Tíminn - 03.10.1978, Qupperneq 15

Tíminn - 03.10.1978, Qupperneq 15
15 80 ára Guðmundur Guðmundsson bóndi á Efri-Brú í Grímsnesi Þrjú af fjórum börnum okkar hjóna voru á sinni tiö i sveit hjá þeim Guðmundi og Arnheiöi á Efri-Brú sér til ævilangra heilla og aukins þroska til likama og sálar. Þaö voru góöir dagar. Samt minnist ég Guömundar ekki nú á mcrkisafmæli hans af skyldurækni eða til aö greiöa per- sónulega þakkarskuld, þó ærin ástæöa væri til (sú skuld veröur ógreidd hvort eö er), heldur vegna þess aö kærkomiö tilefni gefst til aö minnast mikilhæfs manns meðan hann enn er á meðal vor og megi hann lifa sem lengst og honum liöa sem best. Ekki er svo aö skilja aö áöur hafi ekki margt gott og þarft veriö ritaö um þennan mann viö svipuð tækifæri og þá rakin opin- ber störf hans i þágu sveitar, sýslu og samvinnuhreyfingarinn- ar og stórbóndans ekki heldur látiö ógetið, enda mun ég ekki rifja upp þá löngu og farsælu framkvæmdasögu. Aöeins skal þess getið að Guömundur hefur ætið búiö á föðurleifð sinni, Efri-Brú og gert jöröina aö höfuö- bóli, með konu sinni, Arnheiöi, dóttur héraðshöföingjans Böövars Magnússonar, hrepp- stjóra á Laugarvatni. Hefur nú eldri sonur þeirra Böövar tekið viö jöröinni af foreldrum sinum, en yngri sonurinn, Guðmundur er kennari i heimabyggö sinni, og dæturnar, Ingunn og Steinunn, búsettar i öörum byggöarlögum. 011 bera þessi börn kynstofnum sinum og uppeldi fagurt og traust vitni eru frjálsleg, heilsteypt og góöviljuð. Enda hefur heimiliö á Efri-Brú verið annálaö fyrir myndarskap gestrisni og menningaráhuga sönglist og samræðugleði, hjálpsemi viö náungann framfarahug i skóla- málum og búnaðarmálum, rækt og tryggð við sögu og menningu þjóðarinnar og trú á framtíöar- sýnir eða hugsjónir, sem breytt hafaoggerbyltsvohögum fólks á tslandi á þessari öld aö kotin hafa orðið að konungshöllum, ein- angrunin að voldugustu félags- hreyfingum, bjargarleysiö aö allsnægtum ogfárra kosta völ að fjölbrautaskólum. Aö þessari þröun frá úrræða- leysibændastéttarinnar á flestum sviöum til alhliöa möguleika i andlegu sem efnalegu tilliti, hefur Guömundur á Efri-Brú stuðlað alla sína ævi og veriö glæstur og óbugandi fulltrúi þeirrar lifs- stefnu sem sigrað hefur alla van- trú, ótrú og úrtölur og lyft sveita- menningunni meö hjálp trúar og tækni hærra i tíö einnar kynslóðar en allar kynslóöir fátæktar og fárra kosta liöinna alda þoröu aö láta sig dreyma um. Ég veit aö þeir voru margir fleiri aldamóta- mennirnir sem sameiginlega lyftu Grettistakinu og breyttu eyðimörkum i unaösdali i likingu talað svo i ytri framkvæmdum sem imennta-og félagsmálasókn vorra tima. En öðrum er ekki gert rangt til þó eins þessara brautryöjenda sé getiö sérstak- lega þegar við á, — þvert á móti, — allra sist þegar þaö er haft i huga að Guömundur á Efri-Brú hefur ætfð veriö manna hógvær- astur og manna seinastur til þess aðhalda sinum þættii samfélags- byltingunni á lofti. En engin ástæöa er til aö leyna þvi aö hann var og er i fylkingarbrjósti vor- manna bændastéttarinnar bæði i sinni sveit og sýslu og á