Tíminn - 05.10.1978, Page 3
Fimmtudagur 5. október 1978
Verðum að taka tillit
til veiða útlendinga
á loðnunni
— þegar við reiknum út
veiðiþol hennar, segir
Hjálmar Vilhjálmsson,
fiskifræðingur í samtali
við Tfmann
Kás— RannsóknarskipiB Bjarni
Sæmundsson, er nýkomiö heim
úr leiðangri þar sem ástand og
stærð loðnustofnsins var athug-
uö. Leiðangursstjóri I þessari
ferð var Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur. Við fengum
Hjálmar til að spjalla stutta
stund við okkur um loðnuna
yfirleitt, árangur þessa siðasta
leiðangurs, og í framhaldi af
þvi, hvorthætta sé á þvi að loðn-
an sé að verða ofveidd.
Venjulegar aðferðir
duga ekki
„tupphafi veiddu Islendingar
ekki loðnu nema til beitu. Upp
úr árinu 1965 fóru loðnuveiðar
hins vegar árvaxandi og i rikari
mæli eftir 1972, bæði með til-
komu loðnuveiða á Austfjarða-
miðum á vetrum og sumar-
loðnuveiða síðustu tvö árin. A
siðasta ári veiddum við Islend-
ingar um 800 þúsund tonn af
loðnu. Þess má geta að sildveið-
arnar náðu aldrei þessari tölu,
meðan þær voru og hétu.
Eitt af aðalatriðunum við
fiskirannsóknir er vitanlega aö
afla sér vitneskju eöa þekking-
ar, til aðhægtsé að ákvarðahve
mikið sé af viökomandi tegund i
sjó og hve mikið megi taka af
henni. Eðlilega verða rannsókn-
irnar þeim mun brýnni eftir þvi
sem veiðarnar skipa mikilvæg-
ari sess i efnahagslifinu.
Það er ekki fyrr en á siöustu
árum, að virkilega nauðsyn
fiskileitartæki, höfum við reynt
með litlum árangri þvi þessar
athuganir okkar bentu hins veg-
ar til þess, aö ákjósanlegt
myndi að reyna hana i septem-
bermánuði, bæði með tilliti til
veðurs, isa, og loðnunnar sjálfr-
ar. Var meiningin að gera þess-
ar mælingar i siðasta leiöangri.
Sú tilraun mistókst. Geröi þar
útslagið, að nánast enga loðnu
var að finna. Astæðuna teljum
viö samt sem betur fer ekki
vera þá að loðnan sé að ganga til
þurröar, heldur hafi hún nú ver-
ið miklu dreiföari miöaö við
hefur boriö til að þekkja stærð
loönustofnsins. Viö hér i Haf-
rannsóknarstofiiun höfum lengi
verið aö velta þvi fyrir okkur
hvernig hentugast mundi að
komast aö þessu. Venjulega eru
stofnstæröir tegunda fundnar
með þvi að rannsaka hvernig
háttað er fjölda og umfangi
hinna ýmsu árgangai veiðinni,
frá ári til árs. Hefur aðferðin
gefið góða raun, að þvi er lang-
lifari tegundirnar snertir, t.d.
þorskinn.Við loðnuna er þessi
aöferð ónothæf, vegna þess hve
fáir árgangar eru i veiðinni
hverju sinni. Loðnan verður i
mesta lagi 5-6 ára, ogþá aðeins i
undantekningartilfellum. Við
sjálfar veiðarnar gætir ekki i
raun nema tveggja árganga, þvi
sá yngsti og sá elsti eru svo fá-
liðaðir i afkomu, að þeir veröa
meö öllu ómarktækir.
Ætlum að merkja 30
þúsund loðnur á þessu
ári.
t ljósi þessara reynda, þá
kemur upp sú spurning hvernig
best sé að ákvaröa stærö Is-
lenska loðnustofiisins. Tvær aö-
ferðir koma aðallega til greina.
Báðar velþekktar, önnur lengi
en hin skemur. Það eru annars
vegar merkingar, en hins vegar
stofnstærðarmælingar með
fiskleitartækjum.
I sumar hafa loðnumerkingar
Bjarni Sæmundsson, rann sóknarskip
veriðframkvæmdar á miðunum
út af Noröurlandi, og er nú búiö
aömerkjaum 17þúsund loðnur.
tframhaldi afþvi gerum viðráð
fyrir að merkja fleiri i haust,
þannigaðalltiallt ætti okkur aö
takast að merkja nálægt 30 þús-
und loðnur á þessu Hins vegar
er ekki enn ljóst hver árangur-
inn veröur af þessu starfi. En
hann ætti að liggja fyrir fljót-
lega á næsta ári.
Við höfum áður reynt aö
merkja loðnu, en aöeins að
vetrarlagi. Sú tilraun mistókst,
og fengust engar marktækar
niðurstöður úr henni. Það má
nefna að Norðmenn hafa notað
þessa sömu aöferö við að reikna
út stofnstærð sins loðnustofns.
Þeir hafa ekkert verið að flfka
þeim niöurstöðum, sem bendir
til þess, aö þeim finnist þær ekk-
ert of áreiöanlegar.
