Tíminn - 03.10.1978, Síða 6

Tíminn - 03.10.1978, Síða 6
6 Þriöjudagur 3. október 1978 r Wimvm Otgcfandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrlmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumúla 15. Slmi 86300. Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Erlent yfirlit Skattauppreisn magn- ast 1 Bandaríkjumim Getur leitt til sérstaks stjórnlagaþings Offramleiðsla landbúnaðarvara 1 umræðum um landbúnaðarmálin gætir oft þess misskilnings, að ísland sé eina landið, þar sem landbúnaðarafurðir séu framleiddar umfram þarfir og eðlilega sölumöguleika. Þess vegna sé hér feng- izt við vandamál, sem aðrar þjóðir hafi leyst. Þetta er mikill misskilningur. í nær öllum löndum Vestur-Evrópu er glimt við þetta vandamál. Orsök- in eru miklar og margvislegar framfarir á sviði landbúnaðarins. Meiri og betri ræktun, aukinn véla- kostur, kynbætur o.s.frv. hafa leitt til þess, að land- búnaðarframleiðslan hefur aukizt nær jafnt og þétt i þessum löndum, þótt fólki við landbúnaðarstörfin hafi alltaf verið að fækka. Það sýnir framtak islenzkra bænda, að landbúnaðurinn hér hefur fylgzt vel með þróuninni i þessum efnum. En það hefur hins vegar leitt til þess, að offramleiðsla hefur skapað okkur vanda eins og öðrum. Það er nokkurt dæmi þess, hvernig ástatt er viða annars staðar, að á siðastl. ári var mjólkurfram- leiðslan i löndum Efnahagsbandalagsins 14,5% um- fram þarfir og áætlað er, að hún verði 16% umfram þarfir á þessu ári. Hér er byggt á upplýsingum hins merka enska vikurits The Economist (22. júli). Til þess að mæta þeim vanda, sem þessi offramleiðsla mjólkurafurða veldur, mun landbúnaðarsjóður Efnahagsbandalagsins greiða á þessu ári um 3555 milljarða islenzkra króna i ýmsa styrki til landbún- aðarins. Á næsta ári er gert ráð fyrir, að þessi upphæð verði enn hærri eða 3921 milljarður króna. Við þetta bætast svo ýmsir styrkir til landbúnaðar- ins frá hinum einstöku aðildarrikjum bandalagsins. 1 grein eftir Agnar Guðnason blaðafulltrúa, sem birtist hér i blaðinu siðastl. laugardag, er það upplýst, að Danir hafa nýlega flutt út verulegt magn af smjöri til Kina og fengið fyrir það aðeins 1/3 af heildsöluverði' i Danmörku. Þannig mætti rekja þetta áfram. Offramleiðsla landbúnaðarvara er viðar vandamál en hér. Það er auðveldar sagt en gert að leysa þann vanda. En að þvi er unnið með fullum skilningi bændastéttarinn- ar. Þeir menn, sem eru að predika, að þetta sé aðeins islenzkt vandamál, sýna slika vanþekkingu, að þeir ættu að velja sér annað til að skrifa um, þar sem þekking þeirra er vonandi meiri. Uppsagnir hjá Flugleiðum Það hefur vakið umtal og gagnrýni, að Flugleiðir hafa nýlega ákveðið að segja upp öllu starfsfólki, sem er orðið 67 ára eða eldra. Augljóst er hvað af þvi leiddi ef þessi regla yrði almenn. Fjöldi fullvinnandi fólks yrði þá atvinnulaus innan skamms tima, en þeim landsmönnum, sem ná góð- um aldri og eru vel vinnufærir, fjölgar stöðugt. Þeir, sem höfðu náð 65 ára aldri, voru samkvæmt manntalinu 1977 rúmlega 22 þúsund eða 9,5% lands- manna. Fyrir sjö árum eða 1970 voru þeir aðeins 8.400 eða 4,1% af landsmönnum. Þetta sýnir vel hver þróunin er. Menn lifa lengur og endast betur. Það væri mikil öfugþróun, ef eldra fólk yrði svipt réttinum til vinnu. Þvert á móti, þarf að koma á þeirri verkaskiptingu, að þetta fólk geti haldið áfram störfum. Stórt fyrirtæki eins og Flug- leiðir ætti að hafa forgöngu um slikt. Það myndi auka hróður þess. Þ.Þ. orðinn þekktur um öll Bandarikin. Andstæöingar hans reyndu i fyrstu aö lýsa honum sem .glaumgosa og komu þeirri sögu á kreik, aö enginn þingmaöur liti oftar i spegil en Kemp. Satt mun þaö, aö hann snyrtir sig vel og greiöir sér likt og Kennedy forseti. En hann er allgóöur ræöumaöur, kemur vel fyrir i sjónvarpi og þaö gera einnig kona hans og fjórir synir þeirra. Hann getur þviátteftir aö komast lengra áleiöis á stjórnmálabrautinni. Þrátt fyrir skattafrum- varpið, vill Kemp ekki telja sig i hópi hinna ihaldssamari repúblikana. Hann hefur engar tillögur gert um lækkun útgjalda til að mæta skatta- lækkuninni. Hann og þeir