landsvisu bæöi á framkvæmdasviöinu og i liöi hugsjónamannanna. Honum og hans likum i sveit og viö sjó er þaö aö þakka aö „sárin foldar gróa sveitirnar fyllast akrar hylja móa, brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex i lundi nýrra skóga” eins og Hannes Hafstein á i anda á morgni þessarar aldar. Við sem fæddir erum snemma á öldinni munum ranghverfu heillaspárinnar: fátækt og bjargarskort torfkofa og timbur- hjalla til sjávar og sveita lófa- stóra túnbleðla, tros og tilbera- smjör, ævilangt strit innan og ut- anhúss án nokkurrar vélar eða raforku, kreppulán, kotbúskap og þurrabúð. Þægindi voru óþekkt i núverandi merkingu skjólalær- dómur munaöur forréttindafólks, sjúkdómar og fáfræöi hrjáöu mannfólkið tækni var óþekkt orð eins og þægindi flestallar ár óbrúaðar, árin og orfið frumskil- yrði alls mannlifs á þessu landi einangrun staöa á vegalausu landi aöeins rofin endrum og eins og þó ekki nærri alls staöar af landpóstum vermönnum og um- renningum. Ekkert markaös- eða félagssamband aö heitið gæti komiö á milli sveitanna og sjávarsiðunnar, verslunin enn mikils til útlend. En i tiö Guðmundar, afmælis- barnsins á Efri-Brú hefur sú breyting lifshátta þjóöarinnar oröið sem allir þekkja i dag, og svo ólikt er allt þvi sem var aö börn og unglingar trúa alls ekki þvi sem roskið fólk man.telja þær frásagnir skröksögur eöa ævin- týri svo fráleitt viröist þeim hiö liðna. Þeim er næstum vorkunn, þvi að liklega hefur aldrei i heimssögunni oröið önnur eins lifshátta- og lifskjarabylting i tið einnar kynslóðar og oröiö hefur á tslandi i tiö aldamótakynslóöar- innar. Hún ólst upp viö svipaöa tækni og var hér fyrir 1100 árum en átti þátt i aö móta þjóölif sem i öliu er sambærilegt viö daglegt lif iönvæddustu tækniþjóöfélaga tuttugustu aldarinnar og á ein- staka sviöum, svo sem i jaröhita- virkjun stöndum viö flestum framar. Eini bróöir Guömundar á Efri-Brúer Tómas Guömundsson skáld. Allir þekkja hann og dá sem vera ber aö veröleikum. En þeir sem þekkja Guömund dá hann lika bæöi fyrir likamlegt og andlegt atgervi. Hann hefur alla tiö veriö eldhugi i félagsmála- og framfaraviðræöu og jafnframt vikingur til likamlegrar vinnu. Það er táknrænt fyrir lifsviöhorf hans allt aö úr Sogsfossunum við túnfótinn hjá honum tókst fyrst aö framleiöa ljós til aö lýsa fólki á landsvisu og kraft til aö létta oki þungbærasta stritsins af herðum þessen beislun ljóss og orku til að auka öllum almenningi upp- lýsingu og viðsýni og efla fram- kvæmdir til verulegra framfara, hafa ætiö veriö hugsjónir hans. Ég veit ekki hvort Guömundur á Efri-Brú hefur ort kvæði hann hefur a.m.k. ekki flikaö þvi. En allir mega sjá hvaö hann hefur með ævistarfi sinu skrifaö á jörðina og mótaö i mannvirkjum af stórhug, snilld og trú á lifiö. „Þaö er aö elska byggja og treysta á landiö.” (H. Hafst.) Ég hef notið þess aö tala oft við Guö- mund i trúnaöi og þá hefur hann leyft mér aö skyggnast dálitiö undir hönd sina, eins og sagt er aö ófreskir menn leyfi öörum stund- um að gera. Sist vil ég bregöast trúnaði hans meö þvi aö sýna öðrum beinlinis