Hin aðferöin sem ég nefndi,
þ.e. mæling stofnstærðar með
undanfarin ár en við höfum
reiknaö með.
Þannig svaraði þessi leiðang-
ur sem slikur engu um það
hversu mikið er til af loðnu i
sjónum kringum tsland. Hins
vegar er fyrirhugaður annar
leiðangur isömu erindagjörðum
seinast ioktóber, þar sem reyna
á að bregða ljósi á þetta. Enda
er það ekki siður okkar
Hafrannsóknarmanna að gefast
upp, þótt á móti blási”, bætti
Hjálmar við.
Töldum að langtima-
veiðiþol væri um millj.
tonn á ári
„tslenski loönustofninn er
örugglega stór”,sagöi Hjálmar.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur
„Hann var það a.m.k. á árunum
1971-76. Hins vegar er svo aö
sjá, sem nokkur samdráttur
kunni að vera i nánustuframtið.
Klakrannsóknir benda til þess.
Við hér hjá Hafrannsóknar-
stofnun höfum talið að lang-
timaveiðiþol loðnunnar sé um
ein milljón lesta á ári. A.m.k.
eru hreinar linur með þaö að i
sterkum árgöngum má örugg-
lega veiða þessa einu milljón.
Nú þegar veikari árgangar eru
aðtaka viö, gegnir kannski öðru
máli. Þá vaknar sú spurning,
hvort óhætt muni að veiða svo
mikið. Þetta er hin brennandi
spurningsem viö erum að reyna
að svara þessa dagana.
Verðum að taka tillit til
veiða Norðmanna við
Jan Mayen
Ég held t.d. aö ekki hafi mátt
taka meira af loðnunni á siðasta
ári. Viö höfum lagt til aö meðan
ekki er vitaö meira um stofii-
stærö ioðnunnar og veiðiþol
hennar, þá ætti a.m.k. ekki að
veiöa meira en þessa 1 milljón
lesta á ári.
Nú horfir hins vegar öðru visi
við, þegar Norðmenn eru farnir
að veiöa af islenska loðnustofii-
inum við Jan Mayen. Með þvi
verðum við að fara að taka tillit
til veiða útlendinga á stofninum,
þegar við ákveðum hvað viö
sjálfir megum veiða mikið af
henni. Þvi held ég að timabært
sé að taka upp viðræður við
norsk stjórnvöld um loönu-
veiöar, og hefur Hafrann-
sóknarstofnun sent sjávarút-
vegsráðuneytinu bréf, og vakiö
athygli á þvi”.
Mál grunnskólanna í
SJ — S.l. mánudag efndi fræðslu-
ráð Reykjavikur til árlegs fundar
með skólastjórum grunnskóla i
borginni. Umræðuefni á fund-
inum voru eftirfarandi:
Reykingarvarnarstarf i skólum i
vetur. Skýröi Þorvarður örnólfs-
son framkvæmdastjóri frá þvi.
„Ar barnsins”. Rædd tillaga
Harðar Bergmanns er send hefur
verið skólastjórum.
Skipulagning sundkennslunnar.
Frm. Stefán Krist jánsson,
iþróttafulltrúi.
Kennararáðningar og réttindi.
Frm. stjórnarm. SBR.
Daglegur starfstimi skóla.
Frm. Gunnar Finnbogason skóla-
stjóri.
Hvernig meta skal skólasókn og
vinnubrögð. Frm. Gunnar Finn-
bogason skólastjóri.
önnur mál.
Ifræðsluráði eiga sæti Kristján
Benediktsson formaöur, Þór
Vigfússon, varaformaður, Davið
Oddsson, Elin Pálmadóttir-,
Helga Möller, Hörður Bergmann
og Ragnar Júliusson. Fræðslu-
stjóri I Reykjavik er Kristján J.
Gunnarsson.
Reykjavík rædd
8 sölur
erlendis
Kás — Siðustu daga hafa átta is-
lenskir bátar selt afla sinn
erlendis. Fyrst er aö nefna öldu-
ljón VE sem seldi i Bremerhaven
55 tonn á 17.9 millj. kr., 326 kr.
fyrir kilóiö. Sævik SI seldi á sama
staö 38 tonn i gær, fyrir 9.5 millj.
kr., meðalverö 251 kr.
Hamar SH seldi i Cuxhaven tæp
71 tonn á 19.3 millj. kr., meöal-
verð 273 kr. Vörður ÞH seldi
einnig i Cuxhaven i gær 35.5 tonn,
á I0.2millj.kr.,meöalverö288kr.
Sama segir um Ottó Wathne NS
sem seldi 46.5 tonn á 15.5 millj.
kr., meöalverð 332 kr.
1 fyrradag seldi Þórsnes i Cux-
haven 54 tonn, á 15.8 millj. kr.,
meðalverð 293 kr. Sama dag seldi
Rauðinúpur I Hull 124 tonn á 42.2
millj. kr., meðalverð 340 kr., og
HópsnesGK seldi i Fleetwood 41.1
tonn. Verö á afla siðastnefnda
bátsins hafði ekki borist i gær.
- Auglýsið í
Tímanum