hag- fræöingar, sem eru ráöu- nautar hans, telja þaö óþarft. Þeir segja, aö skattalækkun muni auka svo eftirspurn og veröa einkaframtaki svo mikill hvati, aö heildartekjur rikisins muni ekki lækka. Þaö dregur nokkuö úr skattauppreisninni, hvaö þingkosningarnar snertir, aö fyrir þinginu liggur frumvarp frá Carter forseta um veru- lega skattalækkun, þótt þaö gangi miklu skemmra en frumvarp Kemps. SITTHVAÐ bendir til þess, aö skattauppreisnin veröi til þess aö kvatt veröi saman sérstakt stjórnlagaþing til að gera þá breytingu á stjórnarskránni, aö þingin megi ekki afgreiða fjárlög meö tekjuhalla. Samkvæmt stjórnarskránrfi ber að efna til stjórnlaga- þings, ef tveir þriöju rlkjanna æskja þess. Rikin eru nú 50 og þurfa þvi 34 riki aö krefjast stjórnlagaþings til aö full- nægja þvi ákvasöi, aö stjórn- lagaþing veröi kvatt saman. Þegar hafa 22 þing boriö þessa ósk fram. Þaö þarf ekki nema 12 riki til viöbótar. Þaö þykir ekki óllklegt aö þau bætist i hópinn eftir kosningarnar i haust, en þá fara einnig fram kosningar til fylkisþinganna. Þetta mál mun mjög bera á góma I kosningum til þeirra. Stjórnlagaþing hefur ekki veriö haldiö I Bandarikjunum siöan 1787. Þaö gæti oröiö sögulegt, ef skattauppreisnin leiddi til sliks þinghalds. FLEST bendir til þess aö skattauppreisnin svonefnda muni setja meginsvip á kosningabaráttuna i Banda- rikjunum aö þessu sinni, en I byrjun nóvember fer fram kosning til allrar fulltrúa- deildar Bandarikjaþings og þriðjungs öldungadeildar- innar. Auk þess fara fram all- margar rikisstjórakosningar. Þaö má segja, aö skattaupp- reisnin hafi fyrst orðiö veru- legt kosningamál eftír alls- herjaratkvæöagreiösluna i Kaliforniu siöastl. sumar, þegar samþykkt var meö miklum meirihluta aö lækka fasteignagjöldin i 1% úr 2,5% af fasteignamati. Siðan hefur hún breiözt út um öll Bandarikin og margir fram- bjóöendur i báöum aöal- flokkunum haft hana sem helzta kosningamál sitt i próf- kjörunum, jafnt demókratar sem repúblikanar. Þannig geröust nýlega þau tiöindi, aö Dukakis rikisstjóri i Massa- chusetts féll óvænt i prjófkjöri fyrir keppinaut, Edward J. King, sem hafði gert skatta- lækkun aö aöalmáli sinu. Svipaö geröist einnig i próf- . kjöri i' Minnesota, þar sem barizt var hart um það sæti, sem Hubert Humphrey hafði skipaö i öldungadeildinni. Sigurvegari i þvi prófkjöri varö íhaldssamur demokrati, sem haföi gert skattalækkun að aöalmáli sinu, en fram- bjóöandi fr j ál slyn da ri armsins, sem naut bæöi stuön- ings frú Humphrey og Mondales varaforseta, beiö lægri hlut. SKATTAUPPREISNIN, sem er kennd viö Kaliforniu, beindist fyrst og fremst gegn fasteignaskattinum. Hann hefur þótt leggjast ósann- gjarnast á miöstéttirnar, enda mun andstaöan gegn honum hafa veriö mest hjá þeim. Fasteignagjöldin renna aðal- lega til borga og sveitar- félaga og þvi blandast hann ekki verulega inn i kosn- ingarnar til þingsins. Þar er þaö tekjuskatturinn, sem er einna mest til umræöu. Þar standa repúblikanar aö þvl leyti betur aö vigi, aö tveir þingmenn úr flokki þeirra, Kemp í fulltrúadeildinni og Roth i öldungadeildinni, lögöu Jack Kemp fram á síöastliönu ári frumvörp um þriöjungs lækkun tekjuskattsins. Jack Kemp var upphafsmaöurinn aö þessu. I fyrstu létu hinir eldri og reyndari leiðtogar repúblikana sér fátt um finnast, en eftir því, sem fylgi viö frumvörpin hefur aukizt, hefur flokkur repúblikana gert þau meira og meira að sinu máli. Nú er svo komiö aö þau eru oröin eitt aöalmál repúblikana i kosningabarátt- unni. Kemp getur ekki annað nema litlu af þeim beiönum, sem til hans berast um aö mæta á fundum víös vegar um landiö. Þaö er meira aö segja fariö aö ræöa um hann sem forsetaefni repúblikana. Jack Kemp, sem hefur vakiö stíka athygli á sér meö frumvarpi sinu, er 43 ára gamall. Hann hefur átt sæti I fulltrúadeildinni i átta ár fyrir kjördæmi i New York-rlki. Aður var hann frægur fót- boltakappi og var upphaflega valinn til framboös vegna þess. Litiö hefur boriö á honum i fulltrúadeildinni þangaö til hann flutti skatta- frumvarpiö. Nú er hann Edward J. King. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.