inn i þann heim sem hann opnaöi mér i einlægni en flestaf þvi sem hér hefur verið fest á blaö á óbeinlinis rætur að rekja til þess trúnaöar. Svo mikiö má ég þó segja aö Guðmundur á Efri-Brú telur sig vera gæfumann og um þaö e fast enginn sem þekk- ir hann. Ég býst viö að þakklætiö til forsjónarinnar eöa guðs sem gaf okkur landiö sé honum ævin- lega efst i huga. Guömundur veit margt sem þeir nema aldrei, sem hvorki hafa nærst af blóöfjöðrum landsins frá barnæsku, hlustað á nið vatna þess gegnum svefninn né numiö huldumál hljóðra kletta. Megi huldar og hollar vættir heimaslóöum hans og heimafólki vera með i för hér eft- ir sem hingað til. Engin hollvættur hefur þó reynst Guömundi vini minum á Efri-Brúsllk sem eiginkona hans, Arnheiöur Böðvarsdóttir. Eöa má kannski rekja þaö kvonfang til hollvætta hans? Hver veit? Svo mikið er vist að mikil heill hefur fylgt þeim og mun fylgja á leiöar- enda. Og aldrei nefna v inir þeirra hjónanna annaö án þess aö geta hins. Það segir mikla og fagra sögu. Til hamingju meö daginn. Lifiö heil, góðu vinir. Þess óska ég fyrir mina hönd konu og barna. Emil Björnsson Leðurstóll í verðlaun A Landbúnaöarsýningunni á Selfossi I sumar efndu T.M. hús- gögn til happdrættis i sýningar- bás 'sinum. Þegar dregiö var kom upp númer 15357. Nú hefur vinningshafi gefiö sig fram og vinningurinn, leöurstóll veriö afhentur. Vinningshafi reyndist vera Guömundur Hallgrimsson, Grimshúsum, Aöaldal. A meöfylgjandi mynd sést er Sigfús Gunnarsson verslunar- stjóri hjá T.M. húsgögnum af- hendir stólinn en móöir Guð- mundar, Kristjana Arnadóttir veitti stólnum viötöku fyrir hans hönd. Breyttur afgreiðslutími Aukin þjónusta í hádeginu — tilfærsla síðdegis Frá 1. október 1978 verður afgreiðslutimi bankans þannig: ALMENN AFGREIÐSLA: Mánudaga til föstudaga kl. 9,30-15,30. SÍÐDEGISAFGREIÐSLA: Sparisjóður og tékkareikningar: Mánu- daga — fimmtudaga kl. 17,00-18,00, föstu- daga kl. 17,00-18,30. ALÞÝÐUBANKINN HF. xbanöökólí &)i"n/'ðar Qrlákf’naróana/ „DANSKENNSLA" í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði. Innritun daglega frá kl. 10-12 og 1-7. Börn — ungl-fullorðnir (pör eða einst.) Kennt m.a. eftir Alþjóðadanskerfinu einnig fyrir: Brons — Silfur — Gull. „At- hugið” ef hópar svo sem félög eða klúbbar hafa áhuga á að vera saman i timum, þá vinsamlega hafið samband sem allra fyrst. Nýútskrifaðir kennarar við skólann eru Níels Einarsson og Rakel Guðmunds- dóttir. — Góð kennsla — Allar nánari upplýsingar i sima 41557 - ••••« 2 *• •**• • •* •**% \ 2 | • (h& íh ••*• Mtönm Safnið öllum Björn fjórum ABBA dúkkunum ft UBenny J Leikfangahúsið Skólavörðustíg 10, sími 14806 Sólbekkir Smiðum sólbekki eftir máli, álimda með harðplasti. Mikið litaúrval. Stuttur afgreiðslufrestur. Trésmiðjan Kvistur Súðarvogi 42 (Kænuvogsmegin) Simi 33177 HARÐVIÐARVAL HF Skemmuvegi 40 KÓPAVOGI s;"74111 Grensásveg 5 REYKJAVIK s;847 27 Haröviöarklæðningar Spónlagöar spónaplötur Furu & Grenipanell Spónaplötur Gólfparkett Veggkrossviöur Plasthúöaðar spónaplötur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.