikla oliugróöa byggöist ekki sizt á þvi,aö oliuverö myndi fara sihækkandi. Norömenn sjá nú aö þeir hafa treyst um of á oliugróðann. Oliuvinnsla úr hafsbotni er meiri erfiöleikum bundin og ekki eins arðvænleg og menn héldu i fyrstu. í þeirri trú hefur stórfelldu fjármagni veriö variö til oliuvinnslunnar og ýmsar aörar atvinnugreinar fengiö minna fjármagn en ella. Nú telja margir.aö betra heföi veriö aö fara hægar i sakirnar og stuðla aö meira alhliöa upp- byggingu atvinnulífsins. Þaö er ékki nýtt aö menn veröi þannig vitrari eftir á, alveg eins og i sambandi viö Kröflu,en segja má,aö þar lögöu menn inn á að ýmsu leyti nýja og litt þekkta braut eins og i sambandi viö oliuvinnsluna. Ýms ljón hlutu aö veröa i veginum i báöum tilfell- um og reynslan,sem fæst viö þaö, getur átt eftir aö verða að gagni og borga þannig óbeint kostnaðinn. þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.